Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Blaðsíða 6
6 Fréttir Vikublað 27.–28. október 2015 H Á R Þ Y K K I N G A R M E Ð F E R Ð H Á Þ R Ó U Ð O G M A R G P R Ó F U Ð Fæst í apótekum um land allt, í Hagkaup og á heimkaup.is Sviðsstjórar látnir fara „Af minni hálfu er engin kergja varðandi þessa ákvörðun“ T veimur sviðsstjórum Strætó var sagt upp störfum um miðjan mánuðinn og hafa þeir þegar látið af störfum. Áður hafði sviðsstjóri akstursþjónustu fyrirtækis- ins látið af störfum á sviptingasömu ári hjá fyrirtækinu. „Framkvæmdastjór- inn er tiltölulega nýtekinn við og hann vill setja sín fingraför á rekstur fyrir- tækisins,“ segir annar þeirra starfs- manna sem nú hverfur á braut. Ber engan kala til fyrirtækisins Sviðsstjórarnir sem um ræðir eru Júlía Þorvaldsdóttir, sem var yfir farþegaþjónustusviði fyrirtæk- isins, og Einar Kristjánsson, sem var yfir nýstofnuðu sam- göngusviði. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Jóhannes Svavar Rúnarsson, staðfesti brotthvarf tví- menninganna í samtali við DV. Jó- hannes vildi ekki tjá sig um mál- efni einstakra starfsmanna en sagði þó að ekki væru fyrirhugaðar nein- ar skipulagsbreytingar. „Við munum auglýsa störfin á næstunni,“ segir Jó- hannes. Einar Kristjánsson segist ekki bera neinn kala til fyrirtækisins vegna ákvörðunarinnar. „Þetta er innan- hússmál. Framkvæmdastjórinn vel- ur að gera breytingar og af minni hálfu er engin kergja varðandi þessa ákvörðun. Hann [Jóhannes Svav- ar Rúnarsson] er tiltölulega nýtekinn við og hann vill setja sín fingraför á rekstur fyrirtækisins,“ segir Einar. Jóhannes var ráðinn fram- kvæmdastjóri Strætó í byrjun árs en hann tók við starfinu af Reyni Jóns- syni sem hafði glatað trausti stjórnar fyrirtækisins. Áður starfaði Jóhannes sem sviðsstjóri rekstrarsviðs Strætó. Í vetur var rekstrarsviðið sameinað skipulagssviði og var nýja sviðið nefnt samgöngusvið. Áðurnefndur Ein- ar Kristjánsson var í forsvari fyrir hið nýja svið í stuttan tíma áður en hann lét af störfum. n bjornth@dv.is Jóhannes Svavar Rúnarsson Fram- kvæmdastjórinn segir að störfin verði auglýst. B resk stjórnvöld beittu sér fyrir því að ráðgjafar alþjóð- lega fjárfestingabankans JP Morgan myndu láta af allri aðstoð sinni við Seðla- banka Íslands og færu af landi brott samhliða því að þau beittu hryðju- verkjalöggjöfinni á Ísland og frystu eignir Landsbankans í Bretlandi. Í setningarræðu sinni á lands- fundi Sjálfstæðisflokksins síð- astliðinn föstudag sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna- hagsráðherra, að „einna lægst lögð- ust“ Bretar í Icesave-deilunni þegar „alþjóðlegum banka sem var hér til þess að koma okkur til aðstoðar, veita okkur ráð, var sagt af bresk- um stjórnvöldum að láta nú af því og koma sér úr landi af því að Ís- lendingar væru undir hryðjuverka- löggjöf.“ Bjarni tilgreindi ekki hver bank- inn væri en samkvæmt heimildum DV er um að ræða fjárfestingabank- ann JP Morgan. Var bankinn helsti ráðgjafi Seðlabankans í kjölfar falls íslensku bankanna og gegndi meðal annars lykilhlutverki við að koma á eðlilegri greiðslumiðlun við útlönd. Ekki hefur áður verið upplýst um þennan þátt breskra stjórnvalda í deilum þeirra við Íslendinga eftir að tilkynnt var um það hinn 8. október 2008 að hryðjuverkalöggjöfinni hefði verið beitt gegn Íslandi. Afdrifaríkur fundur með JP Morgan Þrír fulltrúar JP Morgan, sem störf- uðu allir á vegum bankans í London, komu hingað til lands sunnudaginn 5. október 2008, daginn áður en neyðarlögin voru samþykkt á Al- þingi. