Morgunblaðið - 31.10.2016, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Úrslit al-þing-iskosn-
inga eru alltaf
eftirtektarverð.
Líka þegar lítið
gerist. Það getur
þýtt að stjórn, sem setið hefur
eitt eða tvö kjörtímabil sé að fá
ótrúlega góðan dóm. Hrynji
stjórnarflokkar sem lýsa sjálf-
um sér sem kraftaverkamönn-
um í björgun þjóðar eftir að-
eins eitt kjörtímabil segir það
mikla sögu.
Hér éta pólitískir atvinnu-
menn og ekki síður pólitískir
skýrendur upp að allir „fé-
lagshyggjuflokkar“ tapi á
samstarfi við Sjálfstæðisflokk.
Á síðasta kjörtímabili varð
„fyrsta hreina vinstristjórnin“
eins og hún var kölluð, bana-
biti beggja stjórnarflokkanna.
Sjálfstæðisflokkurinn kom
veikur frá síðustu kosningum,
þótt hann væri sjónarmun
stærri en Framsókn. Fram-
sókn hagnaðist þá á Icesave-
málinu en Sjálfstæðisflokkur-
inn ekki.
Núverandi kjörtímabil hef-
ur verið gjöfult fyrir þjóðina.
Veik staða sjálfstæðrar mynt-
ar leysti mikið afl úr læðingi
bæði í hefðbundnum atvinnu-
vegum og opnaði augu ferða-
manna. Gjaldeyrisskapandi
ferðamenn hellast inn í landið.
Breytt fjárhagsstaða þjóðar-
innar líktist risavöxnum lottó-
vinningi. En munurinn er þó
sá að ríkisvaldið, stjórnar-
flokkarnir, lögðu sitt af mörk-
um til að tryggja hann. Vax-
andi vellíðunarþáttur hefði
skilað sér betur ef kosið hefði
verið næsta vor.
Örfáum dögum fyrir kosn-
ingar sýndu kannanir að Sjálf-
stæðisflokkurinn fengi 20-22%
atkvæða í kosningunum og að
Framsókn væri með erfiða
stöðu eftir viðbrenndan
heimabakstur á þeim bæ. Er-
lendir fréttamenn flykktust til
landsins vegna stóratburðar í
pólitík á evrópskan mæli-
kvarða. Píratar höfðu ótrúlega
lengi stefnt í að verða lang-
stærsti flokkur þjóðarinnar
eftir kosningar. Seinustu vik-
urnar hafði heldur dregið úr
en hann var enn stærsti flokk-
urinn ellegar á líku róli og
Sjálfstæðisflokkurinn. Þá
misstu Píratar fótanna og hófu
myndun vinstristjórnar á
kaffihúsi! Það dró athygli að
hörmungum við „stjórn“ á
borginni, þar sem Samfylking,
Píratar, Vinstri græn og Björt
framtíð „stjórna.“ Var nú
rækilega bent á þá staðreynd.
Stórum hópi leist ekki á
þessa bliku. Það kom á óvart
að VG og Samfylking skyldu
láta bjóða sér upp í dans. Sam-
fylking þorði ekki
annað í öngum sín-
um. Vinstri grænir
voru á góðri sigl-
ingu en misstigu
sig svo sóknin
stöðvaðist. Í kapp-
ræðum í sjónvarpi sýndi Birg-
itta Jónsdóttir snert af oflæti.
Hún veifaði þar skætings-
legum spjöldum þegar aðrir
töluðu og hvíslaði, þannig að
heyrðist, að forsætisráð-
herrann væri „skrítinn“.
Bjarni Benediktsson hafði
háð málefnalega kosningabar-
áttu sem hafði þó ekki fram að
þessu skilað sér í nægjanlegu
fylgi. En með þessum sjálfs-
mörkum á vinstri kantinum
urðu kostirnir ljósir. Bjarni og
flokkur hans var eina vonin
sem landsmenn gátu treyst
gegn stjórnmálalegri enda-
leysu, sem leiða myndi til
óstjórnar í landsmálum á borð
við fjórflokkinn í höfuðborg-
inni.
Það hefur réttilega verið
gagnrýnt þegar mat á kosn-
ingaúrslitum miðast einkum
við skoðanakannanir. En í
þessum tveimur tilvikum, Pí-
rata og Sjálfstæðisflokksins,
horfir málið ólíkt við. Ótrúleg
sigurganga Pírata var tekin
alvarlega enda hafði hún verið
mjög stöðug lengi. Sjálfstæð-
isflokkurinn virtist fastur í ill-
þolanlegri stöðu og stefna í
lökustu úrslit sögu sinnar, eft-
ir aðild að landstjórn í miklu
góðæri. Á fáeinum dögum
snerist staðan við. Píratar
hröpuðu niður í þriðja sæti.
Sjálfstæðisflokkurinn bætti
við sig einum 7 prósentustig-
um og hækkaði um rúm 30% á
fáeinum dögum og komst í
lykilstöðu. Kosningaúrslitin
sópuðu órum um árás á
stjórnarskrá út af borðinu.
