Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2015, Qupperneq 26
Helgarblað 8.–11. maí 201526 Umræða
Þ
etta atvik, sem aldrei átti að
verða annað en grín, hefur
haft mjög alvarlegar af-
leiðingar í för með sér fyrir
mig. Fjölskylda mín varð
að vonum felmtri slegin þegar hún
heyrði um þessa ótímabæru og
óvenjulegu giftingu mína. Sjálf varð
ég alveg miður mín þegar ég áttaði
mig á að grínið var orðið að löglegri
giftingu.“ Svo mælti ung kona í sam-
tali við DV árið 1984, en líklega eru
fá dæmi um að fólk hafi endað í hjú-
skap – nánast að því sjálfu forspurðu.
Hér segir þó frá einu slíku atviki.
Hitta fyrir allsherjargoðann
Kona nokkur og maður voru stödd
ásamt fleiri kunningjum sínum á
hádegisbarnum á Óðali við Austur-
völl sunnudag nokkurn í nóvember-
mánuði 1982, en þau munu aðeins
hafa þekkst lítils háttar. Grípum nið-
ur í frásögn konunnar: „Þá kemur til
mín kunningi minn, sem var nokk-
uð við skál, bendir mér á Sveinbjörn
allsherjargoða, sem einnig var á
hádegisbarnum, og segir: „Eigum
við ekki að láta hann gifta okkur?“
Þar átti maðurinn við Sveinbjörn
Beinteinsson, allsherjargoða ása-
trúarsafnaðarins.
Sveinbjörn var þjóðkunnur
maður á sinni tíð. Hann var fæddur
í Grafardal í Skorradalshreppi árið
1924, en var frá árinu 1944 bóndi að
Draghálsi, auk þess að fást við kveð-
skap og skemmta landsmönnum
með rímnasöng. Hann
hafði aðdáunar-
vert lag á fornum
bragarháttum.
Sveinbjörn var afar
forn í útliti og þótti
fara vel á því að hann
væri talsmaður hins
gamla átrúnaðar,
sem kenndur er við
æsi.
Hjónavígslur í sið
ásatrúarmanna voru
afar fátíðar á þessum
árum, en söfnuður-
inn var stofnaður árið
1972 að frumkvæði
Sveinbjarnar. Hann
fékk þá leyfi dóms- og
kirkjumálaráðuneytis til að
framkvæma athafnir eins og
hjónavígslur, nafngjafir og útfarir.
Að auki framkvæmdi Sveinbjörn
ýmsar helgiathafnir, þar sem goðin
voru blótuð. Ásatrúarfélagið var
fyrsta löggilta heiðna trúfélagið í
heiminum.
„Meiriháttar grín“
Hverfum aftur niður á Óðal í nóv-
embermánuði 1982. Konan kvaðst
ekki hafa tekið manninn alvarlega
þegar hann lagði til að allsherjar-
goðinn gæfi þau saman og sagði svo
frá: „Ég tók þessu vitaskuld sem al-
gjöru gríni og spurði kunningjann
hvort hann væri nú alveg að spila
út. Enda var hugmyndin fáránleg
og hlægileg í senn.“ Konan sagði
sprellið hafa tekið allan hug kunn-
ingja síns, sem hefði gengið til alls-
herjargoðans og gefið sig á tal við
hann. Segist henni síðan frá svo:
„Kom svo máli
þeirra að kunningi minn spurði
Sveinbjörn hvort hann vildi ekki
gifta okkur. Sveinbjörn taldi ekkert
því til fyrirstöðu og kvaðst vera til-
búinn til þess þá þegar. En hann
sagðist vilja fá okkur út fyrir því
hann vildi ekki fremja athöfnina
inni á barnum. Við mikil hlátrasköll
og ærsl fórum við svo út og okkur
fannst þetta afskaplega sniðugt, enn
sem komið var, og raunar meirihátt-
ar grín.“
Vinkona brúðarinnar var með
í för og piltur sem þau þekktu. Til
stóð að gefa þau líka saman en
ekki varð þó af því. Konan segir
svo frá: „Ég og vinkona mín raul-
uðum brúðar marsinn á leiðinni út
og höfðum stórlega gaman af öllu
saman.“
Undir minnismerki Jóns Sig-
urðssonar spurði allsherjargoðinn
þau að nafni og hvort þau hefðu
verið gift áður. Að auki fékk hann
nafnnúmer þeirra og nöfn svara-
manna. Þessar upplýsingar skráði
hann allar hjá sér í litla minnisbók.
Því næst spurði hann brúðina og
brúðgumann hvort þau vildu játast
hvort öðru og gekk það greiðlega.
Það með var athöfninni lokið.
