Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 8
8 Fréttir Vikublað 1.–3. september 2015 Ósáttur við raðirnar á Keflavíkurflugvelli n Austurrískur ferðamaður skrifaði kvörtunarbréf n Rétt komst inn í vélina A usturríkismaðurinn Ger- ald Giesswein sendi stjórn- endum Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar tölvupóst á dögunum þar sem hann kvartaði yfir þeim löngu biðröðum og töfum sem hann upplifði þar um miðjan ágúst. Hann segir að það hafi tekið rúm- ar tvær klukkustundir að tékka sig inn, fara í gegnum vegabréfaskoðun og í gegnum öryggisleitina. Hann komst inn í flugvélina á sömu mín- útu og hún átti að fara í loftið en þá tók við þrjátíu mínútna seinkun. Hann bætir við að margir starfsmenn flugvallarins hafi hvorki hreyft legg né lið til að reyna að flýta fyrir. Hneykslanleg upplifun „Ástæðan fyrir þessari óásættanlegu og hneykslanlegu upplifun er augljós- lega léleg stjórnun og einnig að fjölda starfsmanna er haldið í algjöru lág- marki,“ skrifaði Giesswein, sem hefur heimsótt Ísland reglulega í yfir áratug. „Ég kom á flugvöllinn klukkan 08.15 um morguninn til að vera viss um að ég hefði nægan tíma til að tékka mig inn, versla aðeins, fá endur- greiðslu virðisaukaskatts vegna þess sem ég hafði keypt á Íslandi og til að fá mér góðan morgunverð. Á tveimur klukkustundum hefði þetta verið vel mögulegt á flugvelli sem er vel rek- inn. En ekki í Keflavík,“ skrifaði Gies- swein, sem átti pantað flug klukkan 10.20 fimmtudaginn 13. ágúst. Reiðir ferðamenn Þegar hann ætlaði að tékka sig inn hjá AirBerlin voru aðeins tvær inn- skráningarstöðvar opnar og hreyfð- ist röðin lítið sem ekkert í 40 mínútur. „Þegar fólk var byrjað að reiðast voru þrjár stöðvar opnaðar í viðbót og röð- in byrjaði að hreyfast,“ skrifaði hann. Fyrirtækið Isavia rekur Flugstöð Leifs Eiríkssonar en í tilviki Air Berlin er innritunin í höndum flugþjónustuað- ilanna, Airport Associates. Röðin mjakaðist áfram Þegar kom að öryggisleitinni voru „hundruð manna“ í biðröð, að sögn austurríska ferðamannsins. „Þarna var klukkan orðin 09.20 og ég var langt frá því að komast að. Þrátt fyrir þenn- an fjölda farþega sem beið voru að- eins tvær stöðvar opnar og röðin rétt mjakaðist áfram. Þegar klukkan var orðin 10 var ég orðinn hræddur um að ég myndi missa af fluginu, þannig að ég fór úr röðinni beint að öryggis- hliðinu. Þá urðu hinir farþegarn- ir reiðir en ég sagði þeim að ég væri orðinn of seinn,“ greindi Giesswein frá og var í framhaldinu beðinn af starfs- manni um að fara aftur í röðina. Starfsfólk ljósmyndað Þá segist hann hafa áttað sig á því að starfsfólkið á svæðinu hafi ekki verið að gera nokkurn skapaðan hlut, held- ur einungis staðið og fylgst með. „Fólk byrjaði að kalla á þetta starfsfólk af hverju það færi ekki að vinna í staðinn fyrir að gera ekki neitt og sumir tóku ljósmyndir af því. Þetta varð til þess að tvær stöðvar til viðbótar voru opn- aðar. Ég og margir aðrir stoppuðum alla þá starfsmenn sem við gátum náð tali af og kvörtuðum yfir þessu lélega skipulagi. Hið áhugaverða var að allir sem við töluðum við sögðust vonast til þess að sem flestir myndu kvarta yfir ástandinu vegna þess að þeirra vinnu- aðstæður væru óásættanlegar.“ Spurning um aðra stjórnendur Giesswein segist átta sig á því að ferðamennska sé orðinn stór hluti af íslenskum efnahag. Þess vegna þurfi þjónusta fyrir farþega á flugvellin- um að lagast til mikilla muna og sem allra fyrst. „Ef núverandi stjórnendur ráða ekki við þetta ættu að mínu mati einhverjir aðrir að koma í þeirra stað eða þá að flugvöllurinn verði seldur fólki sem getur það, eins og raunin er á flugvöllum í Austurríki, Þýska- landi og annars staðar í Evrópusam- bandinu.“ Fékk afsökunarbeiðni Í svari Isavia við bréfi Austurríkis- mannsins er hann beðinn afsökunar á óþægindunum. „Þetta sumar hefur verið krefjandi fyrir okkur. Við höf- um fengið fleiri farþega en búist var við og okkur tókst ekki að þjálfa nógu margt starfsfólk til að taka á móti öll- um farþegunum. Við höfum átt erfitt með að bregðast við umferðinni um miðjan morguninn,“ segir í svarinu frá Kristínu S. Þórarinsdóttur verk- efnastjóra, en stækkun flugstöðvar- innar er í undirbúningi. 60 nýir starfsmenn ráðnir Hún biðst einnig afsökunar á því hvernig starfsfólkið brást við. Far- þegar eigi ekki að heyra um starfsskil- yrði þess eftir að hafa þurft að bíða í biðröð og næstum því misst af fluginu. Einnig bætir hún við að til standi að ráða 60 nýja starfsmenn til að koma í veg fyrir kringumstæður sem þessar í framtíðinni. Samkvæmt Guðna Sigurðssyni, upplýsingafulltrúa Isavia, hafa biðraðir í öryggisleit sjaldan farið yfir 30 mínútur í sumar. „40 mínútur er langur tími og okkur þykir mjög leitt þegar fólk þarf að bíða svona lengi, en þetta getur gerst, sérstaklega ef margir farþegar koma á sama tíma, t.d. þegar nokkrar rútur koma í flugstöðina á sama tíma,“ segir hann. „Það eru fáir flugvellir í heiminum sem hafa þurft að takast á við um 20% farþegaaukningu á hverju ári undan- farin ár. Þetta eru vaxtarverkir sem við erum að kljást við og þetta tekur tíma, en við erum að gera allt sem við get- um til þess að minnka biðraðir í góðri samvinnu við alla rekstraraðila á vell- inum.“ n Freyr Bjarnason freyr@dv.is „Hið áhugaverða var að allir sem við töluðum við sögðust vonast til þess að sem flestir myndu kvarta yfir ástandinu vegna þess að þeirra vinnuaðstæður væru óásættanlegar. Gerald Giesswein Er ekki par hrifinn af þróun mála í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Er skipulagið í lagi...? Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki Brettarekkar Gey mslu - og dekk jahi llur Mikil burðargeta Einfalt í uppsetningu KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00 Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík Sími 53 53 600 - Fax 567 3609 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Eldhúsvaskar og tæki Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Bol-834 80x48x18cm þykkt 0,8mm 11.990 Bol-604 48x43x18cm Þykkt stáls 0,8mm 7.490 (fleiri stærðir til) Bozz - Eldhústæki 4.590 Bol-897 66x43x18cm þykkt 0,8mm 11.490 Bol-871 48x cm þvermál Þykkt stáls 0,8mm 6.990 Cisa 41860 Eldhústæki 7.490 Cisa 43840 Eldhústæki 7.490

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.