Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 31
fyrirtækið flutti m.a. inn hjólastóla,
persónulyftur og hjúkrunarrúm.
Elísabet var formaður Kven-
félagsins Seltjarnar 1974-76, forseti í
Dale Carnegie-klúbbi 1975, formað-
ur Öldungaráðs við Menntaskólans
við Hamrahlíð 1977-80, endurskoð-
andi Íþróttafélags fatlaðra 1974-85
og einn af stofnendum þess félags
sem og Kynfræðifélgs Íslands og
SIVÍ (smáfyrirtæki innan Versl-
unarráðs Íslands). Hún var formað-
ur Migrensamtakanna 1988, ritari
SIVÍ 1988-90, var varamaður í stjórn
Verslunarráðs Íslands 1991-93, var
Málfreyja 1982-85 og átti sæti í
nefndum á vegum Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, 1976-84.
Elísabet hélt námskeið um fötlun
og kynlíf 1983 og 1984. Hún sat í rit-
nefnd Fréttabréfs FKA, Félags
kvenna í atvinnurekstri, stofnaði
París, félag þeirra sem eru einar/
einir, 2003, og var formaður þess í
fjögur ár. Hún kom á fót kaffistund-
um, tvisvar í viku fyrir „Karla á Nes-
inu 67 ára og eldri“ í apríl 2010 og
hélt kaffistundunum gangandi fram
á haust 2011.
Um áhugamálin segir Elísabet
m.a.: „Ég hef alltaf haft áhuga á
mannlegum samskiptum. Eigin-
maður minn vann mikið að fé-
lagsmálum fatlaðra og ég tók fullan
þátt í starfi hans og þeirri viðleitni
að rjúfa félagslega einangrun fatl-
aðra, byggja Sjálfsbjargarhúsið og
stofna Íþróttafélag fatlaðra. Ég
kenndi lengi sund á vegum fatlaðra,
m.a. Halliwick-aðferðina sem er
sund án hjálpartækja. Öll þessi
starfsemi og ýmis önnur störf að
málefnum fatlaðra er líklega sú við-
leitni sem ég er stoltust af þegar litið
er um öxl.“
Fjölskylda
Elísabet giftist 7.1. 1973, Theódóri
A. Jónssyni, f. 28.6. 1939, d. 7.5. 1989,
formanni Sjálfsbjargar. Foreldrar
Theódórs: Jón Sæmundsson, versl-
unarmaður frá Aratungu í Staðardal
í Strandasýslu, seinna verslunar-
maður í Hólmavík, og k.h., Helga El-
ín Tómasdóttir frá Ytri-Grund í
Blönduhlíð í Skagafirði, en þau
bjuggu í Reykjavík síðustu árin.
Börn Elísabetar og Sigurðar R.
Bjarnasonar, fyrrv. apótekara, eru
stúlkubarn, f. 5.9. 1958, d. 6.9. 1958;
Bjarni Sigurðsson, f. 1.7. 1964, lyfja-
fræðingur og dr. frá líf- og lækn-
isfræðideild HÍ, búsettur í Reykja-
vík, kvæntur Ingibjörgu Gunn-
laugsdóttur, uppeldisfræðingi og
námsráðgjafa, og eru börn þeirra
Arna, f. 1997, og Sigurður Þór, f.
2002; Kristín Sigurðardóttir, f. 25.6.
1968, fjölmiðlafræðingur og frétta-
maður á RÚV, búsett í Mosfellsbæ, í
sambúð með Vigni Eiðssyni, en son-
ur hennar er Darri Bergmann
Davíðsson, f. 1997.
Systkini Elísabetar: Guðjón Jóns-
son, f. 12.5. 1945, fyrrv. atvinnurek-
andi, nú búsettur í Kópavogi; Hafdís
Jónsdóttir, f. 21.8. 1952, deild-
arstjóri, búsett á Seltjarnarnesi.
Foreldrar Elísabetar: Jón V. Guð-
jónsson, f. 15.11. 1922, d. 27.12.2012
framkvæmdastjóri hjá B&L, og
Gyða Valdimarsdóttir, f. 31.10. 1922,
d. 15.1. 1998, atvinnurekandi.
