Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Side 4
4 Fréttir Vikublað 27.–28. október 2015
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121
Algjört orku- og næringarskot
„ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan
eykst krafturinn yfir daginn í vinnunni og æfingar
seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru
fljótari að ná sér eftir æfingar. Það að taka auka
Spirulina sem er lífrænt fjölvítamín, fyrir leik
er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er
líka frábær vörn gegn kvefi og flensum.“
Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir
leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí.
lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar
TREYSTI Á
LIFESTREAM
BÆTIEFNIN!
Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir, N ttó og Fríhöfnin.
Engin afsökunarbeiðni
vegna olíuáforma
VG gegn olíuvinnslu en ályktun UVG var mikið breytt
E
kkert varð úr því að landsfund-
ur Vinstri grænna bæðist af-
sökunar á þætti hreyfingar-
innar í ferlinu þegar fyrstu
sérleyfin fyrir olíuvinnslu á Dreka-
svæðinu voru undirrituð 2013 af
Steingrími J. Sigfússyni, þáverandi
atvinnumálaráðherra. Krafa um slíkt
kom fram í ályktun sem lögð var fram
af Birni Reyni Halldórssyni og fram-
kvæmdastjórn Ungra vinstri grænna
(UVG) fyrir fundinn á Selfossi um
helgina og hafði vakið nokkra athygli.
Ályktun UVG lagðist fyrst og
fremst gegn fyrirhugaðri olíuvinnslu
á Drekasvæðinu en þar var einnig
kveðið á um að „Landsfundur biðst
jafnframt afsökunar á þætti hreyf-
ingarinnar í ferlinu þegar fyrstu sér-
leyfin voru undirrituð 2013 af ráð-
herra Vinstri hreyfingarinnar- græns
framboðs. Hreyfing sem ekki beitir
sér eindregið gegn nýtingu jarðefna-
eldsneyta getur ekki með réttu látið
kenna sig við grænt framboð,“ sagði
meðal annars. Ályktunin sem síðar
var samþykkt var mikið breytt, með
breytingatillögu sem hópur fólks þar
á meðal varaformaðurinn Björn Val-
ur Gíslason stóð að.
Eftir stóð að Vinstri græn sam-
þykktu að leggjast gegn hugmynd-
um um vinnslu jarðefnaeldsneytis á
íslensku yfirráðasvæði en afsökunar-
beiðnin náði ekki í gegn. n
mikael@dv.is
Steingrímur J. Sigfússon
Steingrímur var atvinnu- og
nýsköpunarráðherra á þeim
tíma sem ályktun UVG vísaði
til. Mynd Sigtryggur Ari
Sigurbjörn fékk félaga
sína að Símakaupunum
Fjárfestarnir Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson keyptu í Símanum fyrir tilstilli Sigurbjörns Þorkelssonar
S
igurbjörn Þorkelsson, fjár-
festir og stjórnarformaður
Fossa markaða, átti frum-
kvæði að aðkomu fjárfest-
anna Árna Haukssonar og
Hallbjörns Karlssonar að hópn-
um sem keypti 5% hlut í Símanum
af Arion banka í lok sumars. Stjórn-
endur Símans leituðu til Sigurbjörns
vegna reynslu hans af fjárfestingum
hér á landi. Þetta segir Orri Hauks-
son, forstjóri Símans og hluthafi í
fjarskiptafyrirtækinu, sem setti hóp-
inn saman.
„Við höfðum upphaflega samband
við þrjá íslenska og fimm útlenska
fjárfesta og þeir tóku langflestir ein-
hverja með sér inn í fjárfestahóp-
inn. Það voru því hvorki Arion banki
né Síminn sem höfðu frumkvæði að
því að Árni og Hallbjörn kæmu að
þessu en það kom okkur þó ekki á
óvart þegar þeir komu inn í myndina
í gegnum Sigurbjörn,“ segir Orri.
Situr í stjórninni
Viðskiptafélagarnir og vinirnir Árni,
Hallbjörn og Sigurbjörn eiga í Sím-
anum í gegnum félagið Æðarnes
ehf. DV greindi nýverið frá því að
Æðarnes væri stærsti einstaki eig-
andi L1088 ehf. sem keypti í ágúst 5%
hlutinn í fjarskiptafélaginu af Arion
banka á 1.330 milljónir króna eða
2,518 krónur á hlut. Hópurinn að
baki L1088 keypti því hlutinn í Sím-
anum á verði sem var 31% lægra en
útboðsgengi fjarskiptafyrirtækis-
ins. Við lokun viðskipta í Kauphöll-
inni í gær var gengi bréfa í Símanum
3,64 krónur á hlut, sem er 46% hærra
gengi en það sem fjárfestahópurinn
keypti á fyrr á árinu.
Í frétt DV kom fram að Hallbjörn
og Sigurbjörn hefðu gengið inn í
stjórn Æðarness þann 25. ágúst síð-
astliðinn eða fjórum dögum eftir að
L1088 keypti í Símanum. Þremenn-
ingarnir eiga allir þriðjungshlut í
Æðarnesi en Árni var áður eini hlut-
hafi félagsins. Sigurbjörn er einnig
stjórnarmaður í L1088 en þremenn-
ingarnir hafa, eins og Arion banki og
Síminn, ekki viljað upplýsa hversu
stóran hlut þeir keyptu í L1088.
„Erlendu fjárfestarnir sem koma
að þessum hópi voru allir að fjárfesta
í fyrsta skipti á Íslandi. Þeim fannst
mjög mikilvægt að fá fjárfesta inn í
hópinn sem höfðu reynslu af fjár-
festingum hér á landi og því leituðum
við til Sigurbjörns,“ segir Orri.
