Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 21
21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Kosninganótt Þau voru margskonar augnablikin hjá þingmönnum og ráðherrum á kosninganótt. Hér er Sigurður Ingi umvafinn sínum græna lit og margt að hugsa í ljósi nýrrar stöðu flokksins.
Eggert
Veikleika fyrir-
hrunsáranna má að
einhverju leyti rekja
til veikleika í störfum
Alþingis. Á tímamót-
um er eðlilegt að
spurt sé hvernig tek-
ist hafi til við að ráða
bót á þessum veik-
leikum. Að mínum
dómi hefur það tekist
vel og gleður mig að
geta sagt að ég telji þingið að
mörgu leyti á framafaraleið.
Frá því fyrir hrun hafði verið
starfandi starfshópur með það
verkefni að yfirfara þingsköpin og
skipulag þinghaldsins. Lagt var til
að nefndakerfið yrði endur-
skipulagt og að nefndum yrði
fækkað og einni tiltekinni nefnd
falið það verkefni sérstaklega að
fara með mál er lúta að eftirliti
með handhöfum framkvæmdar-
valds.
Rannsóknarskýrslur
flýta umbótaferli
Í Rannsóknarskýrslunni sem Al-
þingi lét gera um fall bankanna
kom fram gagnrýni sem hraðaði
breytingaferlinu. Þingmannanefnd
sem yfirfór skýrslu þessarar rann-
sóknarnefndar lagði í kjölfarið
fram tillögur um úrbætur á störf-
um þingsins. Horft var til hug-
mynda sem fram höfðu komið í
fyrrgreindum vinnuhópi og þær
mátaðar inn í þá mynd sem við
blasti eftir efnahagshrunið.
Haustið 2010 samþykkti þingið
síðan ályktun að tillögu þing-
mannanefndarinnar, þar sem m.a.
kom fram að auka þyrfti sjálfstæði
þingsins gagnvart framkvæmdar-
valdinu, leggja bæri meiri áherslu
á eftirlitshlutverk þingsins og
bæta undirbúning löggjafar.
Eftirlitshlutverk Alþingis eflt
Þessi ályktun var samþykkt
samhljóða og strax í kjölfarið voru
gerðar breytingar á þingsköpum
Alþingis. Markmiðið með þeim
breytingum var að styrkja störf
nefndanna og þar
með faglega umfjöllun
Alþingis um þingmál,
svo og að efla eftir-
litshlutverk þess og
styrkja stöðu þess
gagnvart fram-
kvæmdarvaldinu. Í
frumvarpinu voru
einnig lögð til mik-
ilvæg ákvæði um upp-
lýsingarétt þing-
manna, upplýsinga-
skyldu ráðherra og
um meðferð trún-
aðarmála í nefndum þingsins. Í
samræmi við nýju þingskapalögin
var komið á nýrri nefndaskipan
haustið 2011, þar á meðal varð
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
að veruleika.
Ráðist í kerfislægar
breytingar
Þegar Stjórnskipunar- og eftir-
litsnefnd var sett á fót voru vissu-
lega fyrir hendi stofnanir sem
sinntu eftirliti og aðhaldi gagnvart
framkvæmdarvaldinu. Ríkisendur-
skoðun hafði verið gerð að sjálf-
stæðri stofnun á vegum Alþingis
með lögum árið 1986 og var mark-
miðið að tryggja að sá sem ann-
aðist endurskoðun ríkisfjármála
væri óháður þeim sem endurskoð-
unin beindist að. Embætti um-
boðsmanns Alþingis hafði tekið til
starfa árið 1988. Til viðbótar við
þessar grundvallarstoðir eftirlits-
og aðhaldskerfisins, var Stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd nú ætl-
að að verða vettvangur nýrra
vinnubragða með sérstakri
áherslu á eftirlitshlutverk þings-
ins. Hér var um að ræða mik-
ilvæga kerfislæga breytingu.
Hlutverk stjórnskipunar- og
eftirlitsnefndar
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
var falið að kanna einstakar
ákvarðanir eða verklag hjá ráð-
herra eða stjórnsýslu á vegum
hans. Umfjöllun nefndarinnar var
ætlað að beinast fyrst og fremst
að því sem liðið er, en umfjöllun
annarra nefnda, sem einnig fara
með eftirlit, við það sem er bundið
líðandi stund. Þetta er þó ekki al-
veg einhlítt enda landamæri á
milli nútíðar og fortíðar oft óljós. Í
þessu efni hafa línur verið að mót-
ast og eiga enn eftir að skýrast.
Réttur minnihluta til að taka
upp mál innan hennar var sér-
staklega tryggður þótt meirihluti
réði hvernig farið væri með hvert
mál, t.d. hvort nefndinni þætti
ástæða til þess að gefa þinginu
skýrslu um athugun sína og eftir
atvikum gera tillögu um ályktun
þingsins um málið.
Lagt upp úr vönduðum vinnu-
brögðum og trúverðugleika
Sá háttur var hafður á frá þing-
kosningunum 2013 að nefndar-
maður úr stjórnarandstöðu gegndi
formennsku í nefndinni. Í sama
anda voru athugunarefni sem
snertu stjórnarmeirihluta látin
lúta verkstjórn nefndarmanns úr
flokki sem verið hafði í stjórnar-
andstöðu þegar viðkomandi mál
hafði komið upp. Með þessu móti
er dregið úr hættu á pólitískri
hagsmunagæslu og þetta er einnig
til þess fallið að auka trúverðug-
leika nefndarinnar.