Úr frændgarði Elísabetar Jónsdóttur
Elísabet
Jónsdóttir
Jón Guðmundsson
b. Stærri-Bæ og Hlíð
í Grafningi
Hildur Filippusdóttir
húsfr. á Stærri-Bæ í
Grímsnes og í Rvík
Guðjón Jónsson
trésmiður í Rvík
Jónína Vilborg Ólafsdóttir
húsfr. í Rvík
Jón V. Guðjónsson
framkv.stj. hjá B&L á
Seltjarnarnesi
Ólafur Gunnlaugsson
járnsm. í Rvík
Vilborg Vigdís Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Guðjón
Jónsson
atvinnurek.
í Kópavogi
Þórarinn
Jónsson
skipstj. í Rvík
Jón Vilberg
Guðjónsson lögfr.
og skrifstofustj.
í Menningar- og
menntamálaráðun.
Jón G. Þórarinsson
organisti og söngkennari í Rvík
Þórarinn Sigþórsson
tannlæknir,margfaldur
Íslandsmeistari í brids
og laxveiðimaður
Sigþór Karl
Þórarinsson
hreppstj. í
Einarsnesi á
Mýrum
Guðmundur Sigþórsson
fyrrv. ráuneytisstj.
Jóhanna Sigþórsdóttir
fyrrv. fréttastj. á DV
Þorvaldur Magnússon
b. í Heiðarkoti Stokkseyrarhr.
Ragnhildur
Sveinsdóttir
húsfr. í Heiðarkoti
í Stokkseyrarhr.
Valdimar Þorvaldsson
verkam. og sótari í Rvík
Elísabet Jónsdóttir
húsfr. í Rvík
Gyða Valdimarsdóttir
húsfr. og atvinnurekandi
Seltjarnarnesi
Jón Sigurðsson
ferjum. og keyrslum. á
Svarfhóli í Flóa og í Rvík
Gyðríður Steinsdóttir
húsfr. í Svarfhól í Flóa og í Rvík
Afmælisbarnið Elísabet Jónsdóttir.
ÍSLENDINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Hersteinn Jens Pálsson fædd-ist í Reykjavík 31. október1916. Foreldrar hans voru
Guðrún Sigríður Indriðadóttir leik-
kona, f. í Reykjavík 3.6. 1882, d. 19.2.
1968, og Páll Jónatan Steingrímsson
ritstjóri, f. í Flögu í Vatnsdal 25.3.
1879, d. 21.8. 1947.
Eiginkona Hersteins var Margrét
Ásgeirsdóttir, f. 27.1. 1920 í Reykja-
vík, d. 26.1. 2015. Börn þeirra: Inga,
verkfræðingur, f. 8.1. 1947, og Páll,
líffræðingur og prófessor, f. 22.3.
1951, d. 13.10. 2011.
Hersteinn ólst upp í miðbæ
Reykjavíkur og átti heima í Reykja-
vík til ársins 1966 þegar hann fluttist
með fjölskyldu sinni út á Seltjarnar-
nes. Hann lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1935
og stundaði síðan nám við Háskóla
Íslands í eitt ár áður hann gerðist
blaðamaður við dagblaðið Vísi. Árið
1942 varð hann ritstjóri Vísis og
gegndi því starfi til ársins 1963. Her-
steinn var formaður Blaðamanna-
félags Íslands 1946-1947. Hann var
fréttaritari United Press Inter-
national 1942-1963 og New York
Times 1944-1963. Hann réðst til
starfa við Upplýsingaþjónustu
Bandaríkjanna árið 1963 en árið
1966 gerðist hann yfirmaður þýð-
inga við Ríkissjónvarpið sem þá var
að taka til starfa.
Árið 1967 stofnaði Hersteinn Rit-
verk, fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem
bauð almannatengslaþjónustu, og
starfaði við það fram undir áttrætt.
Hann var afkastamikill þýðandi og
eftir hann liggja meira en 300 bóka-
þýðingar og þýðingar á textum þús-
unda kvikmynda og sjónvarps-
mynda. Hann skráði endur-
minningar móðursystur sinnar
Evfemíu Waage, Sigurðar Jóns-
sonar flugmanns og Gunnars Frið-
rikssonar, formanns Slysavarna-
félags Íslands. Einnig ritstýrði hann
nokkrum minningabókum, þar á
meðal um séra Friðrik Friðriksson
og Jón Pálmason á Akri.
Hersteinn var einn þriggja stofn-
enda Lionshreyfingarinnar á Íslandi
árið 1951. Hann var sæmdur ridd-
arakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu
árið 1988.
Hersteinn lést 21.2. 2005.
