Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 6
6 Fréttir Vikublað 3.–5. febrúar 2015
Virðing
RéttlætiVR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK S. 510 1700 WWW.VR.IS
Hefur þú áhuga á
að starfa í forystu VR?
Samkvæmt 20. gr. laga VR auglýsir kjörstjórn félagsins eftir einstaklingsframboðum til
formanns og í stjórn félagsins og listaframboðum í trúnaðarráð.
Um er að ræða annars vegar einstaklingsframboð til formanns, sjö sæti í stjórn og þrjú
til vara. Skrifleg meðmæli 50 félagsmanna þarf vegna einstaklingsframboðs til formanns
og 15 vegna einstaklingsframboðs til stjórnar og varastjórnar.
Hins vegar er um að ræða listaframboð fyrir 41 sæti í trúnaðarráð. Til að listi vegna
trúnaðarráðs sem borinn er fram gegn lista uppstillinganefndar sé löglega fram borinn þarf
skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sem og skriflegt samþykki frambjóðenda á listanum.
Framboðsfrestur er til kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 6. febrúar 2015. Framboðum og
framboðslistum skal skilað til kjörstjórnar á skrifstofu VR, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7.
Frambjóðendum er bent á heimasíðu VR www.vr.is, þar sem eyðublöð vegna framboða eru
aðgengileg og ítarlegari upplýsingar birtar um framboð til stjórnar og trúnaðarráðs. Kjörstjórn
VR veitir einnig frekari upplýsingar í síma 510 1700 eða með tölvupósti til kjorstjorn@vr.is.
30. janúar 2015
Kjörstjórn VR
Gjaldþrotum
fækkaði
Nýskráðum einkahlutafélögum
á árinu 2014 fjölgaði um sex pró-
sent samanborið við árið 2014.
Þetta kemur fram í tölum sem
Hagstofa Íslands birti á mánudag.
Alls voru 2.050 ný félög skráð á
árinu. Mest fjölgun nýskráninga
var í flokknum Sérfræðileg, vís-
indaleg og tæknileg starfsemi,
eða sem nemur 33 prósentum.
Gjaldþrotum einkahlutafé-
laga á árinu 2014 fækkaði um 14
prósent frá fyrra ári. Alls voru 795
fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta
á árinu, samanborið við 920 árið
áður. Gjaldþrotum í flokknum
Fasteignaviðskipti hefur fækkað
mest, eða um 36 prósent, að sögn
Hagstofu Íslands.
F
élag sjúkraþjálfara harmar
þá ákvörðun stjórnvalda að
endurnýja ekki samning sinn
við Hrafnistu um rekstur
endurhæfingarrýma sem ætluð eru
öldruðum sem enn búa í eigin hús-
næði. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu sem stjórn Félags sjúkraþjálfara
sendi frá sér.
„Endurhæfingarrýmin hafa verið
mikilvæg starfsemi í þágu aldraðra
þar sem þeim hefur gefist kostur á
innlögnum þar sem unnið hefur ver-
ið að því að viðhalda færni fólks til
að búa áfram í eigin húsnæði,“ segir
í tilkynningunni. Að mati félagsins
er þessi gjörningur „í hróplegri and-
stöðu“ við það markmið að efla getu
og færni fullorðins fólks til að halda
eigið heimili eins lengi og auðið er.
Sjúkraþjálfun sé ríkur þáttur í því að
efla fólk og viðhalda færni þess og
þarna sé tekið af fullorðnu fólki dýr-
mætt úrræði á því sviði. Slíkt muni
auka álag bæði á heilbrigðiskerfið og
aðstandendur. „Félag sjúkraþjálfara
lýsir furðu sinni á framkvæmdinni
og leggur áherslu á að endurhæfing
er ein alhagkvæmasta meðferð fjár-
muna í heilbrigðiskerfi okkar og skil-
ar margföldum sparnaði á öðrum
sviðum heilbrigðis- og velferðar-
þjónustunnar.“ n
Harma lokunina
Endurhæfingarrýmum á Hrafnistu lokað
Flestir hjá FME með
yfir 700 þúsund í laun
A
lls 83 af um 120 starfsmönn-
um Fjármálaeftirlitsins
(FME) eru með meira
en 700 þúsund krónur í
heildarlaun á mánuði. Þar
af eru tíu starfsmenn með meira en
eina milljón króna í laun.
Þetta kemur fram í svari FME við
fyrirspurn DV en með heildarlaun-
um er átt við mánaðarlaun auk yfir-
vinnu og orlofs á yfirvinnu. Sam-
kvæmt svarinu er ljóst að meðallaun
starfsmanna eftirlitsins hafa hækkað
frá árinu 2011 þegar mikil umræða
skapaðist um launakjör starfsmanna
og stjórnarmanna FME.
