Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 13
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kattlétt æfing Silkikettirnir Guðrún Hulda, Bergþóra og Pétur Daníel á æfingu fyrir tónleikana á Airwaves.
Heimili og ást
Hvað hafið þið gefið út mörg lög?
„Við höfum gefið út tvö lög, Ugg-
laust og Þolinmæðiskonu. Í laginu
Ugglaust er verið að gera upp minn-
ingar frá því að Víkingasveitin réðst
inn á heimili annarrar okkar þegar
hún var níu ára, vegna ósanngjarnar
og þar af leiðandi ógreiddrar skuld-
ar og lögfræðings sem hafði skipað
fyrir um eignarnám. Margir hafa
upplifað óttann að missa heimilin sín
síðustu árin. Það er ærin ástæða til
að varpa ljósi á að í þessu ríka landi
sé ekki hlaupið að því að uppfylla
grunnþarfir. Út frá því fjöllum við
um hvernig það er að velja að vera
listamaður. Fókusinn er líka settur á
að konur vinna frítt í mánuð á ári:
,,Það fæst ekki mikið borgað í pen-
ingum að vinna með börnum / það er
stórhættulegt fyrir sálarlífið að
vinna þrælavinnu í törnum / og er
það ekki ömurlegt að konum sé
ennþá borgað minna en körlum!“
Þolinmæðiskona er um aðra
grunnþörf, að sameinast annarri
manneskju. Lagið fjallar um von-
lausa rómantík sem er samt svo
sönn. Svona gamaldags rómantík
sem krefst úthalds og þrjósku en er
kannski ekki alltaf svo uppbyggj-
andi. Það tengja eflaust margir við
„haltu mér slepptu mér samskipti“
en þau eru einmitt mikill innblástur
fyrir lagið.“
Högni gefur lögunum nýja vídd
Silkikettirnir eru með rás á
Soundcloud. Hafa margir hlustað á
lögin þar?
„Það hefur góður slatti kíkt á lög-
in, það er gaman. Við viljum samt
benda á að kontrabassinn krefst
góðra hátalara til að hann nái að
njóta sín. Við höfum fengið komm-
ent frá vinum sem við höfum spilað
fyrir. Aðallega þá bara hvað þetta sé
„slick“ hjá okkur og hvað þeir tengi
vel við textana. Svo fengum við líka
skemmtilegt komment á Menning-
arnótt frá söngelsku pari sem sat
frekar aftarlega svo hljóðkerfið náði
ekki alveg til þeirra en þeim fannst
hreyfingarnar okkar við flutninginn
svo fallegar.“
Er nýi trommarinn Silkiköttur
líka?
„Pétur Daníel Pétursson er algjör
eðalhögni og silkimjúkur á tromm-
unum og það gefur lögunum nýja
vídd. Við erum ákaflega ánægðar að
fá hann til liðs við okkur í upptökum
og núna á tónleikunum á miðviku-
daginn. Lögin stækka alveg um
nokkur númer við það þegar við er-
um vel samstillt. Við vonum bara að
hann hafi tíma, þolinmæði og vilja til
að halda áfram að vinna með okkur.“
Engar selfítýpur
Hver eru framtíðarplön Silkikatt-
anna? Humar og frægð?
„Það er alveg örugglega humar í
framtíðarplönunum. En frægðin
finnst okkur ekkert mikilvæg.
Frægð á Íslandi er eitthvað svo pín-
leg því við erum svo fá. Svo er hvor-
ug okkar selfítýpa svo okkur finnst
fínt að hafa andlitin á okkur ekki í
auglýsingum og setjum frekar ketti í
staðinn. En við erum hrifnar af hug-
myndinni að fólk tengi við lögin okk-
ar, að einhver tilfinningaseiður
magnist upp og snerti hlustendur.
Annars erum við að vinna að útgáfu
á EP-plötu sem kemur vonandi út á
næsta ári,“ segja Silkikettirnir að
lokum og hlakka til að sjá sem flesta
á Boston á miðvikudaginn, en að-
gangur er ókeypis.
Silkikettirnir koma fram „off
venue“ á Airwaves á skemmti-
staðnum Boston, Laugavegi
28b, kl. 16-16.30 miðvikudaginn
2. nóvember. Hægt er að hlusta
á sum lögin á Soundcloud:
soundcloud.com/
user-827810307
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Eins dásamlegt og lífið oft erþá er leiðin í gegnum þaðþyrnum stráð. Það upplifa
allir erfiðleika á lífsleiðinni og því
mætti segja að stundum væri þján-
ingin órjúfanlegur hluti lífsins. Það
er einfaldlega eðlilegt að líða stund-
um illa og að á tímabilum sé lífið
okkur erfiðara en á öðrum tímum.