Merkir Íslendingar
Hersteinn Pálsson
95 ára
Björn Helgi Jónsson
90 ára
Ólafía Ólafsdóttir
85 ára
Guðlaug Marteinsdóttir
Kristbjörg G.
Kristjánsdóttir
Marta Kristín
Ingvarsdóttir
80 ára
Guðbjartur Ágústsson
Pétur Eggertsson
75 ára
Bára Óskarsdóttir
Elísabet Jónsdóttir
Geirþrúður Sigurðardóttir
Guðrún Pétursdóttir
Ingibjörg Helgadóttir
Jónína Þorgrímsdóttir
Reynir Jósepsson
70 ára
Aldís Jónsdóttir
Björn Jóhannes
Sveinbjörnsson
Hafdís Einarsdóttir
Hafsteinn Sæmundsson
Hansína M. Kemp
Halldórsdóttir
Hrafnhildur Kristjánsdóttir
Jón H. Sigurbjörnsson
Karolína Þóra Ágústsdóttir
Þórkatla Sigurbjörnsdóttir
60 ára
Erlen Sveinbjörg Óladóttir
Helga Árnadóttir
Helgi Árnason
Jóna Kristbjörg
Hafsteinsdóttir
María Erla Pálsdóttir
50 ára
Aldís Einarsdóttir
Guðlaug Helga Jónsdóttir
Herborg Þóra
Ármannsdóttir
Hjördís Fjóla Ólafsdóttir
Hörður Árnason
Ingibjörg Gréta
Gísladóttir
Ingólfur Örn Birgisson
Kristín Andrea
Friðriksdóttir
Margrét Anna
Hjálmarsdóttir
Súsanna Rafnsdóttir
Tanapon Onrit
Úlfar Snær Arnarson
Valgeir Ægir Ingólfsson
40 ára
Baldur Þór Jack
Birgir Rafn Birgisson
Eggert Baldvinsson
Elín Dögg Guðjónsdóttir
Hlynur Geir Hjartarson
María Ósk Jónsdóttir
Sandor Matus
Sigurbjörg H.
Gunnbjörnsdóttir
Sigurbjörn Viktorsson
Teitur Sigmarsson
30 ára
Bjargmundur
Halldórsson
Daria Podenok
Halla María
Þórðardóttir
Hallur Einarsson
Heiðmar Guðmundsson
Helga Harðardóttir
Héðinn Eiríksson
Jón Gunnar
Ásbjörnsson
Karen Sif Kristjánsdóttir
Malla Rós Valgerðardóttir
Snorri Arinbjarnar
Til hamingju með daginn
40 ára Eggert er Kópa-
vogsbúi og vinnur við
kvikmyndagerð og á og
rekur eftirvinnslu-
fyrirtækið RGB ehf.
Maki: Gunnhildur Erna
Theodórsdóttir, f. 1977,
kennari í Smáraskóla.
Börn: Theodór Árni, f.
2000, Tinna Rún, f. 2009,
og ónefndur, f. 2016.
Foreldrar: Baldvin Egg-
ertsson, f. 1941, og Gyða
Ásbjarnardóttir, f. 1935.
Þau eru bús. í Kópavogi.
Eggert
Baldvinsson
30 ára Hallur er frá Vest-
mannaeyjum, býr þar og
er vélstjóri á skipinu Kap
Ve.
Maki: Björg Hjaltested, f.
1989, viðskiptafræðingur.
Börn: Daníel Ingi, f. 2012,
Kristófer Daði, f. 2013, og
Sunna Marín, f. 2015,
Foreldrar: Einar Birgir
Einarsson, f. 1960, húsa-
smíðameistari og Guðrún
Snæbjörnsdóttir, f. 1959,
kennari. Þau eru bús. í
Vestmannaeyjum.
Hallur
Einarsson
30 ára Heiðmar er Akur-
eyringur en býr í Reykja-
vík. Hann er héraðsdóms-
lögmaður hjá CATO
Lögmönnum.
Maki: Adda Soffía Ingv-
arsdóttir, f. 1986, flug-
freyja hjá Icelandair.
Foreldrar: Guðmundur Þ.
Jónsson, f. 1960, skip-
stjóri á Vilhelm EA 11 hjá
Samherja, og Vigdís El-
ísabet Hjaltadóttir, f.
1964, vinnur hjá Lostæti.
Þau eru bús. á Akureyri.
Heiðmar
Guðmundsson
´ ´
TM