Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 15

Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 15
5,7% 2,1% 2,2% 0,3% 0,4% 0,1% 12,9% 3,2% 3,1% 0,1% 2,2% 0,1% 5,7% 3,5% 1,7% 0,3% 0,2% 0% Kosningar 2013 Könnun 20.-27. október 2016 -gerð af Félagsvísindastofnun HÍ. Niðurstöður kosninga 29. október 2016 Fjöldi þingmanna 2013 Fjöldi þingmanna 2016 Alþýðufylkingin R Samfylkingin S Dögun T Íslenska þjóðfylkingin E Húmanistaflokkurinn H Flokkur fólksins F 39 15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016 Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100Mynd: Slökkvistöðin Skógarhlíð. Þeir semgerakröfur veljaHéðinshurðir Fáðu tilboð í hurðina Fylltu út helstu upplýsingar á hedinshurdir.is og við sendum þér tilboð um hæl. Jón Þórisson jonth@mbl.is Ein helsta spennan á kosninganótt er að jafnaði hverjir verða jöfnunar- þingmenn. Fyrirkomulag úrhlut- unar jöfnunuarsæta veldur því að þingmannsefni ýmist ná sæti eða ekki þegar nýjar tölur berast og geta tölur úr einu kjördæmi haft áhrif í öðru vegna þessa, eins og varð þegar síðustu tölur bárust. Sá flokkur sem fyrirferðarmestur var í hinni svonefndu jöfn- unarhringekju næturinnar var Sam- fylking. Þingmennirnir Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, Árni Páll Árnason, Össur Skarphéðinsson auk Oddnýjar Harðardóttur, for- manns flokksins, duttu inn og út á víxl. Þegar klukkan var farin að ganga þrjú á kosninganótt datt svo Oddný Harðardóttir inn sem jöfn- unarþingmaður. Áfram hélt svo jöfnunarhring- ekjan fram eftir nóttinni. Hún stað- næmdist ekki fyrr en síðustu tölur úr Norðvesturkjördæmi bárust um níuleytið að morgni sunnudags. Þá datt Sigríður Ingibjörg Ingadóttir út og Halldóra Mogensen, Pírati, datt inn. Þær voru báðar í framboði í Reykjavíkurkjördæmi norður. Níu jöfnunarþingsæti Af þeim 63 þingsætum sem kosið er um eru 9 svokölluð jöfnunar- þingsæti. Þannig eru einn til tveir af þingmönnum hvers kjördæmis svo- kallaðir jöfnunarþingmenn. Við út- hlutun sætanna er tekið mið af úr- slitum á landsvísu. Þessum sætum er ætlað að vega á móti misvægi at- kvæða milli kjördæma, þannig að fjöldi þingsæta sem stjórnmála- flokkar fá á Alþingi sé í betra sam- ræmi við fjölda atkvæða. Áður en til útreiknings kemur þarf að ákvarða hvaða stjórnmálaflokkar koma til álita við úthlutunina. Aðeins þeir sem náð hafa 5% fylgi á landsvísu koma til greina í þessu sambandi og hefur þessi regla verið við lýði frá árinu 2000. Fimm flokkar með níu sæti Þeir flokkar sem hreppa jöfn- unarsætin að þessu sinni eru Vinstri græn með eitt jöfnunarsæti, Píratar sömuleiðis með eitt sæti, Viðreisn með þrjú jöfnunarsæti, Björt fram- tíð með 2 sæti og Samfylking með 2 jöfnunarsæti. Þingmennirnir sem verma þessi sæti eru Andrés Ingi Jónsson, Vinstri grænum, Halldóra Mogen- sen, Pírötum, Benedikt Jóhann- esson, Jón Steindór Valdimarsson og Pawel Bartoszek frá Viðreisn, Nichole Leigh Mosty og Theodóra S. Þorsteinsdóttir, Bjartri framtíð, Oddný G. Harðardóttir og Guðjón S. Brjánsson, Samfylkingu. Þannig ná tveir formenn stjórn- málaflokka sæti á Alþingi á grund- velli þessa fyrirkomulags; þau Benedikt Jóhannesson og Oddný G. Harðardóttir. Óþarft er fram að taka að jöfn- unarþingmenn eru jafngildir og hver hinna 54 kjördæmakjörnu þingmanna. Morgunblaðið/Eggert Jöfnunarsæti Tveir formenn í sjónvarpssal, bæði eru jöfnunarþingmenn. Jöfnunarhring- ekjan snerist alla kosninganóttina  Frambjóðendur Samfylkingar ýmist úti eða inni á þingi fram undir morgun Enn liggja ekki fyrir upplýsingar um að nokkur frambjóðandi hafi færst niður á lista vegna útstrikana. Lítið var um útstrikanir í Reykja- víkurkjördæmunum og í Suður- kjördæmi, en ekki fengust upplýs- ingar um útstrikanir frá öðrum kjördæmum. Rúmlega 3% kjörseðla í Suður- kjördæmi var breytt. Mestar voru útstrikanir hjá sjálfstæðismönnum; 3,3% atkvæða þeirra var breytt eða 286 atkvæðum. Karl Gauti Hjalta- son, formaður kjörstjórnar í Suður- kjördæmi, segir að það sé mun minna en í síðustu kosningum. Fæstar voru útstrikanir hjá Bjartri framtíð í kjördæminu, en þær voru sex. Hjá Framsóknar- flokknum hafði 69 atkvæðum verið breytt, eða 1,3% og hjá Viðreisn hafði 31 atkvæði verið breytt eða tæplega 1,5%. Innan við 1% atkvæða var breytt hjá Íslensku þjóðfylking- unni og Flokki fólksins, en rúmlega 1% hjá Pírötum og Alþýðufylking- unni. 1,1% atkvæða var breytt af kjósendum Dögunar en hjá Samfylk- ingu og Vinstri grænum voru út- strikanir um 0,5%. „Það hefur oft verið meira í okkar kjördæmi og við höfum að minnsta kosti tvisvar þurft að breyta röð. Svo þetta er miklu minna en venjulega í Suðurkjördæmi,“ segir Karl Gauti. Sveinn Sveinsson, formaður kjör- stjórnar í Reykjavíkurkjördæmi suð- ur, segir að lítið hafi verið um út- strikanir á listum og nánast útilokað væri að þær hefðu nokkur áhrif á uppstillingu listanna. Þá segir Erla S. Árnadóttir, for- maður kjörstjórnar í Reykjavíkur- kjördæmi norður, að ólíklegt sé að útstrikanir hafi áhrif á uppstillingu lista. Flestar útstrikanir hefðu þó verið á lista Samfylkingarinnar í kjördæminu. Víða minna um útstrikanir  Ólíklegt talið að útstrikanir hafi áhrif á röð á lista Morgunblaðið/Eggert Kjörstaður Kjósendur geta haft áhrif á framboðslista með því að beita útstrik- unum. Formenn nokkurra kjörstjórna segja minna um þær nú en oft áður. ALÞINGISKOSNINGAR 2016

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.