Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Blaðsíða 14
Helgarblað 13.–16. mars 201514 Fréttir
Við prentum skýrslur - allt árið
• Kjölheftun
• Kjöllímdar
• Rafræn vefútgáfa
• Allar stærðir
• Allt að 124 síður
• Þykkari kápa
• 80 -130 gr. innsíður
Umslag annast prentanir ársskýrslna á gæðapappír og sér um allan
frágang í framhaldinu.
Stafræn prentun ársskýrslna er góður kostur og heldur kostnaði niðri
og skiptir þá engu hvort óskað sé eftir einu eintaki af ársskýrslu eða
100.
Hið sama gildir um annars konar skýrslur, t.d. afkomuskýrslur fyrir
hvern fjórðung eða hálfsárslega, eða annars konar prentefni sem
fyrirtæki eða félög þurfa að prenta og dreifa til hluthafa og/eða
viðskiptavina.
Fáðu tilboð í síma: 533 5252 eða umslag@umslag.is
Við bjóðum hraða og góða þjónustu!
Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is
Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is
V
inna ráðgjafa stjórnvalda í
haftamálum miðar að því
að ekki sé forsvaranlegt að
veittar verði neinar undan-
þágur til erlendra kröfuhafa bank-
anna nema að því gefnu að hægt
yrði að veita sambærilegar undan-
þágur fyrir aðra sem eru fastir undir
höftum í hagkerfinu.
Þannig hefur komið fram í máli
Bjarna Benediktssonar fjármálaráð-
herra, síðast í umræðum á Alþingi í
lok janúar síðastliðinn, að ekki komi
til greina að íslensk stjórnvöld „fari
í einhvers konar samningaferli [við
kröfuhafa] um það hvers konar að-
lögun þarf að eiga sér stað eftir nám
hafta. Það verður ekki samið um
það.“ Stjórnvöld ætluðu að mynda
sér „eigin skoðun á því hvað þurfi að
gerast til þess að hægt sé að hleypa
eignum slitabúanna og öðrum eign-
um út fyrir höft, hvort sem það eru
aflandskrónur eða aðrar krónur
sem vilja komast út úr íslenska hag-
kerfinu. Þegar við höfum komist að
niðurstöðu um það erum við ekki til
samninga um það.“
Viðbúið er að fulltrúar kröfu hafa
muni láta á það reyna – hver svo sem
niðurstaðan verður í vinnu stjórn-
valda að nýrri áætlun um losun
hafta – hvort íslensk yfirvöld séu að
brjóta gegn alþjóðlegum sáttmálum
með því hamla útgreiðslu á erlend-
um eignum til kröfuhafa, til dæm-
is með sérstöku útgöngugjaldi upp
á tugi prósenta. Fastlega er gert ráð
fyrir því að þar muni lögmenn kröf-
uhafa einkum horfa til bandarískra
dómstóla á grundvelli 15. kafla
gjaldþrotalöggjafarinnar.
Viðbrögð dómarans við gjald-
þrotadómstólinn í New York nú í
vikunni kunnu hins vegar að gefa
til kynna að það verði hægara sagt
en gert fyrir lögmenn kröfuhafa að
færa rök fyrir því að framganga ís-
lenskra yfirvalda gagnvart erlend-
um kröfuhöfum sé með þeim hætti
að ástæða sé til þess fyrir dóm-
stólinn að hafa bein afskipti af slita-
meðferðinni.
Kröfuhafar horfa til
bandarískra dómstóla
Kröfuhafar snupraðir
af bandarískum dómara
n Lögmenn kröfuhafa kvörtuðu yfir framgangi mála á Íslandi n „Þú ert bara að þvaðra“
D
ómari við bandarískan
gjaldþrotadómstól í New
York-fylki gaf afar lítið fyrir
málflutning lögmanna er-
lendra kröfuhafa íslensku
slitabúanna í vikunni þar sem þeir
gagnrýndu að lítið hefði þokast í átt
að samkomulagi við íslensk stjórn-
völd vegna áforma um að ljúka
uppgjöri búanna með nauðasamn-
ingum og útgreiðslu á erlendum
gjaldeyri til kröfuhafa.
„Þetta hljómar ekki eins og eitt
eða neitt sem þessi dómstóll geti
eða muni gera nokkuð með,“ sagði
Stuart M. Bernstein dómari þegar
regluleg fyrirtaka vegna greiðslu-
stöðvunar Glitnis vestanhafs fór
fram fyrir dómstól á Manhattan
síðastliðinn þriðjudag. „Þú ert bara
að þvaðra,“ bætti Bernstein við, og
beindi orðum sínum að lögmanni
Akin Gump sem er fulltrúi stærstu
kröfuhafa gömlu íslensku bank-
anna.