Launakostnaður aukist ár frá ári
Árið 2011 voru meðallaun starfs-
manna eftirlitsins um 660 þúsund
krónur á mánuði og þá voru einungis
þrír starfsmenn með yfir eina milljón
króna í heildarlaun. Þetta kom fram
í svari FME við fyrirspurn Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Launakostnaður FME hefur auk-
ist ár frá ári síðan 2009. Árið 2013
námu laun og launatengd gjöld 1,34
milljörðum króna og höfðu þá auk-
ist um 64 milljónir frá árinu á undan.
Launakostnaðurinn jókst um 517
milljónir frá árinu 2010 og um meira
en helming miðað við 2009. Meðal-
launakostnaður á hvern starfsmann
var því um 930 þúsund krónur árið
2013 samanborið við 745 þúsund
krónur árið 2010.
Starfsmenn FME eru í dag ríflega
120 talsins en til samanburðar störf-
uðu 43 hjá ríkisstofnuninni í árslok
2007. Sigurður Valgeirsson, upplýs-
ingafulltrúi FME, segir engin áform
um að annað hvort fækka eða fjölga
starfsmönnum stofnunarinnar.
Tvær hliðar á sama peningi
Morgunblaðið greindi í október í
fyrra frá bréfi sem samráðsnefnd
eftirlitsskyldra aðila sendi Höllu
Sigrúnu Hjartardóttur, þáverandi
stjórnarformanni FME, þann 16. júní
2014. Í bréfinu kom fram að nefndin,
sem er skipuð fulltrúum fyrirtækja
innan Samtaka fjármálafyrirtæka
(SFF), hefði viljað sjá hraðari starfs-
mannafækkun hjá FME. Lýstu þeir
vonbrigðum nefndarinnar með það
að FME sæi ekki fyrir sér meiri fækk-
un starfsmanna á komandi árum
en rekstraráætlanir stofnunarinn-
ar gera ráð fyrir. Að mati samráðs-
nefndarinnar hygðist stofnunin því
„festa inni til framtíðar“ þann kostn-
aðarauka sem eftirlitsskyldir aðilar á
fjármálamarkaði hefðu tekið á sig í
kjölfar bankahrunsins 2008.
Bréfið er undirritað af Hermanni
Björnssyni, forstjóra Sjóvár, og í því
segir einnig að skilningur hafi ríkt á því
að bregðast þyrfti við þeim aðstæðum
sem komu upp 2008 og útheimtu auk-
inn rekstrarkostnað FME. Hins vegar
hafi verið reiknað með því að mann-
afli og kostnaður myndu lækka þegar
sérstökum verkefnum sem tengdust
fjármálahruninu væri lokið.
Rúmum tveimur mánuðum eftir
að samráðsnefndin sendi stjórnarfor-
manni FME bréfið birtist ný úttekt Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) á fylgni
FME við 29 kjarnareglur Basel-nefndar-
innar um skilvirkt bankaeftirlit. Í úttekt-
inni varar AGS við því að auknar líkur
séu á því að fjármálafyrirtæki fari á ný
að falast eftir kröftum starfsfólks FME.
Ástæðan sé aukin uppgangur íslensks
efnahagslífs. Kom þar einnig fram að
helmingur starfsfólks FME hafði starfað
hjá stofnuninni skemur en fimm ár og
aðeins örfáir í fleiri en tíu ár. Telur AGS
því áríðandi að stofnunin marki sér
stefnu um hvernig henni getur haldist á
starfsfólki á komandi árum. n
n Tíu með meira en milljón í laun n Engin áform um að fækka starfsmönnum
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is Launakostnaður
FME frá hruni
2013: 1.340 milljónir króna
2012: 1.276 milljónir króna
2011: 1.074 milljónir króna
2010: 823 milljónir króna
2009: 646 milljónir króna
Hærri launakostnaður
Með fjölgun starfsmanna hefur
launakostnaður FME aukist ár frá ári
síðan 2009. Unnur Gunnarsdóttir er
forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
74 prósent
virkir á vinnu-
markaði
Um áramót voru um 2.400
manns í þjónustu á vegum VIRK
Starfsendurhæfingarsjóðs, en í
tilkynningu kemur fram að 1.783
einstaklingar komu nýir inn í
þjónustu hjá VIRK á árinu 2014
og fjölgaði þeim um tæp 9 pró-
sent frá fyrra ári en þá leituðu
1.639 einstaklingar til VIRK.
1.066 einstaklingar luku þjón-
ustu 2014, um 18,5 prósent fleiri
en 2013 en þá útskrifuðust 899
einstaklingar.
Alls hafa tæplega 3.800 manns
útskrifast frá VIRK frá upphafi og
um 74 prósent þeirra eru virk á
vinnumarkaði við útskrift.