Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 27

Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 27
aði þá á dagróðrum með móður- bræðrum sínum. Hann var í Flatey til 11 ára aldurs. Hann byrjaði að vinna við gæruhreinsun hjá Gefjun er hann var 13 ára, vann í Krossa- nesi í tvö sumur og var síðan nemi hjá Vélsmiðjunni Atla. Eftir námið starfaði hann þar í þrjú ár, vann síð- an í Slippstöðinni í 13 ár og var síðan vélstjóri og vélvirki á togurum hjá Útgerðarfélagi Akureyringa um sex ára skeið. Hann var síðan vélstjóri á bátum frá Hrísey um nokkura ára skeið, starfaði síðan á vélaverkstæði í Hrísey, sinnti síðan viðgerðum og viðhaldi hjá sveitarfélaginu í Hrísey og var síðan vélstjóri á Grímseyjar- ferjunni Sæfara í nokkur ár. Hann var síðan vélstjóri á Hríseyjarferj- unni frá 1993-2000. Þá lenti Bjarni í vinnuslysi og var frá vinnu í þrjú ár. Bjarni kom á laggirnar amboða- smiðju sem framleiðir hrífur og orf árið 2004 og hefur starfað við það síðan. Árið 2007 hóf hann auk þess störf við hvannatínslu fyrir Saga Medica, smíðaði þurrkblásara og fleiri tæki við hvannavinnsluna og hefur annast verkstjórn við tínsluna og vinnsluna í Hrísey: „Ég hef svo verið að þreifa mig áfram með hvannate og hvannakrydd sem unn- in eru úr hvannarfræjunum og lauf- unum. Þetta er nú aðallega til gam- ans gert og í smáum stíl.“ Bjarni keypti sér lítinn bát í fyrra og er nú að gera hann upp: „Ég held þetta sé síðasti báturinn sem Þor- grímur á Hofsósi smíðaði og ég vil endilega koma bátnum og vélinni í þokkalegt stand. Það má því segja að þetta sé áhugamál mitt.“ Fjölskylda Eiginkona Bjarna er Sigríður Magnúsdóttir, f. 11.6. 1944, fyrrv. fiskverkakona. Foreldrar hennar voru Magnús Jóhannsson, sjómaður í Hrísey og fiskmatsmaður í Grundarfirði, og Bára Hallgríms- dóttir húsfreyja. Börn Bjarna frá fyrra hjónabandi eru Stefán, f. 2.4. 1968, verkamaður á Akureyri; Elvar, f. 2.3. 1972, gæða- eftirlitsstjóri hjá Samherja, búsettur á Akureyri, en kona hans er Hildur Haraldsdóttir sjúkraliði og eru börn þeirra Alexandra Ýr, f. 1994; Júlíus Fannar, f. 1998, og Elvar Hólm, f. 2004, og Jónanna Bjarnadóttir, f. 17.7. 1973, listakona og fram- kvæmdastjóri í Garðabæ, en maður hennar er Arnar Stefánsson fram- kvæmdastjóri og eru dætur þeirra Hugrún Greta, f. 2001, og Hjördís Emma, f. 2006, Börn Sigríðar eru Ásta Bára Pétursdóttir, f. 1965, myndlistar- kona á Akureyri; Þórður Pétursson, f. 1971, verkamaður; Bragi Þór Pétursson, f. 1977, sjómaður, og Magnús Ewald, f. 1978, sjómaður. Systkini Bjarna eru Smári Thor- arensen, f. 8.3. 1948, skipstjóri á Hríseyjarferjunni, og Hallbjörg Thorarensen, f. 6.7. 1952, leik- skólastjóri og sérkennari í Reykja- vík. Foreldrar Bjarna voru María Hólmfríður Jóhannesdóttir, f. 13.7. 1920, d. 23.7. 2009, matráðskona hjá Reykjavíkurborg, og Jón Ragnar Thorarensen, f. 6.5. 1914, d. 29.1. 