Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 36

Morgunblaðið - 14.09.2016, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 258. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Gagnrýna ummæli Guðna 2. „Er þetta í lagi?“ 3. Skýrslan kostaði 90 þúsund … 4. Alexis Arquette látin 47 ára … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Fyrstu tónleikar reiknipopp- tvíeykisins Pranke og TSS (The Sub- urban Superman) verða haldnir í Gym & Tonic á Kex hosteli í kvöld kl. 21. Pranke skipa Daníel Friðrik Böðvars- son, gítarleikari Moses Hightower, Snorri Helgason söngvaskáld og þýski trommarinn Max Andrzejewski. Max og Daníel eru báðir búsettir í Berlín og hafa skapað sér sinn sess í spunasenu borgarinnar. TSS er einyrkjaverkefni Jóns Gabríels Lorange sem spilað hef- ur með Nóló. Pranke og TSS koma fram á Kex hosteli  Söngkonurnar Silva Þórðardóttir og Anna Sóley Ás- mundsdóttir halda tónleika á Café Rosenberg í kvöld kl. 21. Á efn- isskránni eru vel valdir djassstand- ardar. Hljómsveit kvöldsins skipa þeir Sölvi Kolbeins- son á altsaxófón, Daníel Helgason á gítar, Pétur Sigurðsson á kontra- bassa og Scott McLemore á trommur. Djasstónleikar á Café Rosenberg í kvöld  Vögguvísur Yggdrasils nefnist fimmta plata Skálmaldar, sem út kem- ur 30. september. Að þessu sinni skoða hljómsveitar- meðlimirnir þá níu heima sem finna má í norrænu goðafræð- inni, allt frá Múspells- heimi elds til Nifl- heima íss, en Askur Yggdrasils tengir alla níu heim- ana saman. Skálmöld sendir frá sér sína fimmtu plötu Á fimmtudag Suðaustan og austan 5-10 m/s en 8-13 við suðvest- urströndina. Lengst af þurrt norðan- og austantil en rigning um landið suðvestanvert og með austurströndinni um kvöldið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp S- og V-lands. Suðaustan 8-15 m/s og rigning eftir hádegi, hvassast við ströndina. Mun hægari vindur um landið norðan- og austanvert. VEÐUR „Elvar var svolítið hlédræg- ur í yngri flokkunum að því leyti að hann skaut lítið á markið. Það fór ekki mikið fyrir honum lengi vel,“ sagði Stefán Árnason, þjálf- ari Selfoss-liðsins í hand- knattleik, um Elvar Örn Jónsson sem fór á kostum í liði nýliðanna í fyrstu um- ferð Olís-deildarinnar. Hann skoraði níu mörk í leiknum og var sterkur í vörninni. »4 Selfyssingurinn sem sló í gegn „Við vitum að eitt stig nægir okkur en við ætlum að vinna riðilinn, eins og við sögðum fyrir mótið. Við verð- um ekki mettar, sama hvernig fer gegn Slóven- íu. Það yrðu skilaboð út í alla Evrópu ef við ynnum riðilinn,“ segir landsliðs- markvörðurinn Guðbjörg Gunn- arsdóttir, en landsliðið leikur við Slóvena á Laugardals- velli á föstu- daginn og getur þá innsiglað sæti í lokakeppni EM á næsta ári. »3 Skýr skilaboð til Evrópu ef við vinnum riðilinn „Við verðum að hugsa um eitt verk- efni í einu og byrja á því að einbeita okkur að því að leggja Kýpur að velli. Til þess að vinna Kýpur verðum við að vinna saman og spila af hörku á báðum endum vallarins,“ sagði Craig Pedersen, þjálfari íslenska karla- landsliðsins í körfuknattleik sem mætir landsliði Kýpur í mikilvægum leik í undankeppni EM í kvöld. »2 Leikur við Kýpur áður en lengra verður haldið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Erla María Markúsdóttir erla@mbl.is Tumi tannálfur er lítill álfur sem er búsettur í Vestmannaeyjum, þar