Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Page 2
Helgarblað 21.–24. ágúst 20152 Fréttir
Lífrænt
Valið besta
heilsuefnið
Fæst í apótekum, Hagkaup, Krónunni,
Grænni heilsu, Heilsuhúsinu og Fjarðarkaup.
www.thebeautyshortlist.com
Best Health Supplement - Overall Wellbeing
Hreinsar líkamann, bætir andadrátt og líkamslykt,
fegrar og frískar húðina
Bætir meltingu, gerir líkamann basískan,
kemur á réttu pH gildi
Yr 100 lífræn næringarefni sem gefa orku,
einbeitingu og vellíðan
Spirulina, Chlorella & Barleygrass
Lifestream framkvæmir þrefaldar næringarprófanir; við uppskeru,
eftir framleiðslu og að lokum með vottun frá óháðri prófunarstofu.
Dagleg græn upplyfting. Heilnæmt fæði, hámarks
upptaka og nýting á næringarefnum.
120 hylki.
Jáeindaskanni
freistar lækna
G
unnar Bjarni Ragnarsson, yfir
læknir lyflækninga krabba
meina á Landspítalanum, seg
ir að koma jáeindaskannans á
Landspítalann verði til þess að meira
freistandi verði fyrir lækna að starfa
þar.
„Það verður fýsilegt fyrir lækna
að starfa á Íslandi þegar tækjakostur
verður betri. Öll svona merki um
uppbyggingu gerir það meira að
laðandi fyrir heilbrigðisstarfsfólk að
vinna áfram á Íslandi. Það gildir ekki
bara um lækna heldur hjúkrunar
fólk, geislafræðinga og fleiri. Þetta
fjölgar líka tækifærum í rannsókn
um, þannig að allt er þetta til bóta,“
segir Gunnar Bjarni.
Erfitt hefur verið að manna stöð
ur á krabbameinsdeild Landspítal
ans og meðalaldur lækna er orðinn
hár. Margir hafa hætt á síðustu árum,
meðal annars ungir læknar sem hafa
flutt til útlanda. Að sögn Gunnars hóf
einn nýr krabbameinslæknir störf
á spítalanum í sumar, auk þess sem
verið er að leita að fleiri læknum til
starfa. „Við höfum brugðist við með
því að dreifa verkum betur. Við höf
um verið að vinna meira með hjúkr
unarfræðingum, riturum og sjúkra
liðum til að minnka álagið hjá þeim
læknum sem hafa haldið áfram.“
Hann segist ekki hafa fengið bein
viðbrögð hjá læknum um að þeir
vilji starfa á spítalanum vegna já
eindaskannans. „En þetta gerir um
hverfið mikið jákvæðara. Fyrst og
fremst er þetta til bóta fyrir sjúklinga
sem hafa farið utan til að undirgang
ast rannsóknir. Það var orðið löngu
tímabært að fá skannann.“
Fyrirtækið Íslensk erfðagreining gaf
Landspítalanum 5,5 milljónir dollara,
um 725 milljónir króna, til að kaupa
jáeindaskannann og setja hann upp.
Liðið gæti eitt og hálft ár þangað til
hægt verður að nota hann því finna þarf
nýtt húsnæði fyrir hann. n freyr@dv.is
Fýsilegra verður að starfa á Landspítalanum
Skortur á krabbameinslæknum
Gunnar segir að verið sé að leita að fleiri
krabbameinslæknum til starfa.
Bjargaði
lífi drengs
Íslenskur þyrluflugmaður, Bene
dikt Guðmundsson, vann björg
unarafrek í Kanada á dögunum
þegar hann fann hinn 13 ára gamla
Mike Jr. Maliki. Mike hafði ver
ið týndur í þrjá daga í óbyggðum
mjög norðarlega í Kanada eða allt
frá því hann ætlaði að ganga heim
til sín eftir afmæli hjá vini sínum.
Drengurinn býr á Hall Beach
sem er lítið samfélag inúíta
í Kanada en bærinn er mjög
norðarlega og í raun nálægt
norður heimskautsbaugnum.
„Ég veit ekki hvort að fólk hafi
áttað sig á því en það var virki
lega kalt úti. Við vorum að glíma
við tvær gráður um morguninn,
stundum fjórar gráður og enga
sól. Síðan fengum við okkar skerf
af snjókomu líka. Ef þú spyrð ein
hvern sem er í útivist þá eru þetta
kjöraðstæður fyrir ofkælingu,“
segir Benedikt um björgunara
frekið sem vakti víða athygli.
Benedikt starfar sem þyrluflug
maður hjá North Warning Syst
em en það er samvinnuverkefni
bandarískra og kanadískra yfir
valda og snýr að loftrýmisgæslu
fyrir NorðurAmeríku. Bene
dikt var fenginn til þess að hjálpa
til við leitina þegar ekkert hafði
spurst til drengsins í tvo daga.
„Ég svaf bara þar sem ég gat,
oftast á bak við grjót,“ sagði Mike
við kanadíska fjölmiðilinn.
Mike var orðinn örmagna og
glímdi við ofþornun þegar Bene
dikt fann hann. Benedikt átti að
eins tuttugu mínútur eftir af eft
irlitsflugi þennan dag þegar hann
kom auga á Mike, lenti þyrlunni
og veifaði til hans. Mike var við
komuna til Hall Beach fluttur á
bæjarsjúkrahúsið þar sem gert var
að sárum hans.
Fjölmargir íbúar mættu til
veislu og þökkuðu Benedikt fyrir
aðstoðina. Þá færði Mike Benedikt
handskorna inúíska vörðu að gjöf
auk þess sem björgunarsveitin á
staðnum færði honum þakkar
skjöld.
