Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 6
Vikublað 1.–3. september 20156 Fréttir GÓLFMOTTUR Við leigjum út gólfmottur í anddyri. Haltu fyrirtækinu hreinu og minnkaðu ræstingakostnað. Við sækjum og sendum. Fáðu verðtilboð! 511 1710 svanhvit@svanhvit.is www.svanhvit.is S í m i: 567 4 8 4 0 • Fu n a h ö fð i 1 • 110 R v k . bilo@bilo. is • w w w. b i l o. i s Skoðaðu heimasíðuna okkar ww w. bi lo .is Ef þú er t í b ílahugleiðingum? ... með okkur! FRÁ KR. 48.900 Skráð á fram- hjáhaldsvef Þóra Margrét Baldvinsdóttir, eigin kona Bjarna Benediktsson- ar fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, segir í stöðu- uppfærslu á Facebook-síðu sinni að þau hjón hafi heyrt um hinn umdeilda vef Ashley Madison árið 2008 og ákveðið að skrá sig inn á hann fyrir forvitnissakir. Gamalt tölvupóstfang Bjarna Benediktssonar, bjarniben@n1.is, var eitt þeirra tölvupóstfanga sem komu út úr hinum fræga Ashley Madison-leka en vefsíðan markaðssetti sig sem hinn fullkomna vettvang til að stunda framhjáhald.“ Þóra Margrét segir í stöðuuppfærslunni að þeim hjónum hafi borist margar ábendingar um að nú sé talsvert rætt manna í milli um að gamalt netfang Bjarna tengist gögnum af Ashley Madison-vefnum sem dreift hefur verið á netinu. „Svona getur forvitnin leitt mann í gönur. Við heyrðum um þennan umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum (2008). Í framhaldi af því skoðuðum við vefinn fyrir forvitnissakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá netfang, erlent póstnúmer og fleira sem við gerðum í algjörum hálfkæringi og af léttúð. Við höfum aldrei síðan farið inn á þennan vef,“ segir Þóra Margrét og bætir við að ekki hafi aldrei greitt fyrir skráninguna. Skoðuðu húsnæði undir Sparibankann n Sparifélagið vill Sparisjóð Norðurlands n Horfir til fyrrverandi höfuðstöðva MP I ngólfur H. Ingólfsson, fjármála- ráðgjafi og einn eigenda Spari- félagsins hf., fór í lok síðustu viku með hóp erlendra fjárfesta í skoðunarferð um fyrrverandi höfuð- stöðvar MP banka við Ármúla vegna áforma félagsins um að opna úti- bú sparisjóðs á höfuðborgarsvæð- inu. Félagið hefur unnið að stofn- un Sparibankans síðustu fimm ár og bíður nú ákvörðunar Samkeppnis- eftirlitsins um samruna Landsbank- ans og Sparisjóðs Norður lands. „Við erum að skoða samstarf við þrjá ólíka hópa erlendra fjárfesta og einn þeirra var staddur hér á landi í síðustu viku og þá vildi svo til að MP banki var búinn að færa sína starfsemi niður í Borgartúnið. Við smeygðum okkur þarna inn til að sýna þessum fjárfestum húsnæðið og að þarna væru allir innviðir sem Sparibankinn þyrfti.“ Útibú í Reykjavík DV sagði í júníbyrjun frá því að Sparifélagið hygðist leggja fram til- boð í alla stofnfjárhluti Arion banka í AFLi sparisjóði, stærsta sparisjóði landsins. Að sögn Ingólfs hafði fé- lagið þá sent bankanum gögn um að það hefði til að bera nægan fjárhags- legan styrk til að fá efnt kaup tilboð sitt. Sparifélagið vildi þá einnig komast inn í eigendahóp Spari- sjóðs Norðurlands, auka eigið fé sjóðsins, og sameina hann og AFLi. Sama dag og fréttin birtist heimil- aði Samkeppniseftirlitið samruna Arion banka og AFLs en stofnun- in hafði áður gert samkomulag við bankann um að 99,3% eignarhlutur hans skyldi seldur í opnu söluferli. Rúmum tveimur vikum síðar var til- kynnt að vinna við samruna Lands- bankans og Sparisjóðs Norðurlands væri hafin vegna óvissu um framtíð sjóðsins. „Við erum enn að horfa til Sparisjóðs Norðurlands enda hef- ur Samkeppniseftirlitið enn ekki samþykkt samrunann. Ef það sýn- ir sig að það eru aðrir aðilar á markaðnum heldur en stóru bank- arnir sem geta lagt inn aukið eig- ið fé í sparisjóðinn og bjargað hon- um þá ber Samkeppniseftirlitinu að gefa þeim tækifæri til að sanna sig. Við viljum opna útibú sparisjóðsins í Reykjavík og þess vegna vorum við að skoða þetta húsnæði í Ármúlan- um. Við viljum bjarga sparisjóðn- um og setja inn í hann aukið eigið fé, hundruð milljóna króna. Ég held því að niðurstaðan geti ekki verið á annan veg en að við fáum tækifæri til að sýna hvað við getum,“ segir Ingólfur. Skoða annað húsnæði Ingólfur segir eigendur Sparifélags- ins einnig skoða annað húsnæði undir Sparibankann. Aðspurður hvaðan erlendu fjárfestarnir koma segir Ingólfur ekki tímabært að greina frá nöfnum þeirra eða þjóð- ernum. „Hópurinn samanstendur annars vegar af hluthöfum í Sparifélaginu og erlendum fjárfestum sem hafa verið að vinna með okkur. Þar er um þrjá ólíka hópa að ræða og það er full snemmt að segja hver af þessum hópum verð- ur fyrir valinu. Þeir hafa allir áhuga á að koma að stofnun Sparibankans sem yrði fjármálastofnun á landsvísu,“ segir Ingólfur og heldur áfram: „Sparibankinn, vinnuheitið sem við höfum notað þrátt fyrir að svo geti farið að hann muni heita eitt- hvað annað á endanum, er tilvísun í sparisjóðina. Við viljum skapa þessa persónulegu nánd og þjónustu sem þeir eru þekktir fyrir og erum opin fyrir samstarfi við þá sparisjóði sem eftir eru. Við ætlum að fara inn á þessa litlu staði sem bankarnir eru að draga sig út úr en verðum þá ekki með svipaða tegund af útibúum og gömlu bankarnir voru eða eru með,“ segir Ingólfur. n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Húsnæðið Fasteignin sem eigendur Sparifélagsins skoðuðu í lok síðustu viku stendur við Ármúla 13a og er í eigu Eik fasteignafélags. MP banki var þar áður til húsa og þar áður höfuðstöðvar SPRON. Mynd: Rakel ÓSk SiGuRðaRdÓttiR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.