Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Side 14
Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 14 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Eggert Skúlason og Kolbrún Bergþórsdóttir Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson • Umsjónarmaður innblaðs: Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Vikublað 27.–28. október 2015 Á þessum árum var staðalpakkinn fyrir konur p-pillan og librium Skarpari skil – meira fjör Andrea Jónsdóttir lærði margt þegar hún vann í apótekinu á Selfossi. - DV S tór og tíðindamikil pólitísk helgi er að baki. Tvö stór öfl í íslenskum stjórnmálum héldu landsfundi sína. Eftir þessa helgi eru skilin orðin skarpari í ís- lenskum stjórnmálum og menn þora aftur að kannast við krógann sinn. Vinstri græn fóru á Selfoss og sam- þykktu ályktanir sem flestar voru mjög til vinstri og var ekki annað að heyra en fundarmenn væru stoltir af því. Formaðurinn lýsti því yfir að það væri stórt viðfangsefni hvernig Ísland geti orðið kolefnishlutlaust land árið 2050. Enn á ný eru umhverfismálin sett á oddinn. Og sjálfstæðismenn fylltu Laugar- dalshöll og samþykktu að verða aft- ur sjálfstæðismenn, komu með ýmsar ferskar áherslur um minni ríkis afskipti, lægri skatta og að selja beri Ríkisútvarpið. Sjálfstæðisflokk- urinn fyrir nokkrum árum var alveg hættur að þora að samþykkja svona ályktanir. Ungliðarnir gerðu sig gild- andi og kynslóðaskipti kunna að vera fram undan. Kollsteypur í því sam- hengi eru þó ekki skynsamlegar. Kok- teillinn þarf að innihalda rétt hlutfall til að höfða til kjósenda. Þetta er skemmtileg staða og býð- ur upp á meira fjör í umræðunni. Flestir landsmenn vilja líkast til minna persónulegt skítkast en þess í stað meiri og dýpri umræður um málefni. Umpólunin sem varð um helgina skapar líka meira rými á miðj- unni, þar sem gamla Framsókn gerir sig enn gildandi og kemur alltaf öllum á óvart í kosningum. Samfylkingin á næsta leik. Ekki er langt um liðið frá því að flokkurinn leitaði lengra til vinstri og féll það ekki í frjóan jarðveg. Átök eru fram undan í Samfylkingunni og óvíst hvernig skip- ast í forystu en ljóst er að for maður flokksins er veikur eftir sögulega kosningu þar sem munaði einungis einu atkvæði. Forvitnilegt verður að sjá málefnavinnuna á næsta lands- þingi Samfylkingarinnar en tíma- setning á þeim fundi liggur ekki fyrir. Haldi Samfylkingin vel á spöðunum má gera ráð fyrir að hið mikla svig- rúm sem Píratar hafa haft kunni að minnka. Sá tónn sem sleginn var beggja vegna Hellisheiðarinnar um helgina gefur góð fyrirheit um þann pólitíska vetur sem gekk í garð um helgina. n Er sjálfsvirðingin komin í jólasölukösina? E r réttara að fela blygðun- ina í sjálfsvirðingu manns en að bera hana nakta á torg og blása hana upp í fjölmiðlum? Fyrrum mátti enginn sóma- kær Íslendingur „blotta“ sig. Orðið „blotta“ merkti niðurlægingu að- eins við hæfi skammarlegra kvenna í dönskum vikublöðum. Nú er öldin önnur. Dönsk „dömublöð“ sjást varla lengur en íslensk samtímasiðsemi segir: Út með naflann, brjóstin ber, verum druslur að neðan! Fyrir bragð- ið bíður þjóðin spennt yfir að vita hvað komi næst úr huga og hegðun íslenskra stjarna. Nú síðast ekkert smáræði fyrir fá- menna þjóð til að smjatta á í fögru landi: Fyrrverandi borgarstjóri, skáldævisagnametsöluhöfundur og væntanlegur Jón forseti Gnarr, hef- ur loksins fengið nafnleiðréttingu og segir í Kiljuviðtali berum orðum við bókmenntakóngsann að hann hafi líka áður fengið skaufaleiðréttingu. Það hafði verið skorið undan hon- um en hann átti því láni að fagna að í staðinn fyrir að skaufinn færi í Sorpu var honum smellt aftur leiðréttum á sinn stað af læknum. Ef hann verð- ur kosinn forseti, Ísland á það skilið, yrði hann fyrsti þjóðhöfðingi heims með virkan, leiðréttan skaufa sem var skorinn af og skellt á aftur. Ótrú- legt þykir að íslensk læknavísindi séu komin svona langt í skaufaaf- skurði og skaufaá- græðslu. Kiljukóngsi