Íslenskur bjór miklu
ódýrari í útlöndum
A
lls sjö af þeim átta íslensku
bjórtegundum sem eru
seldar í áfengisverslunum
sænska ríkisins eru ódýrari
þar en í ÁTVR. Lítil flaska
af bjórnum Lava, sem er framleidd
ur af Ölvisholti í Flóahreppi, er 143
krónum ódýrari og Bríó, ein helsta
útflutningsvara Ölgerðarinnar, er
helmingi dýrari hér en í Svíþjóð.
Dæmi eru um að íslenskur bjór sé
rúmlega tvöfalt dýrari í verslunum
ÁTVR en á vesturströnd Kanada.
„Verðmunurinn liggur ekki okk
ar megin. Við erum að selja á sama
verði út og hér heima og því finnst
mér líklegast að áfengisgjald ÁTVR
hér heima valdi þessum verð
mun,“ segir Örn Héðinsson, fram
kvæmdastjóri Ölvisholts brugghúss.
Dæmið snýst við
Áfengisverslun sænska ríkisins, Syst
embolaget, selur vörur frá þrem
ur íslenskum bjórframleiðendum;
Vífilfelli, Ölgerðinni og Ölvisholti.
Verðmunurinn á milli landanna
er mestur þegar kemur að bjór
tegundunum Lava og Bríó. Rauð
ölið Móri, sem Ölvisholt framleiðir,
kostar 27,9 sænskar krónur í Syst
embolaget, jafnvirði 433 íslenskra
króna, en 493 krónur í ÁTVR. Fjórar
bjórtegundir, sem eru bruggaðar af
Vífilfelli undir vörumerkinu Einstök,
eru allar tólf íslenskum krónum
ódýrari í Svíþjóð en hér. Eina varan
sem er ódýrari hér á landi er bjórinn
Skjálfti frá Ölvisholti og munar þar
25 íslenskum krónum.
„Lava er aftur á móti dýrari í
Bandaríkjunum en það er ekki
sambærilegt þar sem þar hann er
einungis seldur í minna magni í litl
um sérhæfðum verslunum og á bör
um,“ segir Örn.
Ölgerðin hóf útflutning á Bríó til
Kanada í júlí 2013. Athugun DV á
verði vörunnar þar í landi leiddi í ljós
að hana er meðal annars að finna í
Bresku Kólumbíu, sem er vestasta
fylki Kanada og er í um sex þúsund
kílómetra fjarlægð frá Íslandi. Sam
kvæmt vefsíðunni BCLiquorstor
es.com ætti að vera hægt að fá hálfs
lítra dós af bjórnum í alls 114 versl
unum. Bjórinn er þar seldur á 1,79
kanadíska dollara, eða 180 krón
ur, og er því 209 krónum ódýrari í
Kanada en í vínbúðum hér á landi.
Dæmið snýst aftur á móti við þegar
vöruúrval áfengisverslunar norska
ríkisins, Vinmonopolet, er skoðað
en hún selur fimm íslenskar bjór
tegundir. Verðið á þeim er í öllum til
vikum talsvert hærra en í ÁTVR en
dýrasti íslenski bjórinn kostar þar
348 krónum meira en hér.
Óttast verðhækkanir
Hinn 1. júní 2014 tóku gildi lög sem
leiddu meðal annars til lækkunar á
áfengisgjaldi ÁTVR. Verð á einum
hálfs lítra bjór, sem er fimm prósent
að styrkleika, lækkaði þá um eina
krónu. Vilhjálmur Einarsson, þing
maður Sjálfstæðisflokks, lagði síð
asta haust fram fumvarp á Alþingi
sem á að heimila sölu áfengis í versl
unum. Í frumvarpinu, sem var ekki
afgreitt fyrir þinglok, segir að álögur
hins opinbera á áfengi séu miklar og
að ljóst sé að hátt áfengisverð hér á
landi leiði til þess að ákveðinn hóp
ur fólks leiti annarra úrræða. Heima
bruggun og smygl á áfengi hafi ver
ið vandamál og að aukið aðgengi að
löglegum vímugjafa ætti að minnka
ásókn í ólöglega. Skiptar skoðanir
eru um frumvarpið. ÁTVR sendi
umsögn til allsherjar og mennta
málanefndar Alþingis í nóvember í
fyrra og varaði þá meðal annars við
því að áfengisverð gæti hækkað.
„Líklegt er að verð á áfengi muni
hækka og þá mest á landsbyggðinni
vegna flutningskostnaðar og smæð
ar verslunar. Til hliðsjónar má nefna
að smásöluálagning á tóbak hefur
u.þ.b. tvöfaldast frá því hún var gefin
frjáls og er nú um 30% samanborið
við 18% álagningu á bjór og léttvín og
12% á sterkt áfengi. Álagning ÁTVR á
áfengi er ákveðin samkvæmt lögum
frá Alþingi,“ segir í umsögn ÁTVR. n
n 7 af 8 tegundum ódýrari í Svíþjóð en í ÁTVR n „Liggur ekki okkar megin“
Verðmunur
á bjórunum
Ísland Svíþjóð
Skjálfti 389 414
Móri 493 434
Bríó 334 222
Einstök Doppelbock 399 387
Einstök White Ale 399 387
Lava 780 637
Black Death Beer 389 Ekki til
Einstök Pale Ale 399 387
Einstök Toasted Porter 399 387
* Miðað við 330 ml glerflösku.
Verð í íslenskum krónum.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Framkvæmdastjórinn Örn Héðinsson
hjá Ölvisholti segir fyrirtækið hafa staðið í
útflutningi frá árinu 2008.
ÁTVR Dæmi eru um að íslenskur bjór sé meira en tvöfalt dýrari hér á landi en á vesturströnd Kanada.