Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Blaðsíða 23
Vikublað 3.–5. febrúar 201524 Neytendur EyðimErkurganga rafrEttunnar n Sögð skaðlítil leið til að hætta að reykja n Reykingafólk sparar hundruð þúsunda n Smyglari ósáttur við glæpamannastimpil n Svona nálgast þú búnað og efni löglega Þ að er alveg hræðilegt að fá glæpamannastimpil á sig fyrir að vilja selja vöru sem gæti dregið úr hefðbundn­ um sígarettureykingum og jafnvel hjálpað fólki að hætta alfar­ ið,“ segir karlmaður sem um nokkurt skeið hefur flutt inn og selt rafsígar­ ettur og nikótínvökva ólöglega en rafrettur njóta mikilla vinsælda um þessar mundir. Sala og innflutn­ ingur á nikótínvökva fyrir rafrettur til endursölu er óheimill án mark­ aðsleyfis samkvæmt lyfjalögum. Það eru þó leiðir fyrir einstaklinga til að nálgast bæði rafrettur og nikótín­ vökvann með löglegum leiðum hér á landi. DV kynnti sér rafrettuæðið. Mjög vinsælt Sölumaðurinn sem DV ræddi við óskaði nafnleyndar þar sem hann er meðvitaður um að það sem hann er að gera er samkvæmt laganna bók­ staf ólöglegt. Og þótt hann sé að taka áhættu með að selja og smygla rafrettum og aukahlutum til lands­ ins hyggst hann halda því áfram. „Þetta er mjög vinsælt og það er þvílík sprenging núna. Allir mín­ ir kúnnar sem eru að reykja þetta finnst þetta miklu léttara í lungun og aðalmarkhópurinn hjá mér er fertugir til sextugir einstaklingar sem hafa reynt allt til að hætta að reykja og þetta kemur bara alveg í staðinn,“ segir maðurinn, sem vill aðspurður ekki upplýsa hvernig hann komi vörunni til landsins. Ljóst er að þeir eru fjölmargir sem selja rafrettur og allt sem þeim til­ heyrir hér á land. Sumir eru fyrir opn­ um tjöldum og reyna að fara löglegar leiðir, meðan aðrir stunda sín við­ skipti í skugganum. Of sniðugt til að leyfa „Ef þetta verður leyft þá fer þetta beint inn í apótekin og við græðum ekki krónu á því. Það er ekki í öllum lönd­ um sem þetta er flokkað sem lyf en Ís­ lendingar vilja flokka þetta sem lyf,“ segir rafrettumaðurinn. Af viðtölum DV við aðila í þessum geira að dæma þá gerir Lyfjastofn­ un afar strangar kröfur fyrir umsókn um markaðsleyfi svo mönnum fallast hreinlega hendur. „Þegar og ef þetta verður leyft þá verður þetta tollað í botn og verður dýrt. Það er ljóst. Þetta er of sniðugt til þess að leyfa fólki bara að reykja þetta.“ Gera kröfu um markaðsleyfi Helga Þórisdóttir, staðgengill for­ stjóra hjá Lyfjastofnun, staðfestir að enginn hafi fengið markaðsleyfi fyr­ ir rafrettum með nikótíni hér á landi. Það er nikótínvökvanum sjálfum. Hún bendir á að mikil umræða hafi verið um það í Evrópu hvernig bæri að flokka hann, sem lyf eða sígarettur, því vissulega sé mismunandi hvernig hann er flokkaður milli landa. Niður­ staðan varð sú að ef vörunni fylgi ein­ hverjar ábendingar um lækningu, eins og í þessu tilfelli að hún geti los­ að menn undan sígarettureykingum, þá verði að flokka þær sem lyf sem krefjast markaðsleyfis. Annars ekki. Sem dæmi um þetta eru nikótínlyf á borð við tyggjó og plástra flokkuð sem markaðsleyfisskyld lyf. „Þau erindi sem við höfum feng­ ið varðandi rafsígarettur hafa verið þannig að við höfum gert kröfu um að það verði sótt um markaðsleyfi.“ Ekki alltaf að marka innihaldið Helga bendir á að rannsóknir á inni­ haldsefnum vökvans gefi ástæðu til að ætla að hann innihaldi ekki alltaf það sem haldið er fram. „Þessar rann­ sóknir á innihaldinu, sem á að vera skaðlaust, hafa alls ekki allar verið að sýna fram á það. Þegar þú ert kominn í þennan markað sem virðist vaxandi, þá er sú staðreynd þar fyrir hendi að til dæmis nikótíninnihaldið getur ver­ ið allt annað. Allt frá því að vera hrein­ lega ekki til staðar yfir í að vera miklu meira. Ef það er orðið miklu meira þá getur það verið orðið skaðlegt magn.