Fjallað er um fyrirtökuna í
fréttaskeyti frá Debtwire sem DV
hefur undir höndum. Sú stað-
reynd að lögmenn erlendra kröfu-
hafa hafi mætt fyrir dómstólinn
markar tímamót en þetta er í fyrsta
skipti sem slíkt gerist síðan slita-
bú Glitnis fékk vernd Alríkisdóm-
stóls Bandaríkjanna samkvæmt 15.
kafla þarlendra gjaldþrotalöggjafar
í ársbyrjun 2009. Hin íslensku slita-
búin, Kaupþing og gamli Lands-
bankinn, hafa einnig fengið slíka
réttarvernd. Hingað til hafa aðeins
fulltrúar slitastjórna íslensku bank-
anna mætt fyrir dómstólinn í New
York þar sem farið er yfir stöðu
slitameðferðarinnar með reglulegu
millibili.
Vilja greiða út erlendar eignir
„Sex og hálft ár er liðið. Enn hefur
engin áþreifanlegur árangur orðið
í átt að samhljóða samkomulagi,“
sagði Abid Qureshi, lögmaður Akin
Gump, þegar hann ávarpaði dóm-
arann. Vísaði hann meðal annars
til þess að nánast engar viðræður
hefðu átt sér stað við íslensk stjórn-
völd. Þá kæmi ekki til greina af hálfu
kröfuhafa föllnu íslensku bankanna,
útskýrði Qureshi, að fallast til dæm-
is á útgöngugjald sem yrði í kringum
35% á allar eignir slitabúanna, líkt og
DV hefur áður greint frá.
Lögmenn alþjóðlegu lögmanna-
stofunnar Akin Gump, sem áður
störfuðu undir merkjum Bingham,
eru ráðgjafar erlendra kröfuhafa
– að langstærstum hluta vogunar-
sjóðir – sem eiga yfir 70% allra
krafna á hendur íslensku slitabú-
unum. Benti lögmaður Akin Gump
á að samkvæmt fyrirliggjandi til-
lögum að nauðasamningi Glitnis
sé gert ráð fyrir útgreiðslu erlendra
eigna sem myndi ekki hafa neikvæð
áhrif á gengi íslensku krónunnar
eða greiðslujöfnuð þjóðarbúsins.
Þar væri meðal annars um að ræða
bandarísk ríkisskuldabréf að fjár-
hæð 1,1 milljarður Bandaríkjadala,
jafnvirði um 150 milljarða króna,
sem heyrðu undir lögsögu dóm-
stólsins á Manhattan.
Dómarinn vísaði hins vegar til
þess að hann gæti ekkert aðhafst
þar sem ekki væri neitt samkomulag
fyrir til staðar fyrir hann til að hafa
skoðun á. „Þetta hljómar ekki eins
og eitt eða neitt sem þessi dómstóll
geti eða muni gera nokkuð með,“
sagði Bernstein.
Versta mögulega sviðsmyndin
Vaxandi óþreyju hefur gætt á meðal
kröfuhafa slitabúanna hve hægt hefur
miðað hjá stjórnvöldum að koma fram
með áætlun um losun hafta og að ekki
hafi fengist skýr svör af hálfu Seðla-
bankans vegna umsóknar Glitnis og
Kaupþings um undanþágu frá höft-
um í tengslum við áform þeirra um
nauðasamninga. Ljóst er að lögmenn
kröfuhafa hafa lagt í mikla greiningu á
því til hvaða lagalegu úrræða þeir geti
gripið náist ekki samkomulag um að
ljúka uppgjöri búanna með nauða-
samningi sem kröfuhafar telja ásætt-
anlegt. Versta mögulega sviðsmyndin
að þeirra mati, eins og sagt er frá í frétt
Debtwire, er ef niðurstaðan af vinnu
ráðgjafa stjórnvalda að áætlun um
losun hafta muni fela það í sér að kröf-
uhöfum verði gefinn sá kostur einn að
ganga að einhliða skilyrðum stjórn-
valda (e. take-it-or-leave-it deal).
Tilgangur slitabúanna á sín-
um tíma með því að sækjast eftir
viðurkenningu dómstóls í Banda-
ríkjunum samkvæmt fyrrnefndum
15. kafla gjaldþrotalaga var einkum
sá að tryggja jafnræði kröfuhafa
og í því skyni að að eignir þeirra
yrðu meðhöndlaðar með samsvar-
andi hætti hvar sem þær væri að
finna í heiminum. Lausafé Glitnis
í erlendum gjaldeyri, sem nam um
660 milljörðum í árslok 2014, sam-
anstendur að langstærstum hluta
af erlendum ríkisskuldabréfum og
innstæðum vistaðar í erlendum
lánastofnunum. n
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
„Þetta hljómar
ekki eins og eitt
eða neitt sem þessi dóm-
stóll geti eða muni gera
nokkuð með.
Lögmaður Akin Gump „Sex og hálft
ár er liðið. Enn hefur engin áþreifanlegur
árangur orðið í átt að samhljóða samkomu-
lagi,“ sagði Abid Qureshi.
Glitnir Er með réttarvernd dómstóls
í Bandaríkjunum samkvæmt 15. kafla
þarlendra gjaldþrotalöggjafar.
Dómari Stuart M.
Bernstein, dómari
við gjaldþrotadóm-
stól í New York-fylki.