Fréttablaðið - 03.11.2016, Side 60
Mel Gibson hefur ekki verið vinsælasti maðurinn í Holly-wood undanfarin ár. Fyrir
tíu árum var hann handtekinn fyrir
ölvunarakstur og heyrðist þá hallmæla
gyðingum á ofsafenginn hátt, sem rat-
aði í fjölmiðla vestanhafs og að lokum
út um allan heim. Ekki bættu fleiri
hneykslismál úr skák, svo sem ýmsar
vísbendingar um að Gibson ætti það
til að missa stjórn á skapi sínu í tíma
og ótíma og gerðist þá jafnvel ofbeldis-
fullur. Samhliða neikvæðu umtali dró
ofurstjarnan sig að miklu leyti út úr
kvikmyndaiðnaðinum vestra og hefur
að mestu látið sér nægja að fara með
lítil hlutverk í örfáum bíómyndum
sem fæst hafa vakið mikla athygli. Eftir
frumsýningu nýjustu myndar hans á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í síð-
asta mánuði sagðist Gibson aðspurður
hafa dregið sig sjálfviljugur í hlé úr
bransanum í þessi ár. „Ég held að besta
aðferðin við að biðjast afsökunar sé að
koma sjálfum sér í lag og það er það
sem ég hef verið að gera,“ sagði leik-
stjórinn við það tilefni.
Hacksaw Ridge er fyrsta myndin
sem Mel Gibson leikstýrir í heilan
áratug, eða frá því hann leikstýrði
ævintýramyndinni Apocalypto árið
2006. Í myndinni er sögð ótrúleg saga
Desmonds T. Doss, hermanns í síðari
heimsstyrjöld, sem hélt svo fast í sín
helstu viðmið og gildi í lífinu að hann
neitaði að bera vopn, þrátt fyrir að
dvelja langdvölum á átakasvæðum
í fremstu víglínu. Doss trúði því að
hlutverk hans í lífinu væri að hjálpa
öðrum, án ofbeldis, og hlaut hann bágt
fyrir og jafnvel barsmíðar af hendi
margra félaga sinna í bandaríska
hernum. Síðar var Doss
þó heiðraður með æðstu
heiðursorðum fyrir að hafa
komið mörgum félögum sínum
til bjargar meðan á styrjöldinni stóð.
Kvikmyndagerðarfólk í Hollywood
hefur lengi haft á stefnuskránni að
færa sögu Desmonds T. Doss á hvíta
tjaldið en ýmsir þættir hafa valdið því
að það tókst ekki fyrr en nú, meðal
annars andstaða Doss sjálfs við allar
slíkar hugmyndir og eins aðstandenda
hans eftir að hann lést árið 2006. Ef
marka má dóma hefur Gibson tekist
vel til og hefur myndinni meðal ann-
ars verið lýst sem átakanlegum óði
til hugrekkis og óbilandi trúar, bæði
á æðri máttarvöld og hið góða innra
með hverjum manni. Meðalein-
kunn myndarinnar er 8,7 á IMDb og
93% á Rotten Tomatoes, sem segir
sína sögu, og þykir breski
leikarinn Andrew Gar-
field sérstaklega fara
á kostum í hlutverki
hetjunnar, Des-
monds t. Doss.
Önnur hlutverk
eru meðal ann-
arra í höndum Vince Vaughn, Sam
Worthington, Luke Bracey og Teresu
Palmer. Hacksaw Ridge verður frum-
sýnd á morgun, 4. nóvember, í Laug-
arásbíói, Háskólabíói og Borgarbíói
Akureyri. kjartang@frettabladid.is
Fyrsta mynd Mels Gibson í áratug
Ástralinn Mel Gibson hefur haft hægt um sig sem leikstjóri undanfarin ár eftir röð hneyksl-
ismála sem sköðuðu ímynd hans verulega. Hann snýr nú aftur með sanna stríðsárasögu
Breski leikarinn Andrew Garfield þykir standa sig vel í hlutverki
Desmonds Doss.
Hacksaw Ridge hefur mælst vel fyrir hjá gagnrýnendum.
Mel Gibson vann til
fjölda verðlauna fyrir
mynd sína Braveheart.
Frumsýningar
Max Steel
Aðalleikarar: Ben Winchell, Josh
Brener og Maria Bello
Frumsýnd: 4. nóvember
IMDb: 4,9
Rotten Tomatoes: 53%
Collide
Aðalleikarar: Nicholas Hoult,
Felicity Jones og Anthony
Hopkins
Frumsýnd: 4. nóvember
IMDb: 6,1
Rotten Tomatoes: 27%
the aCCountant
Frumsýnd: 4. nóvember
Aðalleikarar: Ben Affleck, Anna
Kendrick, J.K. Simmons, Jon
Bernthal, Jeffrey Tambor og John
Lithgow
IMDb: 7,7
Rotten Tomatoes: 51%
um sigur hug-
rekkis og trúar.
JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 22. nóvember.
Áhugasamir hafi samband við:
Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum.
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími/Tel:
+354 512-5429
jonivar@365.is
Jóhann Waage
Sími/Tel:
+354 512-5439
johannwaage@365.is
Atli Bergmann
Sími/Tel:
+354 512-5457
atlib@365.is
Ólafur H. Hákonarson
Sími/Tel:
+354 512-5433
olafurh@365.is
3 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r46 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
bíó
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
B
-C
2
D
0
1
B
2
B
-C
1
9
4
1
B
2
B
-C
0
5
8
1
B
2
B
-B
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K