Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Blaðsíða 8
Helgarblað 21.–24. ágúst 20158 Fréttir
Þ
órir Karlsson er Íslending-
ur búsettur í Bretlandi en
hann flutti ásamt fjölskyldu
sinni til Coventry fyrir rúmu
ári síðan, eða þegar eigin-
kona hans hóf doktorsnám þar ytra.
Til að sjá fyrir fjölskyldunni, en þau
hjón eiga þrjú börn sem öll eru yngri
en tíu ára, ákvað Þórir að hefja störf
í vöruskemmu en starfið fékk Þórir í
gegnum vinnumiðlun. Starfið, sem
átti að gera fjölskyldunni lífið auð-
veldara, reyndist þó vera þungbært
og framkoma yfirmanna gagnvart
starfsmönnum var með ólíkindum.
Þórir setti sig í samband við DV
eftir að grein birtist á dv.is um slæma
meðferð á starfsmönnum í vöru-
skemmum Amazon í Bretlandi. Þór-
ir starfaði að vísu ekki hjá Amazon en
segir sögu sína svipa mikið til þeirra
sem starfsmenn Amazon sögðu frá.
„Fréttin heggur ótrúlega nærri þeirri
lífsreynslu sem ég er búinn að ganga í
gegnum síðasta árið,“ segir Þórir.
Starfsfólki hótað daglega
Þórir fékk starf nálægt heimili fjöl-
skyldunnar hjá fyrirtæki sem sérhæf-
ir sig í sölu á ýmsum útvistarbúnaði,
reiðhjólabúnaði og aukahlutum fyrir
bíla. Hann taldi sig í fyrstu hafa verið
heppinn að fá vinnuna, sem var átta
tíma vaktavinna.
„Ég réð mig á næturvaktir til að
geta komið börnunum í skólann á
morgnana. Þetta var erfitt fyrstu dag-
ana og ég var eiginlega í sjokki yfir
því hvernig komið var fram við starfs-
menn. Á hverju einasta kvöldi var
haldinn starfsmannafundur, með yfir
100 starfsmönnum, þar sem verkstjór-
ar hreinlega helltu sér yfir starfsfólk.
„Ef þið reynið að fara fimm mín-
útum fyrr í kaffi þá verðið þið rekin,“
var sagt á mínum fyrsta starfsmanna-
fundi,“ segir Þórir en hver fundur var
um tíu mínútur.
„Svona var þetta í þá átta mánuði
sem ég starfaði þarna. Á hverju einasta
kvöldi var hótað að reka fólk og menn
látnir fara fyrir litlar sem engar sakir.“
„Horft á mig eins og
ég væri glæpamaður“
Þórir hafði áður starfað sem yfirmað-
ur í vöruhúsi hér á landi í fimm ár og
lét hann yfirmenn sína í Bretlandi vita
af því og spurði hvort að þeir vildu
nýta sér þekkingu hans.
„Nú var ég kominn á gólfið og það
var horft á mig eins og ég væri glæpa-
maður. Ég þurfti að vinna í fimm
klukkutíma stanslaust frá því að ég
mætti. Mér var sagt að ef ég sett-
ist niður þá yrði ég rekinn. Það voru
engar pásur fyrir utan hálftíma mat-
arhlé. Það er ætlast til þess að starfs-
fólk vinni í átta tíma en þeir fá þó að-
eins borgaða sjö og hálfan tíma, þar
sem matartíminn er dreginn frá og
hann er ekki borgaður.“
Á þeim tíma sem Þórir starf-
aði í vöruskemmunni vann hann
meðal annars á föstudaginn langa,
páskadag, aðfangadag og annan í jól-
um. Hann fékk ekki borgað aukalega
fyrir þá daga.
Verkalýðsfélög bannorð
í eyrum alvaldsins
Að lokum var Þóri sagt upp, en það
var eftir að hann gat ekki lagað sig að
breyttu vaktafyrirkomulagi sem boð-
að var með mjög stuttum fyrirvara.
„Einn daginn komu yfirmenn og
tilkynntu að það yrðu vaktabreytingar.
Planið breyttist úr átta tíma vöktum
yfir í tólf tíma vaktir þar sem unnið yrði
í lengri lotum og á móti myndi starfs-
fólk fá lengri frí. Ég sagði þeim að þetta
myndi ekki henta og benti á ýmsa galla
sem ég sá við þetta nýja vaktaplan.
Ég var kallaður fífl og var svo rekinn
ásamt mörgum öðrum.“
Þórir segist furða sig á hversu stutt
verkalýðsbaráttan sé komin í Bret-
landi. Yfirmenn séu hreinlega alvald-
ar og er réttur þeirra verndaður með
lögum. Það að kjósa um breytingar
yrði aldrei í boði enda segir Þór-
ir að slíkar ákvarðanir hafi komið
starfsmönnum á gólfi ekki við.
