Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 40

Morgunblaðið - 31.10.2016, Side 40
MÁNUDAGUR 31. OKTÓBER 305. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Segir RÚV hafa haft hana að fífli 2. Hverjir eru öruggir inni? 3. „Var að vakna og er í sjokki“ 4. Hefðum getað verið valkosturinn »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Annað kvöld, þriðjudag, verður djasskvöld á Kexhostel, sem fellur innan Airwaves-hátíðarinnar og mót- ast af henni. Moses Hightower og President Bongo koma fram og verð- ur tónlistinni streymt beint af KEXP- útvarpsstöðinni í Seattle í gegnum Youtube og Facebook. Morgunblaðið/Ómar Airwaves djasskvöld á Kex á morgun  Í kvöld klukkan 21 verða spuna- tónleikar í Mengi með Corey Fogel trommuleikara, Dina Maccabee, víóluleikara og söngkonu, og De- vin Hoff bassa- leikara. Öll eru þau liðsmenn í hljómsveit Juliu Holt- er sem fram kemur á Iceland Airwa- ves í ár. Í kvöld leika þau sem sólistar. Spunatónleikar í Mengi í kvöld  Jóhann Smári Sævarsson mun stíga á svið og þenja raddböndin á Hádegistónleikum Hafnarborgar á morgun en tónleikarnir byrja á slaginu kl. 12. Jóhann mun ásamt Antoníu Hevesi píanó- leikara flytja fjöl- breyttar aríur eftir Verdi, Mozart og Puccini. Næstu hádegistónleikar verða þriðjudag- inn 6. desem- ber. Flutningur á Verdi, Mozart og Puccini Á þriðjudag Norðvestan 13-18 m/s austanlands, en lægir smám saman. Mun hægari breytileg átt í öðrum landshlutum. Á miðvikudag Suðaustan 8-13 og rigning eða slydda á Suður- og Vesturlandi, en þurrt fyrir norðan og austan. Hiti 1 til 8 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðvestan 13-23, hvassast á Austfjörðum og einnig á Suðausturlandi fram yfir hádegi. Hiti 0 til 5 stig. VEÐUR Noðurlandamót unglinga í ólympískum lyftingum fór fram við Strandgötu í Hafn- arfirði um helgina. Fjölmörg Íslandsmet voru sett, bæði í fullorðinsflokki sem og ung- lingaflokkum, en þar að auki féllu sex Norður- landamet. Meðal annars urðu bræðurnir Guðmundur Högni og Alex Máni Hilm- arssynir báðir Norður- landameistarar í sínum flokkum. »2 Metin féllu á Norðurlandamóti Fram er í efsta sæti Olís-deildar kvenna í handknattleik eftir sigur á ÍBV í leik þar sem aðeins voru skoruð 37 mörk. Fram er taplaust eftir sjö leiki. Heil umferð fór fram um helgina og Íslandsmeistarar Gróttu töpuðu enn einum leiknum. Nú gegn Val á heimavelli á Seltjarnarnesi og hefur liðið tapað sex af fyrstu sjö leikj- unum. » 6 Fram-konur taplausar í handboltanum „Ég tók alveg dágott frí eftir ÓL og fékk svo um það bil mánuð til að komast í góða æfingu fyrir þessi heimsbikarmót. Nú fer ég til baka með þessar upplýsingar og vinn í öllu sem ég hefði getað gert betur,“ sagði Hrafnhildur Lúthersdóttir, sem tók þátt í þremur heimsbikarmótum í sundi í Asíu, í samtali við Morgun- blaðið í gær. » 1 Hrafnhildur komin á ferðina eftir frí ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hörður Hilmarsson hefur starfað í ferðaþjónustunni í 30 ár og þar af sem framkvæmdastjóri eigin ferða- skrifstofu, ÍT ferða, í 20 ár. „Við erum frumkvöðlar og sérfræðingar í íþróttatengdri ferðaþjónustu, þótt við sinnum vissulega ferðaþjónustu fyrir aðra hópa,“ segir