Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2015, Qupperneq 12
Helgarblað 21.–24. ágúst 201512 Fréttir V A R M A D Æ L U R 19 dBA *Við ábyrgjumst lægsta eða sama verð og sambærileg varmadæla frá öðrum söluaðilum. Smiðjuvegur 70 - gulgata - 200 Kópavogur Gæði, þjónusta og gott verð. Hámarks orkusparnaður. sen dum frÍ tt Út Á l and * „Ríkir mikil ánægja með fyrirkomulagið“ Skólarnir kaupa ritföngin í magninnkaupum fyrir nemendur Það færist í vöxt að skólar sjái um magninnkaup á ritföngum fyrir nemend- ur sína. Slíkt fyrirkomulag hefur tíðkast í fjölmörg ár hjá Vesturbæjarskóla og að sögn Döllu Jóhannsdóttur, formanns foreldrafélagsins, ríkir mikil ánægja með það hjá foreldrum. Fast gjald að upphæð 6.000 krónur, svokallaður bekkjarsjóður, er innheimt að hausti og inni í því verði eru öll ritföng sem nemendur hafa aðgengi að í skólanum. Í samanburði við verð á heildarinnkaupalistum skólanna hjá netverslununum þá er umrædd upphæð í lægri kantinum. „Skólinn fær betra verð en einstak- lingarnir út af magninnkaupunum og undirbúningur er því lítill sem enginn fyrir aðstandendur. Öll ritföng og skriffæri eru geymd í skólanum og þar sem engin heimavinna er í skólanum þá þurfa börnin aðeins að taka nesti með sér í skólann,“ segir Dalla. Sonur Döllu er að skipta um grunnskóla í haust og í nýja skólanum eiga nemendur að kaupa þessi gögn sjálfir. „Fyrsta verkið var að kaupa pennaveski,“ segir Dalla kímin. 60% verðmunur á ritföngum n Verðsamanburður á vörukörfu í fimm verslunum n Hagstæðasta verðið í Bónus Verðsamanburður á skólavörum Bónus Penninn/Eymundsson Heimkaup Hagkaup A4 Byrjendaskæri (13 cm) 198 kr. 209 kr. 197 kr. 299 kr. 349 kr. Trélitir (12 stykki) 598 kr. 394 kr. 389 kr. 661 kr. 659 kr. Plastmappa A4 (í lit) 59 kr. 49 kr. 129 kr. 127 kr. 89 kr. Límstifti (8 gr) 49 kr. 99 kr. 129 kr. 384 kr. 147 kr. Reglustika (30 cm) 119 kr. 256 kr. 239 kr. 196 kr. 295 kr. Stílabók A5 239 kr. 189 kr. 279 kr. 279 kr. 359 kr. Stóra sögubókin mín A4 147 kr. 269 kr. 269 kr. 259 kr. 269 kr. Tússpenni 0,6 svartur 159 kr. 397 kr. 399 kr. 246 kr. 399 kr. Samtals 1.568 kr. 1.862 kr. 2.030 kr. 2.451 kr. 2.566 kr. Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is R úmlega 60 prósenta verð­ munur er á vörukörfu með átta algengum ritföngum sem eru á innkaupalista 1. bekkinga fyrir komandi skólaár. Alls var gerður saman­ burður hjá fimm umfangsmiklum verslunum og reyndist vörukarfan ódýrust hjá Bónus en dýrust hjá A4. Innkaupalistar skólanna í netverslunum Grunnskólar landsins hefja störf eftir helgi og því eru skólabörn og foreldrar í óða önn að kaupa inn nauðsynleg ritföng fyrir veturinn. Algengasta fyrirkomulagið er að skólar gefi út innkaupalista fyrir sérhvern bekk og síðan sjá foreldr­ ar um að leita vörurnar uppi. Tvær verslanir, Heimkaup og Penninn/ Eymundsson, hafa séð sér leik á borði og hafa listana aðgengilega á heimasíð­ um sínum þannig að hægt er að ganga frá innkaup­ unum á netinu á afar hand­ hægan hátt. Heimkaup geng­ ur svo skrefinu lengra og býður upp á ókeypis heimsendingu en slík sending kostar 990 krónur hjá Pennanum/Eymundsson, annars býðst viðskiptavinum að sækja vörurnar frítt í verslun fyrirtæk­ isins við Hallarmúla. Innkaupalistar misjafnir að umfangi Það vekur athygli að innkaupa­ listar skólanna eru afar misjafnir að umfangi. Nokkrar