Misráðin sala
Arion banki, sem er að 13% hluta í
eigu íslenska ríkisins og 87% hluta
í eigu slitabús Kaupþings, segir að
aðkoma Sigurbjörns hafi legið fyrir
við ákvörðun um söluna til fjárfesta-
hópsins í maí síðastliðnum. Árni og
Hallbjörn hafi komið að borðinu við
frágang viðskiptanna, eða þremur
mánuðum síðar. Þetta kom fram í til-
kynningu sem bankinn sendi frá sér
síðasta föstudag. Í tilkynningunni
kom einnig fram að sala á öðrum 5%
hlut bankans í Símanum, til vildar-
viðskiptavina hans skömmu fyrir
hlutafjárútboð fjarskiptafyrirtækis-
ins, hafi verið misráðin.
Hollenski fjárfestirinn Bertrand
Kan, fyrrverandi yfirmaður hjá
breska ráðgjafarfélaginu Morgan
Stanley, er í forsvari fyrir L1088 og
stjórnarformaður félagsins. Tveir
aðrir erlendir fjárfestar, Kaj-Juul
Pedersen og Joe Ravitch, eru einnig
hluti af fjárfestahópnum ásamt
þeim Stefáni Ákasyni, fyrrver-
andi forstjóra skuldabréfamiðlunar
Kaupþings, og Ómari Svavarssyni,
fyrrverandi forstjóra Vodafone á Ís-
landi. n
Tjáir sig ekki um pistlaskrif Ólafs
Ólafur Arnarson hagfræðingur skrifaði pistil
á pressan.is síðasta föstudag þar sem
hann gefur í skyn að aðkoma Árna,
Hallbjörns og Sigurbjörns að kaup-
unum í Símanum tengist meintum
vinskap þeirra við Halldór Bjarkar
Lúðvígsson, framkvæmdastjóra
fjárfestingarsviðs Arion banka. Benti
Ólafur á að Halldór útskrifaðist úr vélaverk-
fræði frá Háskóla Íslands árið 1991 eða ári á
undan þremenningunum sem lærðu einnig
við verkfræðideild skólans.
„Þremenningarnir munu allir hafa fjárfest
í Högum þegar Halldór Bjarkar, þeirra gamli
skólafélagi, sá um að selja fyrirtækið til
hóps fjárfesta og lífeyrissjóða 2011. Sá
hlutur var seldur á mjög hagstæðu
verði og munu verkfræðingarnir
hafa meira en tvöfaldað fjár-
festingu sína eftir að Hagar voru
skráðir á markað,“ skrifar Ólafur.
Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður
samskiptasviðs Arion banka, sagði í samtali
við DV að bankinn ætli ekki að tjá sig um skrif
Ólafs og meint tengsl Halldórs Bjarkars við
þremenningana.
Haraldur guðmundsson
haraldur@dv.is
Viðskiptafélagi Árna og Hallbjörns
Sigurbjörn Þorkelsson situr í dag í stjórn
L1033 ehf. sem keypti 5% hlut í Símanum
í umdeildri sölu sem fór fram áður en fjar-
skiptafélagið var skráð á markað.
Keyptu í Símanum Árni Hauksson og Hallbjörn Karlsson eru gamlir skólafélagar og hafa lengi rekið saman fjárfestingafélagið Vogabakka ehf.
„Duttlungar“
Vilhjálms
Björgólfur Thor Björgólfsson
fjárfestir sakar Vilhjálm Bjarna-
son þingmann um þráhyggju.
Það gerir hann í færslu á vefsíðu
sinni, btb.is, þar sem hann tekur
fyrir málaferli málsóknarfélags
á hendur sér. Ríflega 200 manns
hafa gengið til liðs við mál-
sóknarfélagið en stefnan verður
þingfest í dag, þriðjudag.
„Störfum hlaðið dómskerfi Ís-
lands þarf nú að bæta á sig duttl-
ungum Vilhjálms Bjarnasonar.“
Telur hópurinn að Björgólfur hafi
leynt upplýsingum um eignarhald
sitt á Landsbankanum. Þannig hafi
hann komist undan því að lúta
reglum sem kveða á um birtingu
upplýsinga um viðskipti bankans
við hann. Fjármálaeftirlitið setur
mörk hvað þetta varðar og telur
hópurinn að viðskiptin hafi verið
yfir leyfilegum mörkum.
„Málefni mín og bankans hafa
verið rannsökuð í þaula af þar til
bærum yfirvöldum og ekki talin
ástæða til aðgerða í nokkru þeirra.
Þar að auki hef ég gert upp all-
ar mínar skuldir við bankann og
hann því skaðlaus af viðskiptum
við mig.“ Hann hafi ekkert sak-
næmt unnið. „Þráhyggja Vilhjálms
Bjarnasonar á sér hins vegar lítil
takmörk. Með hana að vopni sér
hann rangfærslur og svik þar sem
sérfróðir rannsakendur sjá ekk-
ert aðfinnsluvert. Það er illt að
dómskerfið þurfi að eyða tíma sín-
um í slíkan málatilbúnað.“
DV kemur út á
fimmtudag
Næsta útgáfa DV verður
fimmtudaginn 29. október.
Þar er á ferðinni stórt og efn-
ismikið helgarblað sem dreift
verður ókeypis inn á öll heim-
ili. Næsta tölublað þar á eftir
kemur út venju samkvæmt á
þriðjudag, 3. nóvember.