Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 29

Morgunblaðið - 31.10.2016, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 2016 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, morgunleikfimi kl. 10, félags- vist, útskurður 1 og frjáls tími í myndlist kl. 13. Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 8.30–16, botsía með Þóreyju kl. 9.30–10.10, ganga um nágrennið ef veður leyfir kl. 11–11.40, sala á snyrtivörum kl. 11–13.30, bútasaumur, Ljósbrotið kl. 11–15, handa- vinna með leiðbeinanda kl. 12.30–16.30, félagsvist með vinningum kl. 13–15, myndlist með Elsu kl. 16. Boðinn Leikfimi kl. 10.30, bingó og myndlist kl. 13 og spjallhópur kl. 15–16. Bólstaðarhlíð 43 Leikfimi kl. 10.30 og prjónaklúbbur kl. 13. Dalbraut 18-20 Brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Vitatorgi/Lindargötu 59 Leirmótunarnámskeið kl. 8–12, postulínsmálun kl. 9–12, lestur framhaldssögu kl. 12.30–13, frjáls spilamennska kl. 13–16.30, stólaleikfimi kl. 13–13.30, bókbands- námskeið kl. 13–17. Allir velkomnir! Garðabær Opið og heitt á könnunni í Jónshúsi frá kl. 9.30–16, með- læti selt með kaffinu frá kl. 14–15.45, vatnsleikfimi kl. 8 og 14, kvenna- leikfimi í Sjálandsskóla kl. 9.10, stólaleikfimi í Sjálandsskóla kl. 10, kvennaleikfimi í Ásgarði kl. 11, brids í Jónshúsi kl. 13. Gerðuberg Kl. 9–16 opin handavinnustofa, kl. 9–16 útskurður með leiðbeinanda, kl. 13–14 línudans, kl. 14.30–16.30 kóræfing, áhugasam- ir velkomnir á æfingu. Gjábakki Handavinna kl. 9, botsía kl. 9.10, gler- og postulínsmálun kl. 9.30, jóga kl. 10.50, lomber kl. 13 og kanasta kl. 13.15. Gullsmári Postulínshópur kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl.10, handavinna og brids kl. 13, félagsvist kl. 20. hárgreiðslustofa og fótaaðgerðastofa á staðnum. Leshópur á morgun 1. nóv. kl. 20. Allir velkomnir! Hraunbær 105 Kaffiklúbburinn, allir velkomnir í kaffi kl. 9, opin handavinna, leiðbeinandi kl. 9–14, bænastund kl. 9.30–10. Göngu- hópur kl. 10.30 – þegar veður leyfir. Dóra djákni í heimsókn kl.10–12, hádegismatur kl. 11.30, prjónaklúbbur kl. 14, kaffi kl. 14.30 Hvassaleiti 56–58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8–16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, léttar erobik- æfingar með Milan kl. 9, morgunleikfimi kl. 9.45, matur kl. 11.30. Mömmuhópur kl. 12, spilað brids kl. 13, kaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Qigong kl. 6.30. Við hringborðið kl. 8.50, glerlist kl. 9, hjá ömmu kl. 9.30, ganga kl. 10, botsía kl. 10.15, myndlist hjá Margréti Zóphoníasd. kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir í Hæðargarð óháð aldri og búsetu. Nánar í síma 411-2790. Korpúlfar Hugleiðsla með Ingibjörgu nýtt námskeið að hefjast, ganga kl. 10 frá Borgum og Grafarvogskirkju, línudans með Eddu kl. 11 í Borgum. Félagsvist í Borgum í dag kl. 13 og tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag. Seltjarnarnes Gler Valhúsaskóla kl. 9 og 13, leir Skólabraut kl. 9, Billjard Selinu kl. 10, kaffispjall í króknum kl. 10.30, jóga í salnum á Skólabraut kl. 11, handavinna með leiðbeinanda, opinn salnur, púsl, tafl o.fl., vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Stangarhylur 4, FEB Zumba Gold námskeið kl. 10.30, leiðbeinandi Tanya. Djöflaeyjan, samlestur námskeið kl. 14, umsjón Jónína Guðmundsdóttir, danskennsla samkvæmisdansar kl. 17, línudans kl. 18 og samkvæmisdansar framhald kl. 19, kennari Lizy Steinsdóttir Smáauglýsingar 569 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Verslun Gamaldags og nýmóðins trúlofunarhringar Gull, hvítagull, silfur, titanium, tung- sten, rúna- og höfðaleturshringar á verði við allra hæfi. Sérsmíði, skart og vönduð úr. ERNA, Skipholti 3, s. 5520775, www.erna.is Óska eftir Staðgreiðum og lánum út á: gull, demanta, vönduð úr og málverk! Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex, Cartier, Patek Philippe o.fl. Hringdu núna og fáðu tilboð þér að kost- naðarlausu! www.kaupumgull.is Opið mán.– fös. 11–16. Kringlan – 3. hæð (Hagkaupsmegin) Upplýsingar í síma 782 8800 Ýmislegt Teg 4457 - fæst líka í svörtu í stærðum 75-95B og 70-100C,D,E,F skálum á kr. 5.850,- Teg 11001 - þessi sívinsæli fæst nú líka í húðlit í stærðum 75-100 C,D,E,F skálum á kr. 5.850,- Teg 301048 - nett fylltur í svörtu og hvítu, stærðir 70-85B og 70-90C,D á kr. 5.850,- Laugavegi 178 Sími 551 2070 Opið mán.-fös. 10–18. Laugardaga kl 10 - 14 Sendum um allt land. Erum á Facebook. Hjólbarðar Matador heilsársdekk - tilboð 215/70 R 16 kr. 19.500 235/60 R 18 kr. 28.500 255/55 R 18 kr. 29.900 255/50 R 19 kr. 34.500 275/40 R 20 kr. 44.500 175/75 R 16 C kr. 17.500 205/75 R 16 C kr 19.500 215/75 R 16 C kr. 23.500 225/65 R 16 C kr. 27.200 235/65 R 16 C kr. 29.900 Framleidd af Continental í Slóvakíu. Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði Dalvegur 16 b, 201 Kópavogur s. 8201070 Ódýru dekkin Hágæða sterk dekk. Allar stærðir. Sendum hvert á land sem er. Bílastofan, Funahöfða 6, sími 562 1351. Rýmingarsala á vörubíladekkjum 13 R 22.5 kr. 48306 + vsk 4 stk 1200 R 20 kr. 39.516 + vsk 4 stk 275/70 R 22.5 kr. 48306 + vsk 4 stk 385/65 R 22.5 kr. 66048 + vsk 2 stk 1000 – 20 kr. 33790 + vsk 1 stk og fleiri stærðir. Kaldasel ehf., s. 5444333 og 8201070 Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, Húsviðhald Tökum að okkur viðhald, við- gerðir og nýsmíði fasteigna fyrir fyritæki húsfélög og einstak- linga. Fagmenn á öllum sviðum. Tilboð/ tímavinna. S. 896 - 4019. fagmid@simnet.is mbl.is alltaf - allstaðar Þjónustuauglýsingar Þarft þú að koma fyrirtækinu þínu á framfæri Hafðu samband í síma 569 1390 eða á augl@mbl.is og fáðu tilboð ✝ GuðmundurHalldórsson, byggingaverkfræð- ingur, var fæddur 30. september 1934 á Ísafirði. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 19. októ- ber 2016. Foreldrar hans voru Halldór Jón- mundsson yfirlög- regluþjónn, f. 20. okt. 1907 í Skagafirði, d. 16. sept. 1987, og Ingibjörg Ein- arsdóttir, f. 21. júlí 1913 á Ísa- firði, d. 13. feb. 1988. Halldór var sonur Jónmundar Halldórs- sonar, prests á Stað í Grunna- vík, og Guðrúnar Jónsdóttur. Ingibjörg var dóttir Einars Benjamínssonar, skipstjóra á Sæbóli í Sléttuhreppi, og Her- maníu Brynjólfsdóttur. Systur Guðmundar eru Sess- elja, f. 25. júlí 1940, d. 5. okt. 2009, gift Tomas Enok Thom- sen, Hermanía Kristín, f. 16. júlí 1949, gift Theodór Richard Theodórssyni og Ásta Sigur- björg, f. 26. nóv. 1952, gift Ás- geiri Ásgeirssyni. Árið 1962 kvæntist Guð- mundur eftirlifandi eiginkonu sinni, Dómhildi Gottliebsdóttur skurðstofuhjúkrunarfræðingi, f. 17. apr. 1927. Foreldrar hennar voru Guðrún Frímannsdóttir, f. 6. maí 1894 á Deplum í Stíflu, Skagafirði, d. 15. ágúst 1981, og Gottlieb Halldórsson, f. 4. ágúst 1890 í Burstabrekku, Ólafsfirði, d. 21. maí 1980. Guðmundur og Dómhildur eiga þrjár dætur: 1) Ingibjörg, læknir, f. 9. feb. 1963, maki Kristinn Sigurjónsson, f. 8. okt. 1954, þau skildu. Börn þeirra eru Ólöf Embla Kristinsdóttir, f. 25. júni1994, og Kristján Albert Kristinsson, f. 16. ágúst 1998. 2) Hólmfríður, tann- læknir, f. 13. apríl 1964, maki Hannes Árnason, f. 10 feb. 1961, börn þeirra eru Elín Hrefna Hannesdóttir, f. 12. júlí 1990, og Guð- mundur Einar Hannesson, f. 28. ágúst 1996. 