Skýrslur stofnana sem starfa á
vegum Alþingis, Ríkisendurskoð-
unar og embættis umboðsmanns,
eru til umfjöllunar í stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd, aðrar en
skýrslur Ríkisendurskoðunar um
almenna framkvæmd fjárlaga, sem
eru til umfjöllunar í fjárlaganefnd.
Í skýrslum um einstakar stofnanir
sem beint er til Stjórnskipunar-
og eftirlitsnefndar er engu að síð-
ur byggt á fjárlögum og lagt mat
á framkvæmd þeirra af hálfu við-
komandi stofnana.
Togstreitan milli
fjárlaga og lagaskyldna
Ljóst er að samspil Stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar við lykil-
eftirlitsstofnanir aðhalds og eftir-
lits, Ríkisendurskoðun og embætti
umboðsmanns Alþingis, skiptir
miklu máli og ríður á að vel takist
til um að gera það virkara og
markvissara í framtíðinni. Með
markvissri yfirferð yfir skýrslur
Ríkisendurskoðunar ásamt hlut-
aðeigandi stofnunum framkvæmd-
arvaldsins og frekari yfirferð þeg-
ar Ríkisendurskoðun sér ástæðu
til að ítreka athugasemdir sínar,
er stuðlað að því að ábendingar
stofnunarinnar séu teknar alvar-
lega og brotalamir lagaðar. Ríkis-
endurskoðun hefur eðlilega beint
sjónum mjög að fjárhagslegum
rannsóknum á framkvæmd fjár-
laga. Á þeirri framkvæmd eru
hins vegar tvær hliðar. Iðulega
búa framkvæmdaaðilar stjórnsýsl-
unnar við tvenns konar lög, ann-
ars vegar fjárlög og hins vegar
hvíla á þeim lagaskyldur sem lúta
að verkefnum þeirra, um réttindi
sjúklinga, rétt samfélagsins til
löggæslu og verndar og svo fram-
vegis.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
þingsins hefur verið mjög með-
vituð um að halda báðum þessum
sjónarhornum til haga og hefur
litið á það sem hlutverk sitt að
koma upplýsingum til annarra
nefnda þingsins og ráðuneyta ef
nefndinni þykir einblínt um of á
þá hlið sem lýtur að fjárlögum en
horft framhjá þeim lagalegu
skyldum sem hvíla á stjórnendum
opinberra stofnana. Þessar
áherslur Stjórnskipunar- og eftir-
litsnefndar munu án efa stuðla að
aukinni meðvitund Alþingis um að
fjárveitingar af þess hálfu þurfi
jafnan að ákvarðast með hliðsjón
af þeim lagalegu skyldum og póli-
tísku stefnumarkmiðum sem
stofnunum er gert að starfa sam-
kvæmt.
Framtíðin
Þetta tel ég vera lykilatriði. Allt
of oft heyrum við býsnast yfir því
að stofnanir hafi farið út yfir
leyfðan fjárlagaramma þegar í
reynd var um að kenna vankunn-
áttu eða ábyrgðarleysi fjárveiting-
arvaldsins. Þarna hefur stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd tekið á
málum af yfirvegun og ábyrgð,
sem ég vona að verði til eftir-
breytni. Bæði Ríkisendurskoðun
og embætti Umboðsmanns Al-
þingis hafa unnið sér ótvíræðan
sess og eru álit þessara stofnana
tekin alvarlega. Ætla má að frum-
kvæðismálum af hálfu þessara að-
ila muni fjölga á komandi árum en
sýnt þykir að slík vinnubrögð hafi
forvarnargildi.
Ég efast ekki um að Stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefnd muni eiga
eftir að hasla sér betur völl hvað
varðar frumkvæði í rannsóknum
og athugunum á því sem orka
kann tvímælis af hálfu fram-
kvæmdarvaldsins eða á ábyrgð
þess. Mikilvægast er þó að þingið
og eftirlitsstofnanir á þess vegum
hafi sem best samstarf og samráð
sín á milli. Það tel ég hafa tekist
bærilega á liðnu kjörtímabili.
Stjórnmálamenn
meðvitaðri um ábyrgð sína
Störf Ríkisendurskoðunar og
Umboðsmanns Alþingis, þessara
tveggja stofnana sem heyra undir
málefnasvið Stjórnskipunar og
eftirlitsnefndar Alþingis, hafa
opnað og örvað ábyrga umræðu,
styrkt réttarstöðu þeirra sem
brotið er á, gert stjórnmálamenn
meðvitaðri um eigin orð og gjörð-
ir, gert stjórnsýsluna meðvitaðri
um ábyrgð sína, stuðlað að vand-
aðri löggjöf, gert stjórnendur og
starfsfólk hjá hinu opinbera
ábyrgara og meðvitaðra í meðferð
fjármuna og þannig treyst undir-
stöður lýðræðisins og réttar-
ríkisins.
Umræðu um hvernig megi
vinna þessi verk betur af hálfu
þessara stofnana svo og af hálfu
Stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar Alþingis má aldrei ljúka.
Ég tel hins vegar að Alþingi sé á
réttri leið hvað varðar eftirlit og
aðhald gagnvart framkvæmd-
arvaldinu.
Eftir Ögmund
Jónasson »Mikilvægast er þó að
þingið og eftirlits-
stofnanir á þess vegum
hafi sem best samstarf
og samráð sín á milli.
Ögmundur Jónasson
Höfundur er fv. formaður stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar Alþingis.
Alþingi á framfaraleið