Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 33

Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2016 Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Fjórar rússneskar kvikmyndir verða sýndar á Rússneskum kvik- myndadögum sem hefjast á morgun í Bíó Paradís, fimmtudaginn 15. september, og standa fram á sunnu- dag, 18. september. Ásamt Bíó Para- dís eru það sendiráð rússneska sam- bandsríkisins á Íslandi, menningar- málaráðuneyti Rússlands og Northern Travelling Film Festival sem standa að hátíðinni. Í fyrsta sinn verður sérstökum heiðursgesti boðið á Rússneska kvikmyndadaga en það er leikstjóri opnunarmyndarinnar, Ferðin til móðurinnar, sem mætir til að vera viðstaddur sýninguna á henni; Mikhail Kosyrev-Nesterov. „Við vildum leggja áherslu á fjöl- breytni og bjóða upp á kvikmyndir sem sýndu ekki aðeins eitthvað eitt úr rússneskri kvikmyndagerð. Sumar hátíðir velja einhvern einn leikstjóra og sýna margar myndir eftir hann en við vildum frekar að á þessum fjórum dögum gætum við sýnt verk fjögurra ólíkra leikstjóra og jafnframt að við værum að sýna bestu myndir þeirra,“ segir Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri Bíó Paradís. Þannig séu myndirnar, þótt allar séu nýlegar, sú elsta frá 2013 og sú nýjasta frá því í ár, ekki endilega þær allra nýjustu frá leikstjórunum sjálfum. Brot af því besta „Rússneskar kvikmyndir eru ekki vel aðgengilegar. Þær eru ekki í al- mennum sýningum hér á landi og ekki hægt að leigja þær á sjónvarps- veitunum svo að Íslendingar hafa fæstir átt þess kost að sjá bestu rússnesku kvikmyndir síðustu ára. Þegar svo er þarf ekki að einblína á að myndirnar séu pottþétt frá því núna í ár heldur er meira hægt að velja,“ segir Ása og bætir við að helst myndu þau vilja hafa heilan mánuð tileinkaðan rússneskri kvik- myndagerð. „Það væri gaman að ná að stækka rússnesku kvikmyndadagana ár frá ári og fá jafnvel tvo gesti á næsta ári,“ bætir Ása við. Marina Yuzhaninova hefur setið í dagskrárráði fyrir hátíðina en hún er rússneskur menningarsérfræð- ingur sem hefur alltaf hrifist af norðurslóðum og unnið í því að bera hróður rússneskrar kvikmyndagerð- ar á þær slóðir. Síðustu viku hefur hún verið á Höfn í Hornafirði, Sauð- arkróki og Seyðisfirði þar sem heimamenn fengu tækifæri til að berja rússneskar kvikmyndir augum og var það hluti af dagskrá Rúss- neskra kvikmyndadaga að vera með sýningar þar. Framundan eru svo sýningar í Háskóla Íslands en 20. og 21. september eiga nemendur þess kost að sjá rússneskar kvikmyndir. „Myndirnar sem valdar voru á Rússneska kvikmyndadaga eru brot af því besta úr rússneskri kvik- myndagerð síðustu árin og verður ein mynd sýnd á dag. Opnunar- myndin á fimmtudaginn, Ferðin til móðurinnar, fjallar um Maxim sem leggur upp í ferðalag til að heim- sækja móður sína sem hefur búið í Frakklandi í langan tíma og hittir þar fyrir hálfsystur sína og úr verð- ur mikil dramatík. Sú mynd hefur unnið fjölda verðlauna á alþjóð- legum kvikmyndahátíðum.“ Á föstudeginum er það myndin Innsýn í leikstjórn Alexander Kott sem er á dagskrá en hún var frum- sýnd 2015. Myndin fjallar um ungan mann sem missir sjónina og þarf að byrja nýtt líf blindur. Hann kynnist konu sem starfar sem hjúkrunar- kona á nálægu sjúkrahúsi og hún sér meira en hinn venjulegi maður og fjallar myndin um þeirra kynni og sérstakt innsæi. Laugardagsmyndin er Allir eru farnir frá 2013 í leikstjórn Georgiy Paradzhanov. Sagan fjallar um Garry sem snýr til baka á æsku- stöðvarnar en þar verður á vegi hans spákona sem verður örlagavaldur í hans lífi. „Að lokum er það svo barna- og fjölskyldumyndin Of rauður fyrir ref, sem sýnd er sunnudaginn 18. september, hún er jafnframt nýjasta myndin, frá því í ár. Það er Alex- andra Strelyanaya sem leikstýrir en myndin er ævintýramynd um ref sem lendir í ýmsum ævintýrum og nýtur aðstoðar ýmissa dýra, blóma, engla og álfa í þeim ævintýrum. Myndin er bæði teiknuð og leikin.“ Marina segist vonast til að sjá sem flesta í Bíó Paradís en aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan rýmið leyfir. Þess má geta að kvikmynd- irnar á Rússneskum kvikmyndadög- um eru textaðar með enskum texta. Fjórir ólíkir leikstjórar  Rússneskir kvikmyndadagar hefjast með pompi og prakt á morgun í Bíó Paradís  Leikstjórinn Mikhail Kosyrev-Nesterov er heiðursgestur Ævintýramynd Of rauður fyrir ref er sýnd á sunnudag á Rússneskum kvikmyndadögum. Hún er barna- og fjöl- skyldumynd um skrautlegan ref og fleiri ævintýralegar persónur og er bæði leikin og teiknuð. Opnunarmyndin Heiðursgestur er leikstjóri Ferðar til móðurinnar. Æskuminningar Í Allir eru farnir fer söguhetjan á vit minninganna. Marina Yuzhaninova Ása Baldursdóttir Frumsýnd hefur verið teiknimyndin Kúbó og strengirnir tveir. Myndin fjallar um drenginn Kúbó sem ásamt fé- lögum sínum lendir í miklum æv- intýrum þegar hann þarf að fara út í heim og finna töfrakæði sem faðir hans hafði átt en þau eru nauðsyn- leg til að ráða niðurlögum hefni- gjarns anda úr fortíðinni. Myndin er sýnd með bæði íslensku og ensku tali. Metacritic: 84/100 Kúbó og strengirnir tveir Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is MÁLAÐ GLER Málað gler er falleg klæðning á veggi, innréttingar, skápa og margt fleira innandyra. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI EIÐURINN 5:40, 8, 10:20 KUBO 2D ÍSL.TAL 5:50 WAR DOGS 8, 10:25 HELL OR HIGH WATER 8 LEYNILÍF GÆLUDÝRA 2D ÍSL.TAL 5:50 JASON BOURNE 10:10 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.