Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
PORTO
1.des. í 3 nætur
Netverð á mann frá kr. 79.995 m.v.2 í herbergi
með morgunmat.
Hotel Cristal
Porto
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Nýr áfangastaður
Frá kr.
79.995
m/morgunmat
Frábært
að versla
Góður
matur
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Aldrei hafa fleiri konur sest á þing
eftir alþingiskosningar hér á landi
en 30 konur taka sæti á Alþingi eft-
ir kosningu helgarinnar eða 47,6
prósent þingmanna. Fyrir þessar
þingkosningar settust flestar konur
á þing árið 2009 en þá voru þing-
konur 27 talsins eða 42,8 prósent
kjörinna alþingismanna.
Á kjörskrá eru konur örlítið fleiri
en karlmenn en þær eru 50,1 pró-
sent á móti 49,5 prósent karlmanna.
Karlmenn eru fleiri á kjörskrá
landsbyggðarkjördæmunum en
konur en því er öfugt farið þegar
kemur að Reykjavík og höfuðborg-
arsvæðinu. Þannig eru konur fleiri
á kjörskrá en karlmenn í Reykja-
víkurkjördæmi suður, Reykjavíkur-
kjördæmi norður og Suðvesturkjör-
dæmi. Karlmenn eru fleiri á
kjörskrá í Suðurkjördæmi, Norð-
vesturkjördæmi og Norðaustur-
kjördæmi.
Ekki liggja fyrir tölur um kosn-
ingaþátttöku karla og kvenna í al-
þingiskosningunum um helgina en
ljóst er að aldrei hefur kynjahlut-
fallið verið jafnara á Alþingi.
Konum fjölgar á Alþingi
30 konur taka sæti á Alþingi eftir kosningarnar
Morgunblaðið/Ómar
Jafnt Hlutfall karla og kvenna á Alþingi hefur aldrei verið jafnara en núna.
Helgi Bjarnason
Jón Birgir Eiríksson
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
„Ég sagði við mína liðsmenn að við
vildum gera betur en í síðustu kosn-
ingum. Það markmið náðist. Við
bættum við okkur þingmönnum og
erum stærstir í öllum kjördæmum.
Þetta eru aðrar þingkosningarnar í
röð sem við styrkjum okkur,“ segir
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, þegar hann er
spurður hvort markmið flokksins
hafi náðst. Flokkurinn er nú lang-
stærsti flokkurinn á Alþingi, með 21
þingmann.
„Við höfum sömuleiðis verið að fá
góð úrslit í sveitarstjórnarkosn-
ingum. Ég er ánægður með stöðuna
eftir þessar kosningar, ekki síst í
ljósi þeirrar staðreyndar að erfitt er
að fá mikið fylgi þegar margir flokk-
ar bjóða fram. Þar á meðal eru
flokkar sem reyna að höfða til kjós-
enda Sjálfstæðisflokksins. Ég tel að
við getum verið mjög sátt við þessa
útkomu,“ segir Bjarni.
Spurður að því til hvers nið-
urstaða kosninganna ætti að leiða
svarar Bjarni: „Það sem við viljum
sjá gerast er að hér verði mynduð
sterk ríkisstjórn með okkar aðild,
stjórn sem nýtir þau tækifæri sem
við höfum til að sækja fram fyrir
landsmenn alla. Við erum í miðju
sterku hagvaxtarskeiði og þurfum að
nýta það til að styrkja innviði, búa í
haginn fyrir framtíðina og bæta lífs-
kjör allra landsmanna. Þetta kann
að hljóma auðsót verkefni í ljósi hag-
felldra ytri skilyrða. En það vita allir
að það þarf sterka ríkisstjórn til að
nýta tækifærin.“
Skynjaði ekki vonbrigði
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pí-
rata, segist ekki hafa gert ráð fyrir
að hið mikla fylgi flokksins í skoð-
anakönnunum héldist í kosningunum
sjálfum.
„Ég hef sagt lengi að við myndum
gera ráð fyrir 15% fylgi, allt yfir það
yrði ótrúlegt. Við erum rosalega
þakklát fyrir að hafa náð að þrefalda
stuðninginn á stuttum tíma og nú er-
um við komin með stóran og öflugan
þingflokk og við náum að dekka allar
nefndir og erum með þingmenn úr
öllum kjördæmum. Ég skynjaði ekki
í eina sekúndu nein vonbrigði,“ segir
hún.
Kosningabandalag vinstriflokk-
anna nær ekki meirihluta sam-
kvæmt niðurstöðu kosninganna.
Spurð um samstarf við Viðreisn seg-
ir Birgitta að margt sé sameiginlegt
með flokkunum en ekki allt.
„Að mörgu leyti eigum við margt
sameiginlegt með Viðreisn en við er-
um ekki alveg á sömu blaðsíðu í
sumum málum. Þau leggja áherslu á
myntráðið, að það sé aðallausnin á
vandamálunum. Við erum ekki alveg
sammála leiðinni þeirra með fast-
bindingu, það þarf að úthugsa svona
lagað mjög vel,“ segir hún.
Katrín: Sátt við úrslitin
Nýr þingflokkur Vinstri grænna
fundaði í alþingishúsinu í gær.
„Við vorum bara að fara yfir úr-
slitin og samgleðjast hvert öðru.