Þau afhjúpuðu fikt við ESB-
aðild sem augljósan fárán-
leika. Burðarflokkur Evrópu-
sambandsaðildar og kollvörp-
unar stjórnarskrár hímir með
aðeins 3 þingmenn í þinghús-
inu. Þessi frægi „101 flokkur“
hangir inni á þremur lands-
byggðarþingmönnum, og for-
maðurinn lafir sem jöfn-
unarmaður! Stutt er síðan
Samfylkingarmenn töluðu um
„turnana tvo,“ sig og Sjálf-
stæðisflokk. Allir helstu for-
ystumenn flokksins fuku
burtu með austanáttinni á
kjördag. Það er óþarfi að
hlakka yfir því.
Formaður Sjálfstæðis-
flokksins, sem bersýnilega fær
stjórnarmyndunarumboðið í
byrjun þessarar viku, hefur
sterkari stöðu en hann gat bú-
ist við fyrir aðeins viku. Hon-
um er óskað farsældar í sínu
verki.
Kosningaúrslitin
hafa um margt gert
línur skýrari.
Það var þarft.}
Óvænt úrslit
K
osningarnar eru að baki og næsta
verkefni er að mynda nýja ríkis-
stjórn. Ljóst er að fráfarandi
ríkisstjórnarflokkar hafa ekki
meirihluta nýs þings á bak við
sig. Þar munar þó töluvert minna en skoð-
anakannanir bentu lengst af til. Flokkarnir
tveir, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknar-
flokkurinn, hafa þannig samanlagt 29 þing-
menn en 32 þarf til þess að hafa meirihluta á
Alþingi. Hvernig næsta ríkisstjórn mun líta út
kemur væntanlega í ljós á næstu dögum eða
vikum.
Stjórnarmyndunarviðræður Pírata við aðra
stjórnarandstöðuflokka fyrir þingkosning-
arnar eru óneitanlega svolítið hjákátlegar eftir
að niðurstöður kosninganna liggja fyrir. Þeir
fjórir flokkar sem tóku þátt í þeim hafa ekki
meirihluta þingsins á bak við sig og raunar færri þing-
menn en fráfarandi stjórn eða 27. Eigi þessir flokkar að
mynda nýja ríkisstjórn eiga þeir varla annan kost en að
leita á náðir Viðreisnar. Það þýddi fimm flokka stjórn
með 34 þingmanna meirihluta.
Þetta væri að öllum líkindum ávísun á mjög veika ríkis-
tjórn. Einugis tveir þingmenn umfram minnsta mögulega
meirihluta. Væru flokkarnir færri væri meirihlutinn hins
vegar talsvert áreiðanlegri. Formaður Viðreisnar hefur
gefið það út að henni hugnist ekki slíkt samstarf sem er
afar skiljanlegt. Slík stjórn verður ekki mynduð án Við-
reisnar. Ólíklegt er að stjórnarandstöðuflokkarnir leiti í
staðinn til Framsóknar og enn ólíklegra að
flokkurinn taki þátt í svo brothættu samstarfi.
Viðreisn hefur gefið það út að flokkurinn
vilji frjálslynda miðjustjórn eins og það hefur
verið orðað. Líklega er þar átt við samstarf við
Sjálfstæðisflokkinn og Bjarta framtíð. Slík
stjórn hefði hins vegar minnsta mögulega
meirihluta eða 32 þingmenn. Ekkert mætti
þar út af bregða. Viðreisn hefur hafnað stjórn
með Framsóknarflokknum og Sjálfstæðis-
flokknum og samstarf þessara tveggja flokka
og Bjartrar framtíðar hefði ekki mikið áreið-
anlegri meirihluta eða 33 þingmenn.
Einhverjir hafa velt upp þeim möguleika að
Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn
og Vinstriheyfingin – grænt framboð mynd-
uðu ríkisstjórn. Sá möguleiki verður þó að
teljast ólíklegur. Einkum vegna þess að afar
ólíklegt er að VG hefði áhuga á að ganga í raun inn í nú-
verandi stjórnarsamstarf. Hvað er þá eftir? Einn mögu-
leikinn væri samstarf Sjálfstæðisflokksins, VG og Bjartr-
ar framtíðar. Þessir þrír flokkar hefðu 35 þingmanna
meirihluta.
Þrátt fyrir að ýmsu leyti ólíkar áherzlur ríkir umtals-
vert traust á milli forystumanna þessara þriggja flokka.
Það getur yfirstigið margt. Þar á meðal skoðanaágrein-
ing. Björt framtíð hefur ennfremur reynzlu af góðu sam-
starfi við bæði Sjálfstæðisflokkinn og VG. Þegar allt er
skoðað hallast ég einfaldlega að því að þetta væri raun-
hæfasti möguleikinn í stöðunni. hjortur@mbl.is
Hjörtur J.
