Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016 Kosninganótt Þau voru margskonar augnablikin hjá þingmönnum og ráðherrum á kosninganótt. Hér er Sigurður Ingi umvafinn sínum græna lit og margt að hugsa í ljósi nýrrar stöðu flokksins. Eggert Veikleika fyrir- hrunsáranna má að einhverju leyti rekja til veikleika í störfum Alþingis. Á tímamót- um er eðlilegt að spurt sé hvernig tek- ist hafi til við að ráða bót á þessum veik- leikum. Að mínum dómi hefur það tekist vel og gleður mig að geta sagt að ég telji þingið að mörgu leyti á framafaraleið. Frá því fyrir hrun hafði verið starfandi starfshópur með það verkefni að yfirfara þingsköpin og skipulag þinghaldsins. Lagt var til að nefndakerfið yrði endur- skipulagt og að nefndum yrði fækkað og einni tiltekinni nefnd falið það verkefni sérstaklega að fara með mál er lúta að eftirliti með handhöfum framkvæmdar- valds. Rannsóknarskýrslur flýta umbótaferli Í Rannsóknarskýrslunni sem Al- þingi lét gera um fall bankanna kom fram gagnrýni sem hraðaði breytingaferlinu. Þingmannanefnd sem yfirfór skýrslu þessarar rann- sóknarnefndar lagði í kjölfarið fram tillögur um úrbætur á störf- um þingsins. Horft var til hug- mynda sem fram höfðu komið í fyrrgreindum vinnuhópi og þær mátaðar inn í þá mynd sem við blasti eftir efnahagshrunið. Haustið 2010 samþykkti þingið síðan ályktun að tillögu þing- mannanefndarinnar, þar sem m.a. kom fram að auka þyrfti sjálfstæði þingsins gagnvart framkvæmdar- valdinu, leggja bæri meiri áherslu á eftirlitshlutverk þingsins og bæta undirbúning löggjafar. Eftirlitshlutverk Alþingis eflt Þessi ályktun var samþykkt samhljóða og strax í kjölfarið voru gerðar breytingar á þingsköpum Alþingis. Markmiðið með þeim breytingum var að styrkja störf nefndanna og þar með faglega umfjöllun Alþingis um þingmál, svo og að efla eftir- litshlutverk þess og styrkja stöðu þess gagnvart fram- kvæmdarvaldinu. Í frumvarpinu voru einnig lögð til mik- ilvæg ákvæði um upp- lýsingarétt þing- manna, upplýsinga- skyldu ráðherra og um meðferð trún- aðarmála í nefndum þingsins. Í samræmi við nýju þingskapalögin var komið á nýrri nefndaskipan haustið 2011, þar á meðal varð Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að veruleika. Ráðist í kerfislægar breytingar Þegar Stjórnskipunar- og eftir- litsnefnd var sett á fót voru vissu- lega fyrir hendi stofnanir sem sinntu eftirliti og aðhaldi gagnvart framkvæmdarvaldinu. Ríkisendur- skoðun hafði verið gerð að sjálf- stæðri stofnun á vegum Alþingis með lögum árið 1986 og var mark- miðið að tryggja að sá sem ann- aðist endurskoðun ríkisfjármála væri óháður þeim sem endurskoð- unin beindist að. Embætti um- boðsmanns Alþingis hafði tekið til starfa árið 1988. Til viðbótar við þessar grundvallarstoðir eftirlits- og aðhaldskerfisins, var Stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd nú ætl- að að verða vettvangur nýrra vinnubragða með sérstakri áherslu á eftirlitshlutverk þings- ins. Hér var um að ræða mik- ilvæga kerfislæga breytingu. Hlutverk stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd var falið að kanna einstakar ákvarðanir eða verklag hjá ráð- herra eða stjórnsýslu á vegum hans. Umfjöllun nefndarinnar var ætlað að beinast fyrst og fremst að því sem liðið er, en umfjöllun annarra nefnda, sem einnig fara með eftirlit, við það sem er bundið líðandi stund. Þetta er þó ekki al- veg einhlítt enda landamæri á milli nútíðar og fortíðar oft óljós. Í þessu efni hafa línur verið að mót- ast og eiga enn eftir að skýrast. Réttur minnihluta til að taka upp mál innan hennar var sér- staklega tryggður þótt meirihluti réði hvernig farið væri með hvert mál, t.d. hvort nefndinni þætti ástæða til þess að gefa þinginu skýrslu um athugun sína og eftir atvikum gera tillögu um ályktun þingsins um málið. Lagt upp úr vönduðum vinnu- brögðum og trúverðugleika Sá háttur var hafður á frá þing- kosningunum 2013 að nefndar- maður úr stjórnarandstöðu gegndi formennsku í nefndinni. Í sama anda voru athugunarefni sem snertu stjórnarmeirihluta látin lúta verkstjórn nefndarmanns úr flokki sem verið hafði í stjórnar- andstöðu þegar viðkomandi mál hafði komið upp. Með þessu móti er dregið úr hættu á pólitískri hagsmunagæslu og þetta er einnig til þess fallið að auka trúverðug- leika nefndarinnar. Skýrslur stofnana sem starfa á