Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.2015, Blaðsíða 17
Vikublað 1.–3. september 2015 Fréttir Erlent 17 efasemdir sínar þar um. „Það er verið að reyna að rugla í okkur með því að segja að verksmiðjunni hafi verið lok­ að. Ég var þarna fyrir nokkrum dög­ um síðan. Sömu bílunum var lagt þarna fyrir utan, sama fólkið,“ segir hún. Tilbúið blogg spákonu Savchuk lýsir andrúmsloftinu á vinnustaðnum sem ströngu, mikil leynd hafi verið ríkjandi yfir starf­ seminni. Samskipti hafi verið lítil milli deilda og starfsmenn keppst við að klára dagskvótann fyrir birtingu á internetinu og á athugasemdum. Hún vann á tólf tíma vöktum í sér­ stakri bloggdeild og skrifaði færslur fyrir tilbúna einstaklinga; rússneskan hermann á eftirlaunum, úkraínskan karlmann og spákonu að nafni Cantadora. Savchuk og félagar þurftu að varast að láta uppi of augljósan áróður, held­ ur koma að pólitískum athugasemd­ um innan um annað í bloggfærsl­ um sínum svo ásýnd bloggsins virtist sannferðug. Þau þurftu að velja póli­ tísk viðfangsefni af daglegum lista sem þeim var fenginn og innihélt fimm til sjö fréttir um Bandaríkin, Úkraínu og Rússland. Spákonan Cantadora skrifaði að­ allega um veðrið, töfra og heilun­ araðferðir. Annað veifið læddi hún hins vegar pólitískum athugasemd­ um inn í færslur sínar. Í einni þeirra talaði hún um að vinur sinn í Úkraínu vildi koma til Rússlands, hún þyrfti að horfa í kristalskúlu til að sjá hvað hann gæti til bragðs tekið. „Frétt­ irnar frá Úkraínu fela í sér stöðugt streymi skilaboða um hvernig verið er að eyðileggja tilveru fólks, hvernig sorg og dauði fylgja hverri stórskota­ hríðinni og loftárárásinni sem gerð er,“ skrifaði hún. „Sem betur fer hafa æðri máttarvöld fullvissað mig um að úkraínskir flóttamenn finni nýtt sér nýtt heimaland þar sem allir eru glað­ ir og öruggir, í Rússlandi.“ Aðrar deildir fyrirtækisins sendu frá sér fréttir eða athugasemdir á aðr­ ar fréttir og efni sem birtist á sam­ félagsmiðlunum, eins og Facebook eða rússneska samfélagsmiðlinum VK. Yfirmenn vöruðust uppljóstranir Bloggara þurftu að taka myndir af vinnu sinni og hlaða inn í ákveðið eft­ irlitskerfi. Í lok vinnudags fylltu þeir út eyðublöð þar sem kom fram hve marga aðdáendur eða fylgjendur þeir hefðu, hve mikið væru lesnir, hversu margar athugasemdir þeir hefðu fengið og skrifað. Léleg frammistaða þýddi stöðulækkun innan fyrirtækis­ ins. „Bloggararnir voru þeir svölustu. Ef þeir stóðu ekki undir þeim kröfum sem gerðar voru til þeirra voru þeir færðir niður um stöðu og látnir skrifa athugasemdir undir dulnefnum á samfélagsmiðlunum, sem er lægsta staðan innan fyrirtækisins,“ segir Savchuk. Að sögn Savchuk voru yfirmenn tröllaverksmiðjunnar meðvitaðir um hættuna af uppljóstrunum og öll raf­ ræn samskipti voru færð á innra net ef bloggari lak tölvusamskiptum út úr fyrirtækinu. Þegar blaðamenn mættu á skrifstofur fyrirtækisins var starfsmönnum þess skipað að yfir­ gefa ekki bygginguna. Ef þeir gerðu það var þeim skipað að segjast vinna við sölu á skrifstofuvarningi,“ sagði Savchuk. Obama er óféti Nýlega birti vefmiðill á vegum tröll­ anna fréttir um rall sem bar yfirskrift­ ina „Obama er óféti“. Í fréttinni sagði blaðamaðurinn Andrei Soshnikov: „Obama­gjörningurinn er dæmi um hvernig tröllaverksmiðjan hefur far­ ið frá því að vera miðstöð bloggara og þeirra sem skrifa athugasemdir á samfélagsmiðlunum í að verða að einhverju öðru.“ Andrei Soshnikov er búsettur í Sankti Pétursborg og hefur skrifað hvað mest um starfsemi fyrir­ tækisins. „Nú er verið að leggja niður vef­ miðil fyrirtækisins sem gefur sig út fyrir að vera ópólitískur því hann er áhrifalítill og dýr. Áherslan er lögð á laða til sín hæfileikafólk sem gerir skapandi hluti og virðist vera ópóli­ tískt. Í myndböndum er venjan hins vegar orðin sú að hið saklausasta afþreyingarefni breytist á örskots­ stundu í pólitískan gjörning. Það svínvirkar enda laða þessi hópar að sér fjölmarga fylgjendur.