Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Blaðsíða 51
Helgarblað 13.–16. mars 2015 Menning 51
Göldrótt súpa og
gómsætur humar
Eyrarbraut 3, Stokkseyri · Sími: 483 1550
info@fjorubordid.is · www.fjorubordid.is
Tilnefningar til Menningarverðlauna DV 2014
Einnig
tilnefnd
Hönnun
Dómnefnd: Tinni Sveinsson (formaður),
Hörður Kristbjörnsson.
Tónlist
n Anna Þorvaldsdóttir – tónskáld
n Þungarokkshátíðin Eistnaflug
n M-Band – fyrir plötuna Haust
n Tónleikastaðurinn og listarýmið Mengi
n Rökkurró – fyrir plötuna Innra
Kvikmyndir
n Heimildarmyndin Höggið eftir
Ágústu Einarsdóttur
n Benedikt Erlingsson og Friðrik
Erlingsson – fyrir að stuðla að bættri
kvikmyndaumræðu
n Þorsteinn Bachmann – fyrir leik
í kvikmyndinni Vonarstræti
n Heimildamyndin Salóme eftir Yrsu
Rocu Fannberg
n Skjaldborg – Hátíð íslenskra heim-
ildamynda
Leiklist
n Bergur Þór Ingólfsson – Fyrir
leikstjórn og handrit barnaleikritsins
Hamlet litli hjá LR
n Elma Stefanía Ágústsdóttir – Fyrir
leik sinn í þremur sýningum í Þjóðleik-
húsinu
n Hilmar Jónsson – Fyrir leikstjórn
verksins Furðulegt háttalag hunds um
nótt hjá LR
n Marta Nordal – Fyrir leikstjórn sína á
Ofsa eftir sögu Einars Kárasonar
n Unnur Ösp Stefánsdóttir – fyrir
túlkun sína á Nóru í Dúkkuheimili
Ibsens hjá LR
Danslist
n Aude Busson og stjórn Assitej – Fyrir
Sviðslistahátíð Assitej 2014 fyrir unga
áhorfendur
n Ásrún Magnúsdóttir – Fyrir dans-
verkið Church of dance
n Erna Ómarsdóttir og Valdimar
Jóhannsson – Fyrir dansverkið Lecture
on borderline musicals
n Halla Þórðardóttir – Fyrir dans sinn í
verkinu Meadow
n Margrét Sara Guðjónsdóttir – Fyrir
dansverkið Blind spotting
Fyrri hluti tilnefninga til
Menningarverðlauna DV voru
birtar síðastliðinn þriðjudag
Hildur Yeoman
Fatahönnuður
Fatahönnuðurinn Hildur Yeoman hefur átt
góðu gengi að fagna síðustu ár með skart-
gripahönnun sína, meðal annars hálsmen
og eyrnalokka. Í fyrra sendi hún síðan frá
sér fyrstu fatalínuna sem hugsuð er til
framleiðslu og hlaut hún nafnið Yulia.
Línan er nefnd eftir ömmu Hildar, sem hún
segir einnig vera músuna á bak við hana.
Hildur frumsýndi línuna á eftirminnilegri
tískusýningu á Hönnunarmars í fyrra þar
sem var fullt út úr dyrum í Hafnarhúsinu.
Yulia var síðan sett í sölu í haust og hefur
sett svip sinn á bæinn síðan.
Sigga Heimis
Hönnuður
Sigga Heimis hefur verið í fremstu röð
íslenskra hönnuða um árabil. Hún hef-
ur átt glæsilegan feril, meðal annars
sem hönnunarstjóri Fritz Hansen og
hjá IKEA, þar sem hún gegnir nú stöðu
þróunarstjóra og sér um yfirhönnun
á smávörum. Sigga hefur að auki
starfað með fjölda erlendra háskóla
víða um heim og unnið verkefni fyrir
Vitra hönnunarsafnið í Þýskalandi
ásamt því að hanna í samstarfi við ís-
lenska framleiðendur. Fyrir skemmstu
var haldin í Hannesarholti sýning á
þekktum glerlíffærum sem Sigga vann
fyrir Corning-glerlistasafnið í New
York. Í hönnun sína hefur Sigga valið
ólíkan efnivið og velt fyrir sér formi og
notagildi með ábyrgri umhverfisvit-
und í huga. Sigga hefur sótt innblástur
til Íslands í mörgum verkefnum sínum
og verið virkur þátttakandi í íslensku
hönnunarlífi. Hún hefur hannað fleiri
hundruð hluti sem finnast á heimilum
og skrifstofum víða um heim.
Austurland: Designs from Nowhere
Hönnunarverkefni að frumkvæði Körnu Sigurðardóttur og Petes Collard
Fyrir rúmu ári heimsótti alþjóðlegt teymi hönnuða
Austurland með það að markmiði að rannsaka
möguleika til smáframleiðslu í fjórðungnum.
Hönnuðirnir kynntu sér handverk, þekkingu og
staðbundinn efnivið á borð við þara, steina, hrein-
dýrshorn og net. Þeir störfuðu víða, meðal annars
á Egilsstöðum, Djúpavogi, Eskifirði og Norðfirði.
Útkoman var metnaðarfull hönnunarverkefni þar
sem leitast er við að finna nýjar leiðir í hráefnis-
notkun. Hönnuðirnir sem tóku þátt voru Þórunn
Árnadóttir, Gero Grundmann, Max Lamb og Juliu
Lohmann. Þau störfuðu í nánu samstarfi við handverks-
fólk og fyrirtæki og má sem dæmi nefna vörulínuna, Sipp og Hoj, sem Þórunn vann með
netagerðinni Egersund á Eskifirði. Pete Collard, listrænn stjórnandi hjá Design Museum í
London, og Karna Sigurðardóttir, vöruhönnuður og kvikmyndaleikstjóri, áttu frumkvæði
að verkefninu en það var fyrsti verðlaunahafi Hönnunarverðlauna Íslands nú í vetur.