sem hann lendir í ýmsum ævintýrum ásamt Lúlla lunda, vini sínum. Þess á milli ferðast hann á ofurstiganum sínum og verðlaunar börn sem hafa misst fyrstu tönnina sína. Nánar er hægt að lesa um ævintýri félaganna í bókinni Sagan af Tuma tannálfi og ofurstiganum hans sem er frumraun bræðranna og Eyjamannanna Andr- ésar og Óskars Sigmundssona. „Tumi er álfur sem fær það hlut- verk að verðlauna alla krakka þegar þeir missa fyrstu tönnina. Hann er samt enginn áróðursálfur en gleðst yfir því ef krakkarnir passa vel upp á fullorðinstönnina sem kemur í staðinn,“ segir Andrés, sem er bakarameistari en hefur stundað myndlist frá unga aldri. Frægð tannlæknisins kom skemmtilega á óvart Bókin varð til upp úr teikningum sem Andrés hefur dundað sér við í gegnum tíðina. Óskar hefur verið búsettur í Þýskalandi í 30 ár, þar sem hann hefur starfað sem fram- kvæmdastjóri í sjávarútvegi og rek- ur þar eigið innflutnings- og dreifingarfyrirtæki, Marós GmbH. Söguna skrifaði hann þegar hann var staddur í sumarfríi í heimahög- unum í fyrra. „Mig langaði til að skrifa sögu sem krakkar hefðu gam- an af að láta lesa fyrir sig. Börnin og foreldrarnir geta vonandi hlegið sameiginlega að prakkarastrikum félaganna en þeir benda börnunum einnig á eitt og annað sem skiptir máli,“ segir Óskar, sem vonast til að geta lesið söguna fyrir sín barnabörn þegar þar að kemur. Tannlæknirinn í Vestmannaeyjum kem- ur einnig við sögu í bókinni en Óskar og Andrés grunaði ekki að frægð- arsól hans myndi rísa jafn hátt og hún gerði í sumar. „Það var skemmtilegt að fylgjast með fram- göngu hans og knattspyrnulands- liðsins á Evrópumótinu í sumar og okkur fannst því vel við hæfi að hann fengi afhent fyrsta áritaða eintakið,“ segir Óskar. Bókin er sannkallað fjöl- skylduverk og fengu bræðurnir að- stoð frá góðum frænda, Gunnari Júl- íussyni, grafískum hönnuði og teiknara, við uppsetningu hennar. „Það var gott að njóta hinnar miklu reynslu sem hann hefur og kunnum við honum bestu þakkir fyrir,“ segir Andrés. Bókin er fáanleg í öllum verslunum Eymundssonar og stefna bræðurnir á að gefa hana einnig út á ensku og þýsku í vetur. Ævintýri tannálfs og lunda  Bræður og Eyja- peyjar gefa út sína fyrstu barnabók Fyrsta eintakið Tannlæknirinn í Eyjum kemur við sögu í bókinni og því þótti við hæfi að Heimir Hallgrímsson, tannlæknir og landsliðsþjálfari, tæki á móti fyrsta eintakinu af Andrési Sigmundssyni, öðrum höfunda bókarinnar. Tannálfurinn er þekkt fígúra víða um heim og vilja Óskar og Andr- és gefa Tuma tannálfi tækifæri til að kynnast börnum í Evrópu og jafnvel víðar með því að gefa bókina út á þýsku og ensku. „Þetta hefur verið skemmti- legt ferli og það er aldrei að vita hvernig við fylgj- um þessu eftir. Við teljum að bókin eigi erindi til útlanda, lundinn og álfatrú okkar Íslendinga vekur athygli, ég hef tekið eftir því hérna í Þýska- landi,“ segir Óskar. Ævintýrum Tuma og Lúlla er auk þess hvergi nærri lokið. „Það er frá svo mörgu skemmtilegu að segja og það er aldrei að vita í hvaða ævintýrum þeir Tumi og Lúlli eiga eftir að lenda í framtíð- inni. En þetta er auðvitað frum- raun okkar bræðra í bókaskrifum og við sjáum til hvernig fram- haldið þróast,“ segir Andrés. Þýða bókina á þýsku og ensku ÆVINTÝRUM TUMA OG LÚLLA HVERGI NÆRRI LOKIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.