“ Aðspurð um þau viðskipti sem staðreynd er að eigi sér stað með rafrettur og nikótínvökva á Íslandi segir Helga að Lyfjastofnun hafi hreinlega ekki mannskap eða fjár­ magn í að sinna nægilega virku eft­ irliti. „Og við höfum vissilega verið að fá ábendingar frá aðilum, sem hafa komið með fyrirspurnir til okkar og fengið svör um hvað má og hvað ekki, sem eru að benda á sölusíður og ann­ að. Við höfum verið að skoða þetta.“ Hún segir löggjöfina erfiða og tak­ mörk séu fyrir því hversu mikið Lyfja­ stofnun geti beitt sér sem opinber stofnun. „Ef einhverjir eru að selja vöru sem uppfylla ekki skilyrði þá eru lík­ ur á því að þetta sé sala sem ekki er heimil. Við höfum reynt þau úrræði sem við höfum en þau hafa ekki í öll­ um tilfellum dugað nægilega vel sem er miður, því það á það sama yfir alla að ganga.“ Löglegar leiðir til að kaupa En þrátt fyrir ýmis boð og bönn í þessum efnum þá eru löglegar leið­ ir til að nálgast bæði rafrettubúnað­ inn og vökva með og án nikótíns hér á landi. Gestur Hermannsson er einn af eigendum Gaxa.is sem selur rafrettu­ búnað og vökva án nikótíns löglega hér á landi. Hann segir hins vegar algengan misskilning ríkja í um­ ræðunni á Íslandi varðandi rafrettur og það sem þeim fylgi. Hann orðar þetta einfalt í samtali við DV. „Að flytja inn rafrettuna sem slíka er 100% löglegt. Það sem ruglar fólk er nikótínvökvinn. Búnaðinn sjálfan má einstaklingur eiga og kaupa og versl­ un má kaupa inn og selja. Það er ekk­ ert að því. Einstaklingur má kaupa og eiga vökva með nikótíni á Íslandi. Íslenskt fyrirtæki má ekki kaupa og selja vökva með nikótíni á Íslandi. Það er ólöglegt. Erlend fyrirtæki, sem ekki eru staðsett á Íslandi, mega selja vökva með nikótíni og einstaklingur hér á landi má kaupa af þeim.“ Nikótínið frá ótengdum aðilum erlendis Á vefsíðunni Gaxa.is er auglýsing og hlekkur þar sem viðskiptavinum er bent á að hafi þeir áhuga á að kaupa vökva með nikótíni sé hægt að gera það í gegnum vefsíðu breska fyrirtæk­ isins Gaxa.eu. Sem tengist ekki með nokkrum hætti Gaxa.is. „Við erum ekki að selja vökva með nikótíni,“ segir Gestur. „Við seljum bara búnaðinn og vökva án nikótíns. Svo erum við bara með auglýsingu á síðunni okkar þar sem við gefum fólki, sem hefur áhuga á að kaupa vökva með nikótíni, kost á því að fara inn á Gaxa.eu sem er önnur síða og allt annað fyrirtæki, og kaupa þennan vökva þaðan. Löglega.“ Þar sem Gaxa.eu er á Bretlandi og heyrir undir Evrópska efnahagssvæð­ ið (EES) þá mega Íslendingar kaupa nikótínvökva til einkanota beint af þeim innan ákveðinna marka. Mið­ ast þar við 100 daga skammt, sem Lyfja stofnun túlkar sem 1 ml á dag og Gestur segir að sé reyndar of lítið. En ef fólk reynir að kaupa meira en sem jafngildir 100 daga notkun í pósti frá ríkjum innan EES verði það stoppað. Ekki er hægt að kaupa af fyrirtækjum utan Evrópu. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Milljarðaiðnaður rafrettunnar Í tarlega var fjallað um rafrettuæðið á fréttavef Reuters á dögunum. Þar kemur fram að rafrettuiðnaðurinn velti á bilinu 4–5 milljörðum bandaríkjadala á síðasta ári sam­ kvæmt markaðsrannsóknafyrirtækinu Euromonitor og að rannsóknarmenn hafi talið 7.764 mismunandi tegundir af nikótínvökva. Þar segir að flestir vísindamenn séu sammála um að rafrettur geti aðstoðað fólk við að hætta að reykja auk þess sem þær séu lausar við þúsundir eiturefna sem finna má í hefðbundnu reyktóbaki. Ákveðinn vandi fylgir þó rafrettun­ um. Lyfjaiðnaðurinn spilar ekki með Þar sem rafrettan fellur einhvers staðar á milli hefðbund­ inna reykinga og lyfja sem aðstoða fólk að hætta þeim þá má segja að rafrettubransinn sé í skotlínu bæði tóbaksfyr­ irtækja og lyfja fyrirtækja. Tóbaksfyrirtæki hafa brugðist við hættunni með því að kaupa upp rafrettufyrirtæki og eru nú að fjármagna rannsóknir. Lyfjaiðnaðurinn hyggst hins vegar ekki hætta sér inn á þennan markað og ætlar að halda sér í hæfilegri fjarlægð. Lyfjafyrirtæki prófa vanalega eina tiltekna meðferð gegn annarri en úrvalið og ör þróun á rafrettumark­ aði þýðir að erfitt og afskaplega dýrt myndi reynast að prófa allar tegundirnar. Gagnlegt