Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 27
Vikublað 3.–5. febrúar 201528 Lífsstíll
Losti og kynLífsLeikir á Akureyri
n BDsM á íslandi stóð fyrir námskeiði um helgina n Pervertar sameinuðust á norðurlandi n flengingar, bindingar og vaxleikir
u
m helgina stóð félagið
BDSM á Íslandi fyrir ítar-
legu BDSM-námskeiði á
Akureyri. Félagið leigði af
tilefninu huggulegt einbýl-
ishús, í eigu Rafiðnaðarsambands-
ins, í nýja hverfinu í brekkum Hlíðar-
fjalls. Þetta var fallegur dagur við
Eyjafjörð, brakandi snjór á jörðu og
sólin skein. Sama kvöld var svo efnt
til leikpartís þar sem sunnlenskir
og norðlenskir perrar leiddu saman
hesta sína, hnýttu hnúta, flengdu
bossa og skemmtu sér.
Hvað er BDSM?
BDSM er regnhlífarhugtak yfir ýmsa
iðju sem telja má til óvenjulegs eða
skapandi kynlífs. Skammstöfun-
in stendur fyrir Bindingar, Blæti,
Drottnun/undirgefni og SadóMa-
sókíska leiki. BDSM-leikir hafa kyn-
ferðislega örvandi áhrif á flesta sem
stunda þá – en þurfa alls ekki að
innihalda kynlíf. Þeir sem stunda
BDSM-leiki saman þurfa þannig ekki
að eiga í hefðbundnu kynferðislegu
sambandi. Oftast er talað um BDSM
sem áhugamál eða lífsstíl. Sumir
muna eftir áhuganum frá unga aldri
– hafa til dæmis tjóðrað barbídúkk-
ur eða pleimókalla og fundið við það
skringilegan fiðring í maganum. Það
er líka misjafnt að hve miklu leyti
BDSM er ríkjandi í kynlífinu, sum-
ir aðskilja BDSM og kynlíf, á meðan
aðrir stunda ekki kynlíf nema með
þeim formerkjum.
Vaxandi umræða hefur átt sér
stað á síðustu árum um BDSM sem
kynhneigð, en fræðimenn og hags-
munaaðilar eru ekki á eitt sáttir um
hvort sú skilgreining eigi rétt á sér.
Þó má segja að reynsla einstaklinga,
sem stunda BDSM, af fordómum
og fáfræði samfélagsins, minni um
margt á reynslu þeirra sem kom-
ið hafa út úr skápnum sem eitthvað
annað en gagnkynhneigðir.
Námskeið í BDSM
Námskeiðið sátu 15 manns. Þetta
var nokkuð jöfn kynjablanda, sumir
flúraðir og gataðir, bankalegar kon-
ur, gelgjulegir ungir menn – ósköp
venjulegur þverskurður af mann-
lífinu á Norðurlandi. Magnús Há-
konarson, formaður BDSM á Íslandi,
byrjaði á fyrirlestri þar sem hann
reifaði helstu atriði varðandi skil-
greiningar, sögu, tölfræði og öryggi í
BDSM-leikjum.
Eitt af því sem Magnús lagði
áherslu á er að klám sé ekki notað
sem fræðsluefni. Það getur vissulega
gefið hugmyndir og nærir ímynd-
unaraflið, en BDSM-klám snýst um
óra og drauma og á lítið skylt við
raunveruleikann. Í klámsenum er
svo margt sem sést ekki – nokkurra
tíma undirbúningur getur hafa átt
sér stað og á bak við flotta fjötrasenu
gætu verið fjórir aðilar sem eru til-
búnir að grípa inn í ef eitthvað fer úr-
skeiðis.
Eftir fyrirlesturinn var hópnum
skipt í fernt og við tók stöðvaþjálf-
un þar sem hóparnir ferðuðust milli
stöðva og fjallað var um ákveðna
þætti innan BDSM á hverri stöð. n
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Shibari Japönsk bindilist þar sem fagurfræðin er ekki síður mikilvæg en fjötrarnir.
Heit og rjóð húð Hýðingar geta skilið eftir vegsummerki sem jafna sig oftast á skömmum tíma.
Grunnreglur BDSM
Öryggi BDSM-leikir þurfa að vera öruggir
þannig að ekki verði varanlegt eða
langvarandi líkamlegt eða andlegt tjón.
Meðvitund Allir þátttakendur verða að
vera með fullri meðvitund.
Samþykk Allir aðilar leiksins verða að
vera samþykkir því sem fer fram.
Umhyggja eftir leik Iðkendur BDSM
leggja mikla áherslu á umhyggju og sam-
skipti í kjölfar leiks.
Leðurgríma Margir BDSM-iðkendur kunna
vel við leður.
Augnbindi og klemmur Leikið með skynj-
un og sársauka. Venjulegar þvottaklemmur
geta komið sér vel í BDSM-leik.
„Eitt af því sem
Magnús lagði
áherslu á er að klám sé
ekki notað sem fræðslu-
efni.
Bundin og þæg Þessi kona var síðar um
kvöldið flengd og bundin enn þá betur.
Hann drottnar, hún er undirgefin Norðlenskt kærustupar í D/s sambandi. Hann ber
lykilinn að hálskraga hennar í keðju um hálsinn.