Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Qupperneq 29
Vikublað 3.–5. febrúar 201530 Lífsstíll
Ísskápshurðin
tilheyrir konunni
Jóhanna rannsakaði ísskápshurðir og eigendur þeirra í BA-verkefni sínu
Í
sskápshurðin er sá hlutur heim-
ilisins sem segir einna mest um
heimilisfólkið. Ef þú skoðar bara
ísskápshurðina hjá fólki, og ekkert
annað, þá ættirðu að geta fengið
mjög góða vísbendingu um hvernig
fólk býr á heimilinu,“ segir Jóhanna
S. Hannesdóttir, þjóð fræðingur,
blaðamaður og rithöfundur. Þetta
eru niðurstöður rannsóknar sem
hún vann fyrir lokaverkefni sitt til
BA-prófs í þjóðfræði við Háskóla Ís-
lands. Verkefnið ber heitið Ísskáps-
hurðir og eigendur þeirra – rannsókn
á efnismenningu eldhússins.
Líkt og nafnið gefur til kynna
rannsakaði Jóhanna ísskápshurðir
og hún er orðin ansi vön því að fólk
hvái og reki upp stór augu þegar hún
segir frá verkefninu.
Nánast ekkert verið rannsakað
„Þetta er mjög skrýtið viðfangsefni,
ég veit það,“ segir hún hlæjandi
þegar blaðamaður hefur samband.
Jóhanna ætlaði sér í raun að skrifa
um mun hefbundnara efni en fékk
hálfgerða hugljómun og ákvað því að
skipta um verkefni. „Ég var í heim-
sókn hjá tengdaforeldrum mínum
og var að horfa á ísskápshurðina
þeirra og hugsaði með mér að hún
væri allt öðruvísi en okkar. Svo fór ég
að hugsa að eflaust væru engar tvær
ísskápshurðir eins og í framhaldinu
fór ég að spá í hvað ísskápshurðir
gætu sagt um heimilsfólkið. Hvort
maður gæti til dæmis séð fjölskyldu-
gerðina?“
Jóhanna ætlaði sér fyrst að gera
litla rannsókn á þessu óvenjulega
viðfangsefni, en kennarinn sagði að
þetta væri svo yfirgripsmikið að hún
yrði að gera úr þessu BA-verkefni.
Hún ákvað því að slá til þóað verk-
efnið hafi verið óvenjulegt. „Þjóð-
fræðin fjallar um allt mögulegt.
Hún fjallar ekki bara um ævintýri og
þjóðsögur, lopapeysur og þorramat.
Þjóðfræðingar eru líka að rannsaka
hversdagslífið í dag, þessa litlu hluti
sem eru allt í kringum okkur,“ segir
Jóhanna.
Hún bendir á að ísskápshurðir
hafi lítið sem ekkert verið rannsak-
aðar, hvorki á Íslandi né erlendis, og
því sé nánast um frumrannsókn að
ræða. Fyrir vikið hafi verkefnið verið
enn meira spennandi. Heimilið og
efnismenning eldhússins hefur hins
vegar mikið verið rannsökuð og gat
Jóhanna nýtt sér þær rannsóknir við
sína rannsókn.
Ætlað að skapa notalegtheit
Jóhanna valdi viðmælendur sem
áttu það sameiginlegt að vera konur
í sambúð sem áttu börn, annaðhvort
á heimilinu eða uppkomin. Um var
að ræða fimm djúpviðtöl en að auki
auglýsti hún eftir myndum af ís-
skápshurðum á Facebook. Í leiðinni
bað hún fólk að svara spurninga-
skrá sem var sérstaklega hönnuð út
frá djúpviðtölunum. Alls fékk hún 43
myndir frá alls kyns fólki. Niðurstöð-
urnar voru að mörgu leyti áhuga-
verðar en Jóhanna tekur fram að
ekki megi yfirfæra þær yfir á allar ís-
skápshurðir eða alla þjóðfélagshópa,
enda sé aðeins um grunnrannsókn
að ræða.
Eins og við var að búast voru
ísskápsseglar mjög algengir
á ísskápshurðunum sem hún
rannsakaði. „Þeir sem skreyttu ís-
skápinn sinn á annað borð voru all-
ir með einn eða fleiri ísskápssegla á
sínum ísskáp. Svo kallaðir ferðasegl-
ar voru vinsælir. Seglar sem höfðu
verið keyptir á ferðalögum erlend-
is eða innanlands. Þá var algengt
að fólk væri með segla sem ætlað
er að skapa notalegheit, eins og til
dæmis „Besta mamma í heimi“ eða
eitthvað í þeim dúr. Fólk var líka oft
með listaverk, sérstaklega eftir börn.
Jafnvel þeir sem áttu ekki börn voru
með listaverk eftir lítinn frænda eða
frænku. Ljósmyndir voru líka al-
gengar, þá af fjölskyldumeðlimum.
Ein kona sem var í átaki var með
mynd af sjálfri sér þar sem hún var
þéttari, svona sem áminningu um
að borða hollt og stunda heilbrigðan
lífsstíl. Svo var algengt að fólk væri
með nafnspjöld, minnismiða og
stundatöflur, sérstaklega barnafólk.“
Samhengi á milli
fjölda barna og óreiðu
Þá sá Jóhanna samhengi á milli þess
hve mörg börn voru á heimilinu
og hve mikið dót var á ísskápnum.
„Þegar börn eru á heimilinu þá er oft
meira sem þarf að muna og meira að
gera. Í raun jókst óreiðan á ísskápn-
um eftir því sem börnin voru fleiri.
