Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016 ✝ Jóhann Lúth-ersson fæddist hinn 9. janúar 1934. Hann lést á Landspítalanum 23. október 2016. Foreldrar hans voru hjónin Lúther Salómonsson frá Mávahlíð á Snæ- fellsnesi og Sveins- ína Oddsdóttir, fædd á Hellissandi. Jóhann ólst upp í Kópavogi í hópi systkina sinna, þeim Sig- ríði, f. 22.9. 1932, Hilmari, f. 26.8. 1938, og Reyni, f. 3.2. 1948. Jóhann kvæntist Þóru Júlíus- dóttur, f. 12.10. 1941, en þau Elíasar er Aníta Björt Einars- dóttir, hennar maður er Arnar Karlsson og eiga þau þrjú börn: Elías Mána, Söru Kristel og Matthías Bjart. Sambýliskona Jóhanns síð- ustu árin var Magnea Þorfinns- dóttir, f. 10.4. 1942 í Neskaup- stað, d. 28.11. 2015. Jóhann ólst upp í Kópavogi og lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Hann var pípulagningamaður en vann einnig mörg önnur störf, var m.a. til sjós í mörg ár. Hann fór víða um land við störf sín en bjó í Reykjavík á fullorð- insárum sínum. Jóhann var einn af stofnendum Breiðabliks og einnig stofnaði hann Bridge- félag Kópavogs. Hann hafði gaman af skák og brids og spil- aði mikið hjá hinum ýmsu fé- lögum. Útför Jóhanns fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 31. októ- ber 2016, kl. 13. skildu 1981. Þau eignuðust tvö börn. 1) Jóhanna Stella, f. 8.10. 1970, henn- ar maður er Grím- ur Guðmundsson og þeirra börn eru; Stefán Logi, kona hans er Ásdís Ösp Ásgeirsdóttir og eiga þau soninn Ás- grím Mána; Hákon Ari, Sólrún Tinna og Ásdís Freyja. 2) Elías Oddur, f. 23.10. 1972, hans kona er Sara Ósk Guðmundsdóttir og þeirra börn eru: Guðmar Bjart- ur og hans unnusta er Katarína Sif Kjartansdóttir; Alexander Blær og Birta Líf. Stjúpdóttir Núna er komið að kveðju- stund, elsku Jói minn. Mikið er nú skrýtið að hugsa til þess að við eigum ekki eftir að sitja saman og drekka kaffi og spjalla, en nú ertu komin til Mad- dýjar þinnar og ég veit að nú eru þjáningar þínar horfnar á braut en eftir situr minning um ynd- islegan tengdapabba, sem alltaf var hægt að hringja í hvort sem var til að fá ráð eða hjálp. Alltaf varstu boðinn og búinn að koma og rétta hjálparhönd. En svo fór heilsan að segja til sín, en ég er svo þakklát fyrir tímann sem við áttum saman þegar þú komst út til okkar í heimsókn og fyrir sím- tölin sem við áttum saman. Elsku Jói, ég ætla ekki að hafa þetta lengra, enn og aftur takk fyrir allt. Drottinn leiði þig allt um kring, þreytt var orðin þín ganga, þrautir og verkir horfnir á braut nú ertu kominn í ljóssins laut. (Sara Guðmundsdóttir) Þín tengdadóttir, Sara. Elsku afi, ég er svo ánægð að þú komst til okkar til Noregs í apríl, þá gat ég sýnt þér nýja landið mitt, við keyrðum um og skoðuðum margt. Fórum meira að segja til Svíþjóðar. Elsku afi, það var rosalega gott að geta hitt þig núna í byrjun október, þá fékk ég að knúsa þig og sjá þig en nú þarftu að fara frá okkur í ann- an heim þar sem þú getur hvílt þig og liður vel. Mér þykir vænt um þig, afi minn. Birta Líf. Nú eru öll kurl komin til grafar og þú ert loksins hættur að þjást. Það erfiðasta við að kveðja þig var ekki dauðinn sjálfur þó að dauðinn sé alltaf sár. Heldur var það að sjá þig svona veikan, svona ólíkan sjálfum þér. Jóhann Lúthersson, eða afi Jói, er mér afar minnisstæður og mun vera um ókomna tíð. Hann var einn upplýstasti maður sem ég fékk þann heiður að kynnast og lesn- ari menn eru vandfundnir. Hann var þrjóskur og ég hugsa til baka með hlýhug til kennara hans og foreldra því hvílík ósköp hefur það verið að segja þessum manni fyrir verkum. Afi sýndi náminu mínu mikinn áhuga, stundum meiri áhuga en ég sjálfur og vildi meira að segja fá að lesa bækurnar mínar svo hann gæti spjallað við mig um efnið. Honum hefur þó ekki leiðst að lesa þær enda mikill lestrar- hestur. Við gátum spjallað enda- laust um daginn og veginn og því var lítið mál að koma við hjá afa hvort sem það var til að hjálpa honum með tæknina sem átti það til að stríða honum eða bara til að kíkja í 10 dropa. Það er ein nótt sem er mér minnisstæðust þegar ég hugsa til afa og allra þeirra stunda sem við eyddum saman. Ég hef verið um 10 ára gamall þegar ég er sendur að gista hjá afa. Ég