1982, sparisjóðsstjóri á Akureyri. Úr frændgarði Bjarna L. Thorarensen Bjarni Lúther Thorarensen Hólmfríður Tómasdóttir húsfr. á Knarrareyri og á Tindriðastöðum Guðlaugur Jónsson b. á Knarrareyri og á Tindriðastöðum Sigurbjörg Dýrleif Guðlaugsdóttir húsfr. í Fjörðum og í Flatey á Skjálfanda Jóhannes Kristinsson b. í Fjörðum og Flatey á Skjálfanda, frá Geirhildargörðum í Öxnadal María Hólmfríður Jóhannesdóttir verkak. á Akureyri og matráðskona í Rvík Guðrún María Sigurðardóttir húsfr. í Geirhildargörðum Kristinn Magnússon b. í Geirhildargörðum Þórunn Rósa Thorarensen iðnverkak. á Akureyri Freysteinn S. Sigurðsson iðnverkam. á Akureyri Sigrún Sigurðardóttir húsfr. á Neðsta- landi og á Borgum Þórður Thorarensen gullsmiður á Akureyri Jóhannes Jóhannesson sjómaður á Húsavík Guðlaugur Jóhannesson sjómaður í Hrísey Gunnar Jóhannesson vélstj. á Hríseyjarferjunni Hólmdís Jóhannesdóttir aðstoðarljósmóðir á Akureyri Sævar Gunnarsson tækniteiknari á Akureyri Sigríður Freysteinsdóttir húsfr. á Akureyri Jónína Sigrún Pálmadóttir húsfr. á Drangsnesi Ólafur Thorarensen bankastj. á Akureyri Jóhannes Jóhannesson rafvirkjam. á Húsavík Jóhannes Elvar Guðlaugsson hótelstj. í London Sveinn Gunnarsson vélstjóri hjá Álverinu í Straumsvík Lúkas Kárason skipstj. og tréskurðarmaður Bjarni Bjarnason skipstj. á Akureyri Árni Bjarnason skipstj. og forseti Farmanna- og fiskimannasambands Ísl. Kristbjörg Jónsdóttir húsfr. á Skjaldarstöðum Sigurður Sigurðsson b. á Skjaldarstöðum í Öxnadal Hallfríður Sigurðardóttir verkak. í Gefjun á Akureyri Jóhann Lúther Thorarensen b. í Lönguhlíð í Hörgárdal Jón Ragnar Thorarensen verkam., kennari og spari- sjóðsstj. á Akureyri Rósa Jónsdóttir húsfr. Jóhann Stefán Ólafsson Thorarensen b. og smiður í Lönguhlíð ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Ágúst fæddist í Bolungarvík14.9. 1916, sonur Péturs Sig-urðssonar sjómanns og Krist- jönu Þórunnar Einarsdóttur hús- freyju. Fyrri kona Ágústs var Helga Jó- hannesdóttur sem lést 1941 og eign- uðust þau Kristjönu póstfulltrúa og Helga sendiherra. Sonur Ágústs og Maríu Valdimarsdóttur var Emil Pét- ur skipstjóri sem lést í fyrra. Seinni kona Ágústs var Ingveldur Magn- úsdóttur sem lést 2011 og er sonur hennar Hafsteinn B. Sigurðsson bif- reiðarstjóri en dætur Ágústs og Ingv- eldar eru Ásgerður hárgreiðslumeist- ari og Ásthildur skrifstofumaður. Ágúst nam bakaraiðn í Alþýðu- brauðgerðinni í Reykjavík og hlaut meistararéttindi 1942. Hann rak Brauð- og kökugerð í Reykjavík 1944-51 og á Patreksfirði 1951-54, sat í sveitarstjórn Patrekshrepps 1954- 88, var sýslunefndarmaður, oddviti Patrekshrepps 1954-58 og 1978-82 og var sveitarstjóri 1958-63. Ágúst var skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsinu Skildi hf. á Pat- reksfirði en síðast starfaði hann hjá Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar. Ágúst sat í stjórn Bakarasveina- félags Íslands og Bakarameist- arafélags Reykjavíkur, var einn af stofnendum Söngfélagsins Hörpu í Reykjavík, formaður FUJ og sat í stjórn SUJ, sat í flokksstjórn og mið- stjórn Alþýðuflokksins 1942-85, for- maður skólanefndar Iðnskólans og Patreksskólahverfis, sat í stjórn Sjúkrasamlags Patreksfjarðar og í sáttanefnd, var stofnfélagi Lions- klúbbs Patreksfjarðar og formaður hans. Um Ágúst sagði Sighvatur Björg- vinsson í minningargrein: „Ágúst H. Pétursson var fjölhæfur maður. Hann var vel máli farinn og ritfær vel. Hann átti mikið og gott safn bóka og las mikið. Hann var framkvæmda- samur og áræðinn, kappsmaður til verka og frum- kvæðismaður um margt. Hann var jafnvel að sér til handa og hugar, lag- tækur smiður og hlífði sér aldrei.