Morgunblaðið - 31.10.2016, Síða 39

Morgunblaðið - 31.10.2016, Síða 39
Hydrófíl rakakrem án rotvarnar er alhliða rakakrem sem má nota á allan líkamann og í andlit. Kremið er hannað með viðkvæma húð í huga, hentar öllum húðgerðum og öllum aldri. Hydrófíl rakakrem er sannkallað fjölskyldu- krem þar sem líklegt er að allir í fjölskyldunni geti notað það með góðum árangri. Michael Clausen krem inniheldur 3% carbamidum. Kremið er fremur feitt og gefur húðinni raka. Kremið hentar vel á exem og þurra húð. Kremið má nota á allan líkamann og í andlit. Cetricide sárakrem hefur sótthreinsandi eiginleika. Cetricide sárakrem er borið á smásár, bleyjuútbrot, lítil brunasár, bólur og rispur. Kremið er áhrifaríkt á unglinga- bólur. Hælakrem er mjög feitt og er ætlað á þurra og grófa húð. Kremið mýkir upp harða og grófa húð t.d. á hælum, iljum og olnbogum. Best er að bera kremið á sig fyrir svefn og leyfa því að virka yfir nóttina. Karbamíðkrem er feitt rakabindandi krem sem hentar fyrir venjulega, þurra og mjög þurra húð. Kremið má nota í andlit og á hendur ef húðin er mjög þurr á þessum svæðum. Best er að bera kremið á sig fyrir svefn. ACP Krem leysir upp harða skán eða húð sem getur myndast í hársverði. ACP krem er stíft (þykkt) krem sem er notað í hársvörð. Það hefur hátt fitu innihald telst því mjög feitt krem. ACP krem var framleitt í apótekum, og dregur nafnið af fyrsta staf hvers innihaldsefnis. Akvósum er stíft rakakrem sem er ætlað á þurra húð og þurrkubletti. Kremið hentar börnum mjög vel. Kuldakrem er útivistarkrem fjölskyldunnar. Kremið er ætlað fyrir börn og fullorðna sem eru í útiveru hvort sem er í leik eða starfi. Kuldakrem ver húðina fyrir frostbiti og vind og er borið á andlit og hendur áður en farið er út. Af kreminu er mildur ilmur af lavender og rósmarín en þessar ilmkjarnaolíur eru hluti af húðverndandi hluta kremsins. Kuldakrem er einnig notað sem rakakrem fyrir þurra húð og hentar jafnt á andlit, líkama og hendur. Akvól er sérstaklega ætlað á mjög þurra húð á líkama en einnig má bera það í andlit og á hendur. Akvól inniheldur mikið magn af jarðhnetuolíu og telst því mjög feitt krem. ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI FÆST Í APÓTEKUM HÁGÆÐA HÚÐVÖRUR EXEM ÞURRKUR Í HÚÐ PSORIASIS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.