stikkprufur á heimasíðu Heimkaupa leiddu það í ljós að innkaupalisti 1. bekkinga í nokkrum skólum á höfuðborgar­ svæðinu eru frá tæpum 4 þúsund krónum og allt upp í um 12 þús­ und krónur. Það er því greinilega afar misjafnt hvað kennarar telja nauðsynleg gögn fyrir nemendur. Átta vörutegundir í körfunni DV fór á stúfana og gerði verðsam­ anburð á nokkrum algengum vör­ um á innkaupalista 1. bekkinga hjá fimm verslunum; Pennanum/ Eym undsson, A4, Heimkaup, Bón­ us og Hagkaup. Allar versl­ anirnar, nema Bónus, gefa upp allt verð á heima­ síðum sínum sem er til fyrirmyndar enda auðveldar það neytendum verð­ samanburð. Það var hægara sagt en gert að velja vörur sem feng­ ust í öll­ um fimm verslununum og voru samanburðarhæfar. Svo fór að lok­ um að átta vörutegundir skipuðu vörukörfuna og ættu að geta gef­ ið neytendum vísbendingu um hvar ódýrast sé að ganga frá öll­ um innkaupunum. Eðli málsins samkvæmt er hins vegar umtals­ vert meira vöruúrval hjá verslununum sem sér­ hæfa sig í ritföngun­ um og þar er því líklegra að hægt sé að klára inn­ kaupin í einni heimsókn. Ódýrast í Bónus Niðurstaðan varð sú að karfan var ódýrust hjá Bón­ us en þar kostaði hún 1.568 krón­ ur. Í fjórum til­ vikum af átta voru vörurn­ ar ódýrastar hjá versl­ uninni. Næstó­ dýrust var karfan hjá Penn­ anum/Eym undsson, eða 1.862 krónur, og var verslunin þrisvar með hag­ stæðasta verðið. Hjá Heim­ kaup kostaði karfan 2.030 krón­ ur og var verslunin með ódýrasta verðið í einum vöruflokki. Karfan kostaði 2.451 krónu hjá Hagkaup en dýrust var hún hjá A4, eða 2.566 krónur, sem gerir verðmun upp á rúm 60 prósent á ódýrustu og dýr­ ustu vörukörfunni. Hvorki Hagkaup né A4 voru með hagstæðasta verð á einhverri vörutegund. n Vörukarfan Þessar vörur eru á innkaupa- lista nær allra 1. bekkinga sem hefja skólagöngu sína í haust. Mynd ÞorMAr VIgnIr gunnArsson Hagnaðist um 12,4 milljarða 16,2 milljarða vaxtatekjur Landsbankans H agnaður Landsbankans nam 12,4 milljörðum króna á fyrri árshelmingi og dróst saman um 2,5 milljarða frá sama tíma fyrir ári. Þá nam arðsemi eigin fjár á tímabilinu 10,4% á ársgrund­ velli borið saman við 12,8% arðsemi fyrstu sex mánuði ársins 2014. Þetta kemur fram í afkomutil­ kynningu frá bankanum en sem kunnugt er á ríkið 98% hlut í Lands­ bankanum. Hreinar vaxtatekjur bankans voru 16,2 milljarðar króna og hækka um 6% á milli tímabila. Hrein­ ar þjónustutekjur námu 3,4 millj­ örðum króna og hækka um 16% frá sama tímabili árið áður. Virðis­ breytingar útlána lækka um 9,6 milljarða króna á milli ára, en hagn­ aður af hlutabréfum hækkar á sama tíma um tæpa 5 milljarða. Í tilkynningu er haft eftir Stein­ þóri Pálssyni bankastjóra: „Afkoma Landsbankans fyrstu sex mánuði ársins er með ágætum, tekjusam­ setningin betri en áður og fjár­ hagsstaðan er traust. Bankinn hef­ ur notið góðs af hagstæðri þróun í efnahagslífinu og á fjármálamörk­ uðum og viðskipti hafa verið að aukast umtalsvert. Markaðshlut­ deild bankans í útlána­ og innlána­ starfsemi og í markaðsviðskiptum heldur áfram að aukast. Samkvæmt mælingum Gallup í júní mælist Landsbankinn með mestu mark­ aðshlutdeildina á einstaklings­ markaði, eða 35,1% og hefur aldrei mælst hærri. Þetta sýnir að við­ skiptavinir kunna að meta það sem Landsbankinn er að gera.“ n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.