Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 27.–28. október 2015
Láttu þér líða vel
Opnunartími
Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00
Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00
meccaspa.is
Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma)
Gildir f
yrir alla
r
tegund
ir af nu
ddi við
afhend
ingu þe
ssa
miða.
20%
afsláttu
r
Grunaður um skartGriparán
oG skotárás á sérsveitarmenn
n axel karl Gíslason var yngsti mannræningi Íslandssögunnar n rændi starfsmanni Bónus n margdæmdur ofbeldismaður í gæsluvarðhaldi
a
xel Karl Gíslason, sem
aðeins sextán ára gam-
all rændi starfsmanni
Bónuss og varð þannig
yngsti mannræningi Ís-
lands, situr í gæsluvarðhaldi grun-
aður um hrottalegt skartgriparán í
Gullsmiðjunni í Hafnarfirði síðdegis
á fimmtudaginn.
Samkvæmt heimildum DV var
Axel Karl sá sem skaut að lögreglu
úr loftbyssu þegar sérsveitarmenn
á vegum Ríkislögreglustjóra leituðu
hans í Reykjanesbæ. Leitin beindist
að Reykjanesbæ því Nissan-jepp-
lingur, sem talin er hafa verið not-
aður við ránið, fannst mannlaus
við Grindavíkurafleggjarann á
Reykjanesbraut.
Hrottafengið skartgriparán
Ránið í Gullsmiðjunni var
hrottafengið en samkvæmt upplýs-
ingum frá lögreglu sést í öryggis-
myndavélum þegar tveir menn,
grímuklæddir og vopnaðir exi, ógn-
uðu starfsmanni á sextugsaldri sem
rétt komst undan á flótta. Lögregla
segir myndbandið úr öryggismynda-
vélum verslunarinnar sláandi.
Axel Karl er einn af þeim sem
lögreglan kallar „góðkunningja“ en
þrátt fyrir ungan aldur má rekja af-
brotaferil hans allt til ársins 1998 en
þá var Axel Karl aðeins níu ára.
Rændi starfsmanni Bónuss
Hann fékk viðurnefnið „yngsti
mannræningi Íslands“ þegar hann
rændi starfsmanni Bónuss á Sel-
tjarnarnesi árið 2005. Þá var Axel
Karl sextán ára en fyrir mannránið
hlaut hann tveggja ára fangelsis-
dóm. Axel neyddi starfsmann Bón-
uss í skott á bíl, keyrði með hann
að hraðbanka og neyddi hann til að
taka út 30 þúsund krónur. Axel var á
skilorði á þeim tíma.
Skipulagði ránið á Barðaströnd
Þetta er ekki fyrsta skartgriparán-
ið sem Axel Karl er tengdur við en
hann var einn af hinum svokölluðu
„Barðastrandarræningjum“ en það
var árið 2009 sem tveir menn rudd-
ust inn á heimili úrsmiðs á Barða-
strönd. Mennirnir réðust á hann
með höggum og spörkum, bundu
hann á höndum og fótum með
límbandi og höfðu á brott með sér
fjölda úra, skartgripa, silfurskeiða
og verkfæra að verðmæti tveggja
milljóna króna.
Axel Karl var ekki á meðal þeirra
sem ruddust inn á heimilið en hann
var hins vegar talinn höfuðpaurinn
í málinu þar sem það þótti sannað
að hann hefði skipulagt innbrotið,
gefið mönnunum fyrirmæli og tekið
við þýfinu. Fyrir aðild sína fékk Axel
Karl þrjátíu og fjögurra mánaða
fangelsisdóm. Þetta var árið 2010.
Misþyrmdu fjölskyldu í
Reykjanesbæ
Það ár hélt afbrotasaga Axels Karls
áfram því hann, ásamt öðrum
glæpamanni, Viktori Má Axelssyni,
réðst á mann á sjötugsaldri í
Reykjanesbæ sem var að setja ung-
barn inn í bifreið. Þetta gerðist 3.
maí árið 2010. Axel Karl kom þá að-
vífandi með hníf og hótaði með-
al annars að brjótast inn á heimili
mannsins vegna meintrar skuldar
barnabarns mannsins.
Axel og Viktor ýttu við mannin-
um og kýldu svo hann féll í jörðina
og þar spörkuðu þeir ítrekað í lík-
ama og höfuð hans.
