Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Síða 4
4 Fréttir A rion banki bauð völdum viðskiptavinum í þrjár lax- veiðiferðir í sumar og voru farnar fleiri slíkar boðs- ferðir nú en í fyrra. Hjá Ís- landsbanka var farið í eina veiðiferð með viðskiptavinum auk þess sem nokkrum viðskiptavinum verður boðið utan á knattspyrnuleik. Engar boðsferðir voru eða eru fyrir hugaðar á vegum Landsbankans. Þeir bankar sem bjóða viðskiptavinum sínum í ferðir segja að áhersla sé lögð á að hófs sé gætt og er íburður þeirra allt annar og minni en hann var á árun- um fyrir hrun þegar milljörðum var veitt í risnu. Ferðum fjölgar Í svari Arion banka við fyrirspurn DV segir að bankinn telji almennt ekki rétt að upplýsa um samskipti sín við viðskiptavini. Hins vegar hafi áður verið veittar upplýsingar um fjölda veiðiferða vegna mikils áhuga fjöl- miðla á efninu. „Í ár voru farnar þrjár slíkar ferðir en fjöldi stanga var jafn mikill og í fyrra þegar farnar voru tvær ferðir,“ segir í svari Haraldar Guðna Eiðssonar, forstöðumanns sam- skiptasviðs bankans. Ekki er gefið upp hvert var farið í veiði eða hver fjöldi stanga var. Sem kunnugt er á íslenska ríkið 13 prósenta hlut í Arion banka í gegnum Bankasýslu ríkisins á meðan kröfuhafar Kaupþings eiga rest. Arion banki er því aðeins að litlu leyti í eigu íslenska ríkisins og skattborgara. Veiði- og fótboltaferðir Íslandsbanki upplýsir í svari sínu að farið hafi verið í eina veiðiferð með viðskiptavini bankans í ár en að ein ferð sé fyrirhuguð á knattspyrnuleik erlendis. „Íslandsbanki gætir hófs í boðs- ferðum og hefur sett sér skýrar verklagsreglur um viðskiptatengsl. Regluvörður bankans tryggir að þeim sé framfylgt. Í ár var farið í eina veiðiferð með viðskiptavini. Nokkrum viðskiptavinum verður boðið erlendis á knattspyrnuleik. Aðrar ferðir eru ekki fyrirhugaðar,“ segir Edda Hermannsdóttir, sam- skiptastjóri Íslandsbanka. Ekki fæst gefið upp hvaða knattspyrnuleik er um að ræða. Bankinn er í meirihlutaeigu Glitnis banka hf. sem fer með 95 prósent af hlutafé í gegnum dótturfélög sín fyrir hönd kröfuhafa. Íslenska ríkið á síðan 5 prósent í gegnum Bankasýslu ríkis- ins. Ríkisbankinn býður ekki Kristján Kristjánsson, upplýsinga- fulltrúi Landsbankans, segir að fyrir spurn DV sé fljótsvarað. „Bank- inn býður ekki eða hefur boðið í boðsferðir hérlendis eða erlendis á þessu ári, hvorki til veiða né í öðrum erindagjörðum.“ Íslenska ríkið á um 98 prósent í Landsbankanum sem fyrir hrun var leiðandi í peninga- útlátum til hvers kyns boðsferða. Ríkis bankinn heldur hins vegar að sér höndunum nú og býður ekki í veiði frekar en í fyrra. Boðsferðir gagnrýndar Íburðarmiklar boðsferðir bankanna voru algengar á árunum fyrir hrun en þær sættu síðar gagnrýni á árun- um eftir það, meðal annars í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þar er ein birtingarmynd óhófsins í góðærinu sögð vera þessar boðs- ferðir til handa völdum viðskipta- vinum og viðvera fulltrúa lífeyris- sjóðanna gagnrýnd. Í skýrslunni segir: „Í gögnum Kaupþings um lax- veiðiferðir kemur fram að fulltrú- um lífeyrissjóða hefur verið boðið í nokkrar ferðir. Þá fóru lykilstjórn- endur með viðskiptavinum sínum í fjölmörgum ferðum yfir sumarið í ýmsar af bestu laxveiðiám landsins.“ Auðvelt að eyða 200.000 á dag Samkvæmt upplýsingum DV getur stöngin í góðri laxveiðiá kostað hundrað þúsund krónur á dag. Oft eru tveir menn um eina stöng þannig að sá kostnaður deilist nið- ur á þá. Ef gisting með fæði er tekin með í reikninginn getur það kostað 30 þúsund krónur á mann á dag. Al- gengt er að ráðinn sé leiðsögumað- ur sem tekið getur 40 þúsund krón- ur fyrir verkið. Út frá þessum tölum má því áætla að kostnaðurinn fyrir tvo, með eina stöng, í ágætri veiðiá og öllum pakkanum geti numið um 200 þúsund krónum á dag. Hófst á ný í fyrra DV fjallaði um boðsferðir bank- anna fyrir rúmu ári þar sem fram kom að Arion banki hefði boð- ið völdum viðskiptavinum sínum