“ Ágúst lést 1.3. 1996. Merkir Íslendingar Ágúst H. Pétursson 90 ára Áskell Torfi Bjarnason Halldóra Þ. Sveinbjörnsdóttir Ragnar Helgason Ríkarður Jóhannsson 85 ára Dadda Sigríður Árnadóttir Marta Kristín Böðvarsdóttir Ólafur Kristján Ólafsson 80 ára Guðrún Karlsdóttir Hallfríður Hermannsdóttir Sigrún Sigurðardóttir 75 ára Alevtina Danko Ása Baldursdóttir Kristín Guðmundsdóttir 70 ára Bjarni L. Thorarensen Guðmundur K. Jónsson Guðrún Sigurðardóttir Marcela M. Ægisdóttir Sigrún Ingólfsdóttir Svanhvít Guðmundsdóttir Sævar Helgason 60 ára Anna Guðrún Bjarkadóttir Anna Guðrún Tómasdóttir Björn Gunnlaugsson Carsten Werner Prasse Hanna K. Hallgrímsdóttir Jakob Rúnar Guðmundsson Jóhann U. Guðmundsson Kristján Ásgeirsson Ragnar Kristinn Sigurðsson Sathian Jaengmuang Sigríður Aradóttir Smári Emilsson Þórhildur Sigtryggsdóttir Þórunn Ólöf Valsdóttir 50 ára Björgvin Sigurðsson Gísli H. Gunnlaugsson Ingibjörg D. Hilmarsdóttir Jóna Hrund Jónsdóttir Jón Már Snorrason Júlíus H. Guðmannsson Lilja Þorsteinsdóttir Pétur Jónsson Ragnheiður H. Eiríksdóttir Sigurbjörg Björnsdóttir Steina J. Hermannsdóttir Vilhjálmur Kári Heiðdal Þorgrímur Björnsson 40 ára Agata Lis Andrzej Krzysztof Bielon Birkir Ívar Guðmundsson Ester Ásbjörnsdóttir Eyrún Harpa Gunnarsdóttir Friðjón Veigar Gunnarsson Ingi Freyr Rafnsson Íris Arnlaugsdóttir Íris Baldursdóttir Íris Ragnarsdóttir Jón Heiðar Víðisson Katarzyna Marta Kocinska Liselotta E. Pétursdóttir Steinunn Gyða Guðmundsdóttir 30 ára Aðalsteinn S. Grétarsson Ástrós Signýjardóttir Daði Þór Jónsson Edda Sif Bergm. Þorvaldsdóttir Hallbera Guðný Gísladóttir Kevin Aneurin Hobbins Kittý Arnars Árnadóttir Kristín E. Guðmundsdóttir Kristján Rafn Rudolfsson Sebastian Pachucki Sindri Kristjánsson Til hamingju með daginn 30 ára Kristín ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk BSc-prófi í líffræði og MSc-prófi í umhverfis- og auðlindafræði frá HÍ og er náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Foreldrar: Heiðrún Guð- mundsson, f. 1957, verk- efnastjóri hjá Norrænu ráðherranefndinni, og Guðmundur Gunnarsson, f. 1954, yfirverkfræðingur hjá Mannvirkjastofnun. Þau búa í Reykjavík. Kristín Elísa Guðmundsdóttir 30 ára Daði ólst upp í Reykjavík, býr þar, stund- ar nám í viðskiptafræði við HÍ og rekur jafnframt bílaleiguna Go Green ehf. Systur: Tinna Jónsdóttir, f. 1983, og Sandra Dís Jónsdóttir, f. 1988. Foreldrar: Jón Daði Ólafsson, f. 1964, fram- kvæmdastjóri hjá Geymslu 1 í Hafnarfirði, og Ásdís Óskarsdóttir, f. 1964, framkvæmdastjóri. Þau búa í Kópavogi. Daði Þór Jónsson 30 ára Aðalsteinn útskrif- aðist frá MÍ. Maki: Jófríður Þorvalds- dóttir Linnet, f. 1982. Þau hafa unnið við Kaup- félagið í Súðavík. Dætur: Mónika, f. 2006; Lára, f. 2008, og Hall- dóra, f. 2013. Foreldrar: Grétar Páll Aðalsteinsson, f. 1964, og Halldóra Pétursdóttir, f. 1966. Stjúpfaðir: Axel Bessi Baldvinsson, f. 1962. Aðalsteinn S. Grétarsson MOSFELLSBAKARÍ Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík s. 566 6145 | mosfellsbakari.is Ert þú búin að prófa súrdeigsbrauðin okkar? Renndu við í Mosfellsbakarí og fáðu þér hollara brauð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.