Þá er eðlilegt og jafnvel nauðsynlegt
að fá hjálp. Ekki af því að við getum
ekki, ekki af því að okkur skorti ein-
hverja hæfni eða séum ekki nóg,
heldur af því að svona er það að lifa,
takast á við aðstæður, læra og
þroskast. Við fáum hjálp í gegnum
flest það sem reynir á okkur í lífinu,
læknar aðstoða í veikindum, ljós-
mæður við það að eignast börn,
kennarar við það að mennta okkur
og okkar nánustu fara með okkur í
gegnum lífsins sorgir og missi. Vöxt-
ur fæst þegar reynir á en leiðin í
gegn er oft flóknari en við vildum.
Okkur finnst við ekki endilega vera
að þroskast og læra, heldur vera
föst í hringiðu rótleysis og ójafn-
vægis. Á miðri leið virðist leiðin ekki
endilega vera rétt þó svo að við
sjáum seinna að svo sé. Að sækja
stuðning á slíkum tímum er styrkur
og jafnvel skynsamlegt að ætla sér
ekki að rata veginn einn. Slíkan
stuðning veita sálfræðingar meðal
annars.
Lífið er svo skemmtilegt og gef-
andi en alls ekki alltaf. Lífið býður
upp á ótal augnablik sem gera okkur
stolt og glöð, full af áhuga og þakk-
læti. En sum augnablikin vekja
sársauka og ótta, vanmátt og óör-
yggi. Jafnt og það hvernig við upp-
lifum lífið, getur kennt okkur og
skilið eftir sig margt gagnlegt og
gott, þá getur það kennt okkur og
skilið eftir sig margt sem er okkur
algjörlega gagnslaust og er jafnvel
skaðlegt fyrir lífsgæði okkar og líð-
an.
Það hjálpar engum að óttast það
að vera að fá hjartaáfall mörgum
sinnum í viku þegar hjartað er heil-
brigt og vinnur sitt verk. Það er
gagnslaust að fullvissa sig um það
oft á dag að maður sé minna virði en
aðrir menn. Það gagnast heldur ekki
mikið að hamra á því daginn út og
inn að fólki muni finnast maður vera
að bregðast og ekki gera nógu vel
sama hvað maður reynir.
Depurð, kvíði, lágt sjálfsmat.
Andleg vanlíðan, eins og rödd henn-
ar hljómar oft órökrétt á góðum
degi, getur hún verið svo rökrétt,
þegar saga fólks og upplifun er tekin
inn. Hún er þarna af ástæðu. Við er-
um ekkert illa sköpuð eða skemmd.
Það er ekki það að við séum ekki
nógu sterk eða heil. Við getum hins
vegar öll lent í aðstæðum og atburð-
um sem skilja eftir sig lærdóm og
upplifun sem móta viðhorf okkar og
hugsunarmynstur, skerða lífsgæði
okkar og valda vanlíðan.
Hugsaðu um þig af umhyggju og
fáðu hjálp ef þér líður illa. Vertu
viss, þú átt það skilið og það er hægt
að komast í gegn, skilja neikvæða
reynslu eftir en nýta lærdóminn til
vaxtar.
Ljósmynd/Getty Images
Stuðningur Að sækja sér stuðning á
erfiðum tímum getur verið styrkur.
Eðlilegt að líða
stundum illa
Heilsupistill
Mjöll Jónsdóttir
sálfræðingur
Heilsustöðin, sálfræði- og ráðgjafar-
þjónusta, Skeifunni 11a, Reykjavík.
www.heilsustodin.is
10%
af seld
um set
tum,
renna
til krab
ba-
meinsf
élagsin
s
Bleikt októbertilboð
Reykjavíkurvegi 64, Hfj,
s. 555 1515, enjo.is
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Innifalið í pakka:
Andlitshanski, 2 augnpúðar
og krókur, lítið þvottanet.
Verð 6.900
5.900
Tilboð
LEYNIVOPN.IS
HVERNEINASTADAG
FRÁÞVÍ AÐÉG
MANEFTIRMÉR
„
“
ALFREÐ FINNBOGASON
LANDSLIÐSMAÐUR Í KNATTSPYRNU
LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?