mætti vopn- aður leikjatölvu og tölvuleik úr seinni heimsstyrjöldinni, enda trúði ég því ekki að neina alvöru afþreyingu væri að finna í gömlu bókunum hans eða í sjónvarps- efninu sem hann kaus að horfa á. Hins vegar eftir aðeins nokkrar mínútur af spilun áttaði ég mig á því sem afi hafði áttað sig á allan tímann. Ég skildi ekki orð af því sem var í gangi í leiknum. Svo afi tók upp á því að þýða fyrir mig, sem varð fljótt þreytt. Afi var þó ekki ráðalaus og endaði á því að vaka frameftir og segja mér sög- ur úr seinni heimsstyrjöldinni sem voru án nokkurs vafa mun áhugaverðari en nokkur tölvu- leikur gæti verið. Síðasta ár var afa afskaplega erfitt. Hann missti konuna sína, hana Magneu, og varð mikill sjúklingur stuttu seinna. Ég horfi til baka og lít aðdáunaraugum á starfsfólk sjúkrahúsanna sem annaðist hann. Á þetta fólk mikl- ar þakkir skildar fyrir sín störf. Afi Jói átti ekki marga að en hann átti góða. Fremst fer systir hans og maður hennar, þau Sigga og Diddi, sem þrátt fyrir að búa er- lendis gáfu sér alltaf tíma til að heimsækja afa og færa honum vínber og ávexti sem var hans uppáhald til að grípa í yfir góðri bók. Hún Aníta, systir mín, var einnig afar dugleg að heimsækja afa og vera til staðar fyrir hann. Að lokum er það æskuvinur hans, hann Maggi, sem var alltaf innan handar. Verður þeirra þáttur seint metinn. Nú kveð ég afa í síðasta sinn. Nú veit ég að honum líður vel. Hans þjáning er liðin. Við vitum að dauðinn ber að dyrum hjá okk- ur öllum. Hvenær? Það vitum við ekki, en nýtt líf tekur við. Afi Jói upplifði það að verða langafi og hann kunni vel að meta hlutverk sín sem bæði afi og langafi. Afi mun lifa lengi í minningum þeirra sem fengu að kynnast honum og þeirra sem heyra sögurnar af honum. Ég kveð þig, elsku afi, um leið og ég þakka þér fyrir allar ynd- islegu samverustundirnar. Megir þú hvíla í friði. Guðmar. Ég vaknaði við símann sunnu- daginn 23. október, það var Guð- mar bróðir sem segir að þú sért kominn á spítala og útlitið því miður ekki gott, það var því ekki annað í stöðunni en að klæða sig og bruna til þín, en elsku afi, ég var varla kominn í sokka þegar mamma hringir og segir að þú sért farinn. Ég er enn að reyna ná þessu þetta er svo óraunveru- legt. En með sorg í hjarta og mikl- um söknuði kveð ég þig, elsku afi minn. Á síðustu mánuðum hefur þú svo sannarlega kennt mér margt og eitt af því er æðruleysi, það var alveg sama hvernig þér leið eða hvaða verkefni lífið færði þér alltaf tókst þú á við það af mikilli ró, jákvæðni og húmor. Ef ég spurði þig hvernig þér liði sagðir þú alltaf það sama og það var svona þokkalega, ef þú lást inni á spítala fylgdi alltaf fljótt á eftir: vonandi kemst ég heim á morgun. Þar fannst þér gott að vera með góða bók og súkkulaði. Elsku afi, það er svo margt sem ég átti eftir að segja þér en það verður að bíða betri tíma þegar við hittumst aftur. Hvíldu í friði, elsku afi minn, mér þykir óendanlega vænt um þig, en nú veit ég að þú ert ham- ingjusamur á fallegum og frið- sælum stað með henni Maddý þinni. Sofðu rótt, elsku afi minn. Anita Björt. Elsku Jói, bróðir minn, mér þótti svo óendanlega vænt um þig; því fá engin orð lýst. Þú hef- ur verið partur af lífi mínu í 82 ár. Það verður erfitt að koma heim og geta ekki lengur farið í leik- hús, bíó og ferðalög með þér eða heyrt þig banka og koma inn í kaffispjall. Ég mun sakna þín að eilífu. Þú varst einstaklega vel les- inn, fróður og mikill brandara- kall, alltaf tilbúinn að ræða um pólitík og aðra heimsviðburði. Þú varst eldklár í þeim málum og þar sló þér enginn við. Þú varst trygglyndur, gjafmildur og greiðvikinn og varst okkar stoð og stytta þegar við komum heim og vildir allt fyrir okkur gera. Ekkert var of mikið og allt var meira en sjálfsagt. Þú lánaðir okkur bílana þína og meira að segja einu sinni í ferð til Norðurlanda í þrjár vikur. Lára Tryggvadóttir, frænka okk- ar, bað mig um að minnast þess hversu þakklát þau hjónin voru fyrir bílinn sem þú lánaðir þeim þegar þau komu í Íslandsferð fyrir nokkrum árum. Ég skilaði því til þín. Alltaf varstu tilbúinn að koma og laga ýmsar pípulagnir fyrir okkur. Það var ómetanlegt, elsku bróðir minn. Við eigum þér svo margt að þakka og ég sagði þér það hundrað sinnum. Það dýr- mætasta sem þú gerðir fyrir mig var þegar þú lánaðir mér upp í fargjaldið þegar ég fór til Banda- ríkjanna í fyrsta sinn, árið 1953, því ég hafði ekki alveg nóg. Það var ómetanlegt fyrir okkur og við gátum aldrei þakkað þér til fulls, elsku Jói minn. Þú varst hjá okkur í Kaliforníu í sex mánuði og dóttir þín og hennar maður komu líka og voru í 2-3 mánuði sem var afar gaman fyrir þig. Þá keyrðuð þið saman yfir Bandaríkin til Washington og heimsóttuð frænkur okkar þar. Þetta var mikið ævintýri fyr- ir ykkur. Ég er mikið þakklát fyrir að hafa getað verið með þér síðustu mánuðina, komið með vatnsmel- ónur og appelsínur sem var oft það eina sem þú vildir borða. Ég sauð fyrir þig nýtt slátur frá frænku okkar, með rófustöppu, sem þú hafðir ekki smakkað í mörg ár. Elsku Jói minn, ég finn enn faðmlag þitt þegar við kvödd- umst síðast og þú umvafðir mig með hlýju og kærleik. Við þurft- um ekkert að segja. Tárin drupu hljóðlaust. Við vissum bæði að það var í síðasta sinn. Megi Guð vernda þig. Gættu þess vin, yfir moldunum mín- um, að maðurinn ræður ei næturstað sín- um. Og þegar þú hryggur úr garðinum gengur ég geng þér við hlið þó ég sjáist ei lengur. En þegar þú strýkur burt tregafull tárin þá teldu í huganum yndisleg árin sem kallinu gegndi ég kátur og glaður, það kæti þig líka, minn sam- ferðamaður. (James McNulty.) Sigríður Lúthersdóttir. Jóhann Lúthersson Kæri afi, við minnumst þess hversu gaman var að koma í heim- sókn til ykkar Dóru ömmu, hversu hress þú varst alltaf og lífsgleðin ljómaði af þér. Það var mikill hlátur sem einkenndi þig og við munum ávallt minn- ast þess. Þú sem kvaddir svo óvænt, við söknum þín og ánægjunnar sem fylgdi þér hvert sem þú fórst. Takk fyrir stundirnar. Þó sólin nú skíni á grænni grundu Er hjarta mitt þungt sem blý, Sigurjón Valdimarsson ✝ Sigurjón Magn-ús Valdimars- son fæddist 3. jan- úar 1932. Hann lést 29. september 2016. Útför hans var gerð 13. októ- ber 2016. því burt varst þú kall- aður á örskammri stundu. Í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða Við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu nú geyma gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Höf. ókunnur) Þín barnabörn, Gísli Freyr, Óskar Örn, Magnús Fannar og Jóhanna Herdís. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR GUÐBRANDSSON, Gullsmára 7, áður til heimilis í Hraunbæ 132, andaðist á heimili sínu laugardaginn 22. október. Útför hans fer fram frá Árbæjarkirkju þriðjudaginn 1. nóvember klukkan 13. . Bjarney Guðjónsdóttir, Helga Hilmarsdóttir, Örn Þráinsson, Guðjón Hilmarsson, S. Ingibjörg Jósefsdóttir, Bragi Hilmarsson, Björk Norðdahl, Arnar Hilmarsson, Margrét Guðmundsdóttir, Arndís Hilmarsdóttir, Guðmundur Mar Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir afi, bróðir og vinur, GUÐMUNDUR EMIL HJALTASON, lést á Landspítalanum 4. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. . Svanhildur Guðmundsdóttir Viðar Jónsson Anna Stella Guðmundsdóttir Noa Randin Stranne Hjalti Guðmundsson Íris Hjaltadóttir Sigríður Guðmundsdóttir barnabörn. Yndisleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÚN GYÐA SVEINBJÖRNSDÓTTIR, Lambhaga 26, Selfossi, lést miðvikudaginn 26. október. . Ólafur Th. Ólafsson, börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SIGRÍÐUR EINARSDÓTTIR, Roðasölum 1, Kópavogi, sem lést 19. október, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 2. nóvember klukkan 13. . Einar Stefánsson, Tryggvi Stefánsson, Margret G. Flóvenz, Erna Stefánsdóttir, Hrafn Hilmarsson, Guðbjörg Sigrún Stefánsdóttir, Oddur Árnason og fjölskyldur. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar tengdamóður ömmu og langömmu. ÞÓRUNNAR GÍSLADÓTTUR Þangbakka 10. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Líknardeildar Landspítalans fyrir hlýhug og einstaka umönnun. . Gyða Kristinsdóttir Elísabet Jónsdóttir Magnús Sveinþórsson Ögmundur Jónsson Gísli Jónsson Júlíana Þorvaldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri grein- ar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.