hefði átt að láta viðmælandann sýna typpið til að sanna mál sitt. Þá hefði þjóðin séð hvort forsetaefnið fari með skálda- fleipur eftir að hafa verið sannleiks- prúður borgarstjóri. Mörgum Kilju- fíklum fannst þeir hafa verið sviknir um grasið fyrst þeir fengu ekki að sjá með berum augum það sem borið var fyrir þá í mynd og orðum. Eitthvað hefur játning Jóns borist til eyrna er- lendra ferðamanna. Í morgun var röð fyrir utan Íslenska reðursafnið. Íslandsvini á gönguklossum lang- aði að sjá hvort limur besta-folans væri kominn þar á stall eða eftirlíking hans fengist í lundabúðum. Japönsk stúlka með silkimjúk augu bar spjald með stóru letri: Jón Gnarr ペニス. Nú kemur hver stórfréttin á fætur annarri í jólabókaflóðinu: Hallgrími Helgasyni rithöfundi kvað hafa verið nauðgað, í nýrri bók, með þeim af- leiðingum að við samningu hennar hafi einskonar sveskjusteinn (kannski í líkingu við steinbarn Laxness?) gengið niður af honum úr sálinni eða földu móðurlífi í einskonar homma- skáp í skrokknum. Hallgrímur er engin ljósmyndafæla heldur það sem í útlöndum er kallað myndatott- ari, svo þjóðin hefur drukkið í sig út- lit hans. Þess vegna sagði kvikindi: Hvaða kynvillingur hefur haft svona slæman smekk? Hefði ekki verið eins gott að fara upp á marglyttu og að fást við saklausa þjóhnappa hans? Lík- lega mun hið sanna seint koma í ljós. Til þess þyrfti skáldið, að eigin sögn, að skrifa þúsund blaðsíðna bók með brennandi efni við 1000 gráðu skap- andi hita. En þjóðin með sína heims- frægu samúð spyr: Hví kærir maður- inn þetta ekki? Það er ekki of seint. Honum yrði tekið opnum örmum í Konukoti þar sem hann gæti „unnið í sjálfum sér“ eins og margir og margar til að endurfæðast síð- an með „miklum létti“. Og hvað með Lindu Pé? Fegurst kvenna er farin að selja utan af sér ekki druslur heldur frægðargall- ann í Kolaportinu, þar sem hún hef- ur aldrei komið áður. Hún selur að sögn kápu, gallabuxur og kannski „einlægan undirfatnað“ með drottn- ingarilmi liðinnar tíðar. Svona eru örlög mikilmenna á Ís- landi: Borgarstjóra, rithöfunda og fegurðardísa. Hvar ætlar þetta að enda? Á Bessastöðum? Varla kom- ast þó allir þjáðir, eineltir og fyrir- litnir þangað. Ætli hinn þaulsætni Brúsaskeggur bíði ekki í brekkunni og þrauki mosavaxinn? Sagt er að á Íslandi sé ekki annar hæfari en hann til að vera eftirlegukind, hvorki gimb- ur né hrútur. Væri því ekki ráð af biðja rithöfundinn Einar Má að biðja dýrk- endur sína, Dani, að senda okkur til bjargar eitt stykki af Jörundi hunda- dagakonungi? Varla mun Hillary Clinton biðja um hæli hér sem flótta- frambjóðandi og fá forsetaembættið í fjölmenningarsamfélaginu okkar á silfurfati. n Guðbergur Bergsson rithöfundur Kjallari Mynd SkJáSkot Af vef RÚv Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Tókum harða afstöðu gegn svona málflutningi áslaug Arna og félagar gáfu Gústafi Níelssyni rauða spjaldið á landsfundi. - DV Að syngja og semja er mitt líf Svala Björgvins er hæstánægð með lífið í tónlistinni. - DV Umboðslaust söluferli Stjórnendur Íslandsbanka kunna ráðgjöfum stjórnvalda líklega litlar þakkir fyrir að hafa gengið frá samkomulagi við kröfuhafa Glitnis um að eignarhaldið á bankanum færist alfarið í hend- ur ríkisins. Hún var hins vegar furðuleg yfirlýsing Birnu einars- dóttur, bankastjóra Íslandsbanka, í kjölfar tíðindanna í liðinnu viku þar sem hún lét hafa það eftir sér í fjölmiðlum að þetta hefði engin áhrif á söluferli bankans. Það myndi halda áfram eins og ekkert hefði í skorist. Sú fullyrðing bankastjórans stenst augljóslega ekki. Fyrir liggur að eigandi bankans, slita- bú Glitnis, hefur ákveðið að hætta við söluferlið og þess í stað framselja 95% hlutinn til ríkisins. Af hálfu stjórnvalda, sem munu skipa nýja stjórn yfir bankanum, hefur engin ákvörðun verið tekin um hvernig – eða hvenær – staðið verður að sölu á hlutnum. Leiðari eggert Skúlason eggert@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.