og skaðlítið Óháðir vísindamenn frá Bretlandi og Nýja­Sjálandi tóku sig til og rýndu í niðurstöður helstu rannsókna á rafrettum og birti niðurstöður sínar í síðasta mánuði. Vildu þeir fá botn í það hvort rafrettur hjálpuðu fólki að hætta að reykja. Niðurstað­ an var sú að svo er auk þess að litlar vísbendingar væru um að þær væru skaðlegar notendum. En þeir komust að því að sönnunargögnin voru rýr og upplýsingarnar slakar. Af þeim nærri 600 rannsóknum sem teknar voru út stóðust aðeins 13 þeirra staðla hins svokallaða Cochrane Review. Og aðeins tvær þeirra voru framkvæmd­ ar samkvæmt ströngustu rannsóknarskilyrðum (randomized controlled trials). Önnur þeirra komst þó að því að rafrettur væru skaðlítil og sniðug lausn til að hætta að reykja. Fjármagna eigin rannsóknir Þar sem lyfjaiðnaðurinn hyggst ekki taka þátt í rannsóknum þýðir það að rafrettufyrirtæki þurfa að fjármagna rannsóknir á eigin vörum. Þá vakna áhyggjur sérfræðinga um hlutleysi og hugsanleg hagsmunatengsl. Taka verði því niðurstöðum með ákveðnum fyrirvara. Reuters ræðir við sérfræðing hjá Cochra­ ne Library sem bendir á að rannsóknir hafi sýnt að niðurstöð­ ur vísindarannsókna sem fjármagnaðar eru af fyrirtækjum í einkageiranum skili almennt niðurstöðum sem sýni fram á kosti fremur en galla og aukaverkanir en óháðar rannsóknir. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) og Háskólinn í Kali­ forníu hafa einnig komist að þeirri niðurstöðu eftir að hafa farið yfir niðurstöður rannsókna að rafrettur væru engu skárri leið til að hætta tóbaksnotkun en meðferð með nikótínlyfj­ um. Í ágúst síðastliðnum mælti WHO með því að reykinga­ fólk prófaði frekar viðurkenndar leiðir á borð við nikótínlyf, fremur en rafrettur. Ósannaðar fullyrðingar Sala á rafrettum er leyfð í Bandaríkjunum og Bretlandi en stjórnvöld á Norðurlöndum og víðar í Evrópu hafa sett ákveðnar hömlur á. Í grein sem Sigríður Ólafsdóttir og Krist­ ín Loftsdóttir, hjá eftirlitssviði Lyfjastofnunar, skrifuðu um málið og birtist í júní í fyrra segja þær að ástæðan sé að ekki hafi enn verið sýnt fram á með fullnægjandi hætti að vörurn­ ar séu skaðlausar og virki eins og ætlast er til. Þær benda á að lyf þurfi að uppfylla kröfur um gæði, öryggi og verkun til að fá markaðsleyfi og engar rafsígarettur séu nú á markaði sem sannanlega uppfylla þessar kröfur. Vísa þær í efnagreiningar á vegum Bandarísku lyfja­ stofnunarinnar á gufum úr tveimur algengum gerðum af rafsígarettum með nikótíni sem leiddu í ljós að gæðum og öryggi rafsíg­ arettanna gat verið ábóta­ vant. Breska lyfjastofnun­ in komst að sambærilegri niðurstöðu. „Merkingar á nikótínmagni vöru voru ekki alltaf í samræmi við mælingar á innihaldi og efna­ samsetning varanna var stundum breytileg frá einni vöru­ sendingu til annarrar. Þar gat munað allt að 60% á nikótín­ magni. Slíkur breytileiki getur valdið aukaverkunum og ofskömmtun.“ Þetta eru rannsóknirnar sem Helga Þórisdóttir vísar til fyrr í þessari grein. Þar að auki var sýnt að gufurnar úr rafsígarettum innihalda efni sem geta verið eitruð eins og díetýlenglýkól eða krabba­ meinsvaldandi eins og nítrosamín. Þá hafi nýlega komið í ljós að glóðarþráðurinn og lóðuð samskeyti í algengri gerð af raf­ sígarettum geti gefið frá sér málmagnir, t.d. nikkel, króm og tin, sem gætu valdið skaða í lungum og víðar í líkamanum. Sigríður og Kristín hlekkja á heimildir fyrir þessum fullyrðing­ um en greinina má nálgast í vefútgáfu þessarar greinar á dv.is. Það gæti því orðið einhver bið á því að við fáum endan­ lega úr ágæti eða skaðsemi rafrettunnar skorið með óyggj­ andi hætti meðan vísindaheimurinn nær áttum á hraðbraut rafrettuþróunarinnar. n Niðurstöður rannsókna segja þær skaðlitlar og gagnlegar til að hætta að reykja en meirihluta rannsókna þykir ábótavant „Þessar rannsóknir á innihaldinu, sem á að vera skaðlaust, hafa alls ekki allar sýnt fram á það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.