Rétt er að taka fram að hjóna-
vígsla er afar einföld athöfn. Til að
hún teljist lögleg þarf ekki annað
en löggiltan vígslumann, það að
hjónin játist hvort öðru og svo þarf
vígslumaðurinn að vígja viðkom-
andi. Öllum formskilyrðum var hér
fullnægt. Ekki skipti máli þótt brúð-
hjónin væru ekki félagar í ásatrúar-
söfnuðinum.
Pappírar undirritaðir
Brúðhjónin héldu áfram að
skemmta sér og vissu ekkert frekar
af ráðahagnum fyrr en allsherjar-
goðinn hélt heim til brúðgumans
sex dögum síðar og hafði þar með-
ferðis svokallað könnunarvottorð,
sem þau skyldu bæði skrifa undir,
og þar að auki afhenti hann honum
yfir lýsingu þess efnis að brúðgum-
inn hygðist ganga í ásatrúarsöfn-
uðinn.
Um kvöldið hófst skemmtanalíf-
ið að nýju með partíi hjá brúðgum-
anum og þangað var brúðinni boð-
ið ásamt fleiri góðum gestum. Þar
dró hann fram pappírana sem alls-
herjargoðinn hafði komið með fyrr
um daginn. Bað hann brúðina að
undirrita könnunarvottorðið sem
hann vildi geyma „til minningar“
um athöfnina á Austurvelli. Brúð-
urin segir svo frá: „Ég var treg til í
fyrstu en lét svo til leiðast gegn því
loforði að pappírarnir færu aldrei úr
hans höndum.“
Daginn eftir kom allsherjar-
goðinn aftur í heimsókn til brúð-
gumans til að sækja pappírana og
gekk hart eftir að fá þá. Brúðguminn
mun hafa verið orðinn „illa slæptur“
eftir langar vökur og gleðskap og lét
á endanum pappírana af hendi „til
þess eins að losna við kallinn og
komast aftur í rúmið“, eins og hann
sagði sjálfur frá.
Gifting meira en fíflalæti á
Austurvelli
Þegar bráði af brúðgumanum
daginn eftir hringdi hann í eigin-
konu sína og tjáði henni að hann
hefði látið Sveinbjörn allsherjargoða
hafa pappírana. „Mig fór þá að gruna
margt,“ segir brúðurin, sem hringdi
í Hagstofuna nokkru síðar og spurði
hvort allsherjargoðinn hefði skilað
inn einhverjum pappírum. Starfs-
maður Hagstofunnar svaraði þá að
bragði: „Er það giftingin á Austur-
velli?“ Brúðinni var því næst til-
kynnt að hún væri nú löglega gift og
gengin í hjónaband. Þá hefði alls-
herjargoðinn einnig skilað inn vott-
orði þess efnis að brúðguminn væri
genginn í ásatrúarsöfnuðinn.
Brúðurin varð dauðskelkuð við
þessar fregnir og fékk viðtal hjá Jóni
Helgasyni, dóms- og kirkjumálaráð-
herra, og fulltrúa í ráðuneytinu. Hún
fór fram á að hjónabandið yrði ógilt
„því í mínum huga er gifting annað
og meira en fíflalæti á Austurvelli,“
eins og henni fórust orð. Ráðuneytið
vísaði málinu til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og í kjölfar rannsóknar
var konunni útvegaður lögfræðingur.
Máli til ógildingar á hjúskapnum
var stefnt fyrir Bæjarþingi Reykjavík-
ur, en vísað frá á þeirri forsendu að
stefnt hefði verið of seint. Hæstiréttur
staðfesti þann úrskurð. Hjúskapur-
inn var því löglegur að áliti dómstóla
og því sá eini kostur að slíta honum
með skilnaði. Hjónakornin voru því
löglega gift um nokkra hríð.
Lærdómurinn af þessari frásögn
er væntanlega sá að ganga hægt um
gleðinnar dyr. n
Margnota augnhitapoki
Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ
Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag með reglulegu
millibili hefur hún jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu
(Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum, augnþurrk, vogris,
augnhvarmablöðrur og rósroða í hvörmum/augnlokum
Augnhvilan
Augnhvílan er auðveld í notkun og
vermir í 10 mínútur í hvert sinn.
Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur
í örbylgjuofni og lögð yfir augun.
Björn Jón Bragason
bjornjon@dv.is
Fréttir úr fortíð
Giftingin var
„meiriháttar grín“
n Allsherjargoðinn gefur „par“ saman á Austurvelli n Voru gestir á hádegisbarnum á Óðali
Sveinbjörn allsherjargoði
Hann hafði leyfi til að framkvæma
hjónavígslur.
Frétt DV Það sem átti
að vera grín og glens h
afði miklar afleiðinga
r.