Hörður á þessum tímamótum og bendir á að fyrirtækið sé fyrst og fremst hóp- ferðaskrifstofa. „Og alltaf með sömu kennitölu,“ leggur hann áherslu á. Fyrir 30 árum voru Hörður og Ingi Björn Albertsson þjálfarar meistaraflokks FH í knattspyrnu og Þórir Jónsson heitinn fram- kvæmdastjóri deildarinnar. Hörður segir að þeir hafi ákveðið að fara með liðið í æfingaferð til útlanda til þess að undirbúa það fyrir Íslands- mótið og rekist á vegg. „Ekki var mikil þjónusta fyrir íþróttalið sem vildu fara í æfinga- og keppnisferðir svo það endaði með því að við Þórir skipulögðum ferðina sjálfir og héldum utan um hana,“ rifjar Hörður upp um byrj- unina. Í kjölfarið hafi þeir sett hug- mynd um sértæka ferðaþjónustu fyrir íslenska íþróttahópa á blað, kynnt hana Helga Jóhannssyni, framkvæmdastjóra Samvinnuferða- Landsýnar og Íþróttadeild S-L orðið til. Eftir fjögur ár hafi þeir síðan tekið tilboði Úrvals-Útsýnar um að flytja sig þangað. „Það réð miklu um að við færðum okkur um set að Ú-Ú var á þessum tíma í eigu Flugleiða, síðar Icelandair, auk þess sem við fengum mun betri vinnuaðstöðu en við höfðum haft og aukið frelsi til athafna.“ Eftir sex ár hjá Ú-Ú skildi leiðir þeirra Þóris og Hörður stofnaði ÍT ferðir. Fyrstu árin var einn starfs- maður auk hans og Hjördísar, syst- ur Harðar, sem var bókari í hluta- starfi og setti síðar upp fjölda göngu- og menningarferða fyrir ÍT ferðir. Starfsmenn voru orðnir fimm 2004. Gangurinn var góður en eftir hrun bankakerfisins breyttist margt. „Við fundum fyrst fyrir því um veturinn þegar íslensk fyrir- tæki hættu að fara í árshátíð- arferðir, en aðalskellurinn kom sumarið 2009 þegar það varð 80% samdráttur í íþróttaferðum okkar til útlanda. Það varð okkur til happs á þessu erfiða tímabili að 2007 hafði ráðist til starfa hjá okk- ur einstakur, ungur maður, Hanni- bal G. Hauksson, sem hefur verið mín hægri hönd lengst af síðan. Með því að fækka starfsmönnum og gæta ýtrasta aðhalds í rekstri tókst okkur að lifa af þriggja til fjögurra ára vægast sagt „magurt“ tímabil. Síðan tökum við engu sem gefnu og erum áhættumeðvituð og varkár.“ Mikil samkeppni Hörður segir að samkeppnin hafi aukist verulega síðustu árin. Netið hafi einnig breytt mjög miklu, einkum í sambandi við afþreyingar- ferðir einstaklinga og fjölskyldna. „En það er þörf fyrir ferðaskrif- stofur til að skipuleggja og halda utan um ferðir fyrir hópa,“ segir hann. Flugfélögin á Íslandi séu mikilvægustu samstarfsfyrirtækin, en þau eigi öll ferðaskrifstofur og séu því einnig helstu samkeppnis- fyrirtækin, beint eða óbeint. „Það er ekki ákjósanlegt ástand,“ segir hann. Hörður segir ánægða viðskipta- vini það sem sé mest gefandi. Hann hafi verið heppinn með starfsfólk og fyrir bragðið hafi hópar almennt verið ánægðir eða mjög ánægðir með ferð sína og þjónustuna. „Ég var einhverju sinni spurður um það í hverju starf mitt fælist. Svar mitt var: „Ég vinn við að gleðja fólk“. Það hefur ekkert breyst.“ Vinnur við að gleðja fólk  Hörður Hilm- arsson í ferðaþjón- ustunni í 30 ár Morgunblaðið/Golli Ferðamálafrömuður Hörður Hilmarsson, framkvæmdastjóri ÍT ferða, stofnaði fyrirtækið fyrir 20 árum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.