Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.2015, Blaðsíða 50
Helgarblað 13.–16. mars 201550 Menning verða veitt þriðjudaginn 24. mars klukkan 17.00 í Iðnó. 45 verkefni, hópar og einstaklingar eru tilnefndir til verðlaunanna í níu flokkum; kvikmyndum, leiklist, dansi, tónlist, myndlist, arkitektúr, hönnun, bók- menntum og fræðum. Auk þess afhendir forseti Íslands heiðursverðlaun og lesendaverðlaun dv.is verða veitt. Hér birtist síðari hluti tilnefning- anna, en fyrri hlutinn var kunngerður í vikublaði DV. Í dag, föstudaginn 13. mars, hefst netkosning á dv.is en þar gefst lesendum tækifæri til að velja þá tilnefningu sem þeim líst best á og mun sú sem hlýtur flest atkvæði í netkosningunni hreppa lesendaverðlaun dv.is. Tilnefningar til Menningarverðlauna DV 2014 síðari hluti Dómnefnd: Maríanna Clara Lúthersdóttir (formaður), Halla Þórlaug Óskarsdóttir, Þorgeir Tryggvason. Fræði Dómnefnd: Árni Matthíasson (formaður), Hildigunnur Þráinsdóttir, Guðný Hallgrímsdóttir. Bókmenntir Lóabora- toríum Eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur Eins og svo margar verulega góðar myndir segja teikningar Lóu Hlínar Hjálmtýsdóttur stóra sögu. Í einu vetfangi, einni setn- ingu, einni mynd nær hún að fanga tíðaranda, samfélag og manneskjur – breyskar og grátbroslegar í öllu sínu veldi. Lóaboratoríum hreinsar hismið frá kjarnanum og afhjúpar okkur öll – hún er dásamlega fyndin og óþægilega sönn en merkilega laus við mannfyrirlitningu. Kata Eftir Steinar Braga Frásagnarháttur Steinars Braga og ferðalög hans um landamæri raunsæis og fantasíu hefur verið í mótun í síðustu skáldsögum hans. Í Kötu nýtist þessi aðferð frábærlega til þess að varpa ljósi á alvarlegt samfélags- mein og – ekki síður – sálarástand þeirra sem þurfa að búa við það. Hér skorar Steinar Bragi íslenskt réttarkerfi og samfélag á hólm, hann dregur upp grimmdarlega mynd af kynbundnu ofbeldi gegn konum og máttvana dómstólum sem bregðast í sífellu fórnarlömbunum og aðstandendum þeirra. Sveitin í sálinni Eggert Þór Bernharðsson Eggert Þór Bernharðsson var brautryðjandi í miðlun sagn- fræði til almennings og Sveitin í sálinni er fyrirtaks dæmi um það. Í bókinni dregur hann upp stórskemmtilega og fræðandi mynd af íbúum hinnar ört stækkandi Reykjavík- ur á árunum 1930 til 1970 en þá fluttu þúsundir Íslendinga á mölina án þess þó að segja skilið við sveitina; íbúar borgarinnar héldu dýr, heyjuðu og ræktuðu kartöflur, kál og aðrar matjurtir. Fallegur og skemmtilegur texti Eggerts segir þó aðeins hálfa söguna, því bókina prýðir mikill fjöldi mynda sem í sjálfu sér er fjársjóður öllum sem vilja kynnast sögu Reykjavíkur. Verkið er efnismikið, vandað og unnið af miklu innsæi. Ofbeldi á heimili – Með augum barna Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir Í þessari vönduðu bók leiða saman hesta sína nokkrar fræðikonur undir ritstjórn Guðrúnar Kristinsdóttur. Ofbeldi á heimili byggir á merkilegri og einstakri rannsókn höfunda á heimilisofbeldi, en í henni segja börn frá eigin reynslu af ofbeldi og viðhorfi sínu til þess eins og undir- titill bókarinnar vísar til. Rannsóknin sjálf er afar vönduð og vel unnin og birtist hér almenningi í aðgengileg- um texta og framsetningu. Lesendur fá innsýn í nöturlegt líf fjölda barna og ungmenna á Íslandi og bókin mun án efa gagnast öllum sem sinna börnum. Ofbeldi á heimili