Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Síða 26
Helgarblað 8.–11. maí 201526 Umræða Þ etta atvik, sem aldrei átti að verða annað en grín, hefur haft mjög alvarlegar af- leiðingar í för með sér fyrir mig. Fjölskylda mín varð að vonum felmtri slegin þegar hún heyrði um þessa ótímabæru og óvenjulegu giftingu mína. Sjálf varð ég alveg miður mín þegar ég áttaði mig á að grínið var orðið að löglegri giftingu.“ Svo mælti ung kona í sam- tali við DV árið 1984, en líklega eru fá dæmi um að fólk hafi endað í hjú- skap – nánast að því sjálfu forspurðu. Hér segir þó frá einu slíku atviki. Hitta fyrir allsherjargoðann Kona nokkur og maður voru stödd ásamt fleiri kunningjum sínum á hádegisbarnum á Óðali við Austur- völl sunnudag nokkurn í nóvember- mánuði 1982, en þau munu aðeins hafa þekkst lítils háttar. Grípum nið- ur í frásögn konunnar: „Þá kemur til mín kunningi minn, sem var nokk- uð við skál, bendir mér á Sveinbjörn allsherjargoða, sem einnig var á hádegisbarnum, og segir: „Eigum við ekki að láta hann gifta okkur?“ Þar átti maðurinn við Sveinbjörn Beinteinsson, allsherjargoða ása- trúarsafnaðarins. Sveinbjörn var þjóðkunnur maður á sinni tíð. Hann var fæddur í Grafardal í Skorradalshreppi árið 1924, en var frá árinu 1944 bóndi að Draghálsi, auk þess að fást við kveð- skap og skemmta landsmönnum með rímnasöng. Hann hafði aðdáunar- vert lag á fornum bragarháttum. Sveinbjörn var afar forn í útliti og þótti fara vel á því að hann væri talsmaður hins gamla átrúnaðar, sem kenndur er við æsi. Hjónavígslur í sið ásatrúarmanna voru afar fátíðar á þessum árum, en söfnuður- inn var stofnaður árið 1972 að frumkvæði Sveinbjarnar. Hann fékk þá leyfi dóms- og kirkjumálaráðuneytis til að framkvæma athafnir eins og hjónavígslur, nafngjafir og útfarir. Að auki framkvæmdi Sveinbjörn ýmsar helgiathafnir, þar sem goðin voru blótuð. Ásatrúarfélagið var fyrsta löggilta heiðna trúfélagið í heiminum. „Meiriháttar grín“ Hverfum aftur niður á Óðal í nóv- embermánuði 1982. Konan kvaðst ekki hafa tekið manninn alvarlega þegar hann lagði til að allsherjar- goðinn gæfi þau saman og sagði svo frá: „Ég tók þessu vitaskuld sem al- gjöru gríni og spurði kunningjann hvort hann væri nú alveg að spila út. Enda var hugmyndin fáránleg og hlægileg í senn.“ Konan sagði sprellið hafa tekið allan hug kunn- ingja síns, sem hefði gengið til alls- herjargoðans og gefið sig á tal við hann. Segist henni síðan frá svo: „Kom svo máli þeirra að kunningi minn spurði Sveinbjörn hvort hann vildi ekki gifta okkur. Sveinbjörn taldi ekkert því til fyrirstöðu og kvaðst vera til- búinn til þess þá þegar. En hann sagðist vilja fá okkur út fyrir því hann vildi ekki fremja athöfnina inni á barnum. Við mikil hlátrasköll og ærsl fórum við svo út og okkur fannst þetta afskaplega sniðugt, enn sem komið var, og raunar meirihátt- ar grín.“ Vinkona brúðarinnar var með í för og piltur sem þau þekktu. Til stóð að gefa þau líka saman en ekki varð þó af því. Konan segir svo frá: „Ég og vinkona mín raul- uðum brúðar marsinn á leiðinni út og höfðum stórlega gaman af öllu saman.