Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Blaðsíða 53
Helgarblað 13.–16. mars 2015 Menning 53
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Gerðu daginn eftirminnilegan
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Veisluréttir úr smiðju meistarans · Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Skírn · Ferming · Útskrift · Brúðkaup
Myndlist
Dómnefnd: Jón Proppé (formaður),
Freyja Eilíf Logadóttir.
Ég hef aldrei
séð fígúratíft
rafmagn
Sýning í Ásmundarsafni
Sýningardagskrá Listasafns Reykja-
víkur í Ásmundarsafni í Laugardal
hefur getið af sér áhugaverða listvið-
burði þar sem yngri listamenn tefla
verkum sínum fram í samræðu við
list Ásmundar. Sérstaklega vel tókst
til í fyrra með sýningunni „Ég hef
aldrei séð fígúratíft rafmagn“ undir
stjórn þeirra Klöru Þórhallsdóttur og
Kristínar Dagmarar Jóhannesdóttur.
Þar voru valin til að vinna verk þau
Áslaug Í. K. Friðjónsdóttir, Baldur Geir
Bragason, Björk Viggósdóttir, Hrafn-
hildur Halldórsdóttir, Ingunn Fjóla
Ingþórsdóttir, Ragnar Már Nikulásson,
Sólveig Einarsdóttir, Þór Sigurþórsson
og Þuríður Rós Sigurþórsdóttir.
Wind and
Weather og
Better
Weather
Gluggagallerí við Hverfisgötu
og Laugaveg
Gluggagalleríin við Hverfisgötu og
Laugaveg eru mikilvæg viðbót við
sýningarmöguleika í miðbænum
þar sem gangandi vegfarendur
geta skoðað myndist á leið sinni um
bæinn. Þar hafa verið settar upp litlar
sýningar en fallegar og stundum
beittar. Á bak við þessi gallerí stendur
bandarísk listakona, Kathy Clark, sem
hefur sest að á Íslandi og leggur nú
sitt af mörkum til að koma listinni til
fólksins.
Arna Valsdóttir
Listakona
Arna Valsdóttir hefur lengi fengist við vídeólist og þróað sérstaka og persónu-
lega nálgun, sína sérstöku rödd sem styrkist með hverju ári. Hún hefur oft sýnt á
óhefðbundnum stöðum, t.d. í vitum og heimahúsum, en í fyrra efndi Listasafnið á
Akureyri til sýningar þar sem dregin voru saman eldri verk hennar ásamt nýjum. Löngu
tímabært er að fleiri fái tækifæri til að sjá verk þessarar frjóu listakonu og vonandi að
svipuð sýning verði fljótlega sett upp á höfuðborgarsvæðinu líka.
Hreinn
Friðfinnsson
Listamaður
Hreinn Friðfinnsson var einn af frumkvöðl-
um nýlistar og hugmyndalistar á Íslandi.
Hann hefur sýnt frá því um miðjan sjöunda
áratuginn, var einn af stofnendum SÚM-
hópsins og verk hans hafa vakið athygli
um allan heim. Fyrir fáum misserum var til
dæmis sett upp stór yfirlitssýn-
ing í Serpentine-sýningarsalnum
í Lundúnum sem sló aðsóknar-
met í þeirri þekktu og virðulegu
stofnun. Í fyrra var svo haldin
yfirlitssýning í Nýlistasafn-
inu þar sem jafnframt var
frumsýnd kvikmynd um ævi
og störf Hreins eftir Ragnheiði
Gestsdóttur og Markús Þór
Andrésson. Seinna á árinu sýndi
Hreinn svo ný verk í i8 Gallery.
Vasulka-stofan á Listasafni Íslands
Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
Steinunn Vasulka settist að í New York fyrir næstum fimm áratugum ásamt manni sínum
Woody og þar hófust þau handa ásamt félögum sínum við að móta alveg nýja listgrein: víd-
eólistina sem nú hefur fyrir löngu unnið sér þegnrétt meðfram hinum hefðbundnari miðlum.
Þarna var um að ræða eina róttækustu byltingu síðustu áratuga þar sem listamenn tókust á
við nýja tækni og fundu leiðir til nýta hana í listrænum tilgangi, oft þvert á það sem hönnuðir
hennar höfðu í upphafi ætlað. Verk Steinunnar og Woodys hafa oft verið sýnd á Íslandi en nú
loksins hefur þeim verið búinn varanlegur sess á Listasafni Íslands þar sem gestir geta kynnt
sér starf og verk þeirra.