Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Qupperneq 19
20 Umræða Vikublað 3.–5. febrúar 2015
Umsjón: Henry Þór Baldursson
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
Reisupassar eru rómantískir
„Gott hjá þér að
sýna þessa myndir
og elsku barn ég
vona svo innilega að þú lærir
af þessu og kennir öðrum
í leiðinni. Mikið óskaplega
máttu vera þakklát að hafa
ekki keyrt á annan bíl og tekið
líf. Þú átt framtíðina fyrir þér
og óskandi að þú nýtir reynslu
þína og látir gott af þér leiða,
fyrir þig og aðra.“
Jonna Sverrisdóttir um myndir
sem Brynja Mist Snorradóttir
birti af sjálfri sér eftir að hafa
ekið undir áhrifum áfengis og lent í
umferðarslysi. Óhætt er að segja að
myndirnar hafi vakið mikla athygli en
Brynja Mist missti stjórn á bifreiðinni sem
skall á ljósastaur.
„Hvað er í
gangi! Eru
verkalýðsfélögin
búin að glutra niður ávinningi
áratuga baráttu einsog ekkert
sé, allt horfið út í veður og
vind? Maður spyr, hverju eru
þessi félög að fagna 1. maí,
með lúðrahljómi og blaktandi
fánum? Þetta er gjörsamlega
ólíðandi og vekur spurningar
um hvort þetta sé aðeins
toppurinn á ísjakanum. Svona
ógeð þarf að uppræta svo
fljótt sem auðið er annars
eitrar þetta út frá sér. Það er
augljóst að verkalýðsfélögin
hafa sofið á verðinum.
Neytendur þurfa líka að
sameinast um að sniðganga
þau fyrirtæki sem haga sér
svona.“
Sveinbjörn Halldórsson sýnir
Fróða Frímanni Kristjánssyni
stuðning en honum var sagt
upp störfum hjá Eldsmiðjunni eftir að
hann barðist fyrir því að fá trúnaðar-
mann kjörinn hjá fyrirtækinu og greitt
fyrir yfirvinnuárið 2012. Það er fyrirtækið
FoodCo sem á Eldsmiðjuna, en fyrirtækið á
einnig Aktu taktu, en dv.is greindi frá því á
dögunum að ungri stúlku, Emmu Jóhönnu
Pálínudóttur, var sagt upp, örfáum dögum
eftir að hún tilkynnti um kynferðislega
áreitni á vinnustað.
„Að þolandinn sé
jafn varnarlaus
gegn geranda
eins og dæmin sanna er
kjaftshögg fyrir löggjafann.
Málaflokkur sem þessi
er ekki til þess fallinn
að afla þingmönnum á
löggjafarþinginu vinsælda
og því er hann ekki í forgangi
hvað varðar úrbætur og
að réttur þolandans sé
skýrður og bættur. Hvað eiga
margir þolendur ofbeldis
og niðurlægingar sem eru
í sporum Julie eftir að þola
mikla höfnun, niðurlægingu
og réttur þeirra að engu
hafður meðan gerandinn
gengur laus sigri hrósandi? “
Athugasemd um Julie Ferguson
sem varð fyrir því að kynlífs-
myndband af henni var lekið
á netið af fyrrverandi elskhuga hennar.
Hæstiréttur felldi nálgunarbannsúrskurð
úr gildi sem héraðsdómur hafði úrskurðað.
9
8
14
F
yrir þá sem vilja ekki loka
augunum fyrir veruleikan-
um verður útþynning og
samþjöppun á öllum sviðum
stöðugt meira áberandi í sam-
félaginu. Afkomendur einstaklinga
og fjölskyldna tengjast í atvinnu-
rekstri, hjónaböndum og andlegum
störfum svo úr verður menningar-
og stjórnarfarslegt kraðak og lítil von
um endurnýjun frá hendi skrattans
úr sauðarleggnum. Skrattinn merk-
ir utanaðkomandi afl sem brýtur
stirða hugsun og starfshætti. Ef ekk-
ert breytist fer þjóðfélagið í mauk líkt
kæfu úr rollukjöti sem fólk trúir að
sé lostæti. Kæfan verður með síend-
urteknu sama bragði en fólk finnur
það ekki fyrir sjálfsánægju tungunn-
ar. Kæfa er áberandi í listum, stjórn-
málum og athafnalífinu.
