Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2015, Blaðsíða 19
Sport 15Vikublað 27.–28. október 2015
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
Umhverfisvænir pokar
sem brotna niður í umhverf inu
Nánari upplýsingar á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
• Umhverf isvænu plastpokarnir f rá PMT eru ekki maíspokar
• Þe ir eru með skaðlaust d2w íblöndunarefni
• d2w breyt ir plastpokunum að líf tíma
þe irra loknum svo að þe ir samlagist
nát túrunni á sama hát t og laufblað
Við bjóðum uppá alls kyns gerðir af
umhverfisvænum plastpokum. Íslensk plastfyrirtæki
sem vilja gerast umhverfisvænni geta jafnframt
fengið hjá okkur íblöndunarefni.
Pokar í
s töðluðum stærðum
eða
séráprentaðir
Gamli GluGGinn úr
nýi GluGGinn í
svo einfalt
er það!
súðarvoGur 3-5, reykjavík
GluGGaGerdin@GluGGaGerdin.is
s: 5666630 / GluGGaGerdin.is
8 eftirmenn Mourinho
n Örlög Mourinho ráðast í vikunni n Þessir þykja líklegastir til að taka við
Brendan Rodgers
Þjálfar: Hvergi
n Fyrir liggur að Rodgers er laus nú þegar.
Spurningin er hvort Rodgers þykir nógu
hæfur. Hann var nú þrátt fyrir allt nálægt því
að leiða Liverpool til Englandsmeistaratitils.
Það gerir ekki hver sem er. Þá vann hann hjá
Chelsea á fyrra skeiði Mourinho hjá félaginu.
Pep Guardiola
Þjálfar: Bayern München
n Stjóri Bayern München er efstur á óska-
listanum. Hann færi ekki frá þýsku risunum
fyrr en eftir leiktíðina, þegar samningur
Spánverjans við Þýskalandsmeistarana
rennur út.
Carlo Ancelotti
Þjálfar: Hvergi
n Ancelotti leiddi Chelsea til tveggja titla
leiktíðina 2009/2010. Fáir státa af betri
árangri en sú staðreynd að hann var rekinn
frá Chelsea fyrir tæpum fimm árum dregur
úr líkunum.
Diego Simeone
Þjálfar: Atletico Madrid
n Stjóri Atletico Madrid er einn eftirsóttasti
bitinn á markaðnum, eftir að hafa náð frá-
bærum árangri með félagið. Hann skrifaði
hins vegar undir samning við liðið sem gildir
til ársins 2020.
Ronald Koeman
Þjálfar: Southampton
Koeman hefur náð góðum árangri með
Southampton þrátt fyrir að hafa komið til
félagsins þegar nokkrir af bestu leikmönn-
um þess voru horfnir á braut. Liðið leikur
skemmtilegan bolta. Vænlegur kandídat.
John Terry
Þjálfar: Leikur með Chelsea
n Ekki er talið útilokað að fyrirliði Chelsea síð-
asta áratuginn fái sénsinn ef einhver þarf að
leysa stöðu knattspyrnustjóra til sumarsins.
Terry er ótvíræður leiðtogi og nýtur mikillar
virðingar leikmanna og annarra hjá félaginu.
Spurningin er hvort hann kæri sig um starfið.
Gus Poyet
Þjálfar: Hvergi
n Þegar fyrrverandi leikmaður tók síðast
við Chelsea, Rogberto Di Matteo, vann liðið
óvænt Meistaradeild Evrópu. Gæti Poyet
haft svipuð áhrif? Úrúgvæinn lék meira en
100 leiki fyrir félagið og er á lausu eftir að
hafa kvatt Sunderland fyrr á árinu.
Laurent Blanc
Þjálfar: PSG
n Þessi fyrrverandi þjálfari Frakka hefur
staðið sína vakt hjá PSG með sóma. Hann
hefur stýrt liðinu til tveggja franskra
meistaratitla í röð og sló Chelsea út í 16 liða
úrslitum Meistaradeildarinnar í fyrra.
T
alið er að framtíð „hins ein
staka“ Jose Mourinho ráð
ist í þessari viku. Undir
hans stjórn hefur meistara
lið Chelsea farið illa af stað á
leiktíðinni. Liðið situr í 15. sæti með 11
stig eftir 10 leiki. Liðið er nú þegar 11
stigum á eftir liðunum í toppsætinu.
Þegar maður vinnur fyrir Roman
Abramovic – og hefur einn dýrasta
leikmannahópinn í Evrópuboltan
um á sínu forræði – er sá árangur ekki
boðlegur. Talið er að leikirnir í vik
unni, gegn Stoke og Liverpool, ráði úr
slitum um það hvort Mourinho verði
látinn fara. Hér eru átta menn sem
taldir eru líklegastir til að leysa Mour
inho af hólmi, fari allt á versta veg. n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is