“ Undir minnismerki Jóns Sig- urðssonar spurði allsherjargoðinn þau að nafni og hvort þau hefðu verið gift áður. Að auki fékk hann nafnnúmer þeirra og nöfn svara- manna. Þessar upplýsingar skráði hann allar hjá sér í litla minnisbók. Því næst spurði hann brúðina og brúðgumann hvort þau vildu játast hvort öðru og gekk það greiðlega. Það með var athöfninni lokið. Rétt er að taka fram að hjóna- vígsla er afar einföld athöfn. Til að hún teljist lögleg þarf ekki annað en löggiltan vígslumann, það að hjónin játist hvort öðru og svo þarf vígslumaðurinn að vígja viðkom- andi. Öllum formskilyrðum var hér fullnægt. Ekki skipti máli þótt brúð- hjónin væru ekki félagar í ásatrúar- söfnuðinum. Pappírar undirritaðir Brúðhjónin héldu áfram að skemmta sér og vissu ekkert frekar af ráðahagnum fyrr en allsherjar- goðinn hélt heim til brúðgumans sex dögum síðar og hafði þar með- ferðis svokallað könnunarvottorð, sem þau skyldu bæði skrifa undir, og þar að auki afhenti hann honum yfir lýsingu þess efnis að brúðgum- inn hygðist ganga í ásatrúarsöfn- uðinn. Um kvöldið hófst skemmtanalíf- ið að nýju með partíi hjá brúðgum- anum og þangað var brúðinni boð- ið ásamt fleiri góðum gestum. Þar dró hann fram pappírana sem alls- herjargoðinn hafði komið með fyrr um daginn. Bað hann brúðina að undirrita könnunarvottorðið sem hann vildi geyma „til minningar“ um athöfnina á Austurvelli. Brúð- urin segir svo frá: „Ég var treg til í fyrstu en lét svo til leiðast gegn því loforði að pappírarnir færu aldrei úr hans höndum.“ Daginn eftir kom allsherjar- goðinn aftur í heimsókn til brúð- gumans til að sækja pappírana og gekk hart eftir að fá þá. Brúðguminn mun hafa verið orðinn „illa slæptur“ eftir langar vökur og gleðskap og lét á endanum pappírana af hendi „til þess eins að losna við kallinn og komast aftur í rúmið“, eins og hann sagði sjálfur frá. Gifting meira en fíflalæti á Austurvelli Þegar bráði af brúðgumanum daginn eftir hringdi hann í eigin- konu sína og tjáði henni að hann hefði látið Sveinbjörn allsherjargoða hafa pappírana. „Mig fór þá að gruna margt,“ segir brúðurin, sem hringdi í Hagstofuna nokkru síðar og spurði hvort allsherjargoðinn hefði skilað inn einhverjum pappírum. Starfs- maður Hagstofunnar svaraði þá að bragði: „Er það giftingin á Austur- velli?“ Brúðinni var því næst til- kynnt að hún væri nú löglega gift og gengin í hjónaband. Þá hefði alls- herjargoðinn einnig skilað inn vott- orði þess efnis að brúðguminn væri genginn í ásatrúarsöfnuðinn. Brúðurin varð dauðskelkuð við þessar fregnir og fékk viðtal hjá Jóni Helgasyni, dóms- og kirkjumálaráð- herra, og fulltrúa í ráðuneytinu. Hún fór fram á að hjónabandið yrði ógilt „því í mínum huga er gifting annað og meira en fíflalæti á Austurvelli,“ eins og henni fórust orð. Ráðuneytið vísaði málinu til Rannsóknarlög- reglu ríkisins og í kjölfar rannsóknar var konunni útvegaður lögfræðingur. Máli til ógildingar á hjúskapnum var stefnt fyrir Bæjarþingi Reykjavík- ur, en vísað frá á þeirri forsendu að stefnt hefði verið of seint. Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð. Hjúskapur- inn var því löglegur að áliti dómstóla og því sá eini kostur að slíta honum með skilnaði. Hjónakornin voru því löglega gift um nokkra hríð. Lærdómurinn af þessari frásögn er væntanlega sá að ganga hægt um gleðinnar dyr. n Margnota augnhitapoki Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag með reglulegu millibili hefur hún jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu (Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum, augnþurrk, vogris, augnhvarmablöðrur og rósroða í hvörmum/augnlokum Augnhvilan Augnhvílan er auðveld í notkun og vermir í 10 mínútur í hvert sinn. Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur í örbylgjuofni og lögð yfir augun. Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð Giftingin var „meiriháttar grín“ n Allsherjargoðinn gefur „par“ saman á Austurvelli n Voru gestir á hádegisbarnum á Óðali Sveinbjörn allsherjargoði Hann hafði leyfi til að framkvæma hjónavígslur. Frétt DV Það sem átti að vera grín og glens h afði miklar afleiðinga r.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.