“ Á meðal myndbandanna er myndband ungrar, snoppufríðrar konu, Kristinu Fink. Á milli þess að búa til myndbönd sem tileinkuð eru anime­fígúrum, tölvuleikjum og of­ urhetjum boðar Kristin ágæti rúss­ neskra stjórnvalda og Pútíns. Í einu myndbanda hennar, sem kallast Put­ in versus Shao Kahn, er Rússlands­ forseti gerður að bardagakappa sem berst gegn illmenni úr tölvuleikjun­ um Mortal Kombat. „Álit Vesturlandabúa á Rússlandi breyttist gjörsamlega þegar Pútín varð forseti. Þeir fóru að virða okk­ ur. Pútín nýtur virðingar, ekki Shao Khan,“ segi Fink í myndbandinu. „Völd hans eru byggð á virðingu, ekki ótta.“ Í öðru myndbandi Fink má sjá mann í gervi ofurhetjunnar Spider Man fremja ódæðisverk á götum Sankti Pétursborgar. Fink eltir hann og reynir að stöðva hann. Að lok­ um nær hún að fletta grímunni af honum og afhjúpar þar með Barack Obama puttabrúðu. „Það ert þú, ófét­ is Obama,“ segir hún með hryllingi og kýlir brúðuna. Myndbandinu af Spider Man var eytt þegar fjölmiðlar vestanhafs fjöll­ uðu um málið. Höfðar til nörda „Á meðan þekkt nettröll halda áfram iðju sinni og tröllafærslur halda áfram að birtast á fréttasíðum kúpl­ ar það Rússa, sem eru ágætlega færir á internetinu, frá raunveruleikanum. Á sama tíma furða þeir sig á því hvers vegna ríkisstjórnin gengur svo langt í að viðhalda ímynd sinni,“ segir Sos­ hnikov. Hann segir verkefni á borð við myndbönd Fink boða nýjung í starfi nettrölla. Rekinn sé pólitískur áróður með lúmskum hætti. „Markhópurinn er ekki lengur bara íþróttakrakkar sem hljóta ríkis­ styrki eða þjóðræknar ungliðahreyf­ ingar. Það virðist reynt að höfða til nörda sem elska vestræna tölvuleiki og ofurhetjur. Í baráttunni um hug unga fólksins eru rússnesk stjórnvöld staðráðin í að heltast ekki úr lestinni. Eins og staðan er núna eru trölla­ myndbönd á toppi allra lista og því fylgja margir fylgjendur,“ seg­ ir Soshnikov, „og síðan, á einhverj­ um tímapunkti, munu þeir byrja með pólitíska efnið fyrir alvöru.“ n „Í baráttunni um hug unga fólksins eru rússnesk stjórn- völd staðráðin í að heltast ekki úr lestinni. „Ef þeir stóðu ekki undir þeim kröf- um sem gerðar voru til þeirra voru þeir færðir niður um stöðu. Lyudmila Savchuk, fyrrverandi starfsmaður Tókst að draga tröllin fram í dagsljósið. MYnd JOHn deLacOur, TwiTTer Pútín Ætlar sér að ná til unga fólksins. Savushkina-gata 55 Þar sem starfsemin er til húsa. Verðlaunaðir fyrir hand- tökuna Lögreglumennirnir sem hand­ tóku manninn sem grunaður er um sprengjutilræðið í Bangkok í Taílandi þann 17. ágúst fá vegleg peningaverðlaun fyrir. Breska ríkisútvarpið, BBC, hef­ ur eftir yfirmanni lögreglunnar þar í landi að mennirnir fái sem nem­ ur rúmum tíu milljónum króna. Búið var að heita peningaverð­ launum í þeirri von að þau leiddu til handtöku sökudólgsins en yfir­ maður lögreglu, Somyot Pumpan­ muang, segir að lögreglumennirn­ ir hefðu sjálfir aflað upplýsinga sem leiddu til handtökunnar. Tutt­ ugu létust í sprengingunni. Maðurinn sem var handtek­ inn á dögunum er 28 ára og fannst búnaður til sprengjugerðar við húsleit á heimili hans. Hand­ tökuskipun hefur verið gefin út á hendur 26 ára konu sem grunuð er um að hafa skipulagt tilræðið. Lést 50 árum eftir slysið Átta ára drengur slasaðist alvar­ lega þegar hann varð fyrir bif­ reið í Pennsylvaníu í júlí 1965. Það var ekki fyrr en á dögun­ um, 50 árum síðar, að meiðsli sem drengurinn hlaut í slysinu drógu hann til dauða. Maðurinn, Richard Albright, náði aldrei full­ um bata eftir slysið og kemur fram í dánarvottorði að Albright hafi látist af slysförum. Albrigt, sem var 58 ára þegar hann lést, lamaðist og brotnaði illa í slys­ inu og segir dánardómstjóri, Eric Minnich, að enginn vafi leiki á að meiðsli sem hann hlaut í slysinu hafi dregið hann til dauða. Í viðtali við Morning Call seg­ ir Minnich að sjaldgæft sé að slys dragi fólk til dauða svo löngu síð­ ar eins og í tilviki Albright. Við elskum umslög - en prentum allt mögulegt • Nafnspjöld • Reikninga • Veggspjöld • Bréfsefni • Einblöðunga • Borðstanda • Bæklinga • Markpóst • Ársskýrslur Hagnýtar upplýsingar www.umslag.is Umslag | Lágmúli 5 | Reykjavík | Sími 533 5252 | umslag@umslag.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.