Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Side 16
Vikublað 27.–28. október 20152 Heimilið - Kynningarblað
Þykkt hágæða parket
og vönduð einingahús
Parketverksmiðjan, Síðumúla 31
P
arketverksmiðjan, Síðu
múla 31, er í raun úti
bú parketverksmiðju sem
rekin er í Litháen en er í
eigu íslenskra aðila. Efni
viðurinn í parketinu er timbur frá
Litháen, Rússlandi og Úkraínu.
Viðskiptavinir Parketverksmiðj
unnar sækja annars vegar í fallegt
útlit parketsins og hins vegar róm
uð gæði þess:
„Við notum eingöngu birkikross
við í undirlag parketsins á meðan
flestir aðrir framleiðendur nota
furu eða einhvern annan við.
Birkikrossviðurinn er dýr, en hef
ur ótvíræða kosti, þolir betur raka
og bleytu og er harðari. Styrkurinn
í birkikrossviðnum spornar við
hreyfingu í viðnum og það kemur
sér vel í húsum þar sem hiti er í
gólfi,“ segir Ævar Gíslason, fram
kvæmdastjóri Parketverksmiðj
unnar.
Þá eru plankarnir þykkari hjá
Parketverksmiðjunni en gengur
og gerist. „Parketið okkar er yfir
leitt um 16 mm þykkt, og er þá
birkikrossviðurinn 12 mm og eikin
vinsælust á yfirborðinu, 4 mm. Við
framleiðum þó allt að 21 mm þykka
planka þar sem yfirborðsviðurinn
er 6 mm á þykkt,“ segir Ævar og
bendir á að þykkara parket sé
ávísun á lengri endingu. „Ef yfir
borðslagið er þykkara þýðir það
að það má pússa parketið oftar
upp. Margir framleiðendur eru í
dag farnir að þynna hjá sér planka
parketið og yfirborðslagið
jafnvel bara 2 mm á þykkt
sem þýðir að gæðin eru
minni og ekki að því hlaup
ið að slípa parketið ef fólk vill
hressa upp á viðinn eða jafn
vel lakka hann í nýjum lita
tón.“
Sumir viðskiptavinanna
leita til Parketverksmiðj
unnar til að fá parketið sér
framleitt. Þannig útvegaði
verslunin stafaparketið sem
notað er í her
bergjunum á
Apótek Hótel í
Austurstræti en
arkitektinn bað
um parket sem
myndi líta út
eins og það væri
gamalt. „Park
etið þurfti helst
að líta út fyrir
að vera 100 ára.
Við náðum fram
þeim áhrifum
með því að bursta
parketið, hamra
og höggva og út
koman var mjög
góð,“ útskýrir Ævar. „Við getum
sérframleitt í litlu magni og þar
sem yfirbyggingin er lítil þá þarf
sérsmíðaða parketið ekki að vera
dýrara en það sem keypt er beint
af lager.“
Auk þess að selja vandað park
et selur Parketverksmiðjan líka
vönduð einingahús sem má fá
smíðuð eftir máli ef svo ber und
ir. Nú þegar má finna um þrjátíu
einingahús frá Parketverksmiðj
unni hér á landi. Nú síðast bættist
við smíði bað herbergiseininga og
er hægt að panta baðherbergi full
búið í hvaða pláss sem er, með flís
um, lýsingu og öllu hinu. Húsin má
klæða að utan hvort heldur sem er
með timbri, bárustáli, eða flísum og
getur verið hagkvæmur kostur. Þá er
byggingartíminn mjög stuttur þegar
einingarnar eru komnar á staðinn.
Heimasíða Parketverksmiðj
unnar: http://parketverksmidjan.
is/ Netfang: aevar@parketverk
smidjan.is Símar: 581 2220 og 840
0470 n
Ævar Gíslason Fram-
kvæmdastjóri Parketverk-
smiðjunnar. Mynd SiGtryGGur Ari