Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Morgunblaðið/Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður Skip Loðnuvinnsl-
unnar, Hoffellið, liggur við bryggju.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Aðeins eitt tilboð barst í byggingu
á nýjum hafnarkanti á Fáskrúðs-
firði. Tilboðið var langt yfir
kostnaðaráætlun og ákvað
hafnarsjóður Fjarðabyggðar að
hafna tilboðinu.
Bryggjan sem um ræðir nefnist
Strandarbryggja og verður fyrir
framan nýja frystigeymslu Loðnu-
vinnslunnar. Hafnarkanturinn
verður tæplega 90 metra langur
og 25 metra breiður. Tilboð voru
opnuð 27. september sl. Eitt tilboð
barst, frá Hagtaki hf. í Hafnar-
firði. Hljóðaði það upp á 296,8
milljónir króna. Áætlaður verk-
takakostnaður var hins vegar
201,3 milljónir og munar því rúm-
um 95 milljónum. Verkinu átti að
ljúka 1. maí á næsta ári en nú er
ljóst að tafir verða á því.
„Okkur þótti tilboðið of hátt og
því var því hafnað,“ segir Páll
Björgvin Guðmundsson, bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar. Hann segir
að engin ákvörðun hafi verið tek-
in um næstu skref.
Mikið að gera á svæðinu
„Ástæðan fyrir þessu háa til-
boði er væntanlega sú að það hef-
ur verið mjög mikið að gera í
verktakastarfsemi hér á svæðinu.
Menn hafa greinilega verið upp-
teknir í öðru þegar verkið var
boðið út,“ segir Páll Björgvin.
Hann segir að verkefnið sé að-
kallandi og því þurfi að bjóða
verkið út að nýju eða leita samn-
inga við verktaka. „Búið að
byggja mjög öfluga frystigeymslu
á Fáskrúðsfirði og við erum að
byggja hafnarkantinn til þess að
auðvelda Loðnuvinnslunni að-
gengi að hinni nýju geymslu.“
Loðnuvinnslan er langstærsti
vinnuveitamdinn á Fáskrúðsfirði.
Fyrirtækið rekur útgerð og fisk-
vinnslu á staðnum.
Tilboðið 95 milljónum yfir áætlun
Eina tilboðinu í hafnarkant á Fáskrúðsfirði hafnað Ný frystigeymsla
Skiptum er lokið á þrotabúi fjár-
festingafélagins Fons ehf. sem lýst
var gjaldþrota í apríl 2009.
Fram kemur í tilkynningu skipta-
stjórans Óskars Sigurðssonar hrl. í
Lögbirtingablaðinu að lýstar kröf-
ur námu samtals 39.8 milljörðum
króna en samþykktar kröfur námu
32,8 milljörðum. Alls greiddust 4,9
milljarðar upp í veðkröfur búsins,
forgangskröfur að upphæð 15 millj-
ónir greiddust að fullu og þá
greiddust 629 milljónir upp í al-
mennar kröfur.
Fons ehf. var fjárfestingarfélag í
eigu Pálma Haraldssonar og Jó-
hannesar Kristinssonar. Það var
umfangsmikið á árunum fyrir hrun
og átti hlut í þekktum fyrirtækjum,
svo sem 365, Iceland Express, FL
Group auk þess að eiga hlut í
nokkrum erlendum fyrirtækjum.
sisi@mbl.is
Samþykktar kröfur
í þrotabú Fons ehf.
32.8 milljarðar
Eign Fons Flugfélagið Iceland Express.
Fjöldi skoðanakannana birtist í fjöl-
miðlum fyrir kosningar frá fyrir-
tækjum og stofnunum sem sérhæfa
sig í slíkum könnunum m.a. Gallup,
Félagsvísindastofnun Háskóla Ís-
lands og MMR.
Kannanir reyndust mismunandi
nákvæmar en ein óhefðbundin
könnun reyndist nokkuð nærri úr-
slitum kosninga. Kleinuhringja-
könnun Dunkin’ Donuts.
Starfsmenn kaffihúsanna út-
bjuggu súkkulaðifyllta hringi með
merkjum flokkanna sem voru í
framboði í alþingiskosningunum og
var niðurstaðan byggð á vali við-
skiptavina á kleinuhringjum.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 28% í
kleinuhringjakönnuninni, Samfylk-
ing fékk 5%, Viðreisn 12%, Björt
Framtíð 7%, Framsóknarflokkur-
inn 10%, Vinstri grænir 16% og Pí-
ratar 18%.
Könnunin er mjög nærri úrslitum
kosninganna en þar fékk Sjálfstæð-
isflokkur 29%, Samfylking 5,7%,
Viðreisn, 10,5% Björt Framtíð 7,2%,
Framsóknarflokkur 11,5%, Vinstri
grænir 15,9% og Píratar 14,5%.
Kleinuhringjakönn-
un Dunkin’ Donuts
fór nærri úrslitum