er mikilvæg bók sem varðar alla í samfélaginu. Orð að sönnu Jón G. Friðjónsson Í þessu stærsta safni málshátta sem gefið hefur verið út á íslenska tungu fylgir Jón G. Friðjóns- son eftir þrekvirki sínu Mergur málsins. Í Orð að sönnu er að finna hálft þrettánda þús- und málshátta með ítarlegum skýringum þar sem m.a. er getið um elstu dæmi og prentaðar heimildir. Höfundur hefur safn- að og skráð málshætti síðastliðin 40 ár og nú fá lesendur að njóta afrakstursins. Verkið er mikið að vöxt- um og afar vandað, í senn fræðilegt og alþýðlegt rit sem allir ættu að geta haft af bæði gagn og gaman. Enginn dans við Ufsaklett Eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur Elísabet Kristín Jökulsdóttir hefur einstaka rödd í íslenskum bókmenntum. Í Enginn dans við Ufsaklett hljómar rödd hennar óvægin, heiðarleg, fyndin og sorgleg í senn. Í ljóðabók sem lýsir ofbeldissambandi tekst henni að koma flóknum tilfinningum, örvæntingu og gleði í áhrifamikið og sterkt form. Englaryk Eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur Í látlausri en sterkri frásögn dregur Guðrún Eva Mínervudóttir upp mynd af unglingsstúlku á tímamótum. Sem fyrr er manneskjan og samband hennar við aðrar manneskjur í forgrunni höfundar og í Englaryki sýnir hún á nærfærinn og sannfærandi hátt áhrif stúlkunnar á fjölskyldu sína, vini og loks bæjarfélagið allt. Guðrúnu lætur sérlega vel að láta ólíkar raddir hljóma og hefur einstakt lag á að skrifa samtöl sem tekst hið vandmeðfarna; að vera full af skáldlegri list en þó algjörlega trúverðug. Stundarfró Eftir Orra Harðarson Stundarfró er lipur og lífleg frumraun, þar sem Orri Harðarson bregður upp tíðarandalýsingu frá níunda áratug síðustu aldar. Hér nýtur sín vel bráðskemmti- legur stíll og vald hans yfir tungumálinu. Hann leikur sér með klisjurnar og sýn hans á drykkfellda snillinginn nær átakanlegum hæðum og lægðum – er í senn kunnugleg og fersk. Reykjavík sem ekki varð Anna Dröfn Ágústsdóttir og Guðni Valberg Í þessu fallega verki rekja höfundar merkilega sögu margra af þekktustu byggingum Reykjavíkur. Þeir beita þeirri nýstárlegu aðferð að segja frá mótun höfuðborgarinnar með því að beina kastljósinu fyrst og fremst að því sem ekki varð, enda eru í bókinni teikningar af stórhýsum sem aldrei risu og þrívíddarmyndir af opinberum byggingum á stöðum sem þeim var upphaflega ætlaður þó að þær hafi endað annars staðar. Líkja má aðferðinni við svokallaða „hvað ef?“ sagnfræði en þá veltir fræðimaðurinn fyrir sér þróun mála ef hlutirnir hefðu æxlast á annan veg. Um leið og Anna Dröfn og Guðni varpa þannig nýju ljósi á mörg helstu kennileiti borgarinnar segja þau áhugaverða samfélagssögu í aðgengilegri og bráðskemmtilegri bók.Lífríki Íslands Snorri Baldursson Í bókinni Lífríki Íslands segir Snorri Baldurs- son frá vistkerfi lands og sjávar af mikilli þekkingu, rekur myndunarsögu landsins og hvernig það hefur mótast í aldanna rás og hvaða afleiðingar sú mótun hefur haft á framvindu lífríkisins. Umhverfisvernd er höfundi ofarlega í huga og hann dregur upp dökka mynd af því hvernig manneskjan leikur lífríkið og hvetur til náttúruverndar. Bókina prýða myndir, kort og töflur sem gera verkið afar yfirgripsmikið og Snorri hrífur lesandann með sér með einkar læsi- legum texta í þessum glæsilega og fallega prentgrip.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.