Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 31
Helgarblað 21.–24. ágúst 2015 Fólk Viðtal 31 verða ófrísk og hef talið mér trú um að ég sé ekki gerð til að ganga með barn. Ég veit ekkert af hverju en mig langar það bara ekki. Það hafa hins vegar verið forréttindi að fá að fylgj- ast með Pálínu ganga í gegnum þetta og vonandi hef ég verið góður stuðn- ingur. Ég held að ég hafi staðið mig vel. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig að koma þessum börnum í heim- inn og í það fóru nokkrar milljónir en það skiptir engu máli í dag. Þetta tók virkilega á andlega á tímabili, sér- staklega þegar hlutirnir virtust ekki ætla að ganga upp. Þá var gott að vera hætt í boltanum og geta einbeitt sér alveg að þessu verkefni. Þetta ferli getur nefnilega reynt verulega á, eins og fólk sem hefur gengið í gegn- um þetta þekkir.“ Var hrædd við börn Hún segist elska móðurhlutverkið. „Við Pálína finnum okkur svo 100 prósent í þessu. Persónulega var ég alltaf svolítil barnafæla því það sem maður þekkir ekki getur hrætt mann. Ég var enn svolítið hrædd við börn þegar sú elsta kom en það breyttist á einu augabragði; þegar ég fékk pínulítið barn í hendurnar sem ég vissi að treysti á mig. Og núna með þá þriðju þykist maður vita allt um börn – og það manna best,“ seg- ir hún hlæjandi en bætir alvarlegri við: „Þetta eru algjörir gullmolar sem við eigum og ég vildi ekki hafa neitt öðruvísi. Ég á svo mikla ást að gefa þessum börnum og þetta var nákvæmlega rétti tímapunkturinn fyrir okkur. Eflaust þykjum við gaml- ar í þessu en okkur finnst við bara þroskaðar. Við erum ekki að missa af neinu svo þetta er mjög afslapp- að og þægilegt. Það er engin utan- aðkomandi pressa að þurfa að vera annars staðar. Þetta er svo algörlega það sem við viljum vera að gera.“ Feimin og hlédræg Þegar Olga var á hápunkti ferils síns var hún alþekkt andlit hér á landi. „Ég hef aldrei fílað það að vera þekkt andlit og sem betur fer hefur dreg- ið úr því með árunum. Maður finn- ur það á íþróttakrökkunum; ungar fótboltastelpur og -strákar vita ekk- ert hver ég er. Mér leið aldrei vel með að vera þekkt því ég er frekar þessi feimna týpa sem gengur með- fram veggjum þótt það hafi lagast með aldrinum. Eflaust var ég leið- togi inni á vellinum en þar er ég allt önnur og gjörólík týpa og ekki leng- ur feimin og hlédræg. Athyglin sem ég hef fengið hefur samt alltaf verið á jákvæðum nótum. Ég get ómögu- lega munað eftir einu einasta nei- kvæðu atviki,“ segir hún og neit- ar því að áreitið hafi verið eitthvað meira þegar hún kíkti út á lífið. „Þá hef ég örugglega bara fengið nokkra bjóra fyrir að vera ég. Frekar en hitt. Mér fannst bara stundum eins og fólk væri að pæla í mér og fannst það óþægilegt en það voru örugg- lega óþarfa áhyggjur. Ætli flestum sé ekki nokkuð sama hvað maður er að gera.“ Strákar virðast merkilegri Þótt Olga sé sjálf hætt að keppa fylgist hún með boltanum. „Ég reyni að horfa á alla landsleiki og allt sem viðkemur Íslandi. Það höfðar til mín. Ég hef fulla trú á fótboltastelpunum okkar. Þær hafa verið í smá lægð en ég held að þær eigi eftir að koma sterkar inn áður en langt um líð- ur.