Fara yfir stöðuna með nýjum þing-
mönnum, við erum með fjóra nýja
þingmenn í okkar tíu manna þing-
flokki,“ sagði Katrín Jakobsdóttir,
formaður VG.
„Við erum annar stærsti flokk-
urinn á þingi. Við erum sátt við þessi
úrslit en sjáum það að stjórnar-
myndun getur orðið flókin.“
Sjálfstæðismenn hafa útilokað
samstarf við Pírata, en Katrín segist
ekki sjá fyrir sér samstarf við Sjálf-
stæðisflokk.
„Það er augljóst að þessir flokkar
eru lengst frá hver öðrum á hinu
pólitíska litrófi. Þar af leiðandi er
málefnaleg samleið mjög lítil og
þess vegna höfum við ekki séð slíkt
samstarf fyrir okkur,“ segir Katrín.
Hún vilji þó ekki nota orðalagið úti-
loka.
„Ég tek símann frá öllum en við
verðum að vera raunsæ með það að
ríkisstjórn verður auðvitað að snú-
ast um það að flokkarnir nái saman
um málefni,“ segir hún.
Lilja: Ekki eins og að var stefnt
„Ég myndi segja að niðurstaða
kosningarinnar væri ekki eins og að
var stefnt, en hins vegar má ekki
gleyma því að flokkurinn vann sögu-
legan sigur á árinu 2013 og var þá að
koma úr mjög öflugri stjórnarand-
stöðu,“ segir Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, varaformaður Framsóknar-
flokksins.
Spurð hvort Framsóknarflokk-
urinn geti tekið þátt í ríkisstjórn í
ljósi þess fylgistaps sem flokkurinn
hlaut í kosningunum svarar hún ját-
andi, flokkurinn eigi erindi í rík-
isstjórn.
„Það má ekki gleyma því að við
erum fjórði stærsti flokkurinn og
mælist með 11,5%. Ég túlka það alls
ekki á þann hátt,“ segir hún.
Benedikt: Ánægð með árangur
„Já, við gerðum það. Við gáfum
ekki upp ákveðna tölu. Ég var þó
með ákveðið bil í huga. Við vorum í
efri hluta þess. Við erum óskaplega
ánægð með það,“ segir Benedikt Jó-
hannesson, formaður Viðreisnar,
spurður að því hvort markmið hans
flokks hafi náðst í kosningunum.
Viðreisn er nýr flokkur. Hann fékk
rúmlega 10% atkvæða og 7 menn
kjörna.
Benedikt bætir við: „Það væri
vanþakklæti og dómgreindarleysi að
vera ekki ánægð með niðurstöðuna.
Að vera með flokk sem ekki var til
fyrir örfáum mánuðum, leggja mikla
vinnu í að búa hann til frá grunni og
ná þessum árangri.“
En til hvers ætti niðurstaða kosn-
inganna að leiða? Benedikt svarar
því: „Ef maður hugsar þetta í
stærra samhengi þá vildi ég gjarnan
að farið væri að hugsa vinnubrögðin
í stjórnmálunum upp á nýtt, vanda
þau meira. Ekki mæta með fyr-
irframákveðnar skoðanir og telja
allt vitlaust sem hinir koma með. Við
viljum að vandað verði betur til
verka og reynt að ná niðurstöðu sem
leiðir til sem mestra heilla. Við
sjáum til dæmis að mál koma allt of
seint til afgreiðslu alþingis, eru af-
greidd í hasti og stundum í óeiningu
þegar hægt hefði verið að leysa þau í
ágætu samkomulagi ef menn hefðu
gefið sér tíma til þess.“
Björt: Fest sig í sessi
Björt Ólafsdóttir, þingmaður
Bjartrar framtíðar, segir flokkinn
nú hafa fest sig í sessi í íslenskum
stjórnmálum. Flokkurinn bætti við
sig fylgi í skoðanakönnunum síðustu
vikurnar fyrir alþingiskosningar.
„Það er léttir og gleði að halda
áfram að vera með ágætan þing-
flokk á alþingi. Fyrir nýjan og til-
tölulega lítinn flokk er það dálítið
mikið og frekar mikill sigur að festa
sig í sessi. Það hafa margir komið
inn og horfið á braut,“ segir hún.
Björt segir að framundan gætu
verið flóknar stjórnarmynd-
unarviðræður sem gætu tekið nokk-
urn tíma. Miklu máli skipti að vanda
til verka við stjórnarmyndun og að
þær dragist ekki um of.
Náðum því markmiði að gera betur
Bjarni Benediktsson vill mynda sterka ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks Birgitta Jónsdóttir bjóst við
15% kosningu Katrín Jakobsdóttir sér ekki fyrir sér stjórnarsamstarf með Sjálfstæðisflokknum
Morgunblaðið/Eggert
Valhöll Létt var fyrir þingmönnum Sjálfstæðisflokksins þegar nýr þingflokkur kom saman til síns fyrsta fundar.
Ljósmynd/Pressphotos
Þingflokkur Gamlir og nýir þingmenn VG komu saman til síns fyrsta þing-
flokksfundar. Ekki var annað að sjá en menn væru ánægðir með sinn hlut.
ALÞINGISKOSNINGAR 2016