Fréttablaðið - 03.11.2016, Page 62
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Fimmtudagur
hvar@frettabladid.is
3. nóvember
Viðburðir
Hvað? Stórtónleikar Fjörgynjar til
styrktar BUGL
Hvenær? 20.00
Hvar? Grafarvogskirkja
Stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjör-
gynjar til styrktar BUGL og líknar-
sjóði Fjörgynjar verða haldnir
í fjórtánda sinn 3. nóvember
næstkomandi. Að venju verður
glæsilegur hópur tónlistarfólks og
falleg umgjörð í Grafarvogskirkju,
sem prýdd er einstaklega fallegum
altarisglugga eftir Leif Breiðfjörð.
Þessir einstöku stórtónleikar eru
í hugum fjölmargra orðnir ómiss-
andi hluti af menningarlífi hausts-
ins og upptaktur að jólastemmingu
desembermánaðar. Áheyrendur
hafa vanist því að einungis framúr-
skarandi tónlistarmenn stígi á svið
til að slá upp glæsilegri tónlistar-
veislu. Stór hópur Lionsfélaga úr
Lionsklúbbunum Fjörgyn og Fold
sér til þess að allt gangi vel fyrir sig.
Niðurstaðan verður töfrum gædd
kvöldstund sem yljar áheyrendum
samtímis sem þeir styðja gott starf
á Barna- og unglingageðdeild LSH.
Hvað? Ráðstefna um atferlisgreiningu
Hvenær? 12.00
Hvar? Nauthóll
Samtök um atferlisgreiningu á
Íslandi bjóða í fjórða skiptið til
ráðstefnu um atferlisgreiningu
fimmtudaginn 3. nóvember og
föstudaginn 4. nóvember 2016 í
Nauthóli. Gestafyrirlesarar verða
þrír virtir fræðimenn á sviði
atferlis greiningar og að auki verður
fjöldi innsendra erinda og vegg-
spjalda. Skráning fer fram á www.
atferli.is en þar má einnig nálgast
upplýsingar um gestafyrirlesarana.
Hvað? Stóra veiðihátíðin 2016
Hvenær? 3.-6. nóvember
Hvar? Egilsstaðir
Fyrir hverja?
Veiðihátíðin er fyrir þá sem hafa
ástríðu fyrir veiðum, hvort sem um
er að ræða stang- eða skotveiði.
Hún er einnig fyrir allan almenn-
ing sem vill kynnast margbreyti-
legum útbúnaði og græjum og
fræðast um dásemdir og leyndar-
dóma veiðimennskunnar. Stóra
veiðihátíðin er haldin í byrjun
nóvember, þar sem þá er veiðiskap
þessa árs að ljúka og því er hér
um nokkurs konar uppskeruhátíð
að ræða en um leið eru margir að
byrja að huga að og skipuleggja
veiðar og ævintýri næsta árs.
Hvað gerist?
Hátíðin fer að mestu leyti fram
í Valaskjálf og verður dagskrá
hennar fjölbreytt og skemmtileg.
Alla dagana þrjá verður hægt að
sækja námskeið eða hlýða á fyrir-
lestra, s.s. um veiðihundaþjálfun,
úrbeiningu hreindýra,
villibráðarvín, flugu-
hnýtingar og flugukast,
bogskotfimi o.fl. Stóru
veiðihátíðinni lýkur
með glæsilegu villi-
bráðarhlaðborði og
dansleik á laugardags-
kvöldinu í Valaskjálf.
Hvað? Handverk og hönnun í Ráðhúsi
Reykjavíkur
Hvenær? 3.-7. nóvember
Hvar? Ráðhús Reykjavíkur
Sýningin Handverk og hönnun í
Ráðhúsi Reykjavíkur verður haldin
dagana 3. til 7. nóvember. Sem fyrr
er gróskan og fjölbreytnin mikil og
meðal þess sem hægt er að skoða
á sýningunni í nóvember eru leir-
munir, gler, skart, barnaföt, munir
úr tré, leðurvörur, skór, fatnaður
og fleira.