í tvígang í laxveiði í fyrrasumar. Það voru fyrstu laxveiðiboðsferðir bank- ans frá hruninu 2008. Í svari Arion banka þá kom fram að fyrirtækið hefði ákveðið að bjóða viðskiptavin- um sínum í laxveiði með starfsfólki til að „styrkja viðskiptasambandið“ við þá. Landsbankinn hafði þá, líkt og nú, ekki boðið viðskiptavinum né starfsmönnum sínum í laxveiði. Ís- landsbanki vildi þá hins vegar ekki upplýsa um boðsferðir og var eini bankinn sem bar því við að um væri að ræða trúnaðarmál sem tengdust viðskiptatengslum bankans. DV greindi einnig frá því í ágúst í fyrra að olíufélagið N1, sem er í meirihlutaeigu íslenskra lífeyris- sjóða, byði völdum viðskiptavin- um sínum í tvær boðsferðir það sumarið. Tilefni fréttaflutningsins um boðsferðirnar voru sögusagnir, sem síðan voru staðfestar, að boðs- ferðir stórfyrirtækja og banka væru að vakna úr dvala í kjölfar hruns- ins. Svo virðist sem stóru bankarnir gangi þó hægt um gleðinnar dyr. n Margnota augnhitapoki Fæst í helstu apótekum og Eyesland Gleraugnaverslun, Glæsibæ Ef augnhvílan er notuð tvisvar á dag með reglulegu millibili hefur hún jafnan jákvæð áhrif á hvarmabólgu (Blepharitis), vanstarfsemi í fitukirtlum, augnþurrk, vogris, augnhvarmablöðrur og rósroða í hvörmum/augnlokum Augnhvilan Augnhvílan er auðveld í notkun og vermir í 10 mínútur í hvert sinn. Hún er einfaldlega hituð í 30 sekúndur í örbylgjuofni og lögð yfir augun. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Bankar Bjóða í laxveiði á ný n Valdir viðskiptavinir fá glaðning n Fiskur og fótbolti í boði banka Milljarðar í risnu Birtingarmynd óhófs samkvæmt skýrslunni Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er tekinn saman risnu­ kostnaður stóru bankanna þriggja á árunum 2004 til 2008. Er kostnaðurinn sundurliðaður eftir hinum ýmsu viðburðum en ef boðsferðir og veiði eru sérstaklega tekin út í þeirri sundurliðun má sjá að Landsbankinn var stórtækastur fyrir hrun. Bankinn varði rúmlega 1.100 milljónum króna í boðsferðir og veiði á tímabilinu. Kaupþing 267 milljónum og Glitnir tæp­ lega 233 milljónum. Þó er tekið fram í skýrslunni að ekki sé öruggt að um heildarkostnað sé að ræða, þar sem gögn frá Glitni hafi verið „ófullkomin.“ Ef allur risnukostnaður stóru bankanna þriggja á tímabilinu er tekinn saman sést að þeir vörðu rúmum þremur milljörðum króna í boðsferðir, gestamóttöku, veiði, íþrótta­ viðburði, gjafir og ýmislegt annað. Sagður hafa svikið 18 milljón- ir undan skatti Sérstakur saksóknari hefur ákært matreiðslu- og sjónvarpsmann- inn Völund Snæ Völundarson fyr- ir meiri háttar brot gegn skatta- lögum en málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag. Upphæðin í ákærunni nem- ur tæpum 18 milljónum króna en Völundi Snæ er gefið að sök að hafa, sem daglegur stjórnandi og stjórnarmaður einkahlutafé- lagsins VH fjárfesting, ekki stað- ið skil á virðisaukaskatt skýrslu á lögmæltum tíma fyrir upp- gjörstímabilið nóvember til des- ember rekstrarárið 2013. Þá er hann ákærður fyrir að hafa ekki staðið skil á staðgreiðslu opinberra gjalda vegna greiðslu- tímabilsins ágúst, september, október og desember rekstrarár- ið 2013 en upphæðin nemur 13 milljónum króna. Völundur Snær er einnig ásak- aður um að hafa ekki staðið skil á virðisaukaskatti árið 2013 en sú upphæð nemur 4,5 milljón króna. Hjólaði á bifreið Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Í dag- bók lögreglu kemur fram að karl- maður sem hjólaði yfir götu hafi ekki tekið eftir bifreið sem ekið var eftir götunni og hjólað á hana. Hann fann til verkja eftir óhappið og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Annar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni sem hafnaði á ljósa- staur. Fjarlægja varð bifreiðina með dráttarbifreið. Þá var bifreið ekið í veg fyrir aðra á gatnamót- um Reykjanesbrautar og Stekks. Ökumenn sluppu ómeiddir. Vikublað 1.–3. september 2015

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.