Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Side 20
Helgarblað 8.–11. maí 201520 Fréttir
Fjársvelti er að brjóta
upp heilbrigðiskerfið
n Vaxandi einkarekstur framkallar ný álitamál n Snýst ekki bara um að græða peninga
H
eilbrigðisráðherra, land-
læknir og formaður Lækna-
félags Íslands eru ekki and-
vígir blöndun opinbers
rekstrar og einkarekstrar í
heilbrigðiskerfinu. En í samtölum
við DV gjalda þeir varhug við því að
frekari vöxtur einkarekinna lækn-
ingamiðstöðva dragi úr þreki og getu
sjúkrahúsa eins og Landspítalans
til þess að sinna hlutverki sínu sem
háskólasjúkrahús og miðstöð fyrir
flóknar og dýrar lækningar.
„Eðlilega koma alltaf upp spurn-
ingar um verkefni opinbera kerfisins
og fjölbreyttari rekstrarform í heil-
brigðisþjónustunni. Af því að nefnd
er þessi nýja þjónusta þar sem bjóða
á brjóstaskurðlækningar þá kom
þetta upp fyrr í vetur. Mín fyrirmæli
voru þau að við héldum þessari getu
og þekkingu innan Landspítalans.
Við erum ekkert að fikta í því og ég
hef engin áform um það,“ sagði Krist-
ján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra
í samtali við DV.
Birgir Jakobsson landlæknir tók
í sama streng um þetta atriði: „Það
þarf að vera skýrt hvaða hlutverk
einstaka heilbrigðisstofnanir hafa.
Ég held að það þurfi að hugsa það
mál tvisvar ef maður ætlar að koma
þjónustu, sem að mörgu leyti er hluti
af hátækniþjónustu, fyrir annars
staðar en á hátæknisjúkrahúsi.“
Þorbjörn Jónsson, formaður
Læknafélags Íslands, tekur í sama
streng um hlutverkaskiptinguna í
hátæknilækningum og bendir á að
breytingar á samningum sérgreina-
lækna við Sjúkratryggingar Íslands
og rekstur læknamiðstöðva und-
ir arðsemiskröfum fjárfesta væri
nýjung innan heilbrigðiskerfisins.
Samhæfing versnar – kostnað-
ur eykst
Vilhjálmur Arason læknir hefur í
ræðu og riti fjallað um vanda heil-
brigðisþjónustunnar sem hann telur
að sé meiri nú en fyrir um hálfum
öðrum áratug. Ein brotalömin er að
hans mati vaxandi samskiptavandi
og miðlun upplýsinga
milli einkarekna kerf-
isins og opin beru
heilsugæslunnar og
sjúkrahúsanna. Þar
viti hægri höndin ekki
hvað sú vinstri sé að
gera, í mörgum til-
vikum vegna skorts á
flæði upplýsinga um
sjúkrasögu sjúklinga,
læknabréf og fleira. „Í
gegnum Heilsugáttina
getum við vitað hvað
aðrir eru að gera með
sama sjúklinginn. Það
er vont að þetta skuli
vera í lamasessi. Ef
heilsugæslan væri
heilsteypt væri þetta
kannski í betra lagi.
Og þetta eykur kostnað og fyrirhöfn.“
Vilhjálmur bendir einnig á að
eftirlit með útgjöldum þurfi að vera
kerfisbundið. Mikill vöxtur innan
einkarekinnar þjónustu, til dæm-
is í fegrunarlækningum, geti leitt
til lýðheilsuvanda síðar og kostn-
aðar sem leggist á sjúkrahúsin og
opinberu þjónustuna. Nefna megi
gölluðu silíkon-brjóstapúðana sem
urðu valdir að heilsutjóni hundraða
kvenna. „Ung kona var komin með
drep í brjóst vegna þess
að hún hafði látið setja
hring í geirvörtu. Hún
kvaðst aldrei hafa látið
setja hringinn ef hún hefði
verið upplýst um áhætt-
una. Svona tilvik lenda svo
á almenna kerfinu.“
Vilhjálmur segir vanda
heilbrigðiskerfisins marg-
þættan og hann tengist
þróuninni í átt til einka-
rekstrar. „Ég sé ekki að þetta leys-
ist nema með því að laga kjörin því
annars brjótast menn út úr kerfinu
og vilja fara í bisness og verðleggja
sig í samræmi við kollega erlendis.“
Snýst ekki bara um að græða
peninga
Í nýútkomnu hefti Læknablaðsins
ritar Magnús Baldvinsson, læknir
og stjórnarmaður Læknafélagsins,
grein um einkavæðingu í heilbrigðis-
þjónustu. Hann segir að í rekstri sín-
um og annarra í Röntgen Dom-
us fái menn reglulega fyrirspurnir
um hvort ekki sé hægt að borga sig
framhjá biðlistum. „Ekki hefur verið
opnað fyrir slíkt en það er þó vel
þekkt frá nágrannalöndunum. Þar
er þetta jafnvel komið enn lengra og
alvanalegt er að fólk vilji borga sjálft
alla upphæðina til þess að komast