Tónlist
Hvað? Djasssveifla – Eskifjörður
Hvenær? 20.00
Hvar? Tónlistarmiðstöð Austurlands á
Eskifirði
Djasssveifla að hætti gömlu meist-
aranna! Tónlistarmiðstöð Austur-
lands býður upp á sannkallaða
veislu þar sem flottustu tónlistar-
menn landsins túlka „standarda“
þessarar sívinsælu tónlistarstefnu.
Flutt verða gullaldarlög eins og I
Hear Music, It Don’t Mean a Thing
(If It Ain’t Got That Swing), Route
66, Summertime, Mack the Knive
o.fl. Í hljómsveitinni eru: Stefanía
Svavarsdóttir, söngur, ein flott-
asta jazzsöngkona landsins, Birgir
Bragason, bassi, Birgir Þórisson,
píanó, Erik Qvick, trommur, Hauk-
ur Gröndal, saxafónn. Aðgangs-
eyrir: kr. 2.000
Stórtónleikar Lionsklúbbsins Fjörgynjar til styrktar BUGL og líknarsjóði Fjörgynjar verða haldnir í fjórtánda sinn í Grafarvogs-
kirkju í kvöld kl. 20.00.
TónlisTarmiðsTöð
ausTurlands býður
upp sannkallaða
djassveislu þar sem
floTTusTu TónlisTar-
menn landsins Túlka
„sTandarda“ þessarar
sívinsælu
TónlisTarsTefnu.
ÁLFABAKKA
DOCTOR STRANGE 3D KL. 6:30 - 9
DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30 - 8 - 10:30
DOCTOR STRANGE 2D VIP KL. 5:30 - 8 - 10:30
JACK REACHER 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30
THE GIRL ON THE TRAIN KL. 8 - 10:30
STORKAR ÍSLTAL KL. 6
SULLY KL. 8 - 10:10
PETE’S DRAGON KL. 5:50
KEFLAVÍK
DOCTOR STRANGE 3D KL. 8 - 10:30
JACK REACHER 2 KL. 8 - 10:30
AKUREYRI
DOCTOR STRANGE 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30
JACK REACHER 2 KL. 8 - 10:30
STORKAR ÍSLTAL KL. 6
DOCTOR STRANGE 3D KL. 5:30 - 8 - 10:30
JACK REACHER 2 KL. 8 - 10:30
STORKAR ÍSLTAL KL. 6
BRIDGET JONES’S BABY KL. 5:20 - 8 - 10:40
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
EGILSHÖLL
THE ACCOUNTANT KL. 10:20
DOCTOR STRANGE 3D KL. 8
DOCTOR STRANGE 2D KL. 5:30 - 7 - 9:30 - 10:30
JACK REACHER 2 KL. 5:30 - 8 - 10:30
ENTERTAINMENT WEEKLY
Byggð á samnefndri metsölubók
Emily Blunt
Justin Theroux
HOLLYWOOD REPORTER
THE WRAP
Sýnd með
íslensku tali
EMPIRE
ENTERTAINMENT WEEKLY
EMPIRE
Tom Cruise er mættur
aftur sem Jack Reacher
ENTERTAINMENT WEEKLY
THE WRAP
“FLAT OUT COOL”
EMPIRE
TILDA
SWINTON
BENEDICT
CUMBERBATCH
CHIWETEL
EJIOFOR
Live
FORSÝND
Blanda af Jason Bourne og
The Usual Suspects
“Thrilling”
“Smart”
Sýningartímar
og miðasala á
smarabio.is
Upplýsingar
um kvikmyndir
og sýningartíma
eru á smarabio.is
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
Ransacked 18:00
Eiðurinn ENG SUB 17:45
Child Eater 20:00, 22:00
Innsæi / The Sea Within 20:00
Captain Fantastic 20:00
Embrace Of The Serpen 22:00
Fire At Sea 22:30
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
ORATORS
- félag laganema við
Háskóla Ísland
3 . n ó V e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U D A G U r48 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
3
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
2
B
-D
6
9
0
1
B
2
B
-D
5
5
4
1
B
2
B
-D
4
1
8
1
B
2
B
-D
2
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
_
1
1
_
2
0
1
6
C
M
Y
K