„Mér var sagt að ef ég nefndi orðið
verkalýðsfélag við þá yrði ég rekinn á
staðnum,“ segir hann.
Vinnumiðlun veitir
vinnu en engin réttindi
Eins og fyrr segir réði Þórir sig til
vinnu hjá vöruskemmunni í gegn-
um vinnumiðlun. Hann segir að
flestir sem komi til landsins í leit að
vinnu nýti sér slíka þjónustu til að fá
sitt fyrsta starf. Þórir segir að þótt slík
þjónusta finni starf fyrir viðkomandi
sé afar vafasamt að þiggja það, eins
og hann komst sjálfur að.
„Ef þú færð starf í gegnum vinnu-
miðlun þá ertu í raun lánaður frá
þeim. Af þeim sökum fara 20 prósent
af launum þínum til vinnumiðlun-
arinnar auk þess sem þú ert algjör-
lega réttindalaus og það má reka þig
hvenær sem er. Ef starfsmenn veikjast
eru þeir bara reknir, sem dæmi. Yfir-
menn sjá að það eru margir að leita
að vinnu, sérstaklega að láglauna-
vinnu, og nýta sér það,“ segir Þórir en
hann var með um rúmlega sjö pund
á tímann í laun, sem gerðu um 1.100
pund á mánuði í heildarlaun.
Annar sirkus í kringum
vel launuð störf
Þórir segir að eiginkona hans, sem er
háskólamenntuð, hafi einnig átt erfitt
með að finna starf og á endanum, eftir
að doktorsnáminu lauk, tók hún starfi
sem hæfir ekki hennar menntun. Þór-
ir segir að eiginkona hans hafi fengið
að kynnast annarri, furðulegri hlið af
breskum vinnumarkaði.
„Að sækja um vinnu hérna í Bret-
landi er grín. Konan mín fór í fjölda
viðtala fyrir störf sem voru auglýst
sem vel launuð yfirmannsstörf en svo
þegar hún var boðuð í viðtal kom hins
vegar allt annað í ljós. Í einu tilfelli átti
hún að ganga á milli húsa og safna
pening fyrir hundaathvarfi í sjö tíma
á dag og það fyrir mun minni laun
en var auglýst. Hún fékk þau svör að
hún þyrfti að byrja í þessu og svo eftir
nokkur ár gæti henni verið boðin yf-
irmannsstaðan sem var auglýst. Þetta
gerðist trekk í trekk,“ segir Þórir.
Þórir er nú heimavinnandi með
börnin og segist ekki ætla aftur út á
vinnumarkaðinn fyrr en eftir að skól-
ar hefjast hjá börnunum í haust. Þótt
vinnumarkaðurinn hafi reynst hon-
um og eiginkonu hans erfiður fyrsta
árið segir hann þó ýmsa kosti við bú-
setuna í Bretlandi.
„Breska samfélagið er ágætt fyrir
barnafjölskyldu, barnabætur eru sem
dæmi betri en heima. Þá fengum við
aldrei húsaleigubætur á Íslandi þar
sem við vorum með ágætis tekjur. Hér
fáum við hins vegar allt að 75 til 80 pró-
sent af allri leigunni í húsaleigubætur
en eftir því sem launin hækka lækka
bæturnar,“ segir Þórir að lokum en
hann hefur þegar fengið boð um nýja
vinnu sem hann segist vera að íhuga. n
dk Viðskiptahugbúnaður
- Þróaður fyrir íslenskar aðstæður
- Öruggur, einfaldur í notkun og veitir
góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins
- Yfir 5.000 fyrirtæki á Íslandi nýta sér
þjónustu okkar
dk POS afgreiðslukerfið
- Hraðvirkt og einfalt í notkun
- Eitt öflugasta afgreiðslukerfið á markaðnum í dag
- Yfir 900 afgreiðslukerfi um land allt
dk Vistun
- Heildarlausn í hýsingu forrita og gagna
- Örugg vistun og framúrskarandi þjónusta
dk hugbúnaður
Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Sími: 510 5800
www.dk.is
Íslenskur hugbúnaður í 16 ár
Veldu íslenskan
hugbúnað
„Kallaður fífl
og var reKinn“
n Íslendingur í breskri þrælakistu n Í líkingu við sögu starfsmanna Amazon
Johann Skúli Björnsson
johannskuli@dv.is „Ef þið
reynið að
fara fimm mínút-
um fyrr í kaffi þá
verðið þið rekin
Þórir Karlsson Flutti
með fjölskyldu sinni til
Bretlands fyrir rúmu ári
þegar eiginkona hans
(á mynd), Patience, fór í
doktorsnám til Coventry.