vegum Alþingis, Ríkisendurskoð- unar og embættis umboðsmanns, eru til umfjöllunar í stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd, aðrar en skýrslur Ríkisendurskoðunar um almenna framkvæmd fjárlaga, sem eru til umfjöllunar í fjárlaganefnd. Í skýrslum um einstakar stofnanir sem beint er til Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar er engu að síð- ur byggt á fjárlögum og lagt mat á framkvæmd þeirra af hálfu við- komandi stofnana. Togstreitan milli fjárlaga og lagaskyldna Ljóst er að samspil Stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar við lykil- eftirlitsstofnanir aðhalds og eftir- lits, Ríkisendurskoðun og embætti umboðsmanns Alþingis, skiptir miklu máli og ríður á að vel takist til um að gera það virkara og markvissara í framtíðinni. Með markvissri yfirferð yfir skýrslur Ríkisendurskoðunar ásamt hlut- aðeigandi stofnunum framkvæmd- arvaldsins og frekari yfirferð þeg- ar Ríkisendurskoðun sér ástæðu til að ítreka athugasemdir sínar, er stuðlað að því að ábendingar stofnunarinnar séu teknar alvar- lega og brotalamir lagaðar. Ríkis- endurskoðun hefur eðlilega beint sjónum mjög að fjárhagslegum rannsóknum á framkvæmd fjár- laga. Á þeirri framkvæmd eru hins vegar tvær hliðar. Iðulega búa framkvæmdaaðilar stjórnsýsl- unnar við tvenns konar lög, ann- ars vegar fjárlög og hins vegar hvíla á þeim lagaskyldur sem lúta að verkefnum þeirra, um réttindi sjúklinga, rétt samfélagsins til löggæslu og verndar og svo fram- vegis. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins hefur verið mjög með- vituð um að halda báðum þessum sjónarhornum til haga og hefur litið á það sem hlutverk sitt að koma upplýsingum til annarra nefnda þingsins og ráðuneyta ef nefndinni þykir einblínt um of á þá hlið sem lýtur að fjárlögum en horft framhjá þeim lagalegu skyldum sem hvíla á stjórnendum opinberra stofnana. Þessar áherslur Stjórnskipunar- og eftir- litsnefndar munu án efa stuðla að aukinni meðvitund Alþingis um að fjárveitingar af þess hálfu þurfi jafnan að ákvarðast með hliðsjón af þeim lagalegu skyldum og póli- tísku stefnumarkmiðum sem stofnunum er gert að starfa sam- kvæmt. Framtíðin Þetta tel ég vera lykilatriði. Allt of oft heyrum við býsnast yfir því að stofnanir hafi farið út yfir leyfðan fjárlagaramma þegar í reynd var um að kenna vankunn- áttu eða ábyrgðarleysi fjárveiting- arvaldsins. Þarna hefur stjórn- skipunar- og eftirlitsnefnd tekið á málum af yfirvegun og ábyrgð, sem ég vona að verði til eftir- breytni. Bæði Ríkisendurskoðun og embætti Umboðsmanns Al- þingis hafa unnið sér ótvíræðan sess og eru álit þessara stofnana tekin alvarlega. Ætla má að frum- kvæðismálum af hálfu þessara að- ila muni fjölga á komandi árum en sýnt þykir að slík vinnubrögð hafi forvarnargildi. Ég efast ekki um að Stjórnskip- unar- og eftirlitsnefnd muni eiga eftir að hasla sér betur völl hvað varðar frumkvæði í rannsóknum og athugunum á því sem orka kann tvímælis af hálfu fram- kvæmdarvaldsins eða á ábyrgð þess. Mikilvægast er þó að þingið og eftirlitsstofnanir á þess vegum hafi sem best samstarf og samráð sín á milli. Það tel ég hafa tekist bærilega á liðnu kjörtímabili. Stjórnmálamenn meðvitaðri um ábyrgð sína Störf Ríkisendurskoðunar og Umboðsmanns Alþingis, þessara tveggja stofnana sem heyra undir málefnasvið Stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, hafa opnað og örvað ábyrga umræðu, styrkt réttarstöðu þeirra sem brotið er á, gert stjórnmálamenn meðvitaðri um eigin orð og gjörð- ir, gert stjórnsýsluna meðvitaðri um ábyrgð sína, stuðlað að vand- aðri löggjöf, gert stjórnendur og starfsfólk hjá hinu opinbera ábyrgara og meðvitaðra í meðferð fjármuna og þannig treyst undir- stöður lýðræðisins og réttar- ríkisins. Umræðu um hvernig megi vinna þessi verk betur af hálfu þessara stofnana svo og af hálfu Stjórnskipunar- og eftirlits- nefndar Alþingis má aldrei ljúka. Ég tel hins vegar að Alþingi sé á réttri leið hvað varðar eftirlit og aðhald gagnvart framkvæmd- arvaldinu. Eftir Ögmund Jónasson »Mikilvægast er þó að þingið og eftirlits- stofnanir á þess vegum hafi sem best samstarf og samráð sín á milli. Ögmundur Jónasson Höfundur er fv. formaður stjórnskip- unar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Alþingi á framfaraleið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.