Fréttablaðið - 03.11.2016, Side 31
fólk
kynningarblað 3 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r
Fíngerðir skartgripir úr postulíni
eiga hug Emblu Sigurgeirsdóttur
leirkerasmiðs allan þessi dægr-
in. Hún hannar undir merkinu
Thing & Things og hefur aðallega
gert stærri hluti úr keramik hing-
að til, bolla, minni diska og krús-
ir með lokum en ákvað fyrir um
tveimur mánuðum að einbeita sér
að skartgripagerð. „Ég ákvað síð-
sumars að ég myndi einbeita mér
að skartinu. Annars hef ég verið
að leika mér frá því fyrir um ári
að gera hálsmen en það var meira
til hliðar við keramikið sem ég
var aðallega í. Síðan spruttu hug-
myndirnar fram hjá mér þannig
að mig langaði að gefa mér góðan
tíma í að sjá hvert þetta myndi
fara. Ráðhúsmarkaðurinn er því
góður vettvangur til að sjá hvaða
viðtökur ég fæ við skartinu,“ segir
Embla sem verður með skartgrip-
ina á Ráðhúsmarkaði Handverks
og hönnunar sem hefst í dag.
Mikil vinna er á bak við hvern
skartgrip Emblu en þeir eru allir
handgerðir. „Þeir eru allir hand-
skornir og handrenndir og ég
nostra við hvern hlut frá byrjun
til enda. Þetta er mikil vinna en
hún á vel við mig því ég leita oft í
smáatriðin og að vinna mjög fínt
og nákvæmt. Skartgripagerðin á í
raun betur við mig en gerð stærri
hluta, kera og skála, ég fann mig í
þessu,“ segir Embla og brosir.
Postulínið er að sögn Emblu
ekki eins auðvelt að vinna með
og leirinn en hún segir að gott
sé að vinna með það því hægt
sé að gera hlutina skarpa og fín-
gerða. „Postulínið er fínlegt en
samt mjög harðgert. Það er mjög
hreint og hvítt og ég fæ hugmynd-
ir um leið og ég vinn í efnið. Postu-
línið leiðir mig áfram í möguleik-
unum á því hvað hægt er að gera
við það. Útkoman er síðan sam-
bland af postulíninu sjálfu og eig-
inleikum þess sem og glerungn-
um og áferðinni. Þetta er í raun-
inni ferðalag sem maður er á með
efnið og það er alltaf eitthvað nýtt
að gerast.“
Skartgripalínu Emblu saman-
stendur af hálsmenum, eyrnalokk-
um og hringum. „Gripirnir tala
saman og passa allir saman. Mér
finnst spennandi að gera skart-
gripi úr postulíni því maður sér
ekki mikið af þannig gripum og
möguleikar þess óteljandi. Ég hef
alltaf verið fyrir skartgripi sem
standa einir og sér og vil hafa þá
eftirtektarverða. Hálsmenin sem
ég hef gert hingað til hafa verið
svolítið stór en ég er að fara líka út
í fíngerðari hluti núna,“ lýsir hún.
Embla segir framtíðina vera
frekar óráðna hjá sér og koma
verði í ljós hvernig skartgripa-
gerðinni verður hagað. „Ég er
að athuga möguleikana á þessu
því þetta heillar mig mikið en
ég myndi alltaf hafa hina hlutina
með, ég get ekki sleppt af þeim
hendinni, mér þykir of vænt um
þann hluta keramiksins líka.“
Hægt er að fá keramik Emblu í
Kaolin á Skólavörðustíg og nytja-
hlutina í Kraum en skartið verður
frumsýnt á Ráðhúsmarkaðnum.
Skartið
heillar
Keramikerinn Embla Sigurgeirsdóttir nostrar
við hvern hlut sem hún gerir en hún hóf nýlega
gerð fínlegra skartgripa úr postulíni.
Skartgripir Emblu eru í fjórum litum,
svörtum, brons, grábláum og hvítum.
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Embla segir skart-
gripagerðina sem
hún hefur einbeitt
sér að undanfarið
vera heillandi.
MYND/GVA
Embla segir skartgripagerðina sem hún hefur ein-
beitt sér að undanfarið vera heillandi. MYND/GVA
Netverslun á tiskuhus.is
Verslunin er flutt í
Holtasmára 1
(Hjartaverndarhúsið)
20% afsláttur
af öllum vörum til 5. nóv.
Holtasmára 1
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5465 Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Vetrarvika - 20% afsláttur af öllum
vörum frá ZHENZI og Ze-Ze
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
B
-C
C
B
0
1
B
2
B
-C
B
7
4
1
B
2
B
-C
A
3
8
1
B
2
B
-C
8
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K