Réðust þeir einnig á dóttur
mannsins er hún reyndi að koma
föður sínum til bjargar og kýldu
hana með krepptum hnefum í and-
lit, þrýstu henni niður í jörðina og
spörkuðu ítrekað í hana og héldu
síðan áfram árásinni á föður henn-
ar sem þá var staðinn upp. Axel og
Viktor felldu hann aftur í jörðina
og spörkuðu áfram í líkama hans
og höfuð. Þá spörkuðu þeir einnig
í hné eiginkonu mannsins er hún
lagðist ofan á eiginmann sinn til að
verja hann árásinni. Þá hótuðu þeir
að stinga manninn með hnífum.
Afleiðingar árásarinnar urðu þær
að maðurinn hlaut nefbrot, rifbeins-
brot, mar og bólgu á enni, bólgu á
vinstra gagnauga, glóðaraugu, risp-
ur kringum hægra auga, skurði und-
ir vinstra auga, tvo skurði á nefi, þrjú
minni sár á andliti vinstra megin,
bólgu yfir kinnbeinum, tognun í
hálsi og hálshrygg og mar á brjóst-
kassa.
Dóttir mannsins hlaut
heilahristing, tognaði á hné og
bólgnaði á hægri ökkla og eigin-
kona mannsins bólgnaði og togn-
aði á hné.
Vopnaður hamri og exi
Axel Karl var sömuleiðis sakfelldur
fyrir tilraun til fjárkúgunar með því
að hafa í kjölfar árásarinnar hringt
í barnabarn mannsins sem fyrir
árásinni varð og sagt því að greiða
60 þúsund krónur innan tuttugu
mínútna ella færi mjög illa.
Axel Karl var þá einnig
Atli Már Gylfason
atli@dv.is
Axel Karl Gíslason
Hér er hann leiddur fyrir
dómara í tengslum við
Barðastrandarránið
árið 2009. Hæstiréttur
þyngdi dóm hans árið
2010. Mynd RóBeRt ReyniSSon
Mannránið árið 2005 Þessi mynd er frá því Axel Karl var leiddur fyrir dómara vegna
mannráns, fjárkúgunar og brota á vopnalögum árið 2005. Mynd GunnAR V. AndRéSSon
s
ölvi Steinn sonur minn er í
greiningarferli, það er búið að
taka okkur meira en ár að kom-
ast að en á öllum þessum tíma
þá hefur okkur ekki verið boðin nein
aðstoð,“ segir Ólöf Steinunn Lárus-
dóttir í samtali við DV en hún stend-
ur í dag fyrir fyrirlestri í Reykjanesbæ,
„Einhverfa og skipulögð kennsla“.
Erindið flytur Svanhildur Svavars-
dóttir, talmeinafræðingur, sérkennari
og sérfræðingur í boðskiptafræðum
barna með einhverfu.
„Ég veit að Sölvi minn er ekki eina
barnið á svæðinu sem þarf aðstoð en
það sem hægt er að gera betur er að
fræða og kenna foreldrum barna með
einhverfu eða þeim sem eru í grein-
ingarferli hvernig þau geta aðstoðað
og kennt sínum börnum,“ segir Ólöf.
Svanhildur starfar nú í Arizona í
Bandaríkjunum þar sem hún sinnir
kennslu, ráðgjöf og uppbyggingu sér-
deildar fyrir einhverfa. Svanhildur hef-
ur áratuga reynslu af þessum mála-
flokki og er hafsjór af fróðleik um
einhverfu.
„Það er svo margt sem við getum
gert til að hjálpa börnunum okkar sem
skilar sér svo aftur út í samfélagið því
það er nú bara þannig að því fyrr sem
gripið er inn í því betra er það fyrir
alla, okkur og sveitarfélagið,“ segir Ólöf
sem kann Svanhildi miklar þakkir fyr-
ir aðstoðina með son sinn. „Ég er það
heppin að hafa hitt Svanhildi áður með
Sölva, en hún gat kennt mér og komið
mér í skilning um svo margt á þessum
stutta tíma sem við sátum saman. Frá
því ég fór út frá henni hef ég hugsað
mikið um það hversu margir foreldr-
ar séu þarna úti í sömu sporum og ég.“
Hún vonast til að í framhaldinu munu
bærinn og aðrir sem hafi þekkingu og
vilja haldi áfram að fræða. Fyrirlestur-
inn hefst klukkan eitt og fer fram í Mið-
stöð Símenntunar á Suðurnesjum. n
einhverfa og
skipulögð kennsla
Fyrirlestur í Reykjanesbæ um einhverfu
ólöf Steinunn og sonur hennar
Stendur fyrir fyrirlestri í Miðstöð Sí-
menntunar á Suðurnesjum undir yfirskrift-
inni „Einhverfa og skipulögð kennsla“.