Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Blaðsíða 28
24 Fólk Vikublað 27.–28. október 2015 Útgáfuboð Útlagans Jón Gnarr fagnaði með félögum Á dögunum fagnaði Jón Gnarr útgáfu nýjustu bókar sinnar, Útlagans, með húllumhæi á Kex Hostel. Góðir gestir mættu í Gym & Tonic-salinn, þáðu léttar veitingar og hlustuðu á upp- lestur höfundar. Ljósmyndari DV var á staðnum og smellti af nokkrum myndum. n ragga@dv.is Höfundurinn Spessi, Jón Gnarr og Kristín Þorsteinsdóttir, sam- starfskona hans af 365 miðlum. Góðir gestir Hér sjáum við borgarstjórann, Dag B. Eggertsson, og konu hans, Örnu Dögg Einarsdóttur, í djúpum samræðum. Bókamenn Páll Valsson mætti með hattinn og í bakgrunninum sést íbygginn Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. Hressar á Kexi Ilmur Kristjánsdóttir og Þórunn Sveinsdóttir voru hressar og kátar í útgáfuboðinu. Rusl verður að fjársjóði n Skiptimarkaður á Loft hostel n Dino sjálfboðaliði vinnur að sjálfbærni n Elskar Ísland D ino Ðula er frá pínulitlum smábæ í Króatíu en kom til Íslands á vegum verkefnis sem kallast Green Hostels project og er stýrt af alþjóð- legu farfuglasamtökunum, Hostell- ing International, á Íslandi. Þau eru hluti af áttunda hópnum sem kem- ur til Íslands á vegum verkefnis- ins og dvelja á landinu í ár við sjálf- boðastörf. Dino er einn þeirra sem standa fyrir skemmtilegum við- burðum á Loft hostel, sem hvetja til endurnýtingar og sjálfbærni. Skiptimarkaður „Swap till you drop“ er heiti á við- burði sem hefur verið haldinn reglulega á Loft hosteli síðustu tvö árin. „Þetta er vinsælasti viðburður- inn sem við stöndum fyrir. Hundruð gesta hafa mætt þangað með sitt „drasl“ sem hefur umsvifalaust breyst í fjársjóð einhvers annars við eigendaskipti. Flestir eiga svo mikið af fötum og bókum sem þeir eru hættir að nota eða hafa ánægju af. Með viðburðinum veitum við fólki tækifæri til að láta þessa hluti öðlast nýtt líf á nýjum heimilum.“ Næsti „Swap till you drop“-við- burður verður haldinn á Loft hostel í Bankastræti miðvikudaginn 28. október kl. 16.30. Reglurnar eru ein- faldar – hver sem er getur mætt með hrein föt og bækur og tekið með sér heim það sem hugurinn girnist frá öðrum þátttakendum. Engir pen- ingar skipta um hendur og sjálf- boðaliðarnir koma því sem afgangs verður í hendur Rauða krossins. Blaðamaður og ferðalangur Dino hafði lengi dreymt um að komast til Íslands. „Ég kláraði meistaragráðu í blaðamennsku í Zagreb og byrjaði að ferðast um heiminn. Ég var búinn að búa í ár á Spáni áður en ég fékk tækifærið til að koma hingað. Ég sá fyrir algjöra tilviljun auglýsingu um starf sjálf- boðaliða og sótti strax um.“ Dino er ánægður með lífið á Íslandi. „Tím- inn hér er búinn að vera stórkostleg- ur. Ísland hefur mikil áhrif á mig, ég finn innblástur til að gera alls kon- ar nýja hluti og er búinn að ferðast út um allt. Ég er búinn að sjá öll dýr sem búa á eyjunni, seli, lunda, hvali, refi, kindur og hesta, og svo marga fossa og regnboga að það hlýtur að vera einhvers konar met.“ Fyrir utan að hafa ferðast mikið um landið er Dino byrjaður að prjóna lopapeysu, búinn að læra á bíl og dansar í Há- skóladansinum. „Ég er búinn að gera svo margt nýtt hérna og á ennþá hálft ár eftir af dvölinni.“ Sjálfboðaliðarnir standa líka fyrir „Up-cycling café“ og viðburði sem kallast „Once upon a human“. Í endurnýtingarkaffið er hægt að mæta og læra að búa til töskur úr gömlum fötum, veski úr gömlum djúsfernum og fleira, en „Once upon a human“ er viðburður þar sem fólk hittist og segir hvað öðru sögur. Allar nánari upplýsingar er að finna á Facebook-síðu Loft hostels. n Ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is „Tíminn hér er búinn að vera stórkostlegur. Dino Ðula Þetta er ekki innsláttarvilla í eftirnafninu, eðið er þó borið fram eins og „dj“ í þessu tilfelli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.