Svo þegar börnin flytja að heiman
þá breytist þetta. Ísskápurinn verður
oft snyrtilegri en jafnframt einmana-
legri. Ég varð stundum sorgmædd
þegar ég skoðaði aðsendu mynd-
irnar, því þá sá ég svo vel hvernig ís-
skápshurðin breyttist í takt við breytt
fjölskyldumynstur. Þegar börn-
in flytja heiman verður minna líf á
heimilinu og ber ísskápshurðin þess
glöggt merki.“
Jóhanna segir ástæðuna fyrir því
að fólk hengi allt þetta dót á ísskáps-
hurðina, en ekki einhvern annan
stað, vera þá að þar sé einfaldlega
mesta umferðin á heimilinu. Fólk
þurfi að borða á hverjum degi og
flestir fari því í ísskápinn á hverjum
degi, stundum oft á dag. Þurfi fólk að
muna eitthvað séu mestar líkur á því
að það sjái það á ísskápnum.
Rótgróið að konan fegri heimilið
„Ísskápshurðin virðist líka hjálpa
fólki við verðmætaflokkun. Ef börnin
koma með myndir heim af leikskól-
anum þá fara þær oft fyrst á ísskápinn
og við tiltekt, sem á sér yfirleitt stað
einu sinni á ári, til dæmis um jólin
eða í lok annar, þá er tekin ákvörðun
um hvort henni er hent eða hvort
hún í fari í ramma eða möppu.“
Samkvæmt niðurstöðum rann-
sóknar Jóhönnu eru það konurn-
ar sem aðallega sjá um að setja eitt-
hvað á ísskápshurðirnar og það
þótti henni áhugavert. „Það tengdist
því að konan sá oftast um að versla
í matinn og elda. Ísskápshurðin
virtist fyrst og fremst tilheyra kon-
unni sem tengist því svo að eldhús-
ið virðist frekar vera staður konunn-
ar en karlmannsins. Ef karlmaðurinn
á heimilinu var líka virkur í eldhús-
inu, þá setti hann eitthvað á ísskáp-
inn líka. En á þeim heimilum sem
konan var lítið virk í eldhúsinu þá
setti hún samt meira á ísskápinn en
karlmaðurinn,“ útskýrir hún.
„Eins og kvennabaráttan hefur
áorkað miklu síðustu áratugi þá
virðist það samt vera þannig að eld-
húsið og heimilið tilheyri konunni.
Það virðist vera rótgróið að konan
sjái um að gera heimilið fallegt og
notalegt þó að karlmaðurinn taki
einhvern þátt í því.“ Jóhanna ítrekar
þó að þetta sé bara miðað við niður-
stöður hennar rannsóknar.
Þá komst Jóhanna að því að eftir
því sem hlutur er lengur á ísskáps-
hurðinni þá virðist hann öðlast
meira gildi fyrir eigandann. Hlutur-
inn er kannski ekki merkilegur í upp-
hafi en eftir að hafa verið á ísskápn-
um í fjölda ára, í gegnum flutninga
og tiltektir þá virðist fólki þykja æ
vænna um hann.
Ísskápshurðin eins og gríma
„Það er einnig mjög áhugavert þegar
fólk skreytir ekki ísskápshurðina sína
þó að það geti það. Það var til dæmis
ein sem sendi mér mynd af sínum ís-
skáp sem var alveg óskreyttur. Það að
skreyta ekki ísskápinn sinn segir líka
mikið um fólk – rétt eins og skrautið.
Þeir sem skreyta ekki ísskápshurðina
eru oft einstaklingar sem þola illa
drasl og vilja hafa allt mjög snyrti-
legt í kringum sig. Þá er heimilið oft
þannig að ekki má sjást neitt uppi á
borðum og slíkt,“ segir Jóhanna, en
eftir að hún að rannsakaði ísskáps-
hurðir fór hún að sjá þær í nýju ljósi.
Þá varð þetta líka til þess að hún fór
að skreyta sinn ísskáp meira.
Jóhanna spurði viðmælendur
sína hvort þeim væri sama ef gestir
stæðu fyrir framan ísskápinn þeirra
og skoðuðu allt sem fest væri á
hurðina og flestum fannst það í góðu
lagi. „En flestir tóku fram að þeim
þætti verra ef einhver opnaði ísskáp-
inn og skoðaði hvað væri í honum.
Það var eins og það væri persónu-
legra. Ísskápshurðin er því í raun
táknmynd fyrir okkur sjálf. Við setj-
um upp ákveðna grímu og inni-
haldið – okkar innri manneskja – er
ekki fyrir alla að sjá,“ segir Jóhanna
að lokum. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Fyrir framan ísskápinn Jóhanna er orðin vön því að fólki verði hissa þegar hún segist hafa skrifað BA-ritgerð um ísskápshurðir.
Stór fjölskylda Ísskápshurð fimm manna
fjölskyldu. Á barnmörgum heimilum þarf
að muna margt og heldur ísskápshurðin
ofar en ekki utan um skipulagið. Algengt
er að fólk festi til að mynda stundatöflur á
ísskápshurðina.
Ísskápurinn hennar Jóhönnu Jóhanna
segist meðvitað hafa farið að skreyta ísskáp-
inn meira eftir að hún vann rannsóknina. Ís-
skápurinn er í raun innbyggður í innréttinguna
en Jóhanna segir fjölskylduna alltaf vera
að fresta því að festa skápshurðina á. Þau
vilja frekar geta skreytt ísskápinn að vild og
þannig skapað hlýleika í eldhúsinu.
Myndskreyttur Ísskápshurð með fjölda
ljósmynda, en það er algengt að finna ljós-
myndir á ísskápshurðum fólks.
Einstæðingur Ísskápshurð einstæðings.
Ísskápshurðir einstæðinga eru oft tómlegri
en ísskápshurðir á barnmörgum heimilum.