Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Page 48
Helgarblað 13.–16. mars 201548 Sport Nýr 2015 Renault Trafic sendibíll Eigum á lager vel útbúna bíla Aukabúnaður: Hliðarhurðir á báðum hliðum - Bakkskynjari - Hraðastillir - Handfrjáls búnaður fyrir síma - Loftkæling - USB tengi - flottara Stereo - Plata í botni - skilrúm með glugga - Gluggar í afturhurðum Okkar verð 3.396 þús á stuttum bíl án vsk. ← Akademíur sem mala gull Þ að getur margborgað sig að halda uppi öflugu unglinga­ starfi eins og kom berlega í ljós í fyrrasumar þegar úr­ valsdeildarfélagið South­ ampton seldi þrjá unga leikmenn fyrir samanlagt 90,2 milljónir evra, 13,4 milljarða króna. Frá árinu 2012 er Southampton einmitt það lið í Evrópu sem þénað hefur mest á sölu uppalinna leikmanna. Þetta kemur fram í úttekt sem greiningarfyrirtæk­ ið CIES Football Observatory fram­ kvæmdi og Daily Mail fjallaði um á dögunum. Lille í öðru sæti Adam Lallana, Luke Shaw og Calum Chambers yfirgáfu herbúðir South­ ampton í fyrrasumar og fékk félag­ ið í sinn hlut 13,4 milljarða króna. Franska félagið Lille kemur þar á eftir en frá 2012 hefur fé­ lagið selt fimm upp­ alda leikmenn fyrir samtals 76 milljónir evra, 11,3 milljarða króna. Munar þar mest um belgíska lands­ liðsmanninn Eden Hazard sem gekk í raðir Chelsea sumarið 2012. Inni í þessum tölum eru einnig Mathieu Debuchy sem Newcastle keypti, og síðar Arsenal, og Divock Origi sem gengur í raðir Liverpool í sumar. Stórliðin ekki ofarlega Spænska félagið Real Sociedad, sem Alfreð Finnbogason leikur með, er í þriðja sæti en félagið seldi Antoine Griezmann til Atletico Madrid í fyrra­ sumar og Asier Illaramendi til Real Madrid sumarið 2013. Athygli vek­ ur að lið sem í daglegu tali teljast til stórliða láta ekki mikið fyrir sér fara á listanum. Real Madrid er í 6. sæti en félagið hefur selt minni spámenn úr akademíu sinni fyrir samtals 43 millj­ ónir evra frá sumrinu 2012. Barcelona kemur þar skammt á eftir með 38,8 milljónir evra. Þá er þýska stórliðið FC Bayern í 12. sæti og Manchester United í 13. sæti. n n Southampton er það félag sem mest hefur fengið fyrir sölu á uppöldum leikmönnum Lið Leikmenn Upphæð 1. Southampton (Eng) Calum Chambers, Adam Lallana, Luke Shaw 90,2 2. Lille (Fra) Gianni Bruno, Mathieu Debuchy, Lucas Digne, Eden Hazard, Divock Origi 76,0 3. Real Sociedad (Spá) Antonio Griezmann, Asier Illarramendi 62,2 4. Sevilla (Spá) Luis Alberto, José Campana, Antonio Luna, Alberto Moreno, Jesús Navas 51,5 5. Dortmund (Þýs) Daniel Ginczek, Mario Götze, Julian Koch, Lasse Sobiech, Koray Günter 43,5 6. Real Madrid (Spá) José María Callejón, Daniel Carvajal, Esteban Granero, Álvaro Morata 43,5 7. Barceolona (Spá) Thiago Alcantara, Jonathan dos Santos, Andreu Fontas, Bojan Krkic, Antonio Sanabria 38,8 8. Rennes (Fra) Y.M‘vila, T. Bakayoko, Y. Brahimi, K. Théophile, J. Kembo, D. Foulquier, Y. Jebbour 33,6 9. Montpellier (Fra) Rémy Cabella, Benjamin Stambouli, Mapou Yanga-Mbiwa, Younés Belhanda 33,5 10. St-Etienne (Fra) Faouzi Ghoulam, Josuha Guilavogui, Loris néry, Kurt Zouma 32,8 11. Swansea Joe Allen, Ben Davies 31,6 12. Bayern München Emre Can, Diego Contento, Raif Husic, Toni Kroos 31,1 13. Manchester United Michael Keane, Danny Welbeck, Robert Brady, Matt James, Joshua King 27,7 14. Paris St. Germain (FRA) Clément Chantome, Antoine Conte, Mamadou Sakho, Illan Boccara 25,2 15. Genoa (ÍTA) Richmond Boakye, Isaac Cofie, Stephan El Shaarawy, Dejan Lazerivic, Stefano Sturaro 24,5 16. Everton (ENG) Victor Anichebe, Jack Rodwell, Shane Duffy 23,9 17. Atalanta (ÍTA) Giacomo Bonaventura, Simone Colombi, Andrea Consigli, Manolo Gabbiadini, J. Olausson 24,5 18. Valencia (SPÁ) Juan Bernat, Carles Gil, Pablo Hernandez, Michel Herrero 23,2 19. Toulouse (FRA) Etienne Capoue, Daniel Gongré, Cheikh M'Bengue, Moussa Sissoko 22,2 20. Freiburg (ÞÝS) Oliver Baumann, Daniel Caligiuri, Johannes Flum, Matthias Ginter 20,8 Sæll Eden Hazard var seldur á 45 milljónir evra, á núverandi gengi, frá Lille til Chelsea. Ögurstund á Old Trafford M anchester United tekur á móti Tottenham í stór­ leik helgarinnar í enska boltanum. Aðeins munar þremur stigum á liðun­ um sem bæði eru í harðri keppni um fjórða sætið sem gefur þátttöku­ rétt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. United er í 4. sæti með 53 stig en Tottenham í 6. sæti með 50 stig. Ekki þarf að fjölyrða um mik­ ilvægi leiksins fyrir bæði lið enda er Meistaradeildarbaráttan óvenju hörð þetta árið. Leikurinn fer fram á sunnudag og hefst klukkan 16. Á laugardag mætast Arsenal og West Ham í nágrannaslag á Emir­ ates. Arsenal er í 3. sæti með 54 stig en West Ham er í 10. sæti með 39 stig. Þá tekur topplið Chelsea á móti Southampton en Chelsea er með fimm stiga forskot á Manchester City sem er í 2. sæti. Southampton er í 7. sæti með 49 stig og er ekki búið að játa sig sigrað í baráttunni um 4. sætið. City mætir Burnley á útivelli í síðasta leik laugardagsins. Lokaleikur þessarar 29. umferðar fer fram á mánudagskvöldið þegar Swansea tekur á móti Liverpool. Swansea er í 9. sæti með 40 stig en Liverpool, sem hefur verið á mikilli siglingu undanfarnar vikur, er í 5. sæti með 51 stig. n Baráttan um Meistaradeildarsæti er hörð Þurfa sigur Manchester United hefur verið í talsverðu basli undanfarnar vikur og þarf á sigri að halda gegn Tottenham á sunnudag. Baldur Guðmundsson Einar Þór Sigurðsson baldur@dv.is / einar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.