Sú aðferð við að sitja að völdum
ríkir ekki hér, að faðir fari með son
og biðji um hönd dóttur hliðstæðu
sinna til þess að sameina jarðir og
yfirráð, sem var algengt áður hjá
ríkjandi stéttum, heldur skynjar ís-
lenskur sonur hvaða kost hann eigi
að velja. Valda- og menntastéttum
þykir sjálfsagt að þær fæðist með rétt
til að auka yfirráð sín með innbyrð-
is hjónaböndum en hneykslast t.d.
á því að í löndum araba ber stúlku
að lúta föður sem fær hana í hend-
ur manni í hagsmunaskyni. Hjá okk-
ur þarf fjölskyldan ekki að standa í
slíku, erfingjum er í hagsmunablóð
borið að lúta hagkvæmninni. Þannig
sameinast afkvæmi á sama sviði og
foreldrarnir. Börn leikara fara í leik-
list og sambúð með börnum annarra
leikara og sjóða kæfu á sviði. Og
rithöfundar tengjast gjarna þeim
sem stunda ritiðn eða starfa við að
„skipuleggja listaviðburði“. Mennta-
maður fer í sambúð með mennta-
konu sem hefur í það minnsta lokið
við að skrifa mastersritgerðina sína.
Háskólasamfélagð myndar MA-
hjónabönd og mastersritgerðasam-
býli. Engum finnst slíkt vera ótækt
eða fáránlegt í lýðræði, þótt frelsi
þess beri einkenni sjálfvalins ófrels-
is í andlegri fátækt. Fátt hindrar að
afkvæmi útvatni sig: leikari útvatnar
sig sjálfur í leikkonu, skáld útvatnar
sig í skáldkonu. Eðlisávísun lætur út-
þynntu börnin rata á jötuna, svipað
og belja ratar á básinn þótt hún megi
nú ramba frjáls í fjósi áður en vélin
mjólkar hana.
Samfélagið er eins og þegar sól-
þurrkaði saltfiskurinn varð að trosi.
Þótt þorskurinn hefði glatað gildi
og bragð þótti trosið ásættanlegt
í maga. Eins er með menninguna
núna. Í henni er flest útþvælt efni
sem hefur velkst í fjölmiðlum, orðið
tros um „hrunið“ eða stúlku sem fór
á ball en vaknaði með karl ofan á
sér og stirðnað í tómi líkama og sál-
ar. Hún heldur að tilfinningin merki
að henni hafi verið nauðgað og veit
ekki að þetta merkir það eitt að
hún fékk algera fullnægingu þegar
kóngur hitti drottninguna: snípinn.
Fyrst í kvennabaráttunni var snípur-
inn hafinn á stall og upp til skýja
sem forsenda fyrir rétti konunnar
til unaðar af hálfu karlmannsins.
Nú er snípurinn næstum gleymdur
nema hann lifir sem drottning við
hlið kóngsins, ef réttir aðilar para sig
innan hagsmuna og frægðar í þjóð-
félagi sem áræðir varla út fyrir blind-
götuna sína og telur sér trú um að
hún sé breiðgata lögð heimsfrægum
hellusteinum. n
„Ef ekkert breytist
fer þjóðfélagið í
mauk líkt kæfu úr rollu-
kjöti sem fólk trúir að sé
lostæti. Kæfan verður
með síendurteknu sama
bragði en fólk finnur það
ekki fyrir sjálfsánægju
tungunnar. Kæfa er áber-
andi í listum, stjórnmál-
um og athafnalífinu.
Guðbergur Bergsson
rithöfundur
Til umhugsunar
Útþynningin í samþjöppuninni
Mynd SiGtryGGUr Ari JóHAnnSSon