Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.2015, Page 37
Vikublað 3.–5. febrúar 201538 Fólk
Bókmenntaelíta
á Bessastöðum
n Íslensku bókmenntaverðlaunin voru afhent síðastliðinn föstudag
Í
slensku bókmenntaverðlaunin
voru afhent við hátíðlega athöfn
á Bessastöðum síðastliðinn
föstudag. Það var að sjálfsögðu
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, sem afhenti verðlaunin
í þremur flokkum. Ófeigur Sigurðs-
son hlaut verðlaun í flokki fagur-
bókmennta fyrir skáldsöguna Ör-
æfi, sem fékk mikið lof gagnrýnenda
fyrir jól. Bryndís Björgvinsdótt-
ir hlaut verðlaun í flokki barna- og
ungmennabókmennta fyrir bókina
Hafnfirðingabrandarann og Snorri
Baldursson hlaut verðlaun í flokki
fræðirita og bóka almenns eðlis fyr-
ir bók sína Lífríki Íslands – Vistkerfi
lands og sjávar.
Bókmenntaelíta landsins var
mætt á Bessastaði til að vera við-
stödd verðlaunaafhendinguna og
heiðra sigurvegarana. Meðal þeirra
var Brynja Þorgeirsdóttir, ritstjóri
Djöflaeyjunnar á RÚV. Samkvæmt
heimildum DV hafa hún og Ófeigur
Sigurðsson verðlaunahafi verið að
slá sér upp í dágóðan tíma, en sam-
bandið hefur farið nokkuð leynt. n
ritstjorn@dv.is
Brjálað að gera Þetta var heldur betur viðburðarík helgi hjá Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur,
listakonu og textasmið, en hún mætti ekki bara á Bessastaði ásamt manni sínum, Andra
Ómarssyni, heldur átti hún líka lag í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardag. Eins og það
væri ekki nóg þá fékk nýjasti erfingi þeirra hjóna einnig nafn á sunnudaginn
Bros á Bessastöðum Þeir virtust
kampakátir, forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og forsetaritarinn Örnólfur
Thorsson, og glottu út í annað þegar ljós-
myndari smellti af.
Skælbrosandi Herdís Þorgeirsdóttir, fyrr-
verandi forsetaframbjóðandi, virtist kunna
vel við sig í síðdegissólinni á Bessastöðum.
Gaman á Bessastöðum Brynja Þor-
geirsdóttir, ritstjóri Djöflaeyjunnar, brosti
breitt þegar hún heilsaði forseta vor með
handabandi við komuna á Bessastaði. Hún
var eflaust spennt að sjá kærastann, Ófeig
Sigurðsson, taka á móti verðlaunum.
Þétt handtak Það virðist þétt og gott
handabandið hjá forsetanum og Ófeigi
Sigurðssyni verðlaunahafa. Honum hefur
eflaust þótt gott að vita af góðvinkonu
sinni, henni Brynju Þorgeirsdóttur, í salnum.
Ljúfir tónar Gestir nutu ljúfra tóna Valdi-
mars og kunnu vel að meta.
Verðlaunahafar Nýkrýndir verðlaunahafar stilltu sér upp fyrir ljósmyndara eftir
afhendinguna. Þau Bryndís Björgvinsdóttir, Snorri Baldursson og Ófeigur Sigurðsson
voru að vonum ánægð og stolt með viðurkenninguna.
Spenna í loftinu Gestir á Bessastöðum
voru spenntir að heyra hverjir hlytu verð-
launin að þessu sinni. Þar á meðal Egill Örn
Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins,
sem gaf út bókina Lífríki Íslands.
Fengu viðurkenningu í Hörpu
Félag kvenna í atvinnulífinu heiðraði öflugar konur
F
élag kvenna í atvinnulífinu
afhenti sínar árlegu viður-
kenningar í Hörpu síðast-
liðinn fimmtudag, að við-
stöddum fjölda kvenna og
karla sem standa í framlínu ís-
lensks atvinnu- og viðskiptalífs.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formað-
ur félagsins, ávarpaði gesti og í
kjölfarið afhenti Ragnheiður Elín
Árnadóttir iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra þremur konum verðlaun
í jafn mörgum flokkum.
Guðbjörg Magnea Matthías-
dóttir, einn aðaleigenda Ísfélags
Vestmannaeyja og Árvakurs, út-
gáfufélags Morgunblaðsins, hlaut
hina svokölluðu FKA-viðurkenn-
ingu. Hvatningarviðurkenning-
una hlaut María Rúnarsdóttir,
einn stofnenda Mint Solutions,
og þakkarviðurkenninguna hlaut
Guðný Guðjónsdóttir, eigandi
Mokka-Kaffi. Guðný og maður
hennar, Guðmundur Baldvins-
son, stofnuðu Mokka-Kaffi fyrir 57
árum. n
Þrjár flottar María Rúnarsdóttir hlaut
hvatningarverðlaunin í ár, en hún er einn
stofnenda Mint Solutions og vel að verð-
laununum komin.
Öflugar konur Guðbjörg Matthíasdóttir hlaut FKA-viður-
kenninguna og tók við henni úr höndum Þórdísar Lóu og
Ragnheiðar Elínar. Þær stilltu sér svo brosandi upp.
Heilsast Frú Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrver-
andi forseti Íslands, og
Guðbjörg Matthíasdóttir
tókust í hendur yfir
Guðnýju Guðjónsdóttur.
Sú síðastnefnda varð að
beygja sig aðeins til að
handabandið gengið upp.
Guðný heiðruð Guðný Guðjónsdóttir tók við verðlaununum ásamt dóttur sinni úr höndum
Þórdísar Lóu Þórhallsdóttur, formanns félags kvenna í atvinnulífinu, og Ragnheiðar Elínar
Árnadóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra.