Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 2

Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Rjúpnaveiðitímabilið hófst á föstu- daginn var og eru flestir veiðimenn að fá einhverja fugla segir Dúi Jó- hannsson Landmark, formaður Skotveiðifélagsins. „Í heildina má búast við því að veiddir verði um 40 þúsund fuglar en það eru milli fimm og sex þúsund manns sem stunda veiðar á hverju tímabili.“ Spurður um illa haldinn veiði- mann sem Björgunarsveitin Ingunn á Laugarvatni kom til aðstoðar um helgina segist Dúi ekki hafa heyrt af því einstaka atviki en bendir á að út- köllum og aðstoð vegna rjúpna- veiðiskytta hafi fækkað verulega í seinni tíð. „Veiðimenn eru upplýstari um hættur en áður og tækin líka orðin betri t.d. GPS tækin og kort í snjall- tækjum. Hins vegar er vert að benda á að við fáum aðeins fjórar helgar til veiða núna en það er ein- göngu veitt á föstudögum, laugar- dögum og sunnudögum. Við ósk- uðum eftir sex helgum til að dreifa veiðinni og draga úr því að menn fari út í vondum veðrum en ekki var orð- ið við ósk okkar.“ Rjúpna- veiðin byrjar vel Veiði Rjúpnaveiðin hófst á föstudag. Helgi Bjarnason Jón Birgir Eiríksson Þorsteinn Friðrik Halldórsson Forseti Íslands hefur boðað forystu- menn stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á nýkjörnu Alþingi til funda á Bessastöðum í dag. Miðað við hefð- ina er tilgangur Guðna Th. Jóhann- essonar sá að kanna viðhorf for- mannanna til málefna og annarra flokka svo hann geti metið það hverj- um fyrst eigi að fela umboð til mynd- unar meirihlutastjórnar. Sigurður Ingi Jóhannsson, for- sætisráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins, fór í gær á fund for- seta til að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Forseti féllst á lausn- arbeiðnina en óskaði þess jafnframt að stjórnin sæti sem starfsstjórn uns tekist hefði að mynda nýja. Stjórnarmyndun þarf helst að ganga nokkuð greiðlega fyrir sig. Kalla þarf Alþingi saman til að hægt verði að afgreiða fjárlög fyrir ára- mót, samkvæmt lögum, og einng verður að kalla Alþingi saman ekki síðar en tíu vikum eftir kosningar. Mörgum leiðum hafnað Sigurður Ingi sagði eftir fundinn með forseta að við blasti að erfið stjórnarmyndun væri framundan. „Mörgum leiðum hefur verið hafnað, byltingu Pírata, vinstristjórn og svo núverandi ríkisstjórn. Þetta er flókin staða úrlausnar.“ Forsetinn kallar formennina sjö til sín eftir stærð þingflokkanna. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, mætir fyrstur, klukkan 10, en Oddný G. Harðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, síðust, klukkan 16. Þingflokkarnir komu saman í gær. Tilgangur fundanna var sagður að sjá framan í nýja þingmenn og ræða niðurstöður kosninganna en væntan- lega hefur megintilgangur formann- anna verið sá að heyra hljóðið í sínu fólki vegna væntanlegra funda með forsetanum. Sá stærsti augljós sigurvegari Útlit er fyrir að stjórnarmyndun verði flókin og jafnvel erfið, miðað við þær yfirlýsingar sem formenn flokkanna gáfu fyrir kosningar og á kosninganótt. „Þetta verður ekki tví- liða, það þarf að setja saman þríliðu eða jafnvel flóknari margliðu. Við verðum bara að sjá hvað verður,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráð- herra. Sigurður Ingi segir að þó margir geti lýst sig sigurvegara kosning- anna hljóti stærsti flokkurinn sem jafnframt leiðir í öllum kjördæmum að vera hinn augljósi sigurvegari. Hann gaf í skyn við blaðamenn á Bessastöðum í gær að hann hefði lagt til við forseta að Sjálfstæðis- flokkurinn fengi umboðið. Breytt landslag í pólitíkinni Birgitta Jónsdóttir, formaður þingflokks Pírata, stingur upp á því að athugað verði með myndun minnihlutastjórnar. Landslagið í pólitíkinni sé allt annað en áður hafi verið. „Við erum tilbúin að tala við alla en það er alveg skýrt að hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Píratar vilja vinna saman. En við erum ekk- ert að útiloka Viðreisn ef það lítur út fyrir að við séum að sigla inn í ein- hverja stjórnarkreppu.“ Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, sækist eftir að fá umboð til stjórnarmyndunar. Hann segir að óskastjórnin sé sú sem kemur fram flestum af frjálslyndum stefnumál- um Viðreisnar og skipulögðum vinnubrögðum. Forseti kannar viðhorf for- manna til stjórnarmyndunar  Útlit fyrir flókna stjórnarmyndun  Píratar stinga upp á minnihlutastjórn Morgunblaðið/Eggert Bessastaðir Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra baðst lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt á fundi með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, í gær. Stjórn hans situr áfram þar til ný stjórn verður mynduð. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ekki liggur fyrir hvenær nýtt Al- þingi verður kallað saman. Almennt er talið að það verði gert innan tveggja vikna frá þingkosningunum. Alþingi á eftir að samþykkja fjárlög fyrir árið 2017. Aðkallandi er að hefja þá vinnu sem fyrst. Fjárlögin verða rædd í þremum umferðum á þinginu. Þetta verða fyrstu fjárlögin sem lögð eru fram á þinginu og byggjast á fjármálaáætlun 2017- 2021, sem þingið hefur samþykkt. Síðast voru vetrarkosningar hér á landi 2. desember 1979. Nýtt þing kom saman 12. desember eða 9 dög- um eftir að kosningarnar fóru fram. Vorið 2013 liðu 39 dagar frá kosn- ingum þar til þingið kom saman. Um miðja næstu viku er stefnt að því að halda námskeið fyrir nýja þingmenn, að sögn Helga Bernódus- sonar, skrifstofustjóra Alþingis. Slík námskeið eru jafnan haldin við upp- haf nýs kjörtímabils. Að þessu sinni verður bekkurinn í „þingmannaskólanum“ óvenju fjöl- mennur, tæplega 30 manns. Hann var einnig fjölmennur árið 2013, en þá komu 27 nýliðar á þing. Í námskeiðinu verður nýjum þing- mönnum kynnt hvernig Alþingi starfar, hvaða þjónusta stendur þingmönnum til boða, starfskjör og svo framvegis. Þessar upplýsingar er að finna í ritinu Háttvirtur þing- maður, sem er handbók um þing- störfin. Ritið er einkum hugsað sem leiðbeiningarrit fyrir nýkjörna al- þingismenn, svo og varaþingmenn sem setjast á Alþingi á kjörtíma- bilinu. Meginmarkmiðið er því að hafa á einum stað allar helstu upp- lýsingar sem geta komið nýjum al- þingismönnum að gagni og létt þeim störfin. Fjölmennt verður í „þingmannaskólanum“  Óvíst hvenær nýtt þing kemur saman eftir kosningarnar Banaslys varð í fyrrinótt skammt frá Fagurhólsmýri í Öræfum. Ís- lenskur piltur á átjánda aldursári lést í umferðarslysinu en lögreglu barst tilkynning klukkan 8.44 í gærmorgun um umferðarslysið. Þar reyndist dökkgræn Toyota Landcruiser-bifreið, árgerð 2001, hafa farið út af vegi og oltið. Ökumaður hennar, sem var einn á ferð, hafði kastast út úr bifreið- inni og var úrskurðaður látinn á slysstað. Talið er að hann hafi farið frá Höfn og vestur Suðurlandsveg um miðja nótt. Nokkuð var því liðið frá því slysið varð þar til það upp- götvaðist. Banaslys skammt frá Fagurhólsmýri Í undanförum sex þingkosningum hefur stjórnarmyndun tekið skemmst 12 daga. Það var árið 2009, þegar ríkisstjórn Samfylk- ingar og Vinstri grænna var mynd- uð. Lengstan tíma á þessu árabili tók að mynda fráfarandi ríkis- stjórn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks eða 26 daga. Í stjórn- arskránni er einkum ákvæði 42. greinar sem þrengir að þeim tíma sem menn hafa til umráða nú. Í greininni felst að afgreiða þarf fjárlög fyrir lok árs. Að auki segir í 22. grein að forseti stefni saman Alþingi eigi síðar en 10 vikum frá kosningum til Alþingis. Fjárlög þrýsta á myndun stjórnar Yfirlit stjórnarmyndunartíma Dagsetningar í tengslum við þingkosningar 1999-2016 Kosningar Kjördagur Stjórnarmyndun Ný ríkisstjórn tekur við 1999 8.maí 20 dagar 28. maíSjálfstæðisfl. + Framsóknarfl. 2003 10.maí 13 dagar 23. maíSjálfstæðisfl. + Framsóknarfl. 2007 12. maí 12 dagar 24. maíSjálfstæðisfl. + Samfylking 2009 25. apríl 15 dagar 10. maíSamfylking + VG 2013 27. apríl 26 dagar 22. maíSjálfstæðisfl. + Framsóknarfl. 2016 29. október ? ? ALÞINGISKOSNINGAR 2016

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.