“ Hún viðurkennir að kynjaslag- síða fjölmiðlanna fari í taugarnar á henni. „Í hvert skipti sem ég opna blöðin pirrast ég á þessu þótt þetta hafi nú breyst mikið til batnaðar miðað við hvernig þetta var. Í dag er samt ennþá sláanlegur munur og skilaboðin eru engin önnur en þau að strákar séu merkilegri en stelpur. Árið 2015 skilur maður þetta ekki.“ Hlaupa fyrir Kolfinnu Olga og Pálína ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu um helgina fyrir Styrktarfélag krabbameins- sjúkra barna. „Hlaupið leggst alveg ótrúlega vel í mig og aldrei jafn vel og í ár. Við höfum fundið mikinn meðbyr og það eru komnir yfir 30 hlauparar í hópinn Áfram Kolfinna Rán, vinir og vandamenn og aðrir sem við þekkjum minna en eru til- búnir að hjálpa okkur að safna sem mestum pening fyrir þetta félag. Við erum svo ótrúlega þakklátar að við getum ekki lýst því með orðum. Þeta gefur manni svo mikinn styrk. Við stefnum á að hlaupa báðar og planið er að amma og Kata frænka verði með litlu dömurnar á hliðarlínunni. Draumurinn er að geta tekið þær með í Lækjargötunni og ef Kolfinna er nógu hress, fara allar fimm yfir marklínuna. Hetjan í þessu öllu saman er náttúrlega Kolfinna Rán.“ Passa upp á þreytuna Aðspurð viðurkennir hún að erf- iðleikarnir hafi áhrif á samband þeirra Pálínu. „Að því leyti að þetta hefur þjappað okkur meira saman. Auðvitað er þreytustigið hærra og dagarnir miserfiðir en ég held að við höfum aldrei verið jafn nánar og einmitt núna. Við pössum vel upp á hvíldina því ef foreldrarnir eru út- hvíldir og tilbúnir í átökin verður þetta auðveldara fyrir veika barnið. Svo pössum við okkur að ræða saman og tala um það hvernig okk- ur líður því við viljum að Kolfinnu og hinum börnunum líði sem allra best. Við tökum einn dag í einu,“ segir hún og játar því aðspurð hvort þær hafi fundið til sektarkennd- ar. „Eftir greininguna fórum við að hugsa til baka, hvort við hefðum verið sofandi á verðinum með þessa kúlu. Það var einhvern veginn allt á fullu, Pálína ófrísk og svo eftir að litla barnið kom snerist allt um það. Vor- um við kannski ekki að veita þessu nógan gaum? Auðvitað þýða svona pælingar ekkert og læknar hafa oft sagt okkur að það hefði litlu skipt þótt við hefðum komið strax um páskana fyrst dreifingin var engin. Annars hefði maður líklega nagað sig í handarbökin.“ Olga og Pálína voru báðar í fæðingarorlofi þegar veikindin komu upp og samkvæmt Olgu hafa vinnuveitendur sýnt þeim mikinn stuðning. „Við verðum vissulega fyr- ir tekjutapi en þá þarf maður bara að lifa öðruvísi og halda fastar um budduna. Annars er þetta lítið farið að reyna á fjárhagslegu hliðina enn- þá og við hugsum ekkert um það. Við ætlum bara að komast í gegnum þetta og það kemst ekkert annað að. Peningahliðin reddast alltaf.“ Útrás fyrir reiðina í boltanum Olga verður fertug í haust en hefur þrátt fyrir ungan aldur tekist á við sinn skerf af erfiðleikum. Ekki aðeins missti hún foreldra sína fyrir aldur fram heldur missti hún einnig elsta bróður sinn. „Hann var skipstjóri og féll útbyrðis sem var upphaf- ið að veikindum hjá honum. Hann varð aldrei sami maður eftir það. Þegar kona hans lést vegna lækna- mistaka blossuðu veikindin upp aft- ur. Það var svakalegur skellur fyrir hann en þau áttu fjögur börn. Hann jafnaði sig aldrei og endaði á því að svipta sig lífi. Þetta var mjög sorglegt allt saman. Hann