3) Dóra, lögfræðingur, f. 15. júlí 1965, maki Robert Andrews, f. 25. nóv. 1967, börn þeirra eru Leslie Ingi Andrews, f. 21. júlí 1997, og Dómhildur Lara And- rews, f. 13. júní 1999. Guðmundur lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum á Ak- ureyri árið 1954, fyrrihlutaprófi í verkfræði frá Háskóla Íslands árið 1957 og prófi í bygginga- verkfræði frá DTH í Kaup- mannahöfn árið 1960. Hann vann sem verkfræðingur hjá Ísafjarðarkaupstað á árinu 1960, hjá Háskóla Íslands á ár- unum 1961-62 og á verkfræði- stofu í Kaupmannahöfn á ár- unum 1962-63. Árið 1963 hóf hann störf hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen (VST) í Reykjavík og varð meðeigandi stofunnar frá 1966. Auk þess starfaði hann tímabundið hjá Nordisk Ventilator í Árósum í Danmörku árin 1969-70. Hann kenndi við Tækniskóla Íslands árin 1974-79 og við Háskóla Ís- lands árin 1974-76 og 1978-80. Auk þess gegndi Guðmundur fé- lags- og trúnaðarstörfum, m.a. á síðari árum fyrir Lagnafélag Ís- lands. Útför Guðmundar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 31. október 2016, klukkan 11. Að heimsækja ömmu og afa er eins og að taka sér frí frá öng- þveitinu sem einkennir oft hinn hefðbundna hversdagsleika. Á hraðferð, í stöðugu kapphlaupi við tímann, er mikilvægt að taka sér stundum pásu og ná áttum. Og hvar er betra að gera það en hjá ömmu og afa? Þar sest maður niður og talar við fólkið með mestu lífsreynsluna af þeim sem standa manni næst. Afi sýndi mér alltaf áhuga og vildi allt fyrir mig gera og það eina sem hann og amma vildu frá mér í staðinn var samvera og félagsskapur. Alltaf tilbúin að hlusta, veita góð ráð og aðstoða mig við allt milli himins og jarðar. En eins og öll frí taka heim- sóknirnar til ömmu og afa enda að lokum. Ég held upp á margar góðar minningar og allar stund- irnar okkar saman. Ég er þakk- látur fyrir að hafa átt svona ynd- islegan og góðan afa. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að verja svona miklum tíma með afa og ömmu. Ég sakna þín, afi minn. Hvíldu í friði. Guðmundur Einar Hannesson. Hann afi hélt mikið upp á hefðir og var sérfræðingur í ætt- fræði, en fyrst og fremst var hann alltaf til staðar. Ég á ótelj- andi góðar minningar þegar ég hugsa til baka, en þessi orð komu fyrst upp í hugann þegar ég hugsa til hans. „Komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meina- lausu.“ Með þessum orðum voru álfarnir boðnir velkomnir á heim- ili ömmu og afa um hver áramót frá því ég man fyrst eftir mér. Afi var yndislegur maður og sýndi okkur systkinunum ávallt einlægan áhuga. Hann hvatti okkur áfram hvort sem það var tengt skólanum eða bara al- mennt í lífinu. Við áttum góðar stundir sam- an, minningu þína mun ég geyma, ég elska þig meira en orð fá lýst og sakna þín jafnvel meira. Elín Hrefna Hannesdóttir. Guðmundur Halldórsson, bróðir minn, lést á heimili sínu aðfaranótt 19. október. Dauði hans kom öllum að óvörum, hans er sárt saknað. Hann var 15 árum eldri en ég og fyrsta minning mín um hann er þegar hann var að koma heim í jóla- og páskafrí. Þegar hann kom fylltist heimilið af gleði og hlátri. Hann var góður sonur, hugulsamur og skemmtilegur bróðir. Hann eignaðist yndislega eig- inkonu, Dómhildi Gottliebsdóttur frá Ólafsfirði, og eignuðust þau þrjár flottar dætur, barnabörnin eru sex. Þau bjuggu sér mjög fal- legt heimili að Kríunesi 3 í Garðabæ. Það verður skrítið að koma til Reykjavíkur og hann, þessi fasti punktur í tilverunni, er horfinn. Hann reyndist mér alla tíð ákaflega vel, við vorum alltaf vel- komin og ætíð tekið sérstaklega vel á móti okkur. Hann var góður frændi barnanna minna, hann vakti yfir öllum, fylgdist með. Við Mummi töluðum ætíð mjög mikið saman í síma og á ég eftir að sakna okkar skemmtilegu sam- tala. Fjölskyldan var honum alltaf númer eitt. Hann var bygginga- verkfræðingur að mennt og vann alla sína tíð hjá Verkfræðiskrif- stofu Sigurðar Thoroddsen. Hann var vandaðasti maður sem ég þekkti, hæglátur séntilmaður með leikandi léttan húmor. Ég votta Dómhildi, dætrum hans og fjölskyldum innilega samúð. Hvíl í friði, elsku bróðir. Hermanía Kristín Halldórsdóttir. Guðmundur Halldórsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.