Guðmundsson
Pistill
Raunhæfasti möguleikinn
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
FRÉTTASKÝRING
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Töluverð endurnýjun er á Al-þingi eftir nýafstaðnar al-þingiskosningar en rétttæpur helmingur þing-
manna, sem taka sæti á nýju þingi,
átti ekki sæti á Alþingi eftir alþingis-
kosningarnar 2013. Af þeim 63 ein-
staklingum sem tryggðu sér þingsæti
í kosningunum á laugardag kemur 31
nýr inn á þing eða átti ekki sæti á Al-
þingi á síðasta kjörtímabili. Þetta
jafngildir 49,2 prósentum þingmanna.
Í þessum hópi eru þó reynsluboltar,
m.a. Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir, fyrrverandi þingmaður og ráð-
herra Sjálfstæðisflokksins, en hún
hlaut kjör á Alþingi í Suðvestur-
kjördæmi fyrir Viðreisn um helgina.
Þingmenn sem ekki hafa setið á Al-
þingi áður og koma alveg nýir inn eru
28 talsins eða 44,4 prósent þing-
manna.
Nýliðun þrátt fyrir fylgistap
Af þeim flokkum sem áttu sæti á
Alþingi fyrir kosningar er mest nýlið-
un hjá Pírötum en 7 af 10 þingmönn-
um þeirra koma nýir inn á Alþingi, en
það eru þau Björn Leví Gunnarsson,
Gunnar Hrafn Jónsson, Einar Aðal-
steinn Brynjólfsson, Eva Pandora
Baldursdóttir, Halldóra Mogensen,
Smári McCarthy og Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir.
Samfylkingin kemur hlutfallslega
vel út í nýliðun en hafa verður í huga
að flokkurinn galt afhroð í kosning-
unum og af einungis þremur þing-
mönnum koma tveir nýir inn fyrir
flokkinn og eru það þeir Guðjón S.
Brjánsson og Logi Már Einarsson.
Fyrrverandi formenn flokksins og
reynsluboltar í íslenskum stjórn-
málum, t.d. þeir Árni Páll Árnason og
Össur Skarphéðinsson, duttu út af
þingi.
Elsti og yngsti þingmaður koma
bæði ný inn á þing en það eru þau Ás-
laug Arna Sigurbjörnsdóttir laga-
nemi og Ari Trausti Guðmundsson
jarðfræðingur. Þau eiga það sameig-
inlegt að eiga bæði afmæli seint á
árinu og koma inn á þing fyrir tvo
stærstu flokka landsins. Áslaug Arna
verður 26 ára 30. nóvember og Ari
Trausti verður 68 ára 6. desember.
Áslaug kemur inn á þing fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn sem hlaut langflest at-
kvæði eða 29 prósent og Ari Trausti
sest á þing fyrir Vinstrihreyfinguna -
grænt framboð, sem hlaut 15,9 pró-
sent greiddra atkvæða.
Auk þeirra tveggja koma ný inn á
þing fyrir flokkana tvo þau Bryndís
Haraldsdóttir, Njáll Trausti Frið-
bertsson, Páll Magnússon, Teitur
Björn Einarsson og Þórdís Kolbrún
R. Gylfadóttir fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn og Andrés Ingi Jónsson, Kolbeinn
Óttarsson Proppé og Rósa Björk
Brynjólfsdóttir fyrir Vinstri græna.
Auk Áslaugar Örnu eru þær Ásta
Guðrún Helgadóttir og Eva Pandora
Baldursdóttir, þingmenn Pírata,
fæddar árið 1990.
Framsókn með minnsta nýliðun
Eftir alþingiskosningarnar 2013
var þingflokkur Framsóknarflokksins
bæði áberandi yngstur og með mesta
nýliðun. Eftir kosningar helgarinnar
kemur aðeins einn nýliði inn fyrir
Framsóknaflokkinn af átta þing-
mönnum sem setjast á þing fyrir
flokkinn, en það er Lilja Dögg Al-
freðsdóttir utanríkisráðherra.
Fyrir utan Þorgerði Katrínu kem-
ur þingflokkur Viðreisnar alveg nýr
inn á þing en það eru þau Benedikt
Jóhannesson, Hanna Katrín Frið-
riksson, Jón Steindór Valdimarsson,
Jóna Sólveig Elínardóttir, Pawel Bar-
toszek og Þorsteinn Víglundsson. Hjá
Bjartri framtíð er helmingur þing-
flokksins nýr, en þær Nichole Leigh
Mosty og Theódóra S. Þorsteinsdóttir
koma nýjar inn í þingflokk flokksins.
Tæpur helmingur
nýr á Alþingi
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Alþingiskosningar Alls koma 28 nýir þingmenn inn á Alþingi eftir helgina.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs hefur algjöra
sérstöðu þegar kemur að þing-
setu en hann var fyrst kjörinn á
þing árið 1983 eða sjö árum áð-
ur en yngsti þingmaður Alþing-
is, Áslaug Arna Sigurbjörns-
dóttir, fæddist.
Aðeins einn annar þingmaður
var kjörinn á þing fyrir aldamót-
in 2000 en það er Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir. Hún sat
sem alþingismaður Reyknes-
inga árin 1999-2003 og þing-
maður Suðvesturkjördæmis
2003-2013.
Komu á þing
fyrir aldamót
VERIÐ LENGST Á ÞINGI
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Steingrímur J.
Sigfússon