var dásamlegur maður og ég held að allir sem hann þekktu myndu staðfesta það. Hann bara gat ekki meira,“ segir Olga sem hefur ekki orðið reið og sár þrátt fyr- ir mótlætið. „Ég hef örugglega losað mig við reiði og spennu í boltanum. Líklega hef ég fengið útrás þar. Það er oft sagt að það sé mismikið lagt á fjölskyldur en ég veit ekki af hverju ég ætti að sleppa frekar en aðrir. Þetta hefur allt saman verið partur af lífi mínu og öll þessi áföll hafa styrkt mig sem persónu og sem karakter. Ég held að minn persónuleiki ein- kennist svolítið af þessu. Fyrir vikið er ég ekki mikið fyrir veraldleg gæði og dauða hluti. Fólk skiptir mig máli. Við systkinin eru náin og höld- um vel hópinn. Bræður mínir búa í Keflavík en systur mínar, sem gengu mér báðar í móðurstað, eru í Set- berginu eins og ég. Við erum að- eins tvær mínútur að labba á millli. Við systurnar tölum saman daglega og strákarnir eru reglulega með. Svona áföll gera það að verkum að fólk stendur saman. Það koma aldrei upp nein vandamál í fjölskyldunni sem ekki er hægt að leysa. Við vinn- um frekar saman eins og ein mann- eskja, það er bara farið í málin og þau kláruð.“ Taka slaginn á jákvæðninni Þá daga sem Kolfinna er í lyfjagjöf býr Olga hjá henni á sjúkrahúsinu. „Dagurinn í gær var mjög þung- ur fyrir hana. Hún svaf í 13 tíma og byrjaði svo daginn í dag á að gubba og ég hélt að þetta yrði erfiður dag- ur en við vorum fljótlega komnar niður á leikstofu. Þar lék hún sér í klukkutíma en þá sá maður að það dró af henni svo við fórum aftur upp í herbergi og upp í rúm. Maður sér augljóslega hvað orkan þverr. Þess- um stóru gjöfum fylgir ógleði svo lystin er lítil og einu lyfinu fylgja aukaverkanir í útlimum, sköflungi, höndum og kjálka og það er greini- legt að hún finnur fyrir því. Hún er oft viðþolslaus og gólar af og til upp yfir sig. Ég hef tekist á við ým- islegt en held að þetta verkefni sé það erfiðasta hingað til. Ég hugsa oft á dag hvað ég væri til í að geta leg- ið þarna í hennar stað og tekið frá henni verkina og alla þessa upplif- un. Það er ekkert verra en að horfa á barnið sitt kveljast en geta ekkert gert. Það eina sem við getum gert er að takast á við þetta verkefni með jákvæðni og bjartsýni. Við ætlum að sigrast á þessu saman. Ég er 170 prósent viss um það. Kolfinna er svo sterklega byggð og hraust týpa. Hún er svo mikill nagli og það gerir það að verkum að maður er svona bjart- sýnn. Hingað til hefur hún svarað öllum lyfjagjöfum vel og það gerir mann jákvæðan. Eina spurningin er hversu langan tíma þetta tekur en við gefum okkur þann tíma sem til þarf.“ n Ferill Olgu Færseth Knattspyrnan Breiðablik n Íslandmeistari 1992 n Ísland-s og bikarmeistari 1994 KR n Íslandsmeistari 1997, 1998, 1999 og 2002 n Bikarmeistari 1999 og 2002, 2007 og 2008 IBV n Bikarmeistari 2004 Olga er markadrottning Íslands Körfuboltinn Keflavík n Íslandsmeistari 1992, 1993, 1994 n Bikarmeistari 1993 og 1994 Breiðablik n Íslandsmeistari 1995 Olga spilaði 16 landsleiki með íslenska körfuboltaliðinu. „Mig hef- ur aldrei langað til að verða ófrísk og hef talið mér trú um að ég sé ekki gerð til að ganga með barn Systur Kolfinna og Melkorka eru góðar vinkonur. Mynd ÞoRMaR VIgnIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.