Fréttablaðið - 03.11.2016, Blaðsíða 34
Dressið úr smiðju Mögnu Rúnar sem sýnt var á No Waste hönnunarsýningunni í Hollandi.
Sýningin kallaðist No Waste eða
Ekkert sorp og fellur það vel að
áhugasviði Mögnu Rúnar sem skrif-
ar nú BA-ritgerð um hvernig hægt
sé að nýta notaðan textíl í staðinn
fyrir að framleiða nýjan.
„Það var heilmikil upplifun að
fá að taka þátt í svona stórri sýn-
ingu,“ segir Magna Rún. Þetta er í
fyrsta sinn sem fulltrúar frá Lista-
háskólanum taka þátt í sýningu af
þessari stærðargráðu erlendis en á
sýningunni gaf að líta sex ólík verk-
efni frá skólanum frá þrettán þátt-
takendum.
Endurunnin klæði
„Við vorum tvö úr bekknum mínum
sem vorum fulltrúar fyrir verkefn-
ið okkar sem ber heitið Morphing
castaways en á íslensku köllum við
það Misbrigði. Verkefnið unnum við
í samstarfi við fatasöfnun Rauða
krossins,“ lýsir Magna Rún en nem-
endur gátu óskað eftir efni til að
vinna með. „Við fengum ekki alltaf
allt sem við báðum um en eitthvað í
áttina. Hins vegar máttum við ekki
kaupa neitt nýtt heldur aðeins nýta
það sem fékkst gefins.“
Nemendurnir fengu föt frá
Rauða krossinum sem ekki var
hægt að nýta í endursölu. Oft voru
göt eða blettir á fötunum sem hefðu
farið í endurvinnslu ef þau hefðu
ekki verið nýtt af Mögnu Rún og
félögum hennar.
„Það var töluverð áskorun að
nota tilbúnar flíkur til að sníða og
skapa það sem maður vildi,“ segir
Magna Rún sem hefur lengi haft
gaman af að skapa nýtt efni úr
gömlu. „Ég notaði til dæmis mörg
mismunandi rúmföt til að útbúa
skyrtu og notaði efni úr fjölmörg-
um T-bolum til að hekla nýtt efni.“
Ermar að skálmum
Á sýninguna var valið svart dress
úr smiðju Mögnu Rúnar. „Buxurnar
eru gerðar úr herraskyrtu og engu
öðru. Ermarnar eru notaðar sem
skálmar, kraginn er buxnastreng-
urinn og tölurnar eru þar sem
rennilásinn ætti að vera. Skyrt-
una saumaði ég síðan upp úr göml-
um rúmfötum. Jakkinn er gam-
all herrajakki sem ég breytti. Til
dæmis heklaði ég í bakið á honum,
sneið hann síðan aðeins til og
minnkaði axlirnar, svo hann myndi
passa á dömu.
Magna Rún er á þriðja ári í List-
háskólanum og útskrifast sem fata-
hönnuður næsta vor. Raunar var
ferðin til Hollands nú í lok október
einnig útskriftarferð hópsins.
En hvað er annars fram undan?
„Ég er að skrifa BA-ritgerð og
svo langar mig að þróa þessa hug-
myndafræði um endurnýtingu
áfram og býst við að nota það eitt-
hvað í útskriftarverkefni mínu.
Hvað svo verður er mjög opið, hvort
sem það verður að fara í frekara
nám eða í starfsnám hjá einhverj-
um hönnuði,“ segir Magna Rún
sem er ánægð í námi sínu. „Enda
finnst mér rosalega gaman að fá að
grúska og pæla í efnum og áferð.“
skyrta að buxum
Magna Rún Rúnarsdóttir var ein af þrettán nemendum Listaháskóla
Íslands sem tók þátt í stórri samsýningu á Dutch Design Week í
Eindhoven í Hollandi í lok október. Hún sýndi fatnað sem hún hannaði
og saumaði upp úr notuðum fötum frá Rauða krossinum.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Magna Rún Rúnarsdóttir.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Kjóladagar
20%
afsláttur
af öllum kjólum
fimmtudag til
laugardags
Str. 36-56
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Lógó með adressulínu
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is = Coopet Hewitt light (má vera book ef það er minna en 8pt)
KJÓLL VERÐ
19.980
AFMÆLISVERÐ
11.988
20-40%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM FATNAÐI
OG SKÓM Í DAG
FÖGNUM
20 ÁRUM
Á ENGJATEIGNUM!
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r4 F ó l k ∙ k y n n I n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n I n G A r b l A ð ∙ T í s k A
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
2
B
-B
4
0
0
1
B
2
B
-B
2
C
4
1
B
2
B
-B
1
8
8
1
B
2
B
-B
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K