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsak- ir falls íslensku bankanna 2008 er greint frá fundum sem ráðgjafar JP Morgan – Michael Ridley, John Bergendahl og Gary Weiss – áttu með Seðlabankanum og fulltrú- um ríkisstjórnarinnar sama dag og þeir komu til landsins. Í rann- sóknarskýrslu Alþingis segir meðal annars að „ákveðin kaflaskil“ hafi orðið varðandi afstöðu ráðherra „til stöðu íslenska bankakerfisins“ á fundi sem þeir áttu með ráðgjöf- um JP Morgan aðfaranótt mánu- dagsins 6. október. Á þeim fundi útskýrðu sérfræðingar JP Morgan að ekki yrði hægt að bjarga bönk- unum og því ráðlögðu þeir að Al- þingi myndi samþykkja sem fyrst sérstakar heimildir fyrir stjórnvöld í því skyni að vernda innlenda starf- semi viðskiptabankanna. Fjórði starfsmaður JP Morgan bættist í ráðgjafahópinn á Íslandi 6. október en sá sem fór fyrir hópn- um var Bretinn Michael Ridley. Samkvæmt heimildum DV var það á fundi í Seðlabanka Íslands síðla dags hinn 8. október, sama dag og Bretar höfðu beitt hryðjuverka- löggjöfinni, þar sem ráðgjafar JP Morgan fengu þau skilaboð frá hátt- settum yfirmanni í bankanum að bresk stjórnvöld hefðu farið fram á það að þeir myndu láta af allri að- stoð sinni við íslensk stjórnvöld og fara af landi brott samstundis. Í kjölfar þessa símtals, samkvæmt upplýsingum DV, viku ráðgjafar JP Morgan af fundinum með Seðla- bankanum og fóru upp á hótel- herbergi. Þeir mættu hins vegar skömmu síðar aftur til fundar upp í Seðlabanka eftir að hafa ákveðið að láta ekki undan þrýstingi breskra stjórnvalda. Komu í veg fyrir meiri skaða Fjárfestingabankinn og ráðgjafar hans gegndu sem fyrr segir lykil- hlutverki á næstu vikum og mánuð- um við að aðstoða Seðlabanka Ís- lands í að koma greiðslumiðlun Íslands við útlönd í eðlilegt horf. Til marks um hversu umfangsmik- il ráðgjöf JP Morgan var þá greindi Morgunblaðið frá því hinn 8. ágúst árið 2009 að kostnaður Seðlabank- ans vegna sérfræðiráðgjafar fjár- festingabankans á síðasta ársfjórð- ungi 2008 hefði numið rúmlega milljarði króna. Sagði í fréttinni ekki víst „að tekist hefði að halda greiðsl- umiðluninni við útlönd jafn greiðri og raun varð á eftir hrun viðskipta- bankanna þriggja ef ekki hefði kom- ið til sérfræðiráðgjafar bankans.“ Þá kom fram í grein sem Tryggvi Pálsson, þáverandi fram- kvæmdastjóri fjármálasviðs Seðla- bankans, birti á vef Landsbankans í nóvember 2011 að mestu erfiðleik- arnir á þessum tíma hafi verið að endurvekja greiðslumiðlunina við útlönd. Hún hafi nánast stöðvast í upphafi vegna þeirrar óvissu sem skapaðist við fall bankanna en að- gerðir breskra stjórnvalda juku mjög á þann vanda. „Seðlabankinn fékk JP Morgan bankann til að ann- ast milligöngu um að koma greiðsl- um til skila. Sú aðstoð var dýr en skaðinn fyrir íslenskt athafnalíf hefði verið margfalt meiri ef lengur hefði dregist að koma aftur á eðli- legri greiðslumiðlun við útlönd.“ n Bretar vildu helsta ráðgjafa Seðlabankans af landi brott Sama dag og hryðjuverkalöggjöfinni var beitt þrýstu bresk stjórnvöld á að JP Morgan hætti að aðstoða Ísland Hörður Ægisson hordur@dv.is Ráðgjafi Seðlabankans JP Morgan gegndi lykilhlut- verki við að aðstoða Seðla- banka Íslands í að koma greiðslumiðlun Íslands við útlönd í viðunandi horf eftir fall fjármálakerfisins 2008. Mynd SigtRygguR ARi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.