Þórdís Ósk Helgadóttir
Ótrúlegt úrval húsgagna og gjafavöru - Lá ttu verð ið ko ma þér þæ gilega á óvar
Syr usson - al ltaf með l ausnina
Funi LjúfurFannar
S y r u s s o n H ö n n u n ar h ú s
Síðumúla 33
Opnunarhóf hönnuða
í kvöld
Reynir Sýrusson
Daniel Byström og Kristján Kristjánsson
Kjartan Óskarsson
Sonja Design
Ólöf Björg Björnsdóttir
Sigrún Shanko
Þóra Silla
Þuríður Ósk Smáradóttir
Ingunn Jónsdóttir &
Magnús Stephensen
Kikkelanekoff
Kristinsson
Orka, dugnaður og áræðni hefur einkennt íslenska hönnuði í
sköpun sinni á líðandi ári. Þetta endurspeglast í spennandi
samsýningu hönnuða sem haldin verður í Syrusson
hönnunarhúsi Frá 12-15 mars í Síðumúla 33. Syrusson
hönnunarhús býður þig velkomin í Stórskemmtilegt opnunarhóf
frá 18:00-22:00 i kvöld föstudaginn 13 mars. fjölbreyttar
nýjungar verða til sýnis í húsgögnum, ljósum, gjafavörum og
öðrum listrænum munum, Gestir fá tækifæri til að kynnast hinu
magnaða Logy nuddtæki og verða einnig veitingar í boði.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Þórdís Ósk Helgadóttir
Ótrúlegt úrval húsgagna og gjafavöru - Lá ttu verð ið ko ma þér þæ gilega á óvar
Syrusson - al ltaf með l ausnina
Funi LjúfurFannar
S y r u s s o n H ö n n u n ar h ú s
Síðumúla 33
Opnunarhóf hönnuða
í kvöld
Reynir Sýrusson
Daniel Byström og Kristján Kristjánsson
Kjartan Óskarsson
Sonja Design
Ólöf Björg Björnsdóttir
Sigrún Shanko
Þóra Silla
Þuríður Ósk Smáradóttir
Ingunn Jónsdóttir &
Magnús Stephensen
Kikkelanekoff
Kristinsson
Orka, dugnaður og áræðni hefur einkennt íslenska hönnuði í
sköpun sinni á líðandi ári. Þetta endurspeglast í spennandi
samsýningu hönnuða sem haldin verður í Syrusson
hönnunarhúsi Frá 12-15 mars í Síðumúla 33. Syrusson
hönnunarhús býður þig velkomin í Stórskemmtilegt opnunarhóf
frá 18:00-22:00 i kvöld föstudaginn 13 mars. fjölbreyttar
nýjungar verða til sýnis í húsgögnum, ljósum, gjafavörum og
öðrum listrænum munum, Gestir fá tækifæri til að kynnast hinu
magnaða Logy nuddtæki og verða einnig veitingar í boði.
Hlökkum til að sjá ykkur.
er velunnari Menningarverðlauna DV
Orri Finn
Orri Finnbogason og Helga G. Friðriksdóttir skartgripahönnuðir
Hönnunardúettinn Orri Finn samanstendur af Orra Finnbogasyni og Helgu G. Friðriksdóttur.
Orri er útskrifaður gullsmiður frá Iðnskólanum í Reykjavík en sérhæfði sig í demantaísetn-
ingu í New York, og Helga hefur unnið í hönnunargeiranum í mörg ár. Orri og Helga hafa vakið
verðskulda athygli fyrir vel heppnaðar skartgripalínur síðustu ár. Í línunum Akkeri og Scarab
unnu þau með tákn og í fyrra kom út línan Flétta þar sem þau eru innblásin af fléttum. Línan
sló í gegn og var eftirspurn eftir henni mikil. Orri og Helga tóku einnig í fyrra þátt í 90 ára
afmælissýningu Félags íslenskra gullsmiða í Hönnunarsafni Íslands. Þar sýndu þau afar
athyglisvert verk en fyrir sýninguna fléttuðu þau höfuðkúpu úr koparvírum.
Borgarlandslag
Sýning Paolos Gianfrancesco í
Spark Design Space
Paolo Gianfrancesco er ítalskur arkitekt sem
búið hefur hér á landi í nokkur ár. Hann sýndi
í fyrrasumar seríuna Borgarlandslag, eða
Urban Shape, í Spark Design Space, og hefur
hún verið í sölu þar síðan. Serían samanstend-
ur af fimmtíu gríðarlega flottum kortum af
höfuðborgum Evrópu sem Paolo hefur útfært.
Kortin eru byggð á gögnum úr samstarfsverk-
efni á netinu sem kallast Open Street Map en
Paolo hefur um árabil verið virkur þátttakandi
í því. Litavalið á kortunum fer síðan eftir Pant-
one-litakerfinu og taka kortin lit eftir mann-
fjöldanum sem í borgunum býr. Borgarkort
Paolo varpa nýju ljósi á þessar þekktu borgir.
Á kortunum er hægt að sjá mismunandi
jafnvægi innan þeirra, sem mótast ýmist af
náttúrulegum fyrirbærum eins og vatnsföll-
um eða brey ingum af manna völdum.