framhjá biðröðum. Þetta hefur síð-
an aftur leitt til þess að trygginga-
fyrirtæki hafa séð sér leik á borði
og bjóða nú tryggingar sem dekka
þennan kostnað. Nokkuð algengt er
að slíkar tryggingar séu orðnar hluti
af launakjörum fólks, til dæmis í
Noregi. Það virðist því vera góð leið
til þess að styrkja einkarekstur að
takmarka um of greiðsluþátttöku
ríkisins. Að sjálfsögðu er þetta ekki
bara svona einfalt og fleira kemur til,
fjárskortur til opinbera kerfisins hef-
ur að vissu leyti sömu áhrif. Nú kann
margur að halda að ef nóg fjármagn
er sett í opinbera kerfið verði engin
eftirspurn eftir einkarekstri og hann
í raun óþarfur.“
Magnús lýkur grein sinni með
eftirfarandi orðum um leið og hann
lýsir áhyggjum af gæðum þjón-
ustunnar: „Ég held ég geti mælt fyr-
ir munn flestra sem tilheyra þeim
hópi sem vinnur í „einkageiranum“
að slíkar kröfur til einkarekstrar eru
æskilegar og bara til þess fallnar að
auka gæði þjónustunnar og veita
hinu opinbera aukna og heilbrigða
samkeppni um verkefni og starfs-
fólk. Því þrátt fyrir það sem margur
heldur, snýst einkarekstur ekki bara
um að græða peninga, við erum líka
læknar.“ n
Jóhann Hauksson
johannh@dv.is
Fjölgun
einkarekinna
læknastöðva
Samþætt einkarekin heilbrigðis-
þjónusta í Hótel Íslandi
Eva ehf. er félag í eigu Ásdísar Höllu
Bragadóttur og fleiri. Það leiddi
þróunarstarfið í Hótel Íslandi og vildi
meðal annars breyta starfseminni
í gríðarstóru rými þar sem áður var
skemmtistaðurinn Broadway. Eva á
og rekur Heilsumiðstöðina sem rekur
Hótel Ísland, en leigir húsið allt, 9.300
fermetra, af fasteignafélaginu Reitum
hf. Reitir hafa nýverið fest kaup á Hótel
Íslandi en á fyrir megnið af Kringlunni
og stærstu hótelin í höfuðborginni svo
nokkuð sé nefnt.
Læknarnir, sem þar ætla að koma
upp sérhæfðri miðstöð til kvensjúk-
dómalækninga með skurðstofuaðstöðu,
gera sjálfstæða samninga við Sjúkra-
tryggingar Íslands og starfa eins og
aðrir sérfræðilæknar, til dæmis í Domus
Medica, Orkuhúsinu og víðar. Þeir hafa
stofnað rekstrarfélag sem heitir Klíníkin
sem að sínu leyti leigir aðstöðuna fyrir
læknana í umræddum hluta hússins.
Ásdís Halla segir að inn í húsið flytji
fyrirtækið Sinnum ehf., sem einnig er í
eigu Evu ehf. Sinnum er heimaþjónusta
við einstaklinga sem vegna aldurs,
fötlunar, heilsubrests eða annarra
persónulegra aðstæðna þurfa á
hjúkrun og aðstoð að halda til að búa
heima. Sinnum hefur verið til húsa
við Holtsbúð í Garðabæ þar sem áður
var nunnuklaustur St. Jósefssystra.
Garðabær festi kaup á húsinu í apríl í
fyrra með þeirri kvöð að húsið verði nýtt
í þágu aldraðra, heilbrigðisþjónustu
eða annarra mannúðarmála. Sinnum,
sem greiðir Garðabæ 500–600 þúsund
krónur í leigu á mánuði, hefur sagt leig-
usamningi upp og flytur í Hótel Ísland
eins og áður segir.
Þess ber að geta, að í byggingunni
verður áfram rekið yfir hundrað her-
bergja hótel, þó þannig að nokkur þeirra
verða tekin undir sjúklinga sem til dæm-
is eru að jafna sig eftir skurðaðgerðir eða
koma af landsbyggðinni til lækninga.
Með umtalsverðum og dýrum
breytingum, sem nú standa yfir, breytist
nýting hússins og hlutverk þess verður
nær því að geta kallast heilsuhótel.
„Svona tilvik lenda
svo á almenna
kerfinu.
Versnandi kerfi Vilhjálmur Arason: „Það er vont að þetta skuli vera í lama-
sessi. Ef heilsugæslan væri heilsteypt væri þetta kannski í betra lagi.“
Heilsuhótel Í Hótel Íslandi verður nýjasta einkarekna læknamiðstöðin sem sérhæfir sig í kvensjúkdómalækningum með aðstöðu til skurðaðgerða.
Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is
gæði – þekking – þjónusta
ISHIDA WM-NANO
FILMUPÖKKUNARVÉL MEÐ MIÐAVOG
Nánari upplýsingar
á www.pmt.is
eða í síma 567 8888
Filmupökkunarvél á borð
með Uni 7 sem er nýjasta
miðavog Ishida
Ishida Nano hentar
fyrir pökkun á ávöxtum,
kjöti og fisk
Hægt er að nota
pökkunarvél með eða án
vigtunar og prentunar