Fréttablaðið - 03.11.2016, Síða 6

Fréttablaðið - 03.11.2016, Síða 6
 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson B 43 817 Bjarni Benediktsson D 738 274 Steingrímur J. Sigfússon V 15 155 Guðlaugur Þór Þórðarson D 564 161 Óli Björn Kárason D 551 125 Björt Ólafsdóttir A 192 19 www.forlagid.is | Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 Metsölulisti Eymundsson Barnabækur 1. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur 2. Metsölulisti Eymundsson Barnabækur 3. ✿ Flestar breytingar 2016* ✿ Hlutfallslega flestar breytingar** 3, 61 % 0, 92 % 1, 79 % 7, 35 % 3, 37 % 7. 09 % 3, 65 % 3, 42 % 3, 33 % 2%2 ,1 8% 4% 0% 3, 97 % ✿ Samanburður milli síðustu kosninga n 2013 n 2016 ✿ Kjördæmin á milli kosninga n 2013 n 2016 NV NA SU RN RS SV NANV SU SV RSRN 2, 07 % 3, 67 % 6, 08 % 1, 7% 4, 73 % 5, 18 % 3, 55 % 2, 83 % 3, 47 % 2, 62 % 2, 08 % 1, 39 % ✿ Flestar breytingar í hverju kjördæmi* NANV SU SV RSRN Sigmundur D. Gunnlaugsson Gunnar Bragi Sveinsson Ásmundur Friðriksson Þorgerður K. Gunnarsdóttir Ólöf Nordal Birgitta Jónsdóttir 371 563 111 198817 168 1 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson B 817 2 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir C 563 3 Gunnar Bragi Sveinsson B 371 4 Bjarni Benediktsson D 274 5 Vilhjálmur Bjarnason D 205 6 Birgitta Jónsdóttir P 198 1 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson B 17,99% 2 Gunnar Bragi Sveinsson B 10,65% 3 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir C 8,21% 4 Eygló Harðardóttir B 4,23% 5 Steingrímur J. Sigfússon V 3,41% 6 Birgitta Jónsdóttir P 2,98% Samanburður milli kosninga ‘13 ‘16 KOSNINGAR Kjósendur Framsóknar- flokksins breyttu listum flokksins oftast í kosningunum sem fram fóru síðastliðinn laugardag. Stuðn- ingsmenn Bjartrar framtíðar gerðu fæstar breytingar. Minna var um útstrikanir og breytingar á kjör- seðlum í þingkosningunum nú en í kosningunum árið 2013. „Það hefur verið spurt um útstrik- anir og endurröðun í íslensku kosn- ingarannsókninni undanfarin ár en niðurstöðurnar ekki greindar frekar,“ segir Eva Heiða Önnudóttir, nýdoktor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Of fáir svarendur könnunarinnar hafa breytt röðuninni til að hægt sé að skoða niðurstöðurnar. 5.944 kjósendur, 3,32 prósent gildra atkvæða, breyttu framboðs- lista með því að strika yfir fram- bjóðanda eða endurraða fram- bjóðendum í þingkosningunum síðastliðinn laugardag. Í þessari samantekt er litið til allra lista fram- boða sem náðu manni inn á þing. Í kosningunum 2013 breyttu 6.922 röð á lista eða 4,15 prósent. Árið 2013 voru það kjósendur Sjálfstæðisflokksins sem oftast breyttu röðun á lista en nú voru Framsóknarmenn mest í því. Síðast var mest um breytingar í Reykjavík norður en nú var það í Norðaustur- kjördæmi sem breytingablýantur- inn var mest á lofti. Minna um útstrikanir nú en árið 2013 Ekki hefur verið kannað hvort einhverjir hópar séu líklegri til að breyta röðun frambjóðenda í kosningum en aðrir. Útstrikanir nú voru flestar á listum Framsóknarflokksins. Flokkurinn var sá eini þar sem hlutfall útstrikana hækkaði á milli alþingiskosninga. *Hér er átt við samanlagðan fjölda útstrikana og tilfærslna neðar á lista **Útstrikanir og tilfærslur deilt með atkvæðafjölda framboðs í kjördæminu Engar rannsóknir eru til um það hvort flokksbundnir einstaklingar eða aðrir eru líklegri til að strika út eða raða lista upp á nýtt. „En þetta er nokkuð borðleggjandi. Ef þú kannt illa við frambjóðandann, þá strikar þú hann út,“ segir Eva Heiða. Augljóst er að átökin í Framsókn- arflokknum vikurnar og mánuðina fyrir kosningar hafa haft áhrif. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Gunnar Bragi Sveinsson og Eygló Harðardóttir voru öll strikuð oft út af kjósendum flokksins. Formaður og varaformaður flokksins, þau Sigurður Ingi Jóhannsson og Lilja Alfreðsdóttir, sluppu hins vegar vel. Sé horft á lista annarra framboða var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir strikuð oftast út af kjósendum Við- reisnar í Suðvesturkjördæmi. Athyglisvert er að bera saman útstrikanir Sjálfstæðisflokksins þá og nú. 2013 var einna oftast strikað yfir Bjarna Benediktsson en mun færri gerðu það nú. Svipaða sögu er að segja af þingmönnum flokksins þeim Ásmundi Friðrikssyni og Óla Birni Kárasyni. Óvinsældir Vil- hjálms Bjarnasonar aukast hins vegar milli kosninga. „Útstrikanirnar í Sjálfstæðis- flokknum nú virðast ekki beinast að ákveðinni persónu líkt og raunin er í Framsóknarflokknum,“ segir Eva Heiða. johannoli@frettabladid.is Ef þú kannt illa við frambjóðandann, þá strikar þú hann út. Eva Heiða Önnudóttir, nýdoktor í stjórnmálafræði 5.944 kjósendur breyttu framboðs- lista, eða 3,32 prósent. Katrín Jakobsdóttir var sjaldnast færð til á lista af formönnum þeirra flokka sem náðu mönnum inn á þing, alls fimm sinnum. Það er sami fjöldi og síðast. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson var oftast strikaður út. 3 . N ó V e m b e R 2 0 1 6 F I m m T U D A G U R4 F R é T T I R ∙ F R é T T A b L A ð I ð 0 3 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :5 8 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 2 B -A F 1 0 1 B 2 B -A D D 4 1 B 2 B -A C 9 8 1 B 2 B -A B 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 2 _ 1